Alþýðublaðið - 01.06.1988, Síða 7
Miðvikudagur 1. júni 1988
7
UTLÖND
Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir
Michael Dukakis, sem keppir aö
því að verða forsetaefni demó-
krata, hefur sannfært marga
kjósendur um, að hann sé ekki
eins litlaus og margir héldu til
að byrja með.
Michael Dukakis, langhlaupari demókrata, fer sínar leiðir hœgt og
rólega. Maðurinn sem fáir könnuðust við, er smám saman að skapa
sér ímynd ábyrgs forsetaefnis.
í menningarmiðstöö
Puertorikana í Bronx-hverfinu
i New York, bíða menn
spenntir eftir frambjóðandan-
um. Veggir eru útataðir i
„graffiti" (veggjakrot) og
þrengslin eru mikil.
Fólkið bíður í ofvæni eftir
frambjóðanda, sem ætlar að
tala þeirra eigið tungumál.
Þegar hann birtist stendur
það upp og hrópar á
spænsku: ,Ese es, ése es“ —
hann er sá rétti.
Michael S. Dukakis, fylkis-
stjóri i Massachusetts brosir
út að eyrum. Það er ekki al-
gengt að þessi 54 ára stjórn-
málamaður með loðnu auga-
brúnirnar, komi fólki til að
hrópa og stappa í gólfið, það
er einfaldlega ekki hans still.
hann ávarpar fólkið á svo
til lýtalausri spænsku og
segir: „Vinir mínir, ég er að
reyna að ná kjöri sem forseti,
því ég tel að efnahagslífið sé
eitt af því mikilvægasta og
ég er demókrati, og mun því
sjá öllum fyrir atvinnu".
í forkosningunum, sem
hafa gengið upp og ofan,
hefur Dukakis ekki reynt að
reita af sér brandara, eins og
margir bandariskir frambjóð-
endur gera. Ráðgjafar hans
hafa hvað eftir annað beðið
hann að sýna á sér hlið, sem
höfði til fjöldans og sýna að
hann hafi kímnigáfu. Hann
stendur fast á sínu og talar
af alvöru um vinnusemi og
reynslu, segir það vera
happadrýgstu eiginleika sem
forseti geti haft. Þetta virðist
hafa borið árangur, það sýna
forkosningarnar i New York
og Pennsylvaníu.
Móðir Dukakis, Euterpe 84
ára gömul segir Dukakis
koma til dyranna eins og
hann er klæddur, menn fái
það sem þeir sjá.
Vertu viðbúinn
Dukakis heldur áfram að
vera eins og skátinn sem
hann var i æsku — alvarleg-
ur, áreiðanlegur, greindur og
hefur sjálfsaga í ríkum mæli.
Barney Frank, demókrati
frá Massachusetts og þing-
maður í fulltrúadeildinni '
segir um Dukakis: „Ég hef
aldrei þekkt neinn, sem
breytist eins litið og Michael
þegar hann kemur fram opin-
berlega, framkoma hans er
alltaf eins, hann er aldrei að
leika.“
Kraftaverkamaður
Dukakis hefur starfað sem
fylkisstjóri i Massachusetts,
þrjú kjörtimabil, og á þeim
tíma hafa efnahagsmál fylkis-
ins stórbatnað. Slagorð
stuðningsmanna hans I kosn-
ingunum hefurverið „Massa-
chusetts — kraftaverkið".
Atvinnuleysi var 12 prósent
þegar hann tók við árið 1975
— það mesta i stærstu
iðnaðarfylkjunum — nú er at-
vinnuleysisprósentan aðeins
3 prósent, sem er það lægsta
i landinu. Skattar eru áttundu
lægstu, voru með þeim
hæstu og rauntekjur hafa
aukist meiraen i nokkru öðru
fylki.
Gagnrýnendur hans halda
því fram, að það sé ekki póli-
tfk Dukakis sem hefur komið
þessum breytingum til batn-
aðar af stað, heldur séu þær
tilkomnar vegna ýmissa ann-
arra þátta í efnahagslifinu.
Sérfræðingar eru þó sam-
mála um, að stefna hans og
þróun hennar eigi stærstan
þátt í þessari uppsveiflu, og
þessa stefnu mun Dukakis
keppast við að nýta allri þjóð-
inni til góðs ef hann nær
kjöri sem forseti.
Harry Ellis Dickson er
tengdafaöir Dukakis, hann
hefur um árabil verið einn af
hljómsveitarstjórum The
Boston Pops Orchestra.
Hann segir frá því þegar þeir
tengdafeðgarnir fóru út á
flugvöll, að taka á móti Kitty,
eiginkonu Dukakis og óku
þangað I bifreið fylkisstjór-
ans: „Ég sagði honum að
hann skyldi leggja bifreiðinni
hjá lögreglunni fyrirframan
flugstöðvarbygginguna, það
kom ekki til mála heldur fór
hann og borgaði stæöi eins
og aðrir", það gætir undrunar
í rödd tengdapabba þegar
hann segir frá þessu. Þetta
er enn eitt dæmi um andúð
Dukakis á þvi að notfæra sér
forréttindi þvi hann er
gæddur ríkri réttlætistilfinn-
ingu segja þeir sem til
þekkja.
í framboðsræðum sínum
nefnir Dukakis oft föður sinn
Panos Dukak, sem kom til
Bandarikjanna árið 1912 án
þess að kunna eitt orð (
ensku, en var átta árum
seinna fyrsti griskættaði nem-
andinn í Harvard Medical
School. Móðir hans kom til
Bandaríkjanna árið 1913 og
varð fyrst grískættaðra
kvenna í Haverhill Massachu-
setts, sem tók stúdentspróf.
„Þetta, vinir mínir er
bandarfski draumurinn,"
segir frambjóðandinn með
sinni djúpu, kröftugu rödd.
Faðir Dukakis var fæðing-
arlæknir, sem vann alla daga
vikunnar, oft án þess að fá
greiðslu fyrir að hjálpa fá-
tækum konum i barnsnauö.
Sonur hans minnist hans
sem hins reglusama, stranga
föður, sem ráðlagöi spar-
semi.
í Brookline High Schooi,
var Michael Dukakis kosinn
gáfaðasti nemandinn á loka-
árinu. Hann lék á trompet í
hljómsveit, var formaður
stúdentaráðsins og fékk
heiðursverðlaun skólans I
þremur íþróttagreinum —
viðavangshlaupi, körfubolta
og tennis. „Hann var drauma-
prins hvérrar tengdamóður,
áreiðanlegur og réttsýnn"
segir Sandy Cohen Bakalar
sem var vinkona hans á
þessum tima.
17 ára gamall lét hann inn-
rita sig I þátttöku I Boston-
maraþonhlaupinu og varö 57.
af 191 þátttakanda. Hann
notar gjarnan maraþonhlaup
til að lýsa persónuleika sin-
um. „Ég er úthaldsgóður og
til þess að hlutirnir gangi,
verður að vinna að þeim á
hverjum einasta degi.“
(Det fri Aktuelt)