Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1999, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1999, Blaðsíða 2
BLÁSARAKVINTETT REYKJAVÍKUR Á MYRKUM MÚSlKDÖGUM f GERÐUBERGI FJÖRLEIKUR JÓNS ÁSGEIRS- SONAR FRUMFLUTTUR BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur; Hafsteinn Guðmundsson, Einar Jóhannesson, Jósef Ogni- bene, Daði Kolbeinsson og Bernharður Wilkinson. VERK eftir Pál Pampichler Pálsson, Jón Ás- geirsson, Dianna Burreil, John Cage og Jón Leifs eru á efnisskrá tónleika Blásarakvintetts Reykjavíkur á Myrkum músíkdögum í Gerðu- bergi í dag kl. 16. Fyrsta verkið á efnisskránni er Expromptu eftir Pál Pampichler Pálsson. Það er byggt á Impromptu í b-dúr eftir Schubert, var upphaf- lega skrifað fyrir fíðlu og píanó árið 1997 og frumflutt í þeirri mynd í Austurríki í september 1997. I desember sama ár umskrif- aði Páll verkið fyrir blásara- kvintett og í þeirri útgáfu var verkið verðlaunað, líka í Austurríki, í júní síðastliðn- um. Verkið verður nú flutt í fyrsta sinn hér á landi. „Þá flytjum við kvintettinn Fjörleik eftir Jón Asgeirs- son, sem er saminn sérstak- lega fyrir okkur og er hér um frumflutning að ræða. Verkið er samið 1998, svo þetta er alveg splunkunýtt," segir Bern- harður Wilkinson flautuleikari. „Þetta er leikur með tóna,“ segir Jón As- geirsson um Fjörleikinn sinn. „Fyrsti kaflinn er byggður á þremur stefjum, sem er svo skip- að, að form kaflans minnir nokkuð á stefröðun sónötunnar; upophafs, auka og lokastef. Aann- ar kaflinn er hrynlaust millispil, byggður á hrynlausri samskipan hljóma og þjónar sem inngangur að þriðja þætti, sem er þrískiptur og nefnist Snertla, Stillur og Stefja. Snertlan er einskonar tokkata, en Stillurnar hægur þáttur, sem ber sterkan svip af kóral, en eftir að Snertlan er endurtekin, kemur fimmradda fúga, Stefja, og lýkur kaflanum á stuttum út- drætti úr Snertlunni“ Efth- breska tónskáldið Dianna Burrell verð- ur fluttur kvintett frá árinu 1990. „Hún hefur á undanfórnum árum haslað sér völl meðal þeirra fremstu í Englandi, en sem dæmi má nefna að tónlistartímaritið Gramophone valdi lágfiðlukonsert hennar frá 1997 besta nútíma- verk ársins,“ segir Bernharður Wilkinson. „Svo erum við með verk eftir John Cage, en hann lærði hjá Schönberg. Verkið er skrifað árið 1938 og það er í þremur köflum, sem hver fyrir sig er skrifaður á einum degi. Það er svo- lítið sérstakt," segir Bernharður og bætir við að í raun sé það hvorki líkt Schönberg né seinni verkum Johns Cage, sem hann varð síð- ar þekktur fyrir. Tónleikunum lýkur svo með þremur þjóð- lögum í útsetningu Jóns Leifs, en þau eru Hestavísur, Sorgarlausn og Fuglavísur. „Ekkert þessara verka Jóns er skrifað fyrir blásarakvintett en þessi þrjú hafa verið um- rituð fyrir blásarakvintett," segir Bernharð- ur. Blásarakvintett Reykjavíkur er tónlistai- hópur Reykjavíkurborgar 1998-1999. Hann hefur starfað allt frá árinu 1981 við aukinn orðstír hérlendis sem erlendis. í fréttatilkynn- ingu frá Gerðubergi segir að kvintettinn hafí lagt sig fram um að flytja verk íslenskra tón- skálda og flutt verk þeirra á tónlistarhátíðum víða um heim. „Hér á landi hefur þátttaka í verkefninu Tónlist fyrir alla verið kvintettinum mikilvæg, og hann heldur því starfí áfram. Geisladiskar Blásarakvintetts Reykjavíkur hjá Chandos hafa hlotið mikið lof, þ.á m. mestu viðurkenningu Penguin-útgáfunnar,11 segir ennfremur í fróttatilkynningunni. Jón Ásgeirsson - Fjörleikur hans verður frumfluttur á tónleikunum. AAÁLÞING UM JÓN LEIFS í GERDUBERGI MIKIL ENDURREISN Á SÍÐUSTU TÍU ÁRUM DAGSKRÁ UM HAGALÍN Á HÓTEL REYKHOLTI SNORRASTOFA og æskulýðs- og menning- armálanefnd Borgarfjarðar munu standa fyrir hátíðardagskrá um Guðmund G. Hagalín rit- höfund, „Hugsað til Hagalíns“, á morgun, sunnudag kl. 15 á Hótel Reykholti. Guðmund- ur Hagalín bjó síðustu ár ævinnar í Reykholtsdal (1965-1985). Guðmundur og Unnur kona hans byggðu sér fallegt timburhús á Kleppjárnsreykjum í mynni Reykholtsdals og nefndu það Mýrar. Guðmundur lést árið 1985, 86 ára gamall, og bjó Unnur áfram í húsinu næstu 10 árin, eða þar til hún flutt- ist á Kumbaravog, dvalar- heimili fyrir aldraða á Eyr- arbakka. Unnur lést sl. haust og var útför hennar gerð frá Reykholtskirkju 10. október. Guðmundur fylgdist grannt með fyrirætlun- um um uppbyggingu Snorrastofu í Reykholti og hafði mikinn áhuga á viðgangi hennar. Arið 1990 ákvað Unnur Hagalín síðan að bókasafn þeirra hjóna yrði varðveitt í Snorrastofu, enda hafði það verið áhugi Guðmundar. Safninu fylgja þau handrit Guðmundar, sem varðveist hafa, auk nokkurra annarra muna. Á Hátíðardagskránni um Hagalín mun Flosi Olafsson, leikari á Bergi í Reykholtsdal, lesa úr verkum skáldsins og Ungmennafélag Reykdæla verður með leiklestur úr Kristrúnu í Hamravík. Þá verða fjögur erindi flutt: Jónína Eiríksdóttir, kennari og bóka- safnsfræðingur í Kleppjárnsreykjaskóla, sem jafnframt er fundarstjóri, mun spjalla stutt- lega um kynni sín af þeim hjónum Unni og Guðmundi. Þorsteinn Pétursson, sem til fjölda ára var kennari á Kleppjárnsreykjum, mun greina frá kynnum sínum af skáldinu. Þröstur Helgason, bókmenntafræðingur og blaðamaður Morgunblaðsins, mun flytja er- indið „Hagalín og bókmenntasagan". Að lok- um mun Eyvindur Pétur Eiríksson, rithöf- undur og cand. mag., flytja erindið „Siglinga- og sjómennskulýsingar í bókum Hagalíns". TÓNSKÁLDAFÉLAG íslands efnir til mál- þings um Jón Leifs og verk hans í Gerðubergi í dag kl. 17. Málþingið, sem er hluti af dag- skrá Myrkra músíkdaga, hefst strax að lokn- um tónleikum Blásarakvintetts Reykjavíkur. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða tónskáldin Atli Heimir Sveinsson og Hjálmar H. Ragnarsson, Öm Magnússon píanóleikari og Sigurður A. Magnússon rithöfundur en um- ræðunum stjómar Ævar Kjartansson dag- skrárgerðarmaður hjá Ríkisútvai-pinu. Fjallað verður um Jón Leifs frá þremur sjónarhom- um; tónskáldið, baráttumanninn og manninn. Sjónum verður beint að tónlist hans, félags- málastörfum, hagsmunabaráttu og áhrifum hans á íslenska tónlist og menningu. Fremsta tónskáld íslendinga á fyrri hluta þessarar aldar „Á síðustu tíu áram hefur orðið mikil end- urreisn tónlistar Jóns Leifs og hann skipar nú ótvírætt þann sess að vera fremsta tónskáld Islendinga á fyrri hluta þessarar aldar. Þessi endurreisn hefur í raun og vera orðið á undraskömmum tíma, eftir að tónlist hans hafði legið mikið í þagnargildi, og þess vegna hafa mjög litlar umræður farið fram um hans tónlist hingað til. En nú er fræðimennska á þessu sviði farin að blómstra," segir Hjálmar H. Ragnarsson. Ritgerð hans til meistara- prófs frá Comell háskólanum í Bandaríkjun- um, sem kom út árið 1980 og fjallar um Jón Leifs og verk hans, var fyrsti vísirinn að end- urreisninni, sem Hjálmar segir að hafi þó fyrst farið að taka á sig mynd upp úr 1988. „Jón Leifs virðist enn þann dag í dag vera mjög umdeildur maður og þess vegna eiga ör- ugglega eftir að koma fram ýmis sjónarmið og skiptar skoðanir á málþinginu. Hann er orð- inn mjög þekktur meðal íslendinga, ekki síst vegna kvikmyndarinnar Tár úr steini, og tón- list eftir hann hefur í auknum mæli verið flutt erlendis. Þannig að það er kominn tími til þess að fara að fjalla um tónlist hans með skipulögðum hætti. Það sem mér finnst mest spennandi að kanna er hvernig yngri kynslóð- ir taka tónlist Jóns Leifs og ég mun spyrja þeirrar spurningar sérstaklega á málþing- inu,“ segir Hjálmar. ------------- HAFNARFJARÐAR- LEIKHÚSIÐ SETUR SÖLKU VÖLKU Á SVIÐ HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ Hermóð- ur og Háðvör mun setja upp nýja leikgerð Hilmars Jónssonar og Finns Arnars Arnar- sonar á Sölku Völku eftir Halldór Laxness næsta haust. Sýningin verður í samvinnu við leikhópinn Annað svið, sem María Ellingsen er í forsvari fyrir. Að sögn Hilmars Jónssonar, sem leikstýra mun sýningunni, er vinna að leikgerðinni komin á veg en „eins og alltaf hjá okkur verð- ur leikgerðin að mestu unriin samhliða upp- setningunni". Gerir Hilmar ráð fyrir að Salka Valka verði umfangsmesta verkefni Hafnar- fjarðarleikhússins til þessa en það var sett á laggirnar árið 1995. Spurður um tilefni verkefnisins segir Hilm- ar alltaf tilefni til að setja verk Halldórs Lax- ness á svið. „Það er hins vegar ekkert laun- ungarmál að sameinaðir kraftar Hafnarfjarð- arleikhússins og Annars sviðs gera okkur kleift að leggja út í þetta. Maður fer ekki út í að setja verk þessa mesta snillings íslands á svið nema maður hafí bolmagn til að gera það með hætti sem sómi er að.“ MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU mammcnmsmmmti Ásmundarsafn - Sigtúni Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 Samsýning 15 listamanna í baksal. Til 31. jan. Gallerí Horn Dæsus. Til 21. jan. Gallerí Stöðlakot Margrét Guðnadóttir. Til 24. jan. Gallerí Sævars Karls Hlynur VS Hlynur. Til 28. jan. Ljósmyndasýning kaffiframleiðandans La- vazza. Til 1. febr. Gerðarsafn Vestursalur: Nobuyasu Yamagata. Austursal- ur: Haukur Harðarson. Neðrí hæð: Sigríður Rut Hreinsdóttir. Til 24. jan. Menningarmiðstöð Gerðuberg Alan James. Til 31. jan. Hallgrímskirkja Þorbjörg Höskuidsdóttir. Til 18. febr. Ilafnarborg Kaffe Fasett. Til 8. febr. Ingólfsstræti 8 Ásgerður Búadóttir. Til 14. jan. Kjarvalsstaðir Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Til 24. maí. Vestursaiur: Britt Smelvær. Til 7. mars. Mið- rými: Einar Garibaldi Einarsson. Til 14. mars. Listasafn ASÍ Gi-yfjan: Einar Már Guðvarðarson. Ásmundar- salur: Helga Egilsdótth'. Arinstofa: Ný aðföng. Til 24. jan. Listasafn Einars Jónssonar, Skólavörðuholti Opið laugardaga og sunnudag 14-17. Höggmyndagarðurinn opinn alla daga. Lislasafn íslands 80/90. Speglar samtímans. Til 31. jan. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Bjarni Jónsson. Tii 19. jan. Nýlistasafnið Norðurleið - Suðurieið: Ulrich Dúrrenfeid, Ul- rike Geitel, Ralf Werner, Erwin Ilerbst, Joachim Fleischer og Dominique Evrard. Til 31. jan. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suðurgötu Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-10. Til 14. maí. Ráðliús Reykjavíkur Tjamarsalur: Edda Björgvinsdóttir. Til 25. jan. SPRON, Mjódd Jón Axel. Til 19. feb. TÓNLIST Laugardagur Menningarmiðstöðin Gerðuberg: Myrkir mús- íkdagar: Blásarakvintett Reykjavíkur. Kl. 16. Málþing um Jón Leifs kl. 17.30. Sunnudagur Salurinn, Kópavogi: Myrkir músíkdagar. Ýms- ir flytjendur. Kl. 17. Þriðjudagur Iðnó: Poulenc hátíð. Kl. 20.30. Miðvikudagur Salurinn, Kópavogi: Myrkir músíkdagar: Guð- rún Birgisdóttir, Martiai Nardeau, Kolbeinn Bjarnason og Áshildur Haraldsdóttir. Kl. 20.30. Fimmtudagur Háskólabió: Sinfóníuhljómsveit Islands. Einl. Jeffrey Siegel. Stjómandi Rico Saccani. Ki. 20. Föstudagur Tjarnarbíó: Myrkir músíkdagar: Áskell Más- son, Ríkharður H. Friðriksson, Elías Davíðs- son, Guðrún Oskarsdóttir og Camilla Söder- berg. Kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Brúðuheimiii, sun. 17., fös. 22. jan. Tveir tvöfaldir, lau. 16. jan. Bróðir minn ljónshjarta, sun. 17. jan. Abel Snorko býr einn, lau. 16., fim. 21. jan. Solveig, fim. 21. jan. Maður í mislitum sokkum, Iau. 16., sun. 17., fos. 22.jan. Borgarleikhúsið Pétur Pan, lau. 16., sun. 17. jan. Búasaga, fös. 22. jan. Sex í sveit, lau. 16. jan. íslcnska Óperan Ávaxtakarfan, sun. 17.jan. Hellisbúinn, lau. 16., mið. 20., fós. 22. jan. Ilinn fulikomni jafningi, sun. 17., fim. 21. jan. Loftkastalinn Mýs og menn, fmms. mið. 20. jan. Fös. 22. jan. Iðnó Rommí, lau. 16., sun. 17. jan. Þjónn í súpunni, fös. 22. jan. Dimmalimm, sun. 17. jan. Tjarnarbíó Svartklædda konan, lau. 16. jan. Bak við eyrað Menningarmiðstöðin Gerðubcrg Málþing hljóðnandi radda, sun. 17., fim. 21. jan. Leikfélag Kópavogs Betri er þjófur í húsi en snuðra á þræði, lau. 16. jan. Möguieikhúsið v. Illemm Hafrún, fmms. sun. 17. jan. Snuðra og Tuðra, sun. 17. jan. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist brcflega eða á netfangi fyrir ki. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn- inglistir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNiNG/LISTIR 16. JANÚAR 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.