Alþýðublaðið - 13.10.1988, Page 11
Fimmtudagur 13. október 1988
11
Skipulagsmál
HÖFUÐB ORGA RS VÆ DIÐ
SEM HEILD
Rœtt við Gest Ólafsson
fyrrum framkvœmdastjóra á
Skipulagsskrifstofu
höfuðborgarsvœðisins.
Aö mörgu er aö hyggja ef
þú þarft aö byggja, hljómaði
auglýsingaslagorö fyrir
nokkrum árum. Þar rataðist
viðkomandi satt á munn, það
er að mörgu að hyggja. En
það er hinsvegar ekki síður
að mörgu að hyggja þegar
menn vilja skipuleggja sitt
nánasta umhverfi. Höfuð-
borgarsvæðið nýtur þeirrar
sérstööu hér á landi að um
nokkur, nánast samvaxin,
sveitarfélög er að ræöa, og í
seinni tið hefur þeim mönn-
um fjölgað sem sjá hvað er
að gerast, og telja rétt aö
þetta svæði sé skipulagt
sem heild. Þó ekki nándar-
nærri nóg að þeirra eigin
mati, en þeir telja heildar-
skipulagningu eitt af frum-
skilyrðunum fyrir blómstr-
andi mann-, menningar- og
atvinnulífi á svæðinu. Al-
þýðublaðið hafði samband
við Gest Ólafsson, arkitekt
og skipulagsfræöing sem
hefur verið einn af forvígis-
mönnum þessara hugmynda.
Árið 1986 kom út á vegum
Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu bækl-
ingur um svæðisskipulag
höfuöborgarsvæðisins. Hug-
myndina má rekja aftur til
ársins 1976 þegar ákveðiö var
að þau níu sveitarfélög sem
liggja að höfuðborgarsvæö-
inu tækju sig saman og ynnu
sameiginlega að skipulags-
málum, auk annarra mála
sem þau áttu sameiginleg.
Áður hafði samvinna einkum
einkennst af nauðsynlegri
samræmingu viö aðalskjpu-
lag Reykjavíkurborgar og var
þá unnið af Skipulagi ríkis-
ins. Gífurleg vinna fór i öflun
hverskonar upplýsinga, enda
er það ekki einfalt mál að
skipuleggja byggö sem
þessa eins og að líkum læt-
ur.
Að sögn Gests Ólafssonar
hefur þó lítið gerst í þessum
málum síðan þessi greinar-
gerð kom út. Samstarfsviljinn
hefur ekki verið sá sem menn
hafa vonast til að hann yröi.
„Höfuðborgarsvæðið er ein
heild en það kostar auðvitaö
grundvallarbreytingu í hugs-
unarhætti fyrir sveitarstjórn-
armenn að hugsa um það
sem slíkt. Þeir hafa hinsvegár
ekki verið tilbúnir til þess.
Sveítarstjórnir á höfuðborgar-
svæðinu hafa ekki eytt í
þessa sameiginlegu skipu-
lagningu nema andvirði eins
gamals bíls í ár og er það tal-
andi tákn. Það er orðin brýn
þörf á að opna umræðu um
skipulagsmál þvi það er eitt
mikilvægasta máliö fyrir
framtíðina á þessu svæöi.
Auðvitað ætti slík umræða
að vera þverpólitísk, og
reyndar má nú finna merki
þess í öllum stjórnmálaflokk-
um að menn eru að vakna til
vitundar um þetta. Fram að
þessu hefur skipulagning
verið í höndum pólitiskra
aðila að miklu leyti.“
— Hvað á að koma i stað-
inn?
„Ég held að það breytist
ekkert fyrr en menn verða
beinlínis kosnir til að taka á
þessum málum. Það verður
lika að fá samtökum þessara
sveitarfélaga ákveðin verkefni
til að vinna að, ákveðna mála-
flokka og búa til tekjustofna
fyrir þau til samræmis við
þaö. Þaó sem fyrst og fremst
vantar er að menn skoði
málin betur áður en ákvarð-
anir eru teknar og til þess
þarf bæði vilja og peninga en
hvorugt er fyrir hendi sem
stendur. Hvorki sveitarfélögin
né ríkió eru tilbúin aö afsala
sér valdi til einhvers milli-
stigs sem hefur þá þekkingu
á þessum málum og vald og
getu t-il þess að gera það
sem þarf.“
MIKILVÆGI SAMGANGNA
Samkvæmt áliti Gests og
félaga hans sem unnu að
framtíðarskipulaginu er aö
myndast nýr umferðarás á
höfuðborgarsvæðinu, sem
liggur frá norðaustri til suð-
vesturs í stað núverandi um-
feróaræða sem liggja austur-
—vestur. Þeir telja að miklu
muni skipta að uppbygging
þessa umferðaráss, sem
tengir saman sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu, sé auð-
velduð eins og kostur er.
Eins og sjá má á þessu stil-
færða korti af stofnbrautar-
kerfi höfuðborgarinnar eru
tvær meginbrautir sem
ganga gegnum allt höfuð-
borgarsvæðið, allt frá Hafnar-
firði i Mosfellsbæ.
Gestur: „Samgöngur eru
lykilatriði i allri skiulagningu
þessa svæðis. Þær eiga að
koma fyrst, ekki að vera
hugsaðar þegar búið er að
ákveða annað á undan. Það
er ekkert atriði jafnmikilvægt
og samgöngurnar, bæði fyrir
einkabíla og ekki síður fyrir
almenningssamgöngur. Við
teljum það sjálfsögð mann-
réttindi að hér sé haldið uppi
þokkalegum almenningssam-
göngum og það er mjög
mikilvægt að þegar umferðar-
æðar eru hugsaðar, þá sé í
allri skipulagningu tekið tillit
til þess að almennigssam-
göngur leiöi fólk til þeirra
staða og stofnana sem það
þarf að sækja. Að fólk geti
ferðast frá einum bæ, eða
hverfi, til annars á fljótlegan
og auðveldan hátt og al-
menningsvagnar skili fólki að
þeim þjónustustofnunum
sem það þarf að sækja.“
I svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins er lagt til’aÖ
komið verði á samræmdri/al-
menningsvagnaþjónustu á
þessu svæði undir saméigin-
legri stjórn. Þetta er reyndar
ekki ný tillaga að hálfu Gests
því hann var ásamt fléirum i
nefnd sem kannaði hag-
kvæmni slíkrar samræmingar
á vegum samgönguráðuneyt-
isins. Nefnd þessi skilaói
áfangaskýrslu árið 1986 en
að henni lokinni lagði sam-
gönguráðherra hana snarlega
niður. Þar með lauk því máli.
Hefur ekki hreyfst síðan.
BREYTING Á BYGGÐ
MANNFJÖLDl Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.
Framreikningur
am Lagmark ZD Meðaltal dl Hámark