Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1999, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1999, Blaðsíða 19
 DANSLEIKHÚS MEÐ EKKA FRUMSÝNIR VERKIÐ BER í TJARNARBÍÓI í KVÖLD EINELTI TEKUR Á SIG ÝMSAR MYNDIR msgfifc |SS mfl V MfF Sýningin Ber er samblanda af dansi, leik og tónlist. Hér má sjá Karen Maríu Jónsdóttur og Guðmund Elías Knudsen í einu atriðanna. Einelti er þema sýningar- innar Ber sem Dansleikhús með Ekka frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld, laug- ardag. RAGNA SARA JQNSDOTTIR spiallaði við tvo meðlimi dansleikhúss- ins, þær Ernu Ómarsdóttur dansara og Hrefnu Hallgrímsdóttur leikara, sem sögðu henni að mark- miðið með sýningunni væri að gera fólk sér meðvitandi um einelti. « Morgunblaðið/Asdls Einelti ér þema sýningarinnar Ber sem Dansleikhús með Ekka frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld. HUGMYNDIN að því að gera einelti að umfjöllunarefni í dansleikhúsi kviknaði út frá ljóði sem 13 ára stúlka samdi og barst til dansleikhússins. Stúlkan hafði orðið fyrir ein- elti í skóla og fjallaði ljóðið um þá reynslu hennar. „Ljóðið hafði svo sterk áhrif á okkur að við spunnum síðasta verk okkar, sem sýnt var um síðustu jól í Þjóðleikhúskjallaranum, út- frá því,“ segir Hrefna Hallgn'msdóttir, leikari og einn meðlimur í dansleikhúsinu. Við nánari skoðun á einelti komust dans- leikhúsmeðlimir að því að einelti væri mjög útbreitt, ekki einungis í skólum heldur einnig á hinum ýmsu stöðum í þjóðfélaginu. Þeim þótti því ótrúlegt að fyi-irbærið fengi jafn litla athygli og raun ber vitni miðað við hversu sterk neikvæð áhrif það hefur á þolendur þess. „Fólk gerir sér ekki grein fyrir því þegar einelti á sér stað að það sé að gerast og krakkar sem leggja aðra krakka í einelti gera sér enga grein fyrir því hvað þolandinn þarf að ganga í gegnum," útskýi-ir Hrefna, og Erna Omarsdóttir dansari bætir við: „Þær myndir sem við bregðum upp eru allar byggðar á reynslu sem við höfum orðið fyrir, ýmist sem þolendur, gerendur eða áhorfend- ur eineltis. Það rifjast upp fyrir manni ýmsir atburðir sem gerðust í æsku og geta flokkast undir einelti, þótt maður hafi ekki litið á það sem slíkt þá.“ Unnið út frá texta „Sýningin hlaut nafnið Ber vegna þess að þegar einstaklingar verða fyrir einelti eru þeir berskjaldaðir, naktii- gagnvart öllum og öllu og geta hvergi falið sig,“ segi Hrefna. Auk þess að byggt er á eigin reynslu vinnur Dansleikhúsið einnig út frá texta eftir ýmsa ólíka höfunda. „Við vinnum mikið út frá ljóð- um Jacques Prévert og ýmsum öðrum texta svo sem okkar eigin. Við höfum safnað í möppu með fjölda greina og viðtala um ein- elti,“ segir Hrefna. I dansleikhúsi er leiklist, dansi og tónlist blandað saman. „Leikarar dansa og dansarar leika, það eru engin skýr mörk þai'na á milli. Texti, dans, tónlist og leiklist renna saman í eitt og styðja hvert annað á sviðinu," segir Erna, en Dansleikhús með Ekka er einn af fyi-stu hópum listamanna sem leggur fyrh' sig þetta listform hérlendis þótt þad sé mjög þekkt erlendis undir nafninu „physical theatre". Sýningin Ber er að hluta til unnin út frá sýningunni sem haldin var um jólin. Hún er þó mun viðameiri og hafa þær stöllur í Dans- leikhúsi með Ekka fengið liðsauka: þá Frið- rik Friðriksson og Richard Kolnby leikara og Guðmund Elías Knudsen dansara. Þá er Arni Pétur Guðjónsson listrænn stjórnandi sýningarinnar og Belginn Frank Pay semur tónlistina og sér um flutning hennar. Sýning- in er unnin með styrk frá menntamálaráðu- neytinu, Ungu fólki í Evrópu og Hinu hús- inu. Skólasýningar og verkefni tengd einelti fyrir skólakrakka Aimennar sýningar á Ber verða fimm og er sú síðasta fyrirhuguð 9. október. Til þess að gera skólakrakka sér meðvitandi um vanda- málið einelti og hve mikil og djúpstæð áhrif það hefur á þá sem verða fyrir því verða einnig skólasýningar á verkinu. Þær bekkjar- deildir sem koma á sýninguna munu jafn- framt vinna verkefni um einelti, bæði áður en þau koma á sýninguna og að henni lokinni. Með þessu móti vonast Dansleikhús með Ekka til þess að fræða börn um þetta alvar- lega vandamál. Dansleikhús með Ekka var stofnað árið 1995 af þeim Aino Freyju, Ernu, Kolbrúnu Onnu og Karen Maríu. Allir meðlimir hóps- ins eru menntaðir dansarar eða leikarar. Hópurinn hefur áður sett upp fjórar styttri sýningar hérlendis sem voru þyggðar á ólíku þema en meðlimir þess starfa með leik- eða danshópum ýmist hérlendis eða á erlendri grund. Dansleikhús með Ekka samanstendur af bæði leikurum og dönsurum. Þátttakendur í sýningunni Ber eru frá vinstri: Erna Ómarsdóttir, Friðrik Friðriksson, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Aino Freyja Jarvelá, Guðmundur Elías Knudsen og Hrefna Hallgrímsdóttir. Einn leikarann vantar á myndina, Richard Kolnby. !?berlin Sll I l Kli.lÖlíMW SIM BI.ST \ k \ IK M\ MH\ it Jr', m i . ..lil ST\ DO(,\l \ \l\ M)l\" I I////. I ) || íWk IX \l I llí I IU I \(,\H\I! - Sl \l 11! \|l 115 \ I \ \l)l!ll! SiÐAS I I S()N(A K oa» 4i MIFUNE MIIT M.S SIDS I I, S \N(, lcikstjóri S0REN KRAGH-JACOBSEN »l( GOÐAR SYND I HASKOLABIO r LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/LISTIR 2. OKTÓBER 1999 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.