Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1999, Blaðsíða 3
LESBéK MORGUNBLAÐSINS - MENNING I ISTIB 3. TÖLUBLAÐ - /4.ÁRGANGUR EFNI Brennuöldin hefur 17. öldin verið nefnd vegna þess að alþýða manna og jafnvel lærðir menn trúðu þá á mátt galdra og var það oft rakið til galdra þegar heilsuleysi lagðist á fólk. Fyrir þær sakir, sem voru vitaskuld tilbúnar, var fólk dregið á bálið og einkum voru Vestfirðingar ötulir galdrabrennu- menn og þá fyrir atbeina manna eins og Jóns lærða. Olína Þorvarðardóttir þjóð- fræðingur hefur skrifað greinaröð um brennuöldina og birtist fyrsta grein hennar hér. Dogonland London er ennþá nafli leikhúsheimsins segir Sveinn Haraldsson sem tók púlsinn á enskri leiklist og segir í grein frá því, sem á boðstólum er. Nú í seinni hluta janúar- mánaðar eru 18 söngleikir í gangi í London. Og sum leikritin hafa gengið ár- um saman í leikhúsum ensku höfuðborgar- innar meðan önnur koma og fara. Islenzk- ir leikhúsgestir eiga kunningja á ensku Ieiksviðunum; Svartklædda konan er nú sýnd bæði í London og Reykjavík og eins er um Pétur Pan svo dæmi séu tekin. hafa líklega fæstir heyrt nefnt, en það er í Vestur-Afríku. Þar var Silja Salé á ferð- inni og segir sögu af glaðværu fólki svo sem herra Madaní, sem á margar konur og sefur hjá þeim til skiptis. Sú, sem hann sefur hjá hverju sinni, eldar matinn fyrir hinar sem fara á markað til að selja fram- leiðsluna. Fyrir utan fjölkvæni er mönnum leyft að eiga vinkonur utan hjónabands. Kirkjur um víða veröld Gísli Sigurðsson hefur gluggað í nokkur tímarit um arkitektúr og fundið dæmi um nýjar eða nýlegar kirkjur sem bæði eru frumlegar og hver annarri ólíkar. Þetta eru kirkjur í Paks í Ungverjalandi, Mana- gua í Nicaragua, tvær kirkjur í París og ein í Mannistö í Finnlandi. Bókmennta- verðlaunum Norðurlandaráðs verður úthlutað á þriðju- daginn í Kaupmannahöfn. Dagný Krist- jánsdóttir er höfundur greinarinnar Bentu á þann sem að þér þykir bestur, en þar segir af þeim höfundum og bókum, sem tilnefnd eru til verðlaunanna. FORSÍÐUMYNDIN: .ef til er almætti í himingeimnum, þá er það í snjótitlíngum. Hvað sem á dynur, snjótitlíngurinn lifir af; stórhríðarnar eru ekki fyr um götur geingnar en hann er orðinn sólskríkja." (Úr Kristnihaldi undir Jökli eftir Halldór Kiljan Laxness.) Forsíðumyndina tók Óskar Andri Víðisson. JOHN KEATS HAFIÐ Sölvi Björn Sigurðarson þýddi Um eilífð hvíslar öldufallsins þungi, sitt angurijóð um sendnar eyðistrendur uns leggst á hafsins hella töfradrungi, er Hakít bruggar þeim við skuggalendur. í slíkri hægð er falinn Ijóðsins lungi, einn lítill hnipur vart mun ögri sendur. Pó vekur dagsins vitund sjávarþungi, er vindar himins loks fá frjálsar hendur. Ó þú, sem hverfh' augum angurþjáðum, skalt eygja hafsins víða ölduflöt, og leggja við hlustir, hafíð kveðjur ljóð. Ó þú, sem velgja dagsins deilh’ ráðum, skalt dvelja þar um stund af værðarhvöt, uns loks þú syngur sjálfur hafsins óð. John Keats, 1795-1821, var enskt Ijóðskóld og eitt helsta skáld rómantísku stefnunnar í enskum bókmenntum. Þýðandinn shjndar nám í Frakklandi. FRUMUR FRAM- TÍÐARINNAR RABB ✓ Afurðuskömmum tíma hafa ýmsar greinar raunvísinda og læknis- fræði, sem fjalla um erfðir og frjósemi, vak- ið athygli fólks. Þetta birtist meðal annars í orðaforðanum, orð eins og „klónun“ er skyndilega komið á hvers manns varir. Rannsóknir á ýmsum svið- um þessara vísindagreina virðast nú vera að skila árangri í stórum stíl. Sumir telja hér eina mestu byltingu í sögu mannkyns- ins í uppsiglingu og sjá í hillingum þá fögi’u veröld sem gæti þróast í skjóli nýrrar þekkingar - aðrir sjá blikur á lofti. Byltingum af þessu tagi fylgir óvissa og spurningar vakna, meðal annars siðferðis- legs eðlis. Og þá renna tvær grímur á marga, ekki síst á vísindamennina og læknana sjálfa þegar þeir gera sér ljóst hvaða afleiðingar hin nýja þekking gæti haft í för með sér og hvaða áhætta fylgir henni. A undanförnum misserum hafa fjöl- miðlar um víða veröld flutt tíðindi úr rannsóknarstofum þeirra vísinda sem hér um ræðir, bæði um menn og dýr. Sumt vekur vonir, einkum þegar um er að ræða nýjar leiðir til að greina orsakir erfiðra sjúkdóma og jafnvel að lækna þá. Annað vekur hins vegar blendnar til- finningar, ótta og efa, andúð og andstöðu. Mestar efasemdir setur að mönnum þeg- ar málið snýst um hugsanlegar breyting- ar á erfðavísum manna og annarra lífvera. Tilgangurinn er oftast sá að greina eða lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá. En hann getur einnig verið annar. Ýmsir möguleikar opnast. Sumir sjá sér leik á borði, ekki aðeins að gera foreldrum kleift að eignast börn sem munu ekki þjást af afleiðingum alvar- legra erfðasjúkdóma, heldur einnig börn sem er búið að „endurbæta" þar sem erfðavísum þeirra hefur verið breytt í þeim tilgangi að búa til afburðafólk, í sumum tilvikum einnig af „réttu“ kyni. Sumir tala jafnvel um það sem raunhæfan möguleika að lengja líf mannsins um ára- tugi með þessum aðferðum. Og það sem meira er: að hanna barnið erfðafræðilega þegar í upphafi, með hjálp öreindasmá- sjáa og annarrar hátækni, áður en það fer að vaxa í móðurkviði. Þá er ekki alltaf ein- göngu verið að tala um eitt og eitt barn heldur hafa sumir í huga varanlega breyt- ingu á erfðavísum sem erfast frá kynslóð til kynslóðar. Engan þarf því að undra að spurningar vakni: Hvað er rétt og hvað er rangt, veldur maðurinn þekkingu sinni, hvernig getur hann haldið svo á málum að ný þekking geri ekki út af við hann? Skall ekki hurð nærri hælum þegar kjarnorkan kom til sögunnar, átti ekki að nýta hana til góðs, en hvað gerðist? Hin nýja þekk- ing olli sjúkdómum og dauða fólks svo hundruðum þúsunda skipti og hélt heims- byggðinni þar að auki í heljargreipum ótta og skelfingar í áratugi. Enn sér ekki fyrir endann á þeim vandamálum sem koma upp við úreldingu kjarnorkuvopna stórveldanna og urðun geislavirks úr- gangs frá kjarnorkuverum. Það var síður en svo alltaf skynsemin ein sem réð ferðinni og því fór fjarri að mannúðleg öfl héldu ævinlega um taumana. Vísindamennirnir sjálfir voru iðulega víðs fjarri þegar kom að pólitísk- um ákvörðunum um beitingu þekkingar- innar. Það reyndist oft auðvelt að valta yf- ir þá sem öfluðu hinnar nýju þekkingar með þrotlausum rannsóknum, hrekja þá út í horn, og jafnvel að brennimerkja í bak og fyrir þá sem vildu vara við (sbr. pólitísk örlög Oppenheimers og Schakarows). En hvað gerist núna eftir lok kalda stríðsins? Hvernig verður nú spilað úr hinum nýju spilum þekkingarinnar, þ.e.a.s. líftækninnar? Mun einkafjármagn- ið stefna þróuninni óheft á hættulegar brautir? Hvers konar eftirlitsstofnanir eru nauðsynlegar á líftækniöld? Margir eru kallaðir til ábyrgðar á þróun hinnar nýju þekkingar, bæði vísindamenn og aðr- ir. „Eina farsæla leiðin að mínu viti,“ sagði French Anderson við Kaliforníuhá- skóla fyrir skömmu, „er sú að almenning- ur verði sem best upplýstur um hina nýju tækni og hugsanlegar hættur sem hún felur í sér. Ný þekking hefur síður en svo alltaf reynst manninum farsæl. Hún hefur borið í sér fyrirheit um nýja og betri tíma en fyrr en varði kom bakhliðin í ljós.“ Enginn hefur komist lengra í því að hanna barnið í móðurkviði ef svo má að orði komast en Anderson þessi. Aðrir eru „bjartsýnni", þeirra á meðal er Gregoi-y Stock, sem stjórnaði alþjóð- legri ráðstefnu í Kaliforníu á sl. ári. Hann telur það deginum ljósara að unnt sé að breyta erfðum einstaklingsins og láta þær breytingar ganga áfram frá einni kynslóð til annarrar. Og hann telur þá þróun æskilega. Hvar eru mörk bjartsýni og sjálfsblekkingar og hvers konar áhættu- mat á við? Vísindamenn og læknar hafa því fulla ástæðu til að vera á báðum áttum. Það eru ekki þeir sem taka ákvörðun um nýt- ingu niðurstaðna úr rannsóknum heldur aðrir. Hverjir? Því getur enginn svarað, en sagan gefur vísbendingar, ekki hvað síst saga undanfarinna áratuga. Óheppi- legt er hversu fjármagnsmarkaðurinn kemur í sívaxandi mæli inn í þróun erfða- tækninnar. Þeir sem fjalla um siðfræði í samtíman- um munu m.a. spyrja á þessa leið: Hvað gerist ef maðurinn tekur völdin og ákveð- ur sjálfur hvernig börnin verða að útliti, innræti og kynferði? Hvernig verður barn framtíðarinnar, hver verður fyrinnyndin að hinum fullkomna manni? Hvert stefnir mannkynið með sína eigin ímynd? Sérhver ný þekking og tækni ber í sér nýja von en tilhneiging mannsins til mikil- lætis er sjaldan langt undan. Stærilætið sljóvgar oft dómgreind og slævir raun- sætt mat. Draumur mannsins er að skapa heim án þjáningar og dauða, eigin heim sem lýtur honum einum, þar sem erfða- vísum manna og annarra lífvera er raðað saman eftir hentugleikum. En hvað gerist þegar maðurinn sjálfur setur þróun líf- heimsins markmið? Kannski verður það hin stóra spurning næstu aldar. GUNNAR KRISTJÁNSSON, REYNIVÖLLUM LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 23. JANÚAR 1999 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.