Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.2000, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.2000, Blaðsíða 3
LESBÖK MORGLINBLAÐSENS ~ MENNING LISTIR 2. TÖIUBLAÐ - 75 .ÁRGANGUR EFNI Tíbet- landið á þaki heimsins Þetta er dularfullt land, ótrúlegt land, segir greinarhöfundurinn, Tómas Orri Ragnars- son, sem var þar á ferðinni. Trúarlífið er sér- stakt, einn ig menning og lifnaðarhættir. Með yfirráðum Kínverja hófust ofsóknir gegn munkum og fjölda klaustra var eytt. Rauðvik er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í vestursal Kjarvalsstaða í dag kl. 16. Þar sýna fjórir mynd- listarmenn frá jafn rnörguin löndum verk sín. Þetta eru Tumi Magnússon, fs- landi, Claus Eger- mose, Danmörku, Nina Roos, Finn- landi, og Johan van Oord, Hollandi. Undirtitill sýningarinnar er Málverk í og utan fókuss. Á myndinni getur að líta eitt verka Ninu Roos á sýningunni. FORSÍÐUMYNDIN HeimsreisurÁrna rá Geitastekk Árni Magnússon var 18. aldar bóndi vestur í Döium, en tók sig upp og hélt á vit ævintýr- anna. Fyrst á skipi Austur-Asíufélagsins danska í siglingu til Kína og síðar varð hann sjálfboðaliði í her Rússakeisara og tók þátt í sjóhernaði gegn Tyrkjum á Miðjarð- arhafi. Árni skrifaði ferðabók og Gfsli Sig- urðsson hefur unnið greinina upp úr henni. Fúnksjónalismi í kreppu í SÍÐARI grein sinni um hönnun á um- brotatíma 7. áratugar 20. aldar skrifar Baldur J. Baldursson uin nýja fagurfræði sem hafði mikil áhrif á hönnun, þ.á m. var poppmenningin, gerviefnin og hin italska andhönnun. Dyrfjöll eru með tignarlegri fjöllum landsins og sjálfar dyrnar sem þarna sjást eru mikilfenglegar. Ljósmynd: Snorri Snorrason. ROBERT FBOST ÁÐHJÁ SKÓGARJAÐRI UM KVÖLD í HRÍÐ HJÖRTUR PÁLSSON ÞÝDDI Ég ætla víst hver á hér skóg en aldrei gruna mundi þó að stundarkorn égstaðarnem og stari á skóg hans fyllast snjó. Ogklárinn óðar undrast fer að engan bæ ígrennd hann sér en aðeins vatnið ísi lagt það ársins kvöld sem dimmast er. Það hvín í bjöllu. Hvað er að? Hann hristir klafann, vill af stað. Nú andargolan hægt oghljótt og hrynur mjöll á blað við blað. Þótt rjóðrin fyllist rökkurseið þá rýfég hvorki heit né eið, í náttstað á ég langa leið, í náttstað á églanga leið. Robert Frost (1874-19ó3) var eitf merkasta Ijóðskáld Bandaríkjanna á 20. öld. Þýðandinn er skáld og þýðandi. BARBIE, GAME BOY OG MJÓLK- IN ÚR NAUTINU RABB Alla ævi hef ég átt því láni að fagna að hafa börn í návist minni. Þau hafa komið úr ýmsum áttum en flest hafa þau tengst fjölskyldunni, þó með ólíkum hætti. Þar af leið- . andi hafa bundist með okkur margvísleg tilfinningabönd, stund- um á yfirborðinu en stundum djúp og ein- læg. Og þrátt fyrir alla umræðu um breytta tíma, nýja öld og nýjan heim finnst mér barnssálin ævinlega vera söm við sig og þarfnast nákvæmlega sömu næringar til að finna til vellíðunar og öryggis og einu sinni var. Þar hefur lítið breyst en þar liggja rætur framtíðarinnar. - Vel að merkja. Gömlu ævintýrin eru hreint ekki úrelt þrátt fyrir Barbie og Game-Boy. Rauðhetta og Mjallhvít lifa enn góðu lífi og óhræsið hún Fóa feykirófa hefur löng- um verið í miklum metum hjá smávinum mínum. Hálfvaxinn strákur hlakkar til þess allt haustið að fá að skera út laufabrauð með stórfjölskyldunni og 10 ára gömul hnyðra telur það hámark jólavertíðarinnar að stinga út piparkökur og mála með glass- úr. En það sem mér finnst skemmtilegast af öllu er að krakkarnir hlæja að nákvæm- lega sömu bröndurunum og við gerðum í gamla daga og gildir þá einu að þeir kallast núna djókar. Að vísu hefur ýmislegt bæst í safnið, svo sem ljóskusögurnar sem smám saman eru að ryðja Hafnarfjarðarbröndur- unum úr vegi en þeir voru misjafnlega vin- sælir þegar ég var sjálf að ala upp unga Hafnfirðinga hér um árið. Þá voru líka dregnar upp úr fyrnskunni ýmsar skondn- ar gátur, sem maður braut lítinn heila um í eina tíð, og eru enn gjaldgengar í jólaboð- um; uppspretta hláturs og gleði. Oft heyr- ist því fleygt að allt hafi verið betra í gamla daga og menn taka djúpt í árinni yfir því skeytingarleysi sem nútíminn sýnir börn- um. Sjálfsagt er eitthvað hæft í slíkum full- yrðingum en ætli við sitjum ekki sum eftir með glýju í augum er við minnumst gam- alla tíma. Eg man varla eftir því að fólk hafi viðrað áhyggjur vegna barna fyrr en ég var orðin rígfullorðin og hafði séð mikið og margt. Hugtakið einelti er til dæmis nýtt af nálinni þótt sjálft fyrirbærið hafi verið yfir og allt um kring en látið óátalið. Hugtakið lesblinda var heldur ekki til en þess í stað heill herskari af tossum sem skólakerfið og samfélagið meðhöndluðu af fyrirlitningu. Vangefnir einstaklingar reikuðu um stræti og torg og uppskáru illsku og háðung. Og eru allir búnir að gleyma hrekkjusvínunum sem eltu uppi fórnarlömb sín af stakri kost- gæfni, trúlega sökum þess að sjálf áttu þau um sárt að binda? Sé það satt að börn verði útundan í góð- æri er það eins mikill sannleikur að þau verði útundan þegar hart er í ári því að meginreglan á öllum tímum virðist vera sú að fólk þurfi að standa sig. Þetta gerist á kostnað barnanna en verður þeim jafn- framt fyrirmynd. A uppvaxtarárum mínum hafði þessi fyrirmynd hvetjandi áhrif á sterka og dugmikla einstaklinga sem sviptu þjóðinni á svipstundu frá fátækt til velsældar. Aðrir flutu með eða urðu hrein- lega undir. Nú á tímum ætla allir að standa sig og gera jafnframt kröfu til þess að sam- félagið búi þannig að börnum þeirra að þau geti skapað sér góða stöðu í hörðum heimi. Þetta er sá veruleiki sem nú blasir við og þrátt fyrir allar úrtölur býr íslenskt samfé- lag miklu betur að börnum sínum en nokkru sinni fyrr. Fyrir tilstilli tækni og vísinda hefur skólakerfið þróað margvísleg úrræði fyi’ir börn með sértæka námsörðug- leika og fötlun. Til allrar hamingju er það liðin tíð að kennarar leggi nemendur sína í einelti og niðurlægi þá eins og tíðkaðist til skamms tíma. Félagsleg aðstoð hefur þróast farsællega og úr sögunni að fólk þurfi að blygðast sín fyrir fátækt. Góðærið hefur rutt brautina fyrir aukið umburðar- lyndi og mannúð. Myndast hefur jarðvegur til þess að hver og einn geti staðið sig á eig- in forsendum. En hvar er það þá sem skórinn kreppir? A hvaða hátt hafa börnin orðið útundan í góðærinu? Svarið er: vegna græðginnar. Það fer nefnilega ekki endilega saman að búa vel að sínu og að eignast alla skapaða hluti. En ef foreldrarnir leggja þetta tvennt að jöfnu gera börnin það líka, að ekki sé minnst á unglingana. Við skellum skuldinni á samfélagið, á auglýsingarnar, á nágrannann en ábyrgðina berum við sjálf. Og með því að setja neyslunni ekki eðlileg mörk skekjum við grundvöllinn undir fjár- hagslegii getu, daglegu lífi og samfélagi við börnin. Þar að auki stuðlum við að verð- mætamati sem börnin vita, í innsta eðli sínu, að er rangt. Sú barnabók, sem ég hef haft hvað mest dálæti á, er Palli var einn íheiminum. Hún sýnir á einfaldan hátt að öll auðæfi verald- ar eru einskis virði ef enginn nýtur þeirra með manni. Hún sýnir að hlýleg atlot móð- ur geta fremur en nokkuð annað bægt frá ógn og skelfingu. Hún kennir börnum á einfaldan hátt að greina kjarnann frá hism- inu. I því felst raunar hlutverk uppaland- ans á öllum tímurn, hvort sem blása hlýir vindar eða svalir. I því felst einnig vald hans og áhrif á heilbrigt sálarlíf einstakl- ings í mótun. Það vald getur engin auglýs- ingabrella hrifsað frá honum sé því beitt af visku og sanngirni. Mér dettur ekki í hug að skammast yfir Barbie og Game Boy. Þau eru tímanna tákn og gegna sama hlutverki og leggur og skel fyrr á tímum. Ég veit að tölvur og gemsar eru fremst á óskalistum hálfstálp- aðra krakka og eni hluti af samfélagsleg- um veruleika þeirra. En ég veit líka að gamla ævintýrið lifir, og hef orðið vitm að þvi að harðgerðir unglingar felldu tár yfir sögu af munaðarlausum indíánadreng. Og ég þykist vita að þrátt fyrir alla eftir- væntingu yfir jólagjöfum næsta ár skiptir piparkökubaksturinn ekki minna máli, svo að ekki sé talað um laufabrauðsdaginn. Kannski verður þá líka rifjuð upp gátan um það hvor á rétt á mjólkinni úr nautinu, eig- andi þess eða granni hans á jörðinni þar sem það bítur gras. GUÐRÚN EGILSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. JANÚAR 2000 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.