Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 15
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15 ] (i r Þó fyrsti ritstjóri blaðsins, Ólafur Friðriksson, gæti haldið lang- ar og ógleymanlegar ræður var hann frægur fyrir að skrifa stundum fréttir sem voru í raun örfréttir. Gott dæmi um það mátti lesa á blaðsíðu þrjú í fyrsta tölublaðinu þann 29. október, 1919. Þargreindi frá ung- um málara með svofelldum hætti: Ásgrímur Jónsson málari liggur rúmfastur að heimili sínu í Lækjar- götu. Ólafur lét lesendur fylgjast grannt með þróun þessa alvarlega ástands uppáhaldsmálara síns, því skömmu síðar gat að lesa á bak- síðu blaðsins, þann 3. nóvember: Ásgrímur Jónsson máiari er kom- inn á fætur aftur... Alþýðublaðið var stundum kallað útungunarstöð (slenska fjöl- miðlaheimsins. Stundum var sam- an komið á ritstjóm blaðsins ótrú- legt einvalalið. Það má taka dæmi af ritstjóminni sem Árni Gunnars- son stýrði um miðbik áttunda ára- tugarins. Fyrir utan hann sjálfan, sem þá var einn af bestu og þekkt- ustu fréttamönnum landsins, voru í hópnum Erna Indriðadóttir sem nú er ein helsta fréttakona Sjón- varpsins.Þar var einnig Gunnar Kvaran sem lengi gerði garðinn frægan á sama miðli. Við hlið hans sat Atli Rúnar Halldórsson sem líklega er besti fréttamaður RÚV á seinni árum, og í sama herbergi var að finna Einar Sigurðsson, sem lengi var fréttamaður útvarps en er nú einn af yfirmönnum Flug- leiða. Óformlegur sumarritstjóri um þetta leyti var heldur ekki af verri endanum. Það var enginn annar en Vilmundur Gylfason, sannköll- uð fjörefnasprauta blaðsins... Þó Vilmundur Gylfason hafi nánast gjörbreytt frétta- mennsku á íslandi með því að inn- leiða frjálsa og óháða rannsóknar- blaðamennsku, og hafi verið við- Vilmundur Gylfason: Mark- aði djúp spor sem afleys- ingaritstjóri fimm sumra, en varð aldrei formlegur rit- stjóri... loðandi Alþýðublaðið með einum eða öðrum hætti árum saman, varð hann aldrei formlegur ritstjóri blaðs- ins. Bardagagleðin draup af hverju orði Vilmundar og hann setti spum- ingamerki allstaðar. Þó hann hafi eytt fimm sumrum í það sem hann kallaði sjálfur tilraun til að gera Al- þýðublaðið að ellefta ráðuneytinu þáði hann aldrei krónu að launum. Hann var einmitt afleysingaritstjóri í eina skiptið sem allt upplag blaðs- ins var borið á bál. Atburðimir sem tengdust því urðu upphafið að mestri tragedíu í seinni tíma sögu Alþýðuflokksins... Týndi ritstjórinn var einn allra merkasti ritstjóri Alþýðublaðs- ins, Stefán Pjetursson, stundum kallaður. Hann var upphaflega kommúnisti, en gekk til liðs við Al- Stefán Pjetursson: Týndi rit- stjórinn, en samt einn sá merkasti... þýðuflokkinn eftir sögulega dvöl ( Ráðstjómarríkjunum. Meðan á henni stóð gengu hrikalegustu hreinsanir Jósefs Stalíns yfir, og erlendir kommúnistar sem þar Jósef Staiín: Setti hann Stefán Pjetursson á dauða- listann..? dvöldu á vegum Komintern urðu jafn illa fyrir barðinu á þeim og sov- ésku kommúnistamir, sem féllu í ónáð. Stefán var löngum talinn hafa verið hallur undir alþjóða- hyggju Leóns Trotskýs á þessum tíma, en þá var Stalín einmitt að setja fram fráleitar kenningar sínar um Sósíalisma í einu landi. Al- þjóðasinnum á borð við Stefán og Trotský þóttu þær fráleitar. Fylgis- menn Trotskýs voru hundeltir, og hann sjálfur féll að lokum í Mexíkó fyrir ísexi útsendara Stalíns. Stefán talaði sjaldan um Moskvudvölina en vitað er að hann var settur á lista yfir grunsamlega menn. Skandínavar komust á snoðir um það og gerðu honum viðvart, og með aðstoð danska sendiráðsins komst hann nauðuglega að nætur- lagi yfir landamærin. Flóttinn var sögulegur, því hluta leiðarinnar fór hann í hestvagni, falinn undir hey- hlassi. Sagt er að á einum stað hafi verðir sovétsins leitað í vagninum, og einn vörðurinn hafi gegnum heyið komið auga á skó Stefáns, potað í þá með riffli sínu, hikað, og látið vagninn óáreittann halda áfram... Enginn jafnaðarmaður þekkti Sovétríki Jósefs Stalíns og vinnubrögð hans af eigin raun nema Stefán Pjetursson. Hann gleymdi reynslu sinni aldrei og leið- arar hans í Alþýðublaðinu báru þess merki. Þar varaði hann stöðugt við hinu rétta eðli kommún- ismans, og jafnvel á meðan Sovét- ríkin voru bandamenn Vesturveld- anna í striðinu við nasista Adolfs Hitlers spáði hann rétt fyrir um af- drif Evrópu í kjölfar sigurs Banda- manna. Einn frægasti leiðari Al- þýðublaðsins, sem Stefán kallaði Gleymum því aldrei fjallaði einmitt um eðli kommúnista, og þar spáði Stefán af óhugnanlegri nákvæmni fyrir hvemig herir Stalíns myndu hertaka stóra fláka Evrópu í kjölfar sigurs Bandamanna. Sagan leiddi í Ijós hversu sorglega rétt hann hafði fyrir sér. Stöðug barátta Stefáns gegn kommúnistum og Sovétríkj- unum leiddi til þess að árásir kommúnista hér innanlands gengu úr öllu hófi. Fyrir vikið sætti enginn annar ritstjóri Alþýðublaðsins jafn linnulausum árásum og persónu- legum svívirðingum og Stefán Pjet- urson... Því var gjaman haldið fram, að Stefán Pjetursson ritstjóri hafi verið eini íslendingurinn sem komst á dauðalista Jósefs Stalíns. Tveir ungir íslendingar, þeir Árni Snæv- arr og Valur Ingimundarson könnuðu heimildir um hreinsanir Stalíns þegar skjalasöfn í Moskvu opnuðust í kjölfar þess að Sovét- kommúnisminn hrundi. í kjölfarið skrifuðu þeir bókina Liðsmenn Moskvu sem kom út fyrir nokkrum árum. Árni tjáði Alþýðublaðinu að gögn sem þeir hefðu séð, bentu til þess að líklega hefði Stefán ekki verið dæmdur til dauða af leyn- isveitum Stalíns. Sumir villutrúar- manna vom nefnilega ekki taldir það hættulegir að nauðsynlegt þætti að taka þá af lífi, heldur voru þeir látnir vinna nauðungarvinnu víðs vegar um Sovétríkin og sættu iilri aðbúð. Árni telur að Stefán hafi verið settur undir sama hátt og ýmsir norrænir kommúnistar sem samtímis voru í Moskvu. Meðal þeirra var formaður danska komm- únistaflokksins, Aksel Larsen, sem slapp við dauðadóm. Hann var hinsvegar tekinn höndum, flutt- ur til Nimský- Novgorod og látinn púla þar myrkanna á milli (verk- smiðju við iilan kost. Ámi telur að hefðu flugumenn Stalíns náð Stef- áni Pjeturssyni hefðu svipuð örlög beðið hans... r Utlaginn að vestan var heitið sem stundum var notað yfir Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann varð ritstjóri Alþýðublaðsins eftir pólitískan skóggang á ísafirði. Tíð hans á blaðinu dró langan slóða og mótar enn stjómmál sam- tímans. Hann notaði leiðara blaðs- tímum vaxandi samdráttar með A-flokkunum má rifja upp að hvorki meira né minna en þrfr af ritstjórum seinni tíma hlutu eldskím sína sem blaðamenn á Þjóðvilan- um sáluga. Síðasti ritstjóri Alþýðu- blaðsins, Össur Skarphéðinsson var þar ritstjóri um þriggja ára skeið Jón Baldvin: Útlaginn að vestan gerði leiðarana að hugmyndafræðilegum til- raunareit... ins sem tilraunareit fyrir nýjar póli- tískar hugmyndir, sem hann prófaði aftur og aftur í ritstjómargreinum, og fullmótaði að lokum í heild- stæðri stefnu. Þetta var grunnurinn að því sem stundum er kölluð nú- tímaleg jafnaðarstefna. Hún var grundvöllurinn að áhlaupi hans að leiðtogasæti flokksins árið 1984, og stökkpallur Alþýðuflokksins inn í ríkisstjóm árið 1987. Enn í dag má rekja alla höfuðdrætti stefnunnar sem er uppistaðan í helstu hug- myndum flokksins aftur í ritstjómar- greinar Alþýðublaðsins í tíð Jóns Baldvins... á niunda áratugnum. Bæði þeir Ingólfur Margelrsson og Hrafn Jökulsson störfuðu einnig á Þjóð- viljanum sem umsjónarmenn marg- rómaðs Helgarblaðs hans. Ingólfur haslaði sér þar völl sem einstakur sniliingur á sviði samtala, og gæddi frábær helgarviðtöl sérstöku lífi með því að teikna sjálfur andlits- mynd af viðfangsefninu. Síðar hef- ur hann skrifað rómaðar samtals- bækur. Það var hinsvegar Össur sem gerði Hrafn aðeins nítján ára að umsjónarmanni Helgarblaðsins, og undir stjóm Hrafns gekk það í gegnum síðustu gullöld sína... að var Ingólfur Margeirsson sem fékk það hlutverk að gera síðustu tiiraun flokksins til að gera Alþýðublaðið að útbreiddu blaði. Stundum var skeið Ingólfs kallað októberbyltingin. Hann umbylti blaðinu, fékk til liðs við sig rómaða skríbenta á borð við Þórarinn Eld- járn, og beitti sér fyrir margvísleg- um tækninýjungu. Þar á meðal varð hann fyrsti ritstjórinn hér á Össur: Einn þriggja ritstjóra Alþýðublaðsins sem tók út eldskírn sína á Þjóðviljan- um sáluga... Ingólfur: Leiddi síðustu til- raunina til að gera Alþýðu- blaðið að stórblaði... landi til að fá grafíkmyndir af ýmsu tagi um Reuter... Brottför hans fylgdu heitar tilfinning- ar. Kvöldið áður en Rútur fór skildi hann eftir bréf i skrifborðskúffunni, stílað á Stefán Jóhann. í því stóð efnislega: Þegar ég tók við Alþýðu- btaðinu hafði það þrjú þúsund áskrifendur. Þegar ég hætti voru áskrifendurnir tólfþúsund. Það er orðið stærra í útbreiðsiu en Morg- unblaðið. Ég vona, en treysti því ekki, að blaðið sígi nú aftur í sitt gamla far. Virðingarfyllst, F.R.V.... Helgi Sæmundsson varð rit- stjóri í formannstíð Hannibals Valdemarssonar. Hann var ötull skríbent, og varð frægur í þjóðlífinu sem hagyrðingur, krítíker og sjóð- fróður sigurvegari spuminga- keppna. Helgi skrollaði. Fræg er eftirfarandi saga af því. Síðdegis gekk hann jafnan niður á Hótel Það varð snöggur endir á ferli Finnboga Rúts Valdemars- sonar á stóli ritstjóra, en lítil saga við lyktir hans hefur ekki áður verið skráð. Tildrögin voru þau, að eftir þá öriagaríku atburði sem fylgdu Héðinn: Fellibylurinn sem fór, og f kjölfarið hætti Rút- ur... fellibylnum Héðni Valdemarssyni, og síðan ótímabæru láti Jóns Baldvinssonar, formanns Alþýðu- flokksins, tók við ný forysta í gen/i Stefáns Jóhanns Stefánssonar. Rútur fann þá fljótt að hann og hinn nýi formaður áttu ekki skap saman. Eftir fjögurra ára setu á ritstjóra- stólnum kvaddi hann því blaðið. Heigi Sæm: Hélt hirð á Hót- el Borg... Borg þar sem hann drakk síðdegis- kaffi með bókmenntamönnum á borð við Stein Steinarr og fleiri slíka sem stundum gátu verið skrautlegri en gerðist og gekk með- al góðborgaranna á Borginni. Einu sinni sem oftar var hann staddur þar, og fínum dömum á næsta borði varð starsýnt á Helga og hirð- ina við borð hans. Helgi stóð þá snöfurmannlega upp, gekk að borði þeirra og sagði með sinni skrollandi röddu: „Viljiö þér ekki heyra röddina líka?... Samkvæmt ákvörðun stjórnar Venzlunapmannafélags Reykjavíkup tiefup Fjölskyldu- og húsdýpagapðupinn í Laug- ardal veriö tekinn á leigu á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 4. ágúst, og verða garöarnir opnir endur- gjaldslaust öllum félagsmönnum VR, svo og Reykvíkingum og öðrum gestum, á frídaginn trá kl. 10:00 til 18:00. Fjötskyldugarðurinn Dagskrá Fjölskyldugarðsins: 13:00 Bé tveir (Furðuleikhúsið) 14:00 Furðufjölskyldan (götuleikhús) 14:30 Hljómsveitin Geirfuglarnir 15:00 Brúðuleikhúsið 16:00 Mjallhvít og dvergarnir sjö (Furðuleikhúsið) 16:30 Hljómsveitin Geirfuglarnir RiYSTflfiLEG LEIKT/EKI UERÐAí FJÖLSKYLDUGARÐ- 1UM EFTIR HÁDEGI Húsdýrsgarðurinn Dagskrá Húsdýragarðsins: 10:45 Hreindýrum gefið 11:00 Selum gefið 11:30 Hestar teymdir um garðinn 12:00 Refum og minkum gefið 13:00 Fuglagarðurinn opinn (1 klst.) 13:30 Klapphorn hjá kanínum 14:00 Svínum hleypt út ef veður leyfir 15:00 Hestar teymdir um garðinn 15:30 Fuglagarðurinn opinn (1 klst.) 16:00 Selum gefið 16:15 Dýrum í smádýrahúsi gefið 16:30 Hestar, kindur og geitur sett í hús 17:00 Svínum gefið 17:15 Mjaltir í fjósi 17:45 Refum og minkum gefið VERIÐ VELK0MIN í FJÖLSKYLDU- OG HUSDYRAGARÐINN Á FRÍDEGI VERSLUNARIVIANNA, MANUDAGINN 4. ÁGÚST! VERZLUNARMANNAFELAG REYKJAVÍKUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.