Alþýðublaðið - 08.09.1983, Side 1
alþýöu-
blaðið m
Fimmtudagur 8. september 1983
140. tbl. 64. árg.
Guðmundur Einarsson, þingflokksfor-
maður Bandalags jafnaðarmanna:
„Hlýtur að mark-
ast af málefnum"
„Ég vil fyrir það fyrsta taka frani
að þetta er alrangt eins'og þetta er
sett upp í DV. En málið stendur
þannig, að þetta hefur ekki verið
rætt innan þingflokks Bandalags-
ins* né í miðstjórninni, en hug-
myndin um samstarf er komin fram
og inenn munu vafalaust ræða
hana. Hvað mitt persónulega álit
varðar þá er ég ekki á því að þetta
geti oröið svona. Slíkt samstarf,
hverjir sem í hlut eiga, hlýtur að
markast af málefnum. Við höfum
ýmislegt sem við höfum sett á odd-
inn en aðrir flokkar ekki tekið und-
ir,“ sagði Guðmundur Einarsson,
formaður þingflokks Bandalags
jafnaðarmanna þegar Alþýðublað-
ið innti hann álits á þeim hugmynd-
um sem fram hafa komið um sam-
starf Alþýöuflokksins og Banda-
lags jafnaðarmanna.
Guðmundur nefndi sem dæmi að
Bandalagið hefði sérstöðu varðandi
mál eins og vinnustaðafrumvarpið,
Guðmundur Einars-
son:
„Ég tel ólíklegt að sam-
starf verði nánara en
gengur og gerist þegar
menn eru sammála á
Þingi.”______________
Kaflaskipti í
Blöndudeilunni:
Stefnt að
heildar-
samningi
Viðræðum vinnuveitenda og
fulltrúa verkalýðsfélaganna við
Blönduvirkjun er lokið í bili.
Horfið var frá gerð Blöndusamn-
ings og ákveðið að útkljá það sem
á milli bar innan ramma heildar-
samnings sem nær til allra virkj-
ana Landsvirkjunar.
Hjá sáttasemjara var í gær
fundur í málinu og samþykktu
deiluaðilar þar eftirfarandi þók-
un:
„Samkomulag varð um það hjá
samningsaðilum að stefnt skyldi
að gerð heildarsamnings vegna
virkjanaframkvæmda Lands-
virkjunar og að fundir um slíka
samninga hefjist sem fyrst.
Eins og fram kom í Alþýðu-
þlaðinu í gær ber enn nokkuð á
milli hjá deiluaðilunum, en nú á
sem sagt að reyna að ná sam-
komulagi á öðrum vettvangi.
stjórnkerfismál, fjölgun þing-
manna, verðlagsmál sjávarútvegs-
ins og fleira sem væri þess eðlis að
Framh. á 3. síðu
Kjartan Jóhannsson um samstarf A Iþýðu-
flokks og Bandalags jafnaðarmanna:
„Margt sem mælir
með slíku samstarfi"
„Ég tel að það sé svo fátt sem
raunverulega ber á milli í megin-
atriðum að grundvöllur sé fyrir
slíku samstarfi ef vilji er fyrir
hendi. Það er margt sem mælir
með slíku samstarfi og ég tel sjálf-
sagt að Alþýðuflokkurinn kanni
alla möguleika fyrir þessu“, sagði
Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðufiokksins, þegar Alþýðu-
blaðið innti hann álits á þeim hug-
myndum sem vaknað hafa upp á
Kjartan Jóhannsson
meðal forystumanna úr röðum
Alþýðuflokksins og Bandalags
Jafnaðarmanna um að flokkarnir
tækju upp samstarf um sameigin-
leg stefnumál á Alþingi.
„Það komu fram mjög jákvæð
viðbrögð við þessum hugmyndum
á flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins og ég er því persónulega
hlynntur að þessi möguleiki verði
kannaður", sagði Kjartan.
SAMNINGANEFND BSRB:
Verkalýðshreyfingin skeri upp herör
til að ná sjálfsögðum mannréttindum á ný
Samninganefnd Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja sam-
þykkti í gær tillögu stjórnar banda-
lagsins samhljóða þar sem ítrekað-
ar eru kröfur um að afturkölluð
verði lögbinding launa og að af-
numið verði bann við greiðslu vísi-
tölubóta á laun.
Samninganefnd B.S.R.B. leggur
þunga áherslu á þá kröfu, að ríkis-
stjórn og Alþingi virði þau sjálf-
sögðu mannréttindi sem felast í
Ráðstefna sveitarstjórnarráðs og frœðslu-
ráðs í Munaðarnesi um aðra helgi:
Sveitarstjórnarmál,
flokksmál
og landsmálin
Sveitarstjórnarráð og
fræðsluráð Alþýðuflokksins
efna til ráðstefnu um sveitar-
stjórnarmál, flokksmál og
stöðu landsmála almennt í
Munaðarnesi um aðra helgi —
frá kvöldi föstudagsins 16.
september n.k. til sunnudags-
ins 18. september. Til ráð-
stefnunnar eru boðaðir allir
sveitarstjórnarmenn Alþýðu-
flokksins hvaðanæva á
landinu, formenn og stjórnar-
menn flokksfélaga og full-
trúar Alþýðuflokksins í
nefndum og ráðum bæjar- og
sveitarfélaga.
Að sögn Kristínar Guðmunds-
dóttur framkvæmdastjóra Al-
þýðuflokksins, þá er það von
forsvarsmanna sveitarstjórnar-
ráðsins og fræðsluráðsins að ráð-
stefnan í Munaðarnesi verði fjöl-
menn og árangursrík. „Ég skora á
alla að mæta til leiks i Munaðar-
nesi“, sagði Kristín,„og strax eftir
helgi mun flokksskrifstofan hafa
samband við formenn félaga í öll-
um landshlutum og fá uppgefinn
fjölda þátttakenda. Einnig hvet ég
fólk til að hafa samband við
flokksskrifstofuna í síma 29273
og skrá sig“.
Kristin Guðmundsdóttir
Dagskrá ráðstefnunnar verður
birt í Alþýðublaðinu á morgun, en
ráðstefnan hefst með erindi Sig-
urðar E. Guðmundssonar borgar-
fulltrúa og Guðmundar Árna
Stefánssonar bæjarfulltrúa í
Hafnarfirði. Sigurður mun fjalla
um húsnæðismálin og nefnist er-
indi hans: Frjáls íbúðamarkaður
— fjölskyldan og sveitarfélögin.
Innlegg Guðmundar Árna ber
yfirskriftina: Kjarnorkuvopna-
laus sveitarfélög.
samningsrétti verkalýðsfélaga.
Samningsrétturinn er einn af
hornsteinum lýðræðisþjóðfélags.
Því verður íslensk verkalýðshreyf-
ing að skera upp herör til þess að ná
þessum lýðréttindum á ný.
Framfærsluvisitalan hækkaði 1.
mai um 23.38% og aftur 1. ágúst
um 21.45%. Upp í þessar miklu
verðlagshækkanir hefur launafólk
fengið aðeins 8% 1. júní og fær
væntanlega4% 1. október upp í all-
ar verðhækkanir fram á næsta ár.
Það sem vantar upp á kaupið mið-
að við umsamda kaupgjaldsvísitölu
er í september 33—36%. Láns-
kjaravísitalan hefur hins vegar ó-
skert fylgt verðlagi.
Tekjur þorra launafólks nægja
ekki lengur fyrir nauðþurftunt og
sífellt fleiri standa frammi fyrir ó-
viðráðanlegum greiðslum af-
borgana og vaxta af Iánum. Margir
sjá af þessum ástæðum fram á
gjaldþrot.
Samninganefndin samþykkir að
leitað verði eftir samstarfi við önn-
ur samtök launafólks um viðbrögð
og aðgerðir gegn sviptingu samn-
ingsréttar og kjaraskerðingu.
Unnar kjötvörur lækka í verði vegna
,kindakjötsútsölunnar‘
en
Verð ásementi
hækkar
Á fundi verðlagsráðs í gær var
heimiluð verðhækkun á sementi, en
á sama fundi voru staðfestar verð-
lækkanir á unnum kjötvörum, þ.e,
unnu kindakjöti. Unnið kindakjöt
lækkar í verði vegna „kindakjötsút-
sölunnar“ sem nú stendur yfir.
Sem dæmi um verðhækkun á
sementi, þá munu 50 kg. af Port-
landssementi hækka úr 167,20 kr. í
184,90 kr. Það er 10,6% hækkun.
Þetta þýðir líka að steypa mun
hækka í verði og þannig mun unnin
S- 200 steypa hækka um 5,7%.
Nokkrar algengar unnar kjöt-
vörur, þ.e. unnar úr kindakjöti,
munu lækka í verði sem hér segir:
Vínarpylsur fara úr 122,90 í 117,10,
þ.e. 4,7% lækkun. Kindabjúgu
fara úr 122,60 í 101,40, sem þýðir
17,4% lækkun. Kindakæfa lækkar
úr 158,60 í 129,60 og er það 18,3%
lækkun. Kindakjötfars lækkar um
4,5%, — fer úr 83.00 í 79,30 kíló-
grammið.
Álegg unnið úr kindakjöti mun
lækka að sama skapi og þannig
lækkar hangikjöt um 12,6%, fer úr
460 krónunt kílóið í 401 krónu.
Hún lækkar þessi, — í eilífðinni.