Alþýðublaðið - 09.02.1990, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.02.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 9. febr. 1990 7 UTLÖND Einmana lif auðugasta barns i heimi Þaö er enginn nýr sannleikur að auöur er ekki sama og auðna. Þaö er þó greinilegast þegar fimm ára telpukorn á í hlut og getur sig ekki hreyft nema öryggisverður (veröir) fylgist nákvæmlega meö hverju fótspori. Athina Thierry Roussel, er dótt- ir Christina Onassis sem lést í nóv- ember 1988. Christina varð fyrir þeirri sorglegu lífsreynslu að óhemju auður skapar oft fleiri vandamál í persónulegu lífi en jafnvel fátækt. Hvert hjónabandið af öðru endaði með skilnaði einn- ig það síðasta með föður Athina. Faðir Athina óttast að mannræn- ingjar hafi hug á að ræna Athina og þessvegna er dóttir hans um- kringd öryggisvörðum. Lífverð- irnir eru þjálfaðir í Bretlandi og vinna á vöktum og fylgjast með hverju fótmæli litlu stúlkunnar. Nöfnum þeirra er haldið leyndum nema nafni þess sem er einskonar afi í huga Athina. Hann er breskur og heitir Archie Dimitriev. Telpan er í umsjá föður síns og ástkonu Ætlar rétt aðeins að kíkja inn í stórmarkaðinn — en öryggisvörðurinn Archie verður að fylgjast með. hans sem er sænsk fyrirsæta og þykir mjög glæsileg. Þau eiga saman tvö börn og þessi hálfsystk- in Athina, Erik sem er 4 ára og Sandrine sem er tveggja ára eru leikfélagar hennar og að því er kunnugir segja, það sem gefur lífi hennar lit jafnvel þó að yfir þeim séu öryggisverðir við sandkass- ann eða rólurnar. Hinn sífelldi ótti við mannræningja veldur því að fjölskyldan flytur á milli heimila oft á ári, en glæsiheimilin eru mörg og í hinum ýmsu löndum. Faðir Athina, Thierry Roussel er franskur margmilljóneri og er engan veginn talið að hann hafi kvænst Christina til fjár. Aumingja litla ríka stúlkan hefur allt — en ekkert. SJÓNVARP Stöö 2 kl. 22.00 ENDURFUNDIR * * (Gunsmoke: Return to Dodge) Bandarísk sjónvarpsmynd Gerð 1987 Leikstjóri Vincent McEvely Aðalhlutuerk James Arness, Amanda Blake, Buck Taylor og Fran Ryan Hér er komin ný kvikmynd gerð í anda Gunsmoke-þáttanna lífseigu og vinsælu sem gengu í sjónvarpi frá 1955—1976. Aðalleikari þátt- anna, James Arnes, er dubbaður upp að nýju í hlutverk Matts Dillon. Þegar sagan hefst eru 12 ár liðin frá uppgjörinu í síðasta Gunsmoke- þættinum. Dillon stundar hér veiði- skap til fjalla en tímarnir hafa lítið breyst og óvinir hans frá lögreglu- stjóradögunum skjóta upp kollin- um. Þetta er dæmigerður vestri, hvorki verri né betri en flestir. Þeir sem hrifust af sjónvarpsseríunni á sínum tíma verða ekki fyrir von- brigðum með þessa endurfundi. Ríkissjónvarpiö kl 22.35 ÚLFURINN *» (Wolf) Ný bandarísk sjónuarpsmynd Aðalhlutverk Jack Scalia Mynd þessi er upphafið að fram- haldsmyndaflokki sem sjónvarpið hyggst sýna næstu föstudagskvöld. Segir þar af lögreglumanni í San Francisco, sem heldur áfram baráttu við illþýði borgarinnar, þótt honum hafi með rangindum verið vikið úr starfi. Eftir því sem við komumst næst er þetta þokkalegasta spennu- ræma. Aðalleikarann *ættu sjón- varpsáhorfendur að muna úr glass- úrseríunni I’ll Take Manhattan, sem sýnd var á dögunum. Stöð 2 kl. 00.05 HÆTTULEG FEGURÐ (Fatal Beauty) Bandarísk bíómynd Gerð 1987 Leikstjóri Tom Holland Aðalhlutverk Whoopi Goldberg og Sam Elliot Óafsakanlega léleg mynd. Whoopi Goldberg sló í gegn í myndinni Col- or Purple en í kjölfarið hafa fylgt gjörsamlega mislukkaðar myndir og er þessi sýnu verst. Hún er hér í hlutverki leynilögreglu sem reynir að hafa hendur í hári kókaínbrask- ara. Yfirþyrmandi ofbeldi og næsta hlægilegur boðskapur gegn eitur- lyfjabölinu gera myndina fáránlegri en ella. Léleg eftirlíking Beverly Hills Cop-myndanna. Forðið' börn- um frá skjánum eða slökkvið á tæk- inu! 0 ^ÍisTÖÐl 17.50 Tumi 17.05 Santa Barbara 17.50 Dvergurinn Davíö Teiknimynd 1800 18.20 Aö vita meira og meira Bandarískar teiknimyndir 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Um eðli katt- arins Mynd um ketti og skyldleika þeirra viö tígrisdýrin 18.15 Eðaltónar 18.40 Vaxtarverkir (Growing Pains) Gamanmyndaflokkur fyrir alla fjölskylduna 1900 19.25 Steinaldar- mennirnir 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Fiðringur. Horft i aurana Fjallaö veröur um ungt fólk og afstööu þess til peninga. Umsjón Grétar Skúlason 21.05 Paul McCartney spilar og spjallar Ný- legur tónlistarþáttur meö bítlinum fræga, Paul McCartney 22.05 Hrikaleg átök (3) Keppni mestu afl- raunamanna heims í Skotlandi 22.35 Úlfurinn (Wolf) Ný bandarísk sjón- varpsmynd. Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.30 Lif í tuskunum Gamanmyndafiokkur um rikan, miöaidra mann sem tekur að sér fimm munaöar- iausar stúlkur 21.25 Sokkabönd i 'Sti! Blandaöur tón- listarþáttur 22.00 Endurfundir (Gunsmoke: Return to Dodge) Sjá umfjöllun 2300 00.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.40 Löggur (6) (Cops) Spennandi gamanmyndaflokkur i sjö hlutum 00.05 Hættuleg fegurö (Fatal Beauty) Sjá umfjöllun 01.501 Ijósa- skiptunum (Twilight Zone) 02.20 Dagskrárlok

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.