Alþýðublaðið - 09.02.1990, Page 3

Alþýðublaðið - 09.02.1990, Page 3
Föstudagur 9. febr. 1990 O Fjör í kratakaffi meö Guömundi jaka: Unga fólkið i Dags- brún er fullt af angist og gremju Guðmundur J. Guðmundsson og hluti fundargesta. „Það þarf einn allsherj- ar uppskurð á þjoðfelaginu " A-mynd: E.ÓI. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamanna- sambandsins og Dagsbrúnar var gestur í vel sóttu krata- kaffi á miðvikudag og flutti þar framsöguræðu um samn- ingana og fólkið í Dagsbrún. Ut frá ræðunni spunnust síðan fjörugar umræður og meðal annars skemmtileg skoðana- skipti Guðmundar og ráðherranna Jón Baldvins Hannibals- sonar og Jóns Sigurðssonar. Guðmundur sagðist í upphafi mega til með að stríða krötum, til að fá fjör í umræðurnar. ,,Mér þyk- ir það merkilegt að Alþýðuflokk- urinn skuli vera aðeins 10—15% flokkur þegar við blasir að 65% þjóðarinnar eru með sósíal- demókratískar hugsjónir. Aum- ingjar eruð þið! Það hafa verið leiknir magnaðir pólitískir leikir og sjálfsagt hægt að skýra þetta sögulega, en engu að síður veit ég ekki um nokkurn flokk með slíkan grunn að baki. Meira að segja í Sjálfstæðisflokknum er 35% fylg- ismanna með sósíaldemókratísk- ar hugsjónir." Þá tók Guðmundur til við að lýsa aðstæðum og viðhorfum Dagsbrúnarfólks. „Fyrir 30 árum voru 60% þjóðarinnar ófaglært verkafólk, en nú er þetta hlutfall um 35%, slík hefur sérhæfingin orðið. Það má líka greina breytta tíma á því fólki sem í Dagsbrún er, á því hve lífsmunstrið er ólíkt eftir aldri. Hjá fólkinu sem er yfir sjö- tugt er yfirgnæfandi meirihluti, um 90%, með eigið húsnæði, en á sama tíma er stór hluti þessa fólks örsnautt. Meðal eldra fólksins er nokkuð stór hópur sem reyndar á 100—600 þúsund krónur á banka- bókum, sem margar hverjar hafa ekki verið hreyfðar jafnvel í 20 ár. Svo rekst maður reyndar á ein- staka menn sem eiga nokkuð af eignum og hafa stúderað peninga- markaðinn. Þannig veit ég um 3 Dagsbrúnarmenn sem eiga yfir 10 milljónir í banka.“ Fólagshyggjan veikari hjá unga fólkinu „Stór hópur býr hins vegar við kröpp kjör og veltir fyrir sér hverj- um einasta eyri sem það lætur frá sér og kaupir ekkert nema að vel athuguðu máli. Hjá eldra fólkinu, sem kannski safnaði skósvertu- dósum fyrr á árum, er lífsstíls- breytingin kannski ekki ýkja mik- il. Þetta fólk á yfirleitt eigin íbúðir, en oftast lélegar íbúðir í gömlum húsum. Það er einkennilega sterkt í þessu fólki hvað það leggur mikið á sig til að hjálpa börnum sínum til náms og íbúðarkaupa, það er þeirra lífsfylling oft á tíðum. Ótrú- lega stór hópur þessa fólks leggur meira upp úr íbúðum barna sinna en sínum eigin. I þessu sambandi er einmitt erf- Þad hefur enginn þorad ad fylgja Alþýdu- flokknum í land- búnadarmálum. Þad hefur því ekki verið meirihluti fyrir því að taka á því gegndarlausa brjálœöi sem þar er uppi, segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSI og Dagsbrúnar. itt að horfa upp á hvað hefur verið að gerast með minnkandi vinnu og rýrnandi kaupmætti. Ég hef séð ómannleg tilfelli í tugatali, þar sem eldri hjón hafa átt prýðilega íbúð, en eru búin að missa hana. Það er þá ekki vegna þess að þau hafi eytt um efni fram, heldur að lán hafi verið tekið, veð lánað börnunum eða skrifað undir víxil, en síðan allar áætlanir brugðist. Því miður eru þó nokkur brögð að því að fullorðin hjón sem hafa þrælað öll sín ár séu allt í einu komin á götuna." Guðmundur sagði að lífsstíllinn hjá Dagsbrúnarfólki breyttist síð- an talsvert með lækkandi aldri. „Þegar komið er niður fyrir sex- tugt er bilaeign orðin nokkuð al- menn og fólk á þá meira en borð, fjóra stóla og dívan. Og þegar komið er niður fyrir þrítugt keyra bæði hjónin með allt á útopnu. Það hefur enda verið ætlast til þess að fyrirvinnur séu tvær. Hjá þessu unga fólki er mikill dugnað- ur, en líka meiri óregla og kröfu- harka. Lífsstíllinn er ótrúlega ólík- ur og að sumu leyti líka viðhorfin: Félagshyggjan er ekki eins sterk. Það er meira um það, að ef einn maður fær einn launaflokk fyrir sjálfan sig er hann ánægður, skítt með samstöðuna. Hallalaus f járlög slá ekki í gegn! En þetta hefur líka verið að breytast eftir að dró úr atvinnu og kaupmætti. Margt af þessu unga fólki býr nú við angist og skelf- ingu. Ég fæ daglega heimsóknir ungs fólks með allt á heljarþröm. Vextir og verðbætur hafa reynst þeim ofviða og fjárfestingar hrun- ið. Þetta fólk er fullt af angist, gremju og tortryggni út í öll stjórn- völd. Eftir því sem félagsfræðing- um hefur fjölgaö hefur þjóðfélags- sýnin brenglast og þá verður ríkis- valdiö óvinur. Það er t.d. alrangt og mesti misskilningur að gagn- vart þessu fólki sé hægt aö slá í gegn með heitstrengingum um hallalaus fjárlög! Fólkið hefur líka áhyggjur af erfiðleikum atvinnu- lífsins, en er heitt þegar það horfir upp á fjölda gervigjaldþrota með tíðum eigendaskiptum. Það er skrípaleikur sem verður að stöðva. Einnig þá ósvinnu sem fólk horfir upp á, að efnaðir menn vaða uppi skattlausir og storka þannig vinnandi fólki. Það vantar talsvert upp á hinn móralska grundvöll þegar þessir skattlausu andskotar dansa lausir. Og fleira verður að breytast, það þarf einn allsherjar uppskurð í þjóðfélaginu. Nefni ég sérstaklega landbúnaðinn. Ég hef doldið verið að væla út af honum, en sannast sagna hefur enginn þorað aö fylgja Alþýðuflokknum í þeim málum. Annars staðar hefur ekki verið meirihluti fyrir því að taka á þessu gegndarlausa brjálæði. Vitaskuld er meirihluti bænda fá- tækir og skuldugir og lítið við þá að sakast, en kerfið er slíkt að þaö nálgast geggjun. Ég nefni t.d. skiptinguna í mjólkursvæði, þar sem finna má tilfelli þar sem 3,5 lítrar af olíu fara í að sækja hvern lítra af mjólk! Ég veit að almennir bændur átta sig á því að þetta gengur ekki, en framámenn þeirra og stjórnmálamenn þeirra eru mun harðari en hinn almenni bóndi." Guðmundur ræddi nýgerða kjarasamninga nokkuð og er greint frá viðhorfum hans til þeirra í sérstakri frétt blaöins. Eftir framsöguna urðu sem fyrr segir fjörug skoðanaskipti á fundinum, sem því miöur eru ekki tök á að greina frá, þótt margir gullmolar hafi fokiö. FÖSTUDAGSSPJALL Nótt hinna löngu hnifa Nokkrar ríkisstjórnir á undanförnum árum hafa reynt að skera niður útgjöld þegar mönnum hefur ofboðið hallinn á ríkissjóði venjulega skilaði það litlum árangri. Fyrir því voru gefnar ýmsar ástæður, svo sem uppreisn þingmanna, mótmæli félagasamtaka og hagsmunahópa eða mótþrói verkalýðshreyfingar. Oftast hefur orsakanna þannig verið leitað utan stjórnar en ráðherrar sjálfir hafa talið sig tilbúna til hnífsbragðanna. „Þær fréttir hafa heyrst að helstu baráttumennirnir gegn niðurskurðar- hnífnum séu Alþýöubandalagsráöherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson. Upphátt segjast þeir náttúrlega vera baráttumenn fyrir a) menningu og menntun fyrir sálina, b) samgöngum fyrir landsbyggðina, c) félagshyggju fyrir alla þá sem erfiða og þunga eru hlaðnir," segir Guö- mundur Einarsson m.a. i Föstudagsspjalli sínu. Nú bregður svo við að allir eru óðfúsir til niðurskurðar nema rík- isstjórnin sjálf. VSI hvetur til hans, verkalýðshreyfingin beinlínis krefst hans og þingmenn verða að láta sér lynda skurðartalið vegna þess að almenningsálitið er tilbúið að taka því sem koma kann. En ríkisstjórnin virðist ætla að bregðast: Tækifæri Engin ríkisstjórn hefur fengið annað eins tækifæri til að hreinsa til í ríkisbúskapnum. Kjarasamn- ingarnir standa og falla með hjöðnun verðbólgunnar. Með það að leiðarljósi væri hugrakkri stjórn jafnvel kleift að ganga lengra en samningaútgjöldin sjálf krefjast. Þannig væri hægt að lag- færa hinn gífurlega halla sem var á fjárlögunum. Ekki veitir af, því reynslan sýnir að bjartsýnar fjár- lagaforsendur standast aldrei og afkoma ríkissjóðs verður alltaf verri en áramótaræðurnar lofuðu. Nauösyn Niðurskurður og snyrting ríkis- kerfisins er orðið brýnasta verk- efni íslenskra stjórnmála. Þyrnigerði sívaxandi útgjalda mun hefja sig svo hátt ef ekkert verður að gert að meginstoðir menningarsamfélagsins munu fúna. Núverandi ríkisstjórnarflokkar telja sig hafa skírteini upp á ein- hvers konar félagshyggju, sem fari mýkri höndum um menn og;mál- leysingja en óbilgjörn markaðs- krafan. Þetta skírteini er einskis vert, ef handhafar þess ganga á svo skít- ugum skóm um ríkisfjármálin að engir peningar eru til góðu verk- anna. Þá er enginn munur á félags- hyggjustjórn og hinsegin stjórn. Þá er það bara venjuleg, gamal- dags sukkstjórn sem við þekkjum allt of glögg dæmi um. Nátttröll Þær fréttir hafa heyrst að helstu baráttumennirnir gegn niður- skurðinum séu Alþýðubandaiags- herrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson. Upphátt segj- ast þeir náttúrlega vera baráttu- menn fyrir a) menningu og menntun fyrir sál- ina, b) samgöngum fyrir landsbyggð- ina og c) félagshyggju fyrir alla þá, sem erfiða og þunga eru hlaðnir. En barátta þeirra er með öfug- um formerkjum. Vorkunnsemi þeirra mun þvert á móti bitna með þunga á öllum félagslegum að- gerðum í framtíðinni. Ef ríkiskass- inn er ruslakista, sækir enginn í hann björg. Heimurinn er fullur af dæmum um ríkisstjórnir, sem hafa stór- skaðað þjóðirnar með óraunsæi í fjármálum. Það yrði formanni Alþýðu- bandalagsins aldrei til framdráttar að hafa rústað ríkiskassanum. Getur verið að það sé ástæðan til niðurskurðartregðu flokks- bræðra hans? Guömundur Einarsson skrifar

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.