Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 24

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 24
wom.mv/oe expffesj Nýtt aðalnúmer 5351100 MBUBLOIB Föstudagur 1. ágúst 1997 103. tölublað - 78. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk wtmmme exmezr Nýtt aðalnúmer 535II00 Konan setti gerði Quðtntmdjaka að jafnaðartnatmi - tneð pví að kaupa AípýðubCaðið Sólveig Jóhannsdóttir ásamt eiginmanni sínum Guðmundi Halldóri Guðmundssyni.og þremur sonum. Guðmund- ur Jóhann situr næstur móður sinni. Hver var hún alþýðukonan sem á strangri ævi leyfði sér þann eina munað að kaupa Alþýðublaðið í óþökk fjölskyldu sinnar - kaup sem gerðu son hennar að einum mesta jafnaðarmanni Islands á þessari öld? Hún var móðir verkalýðshetjunnar og öðlingsins Guðmundar J. Guð- mundssonar, eins besta vinar sem Al- þýðublaðið hefur átt. Meðan flest okkar lærðu að lesa af Litlu gulu hænunni, því góða heimspekiriti, hafði Guðmundur jaki enn vitrænna lesmál. Hann lærði að lesa af Al- þýðublaðinu. Hann mat mikils það blað sem móðir hans keypti og sagði um áhrif hennar á lífsskoðanir sínar í grein í Alþýðublaðinu fyrir örfáum misserum: “Það hefur lengi leitað á mig gegn- um tíðina af hverju ég er jafnaðar- maður eða sósíalisti - en milli þess- ara hugtaka er ekki milli munur. Ég hef velt þessu fyrir mér og reynt að skýra þetta á ótal vegu. Ég var uppalinn í kreppunni, Spánarstyrjöldinni, heimsstyrjöld- inni síðari. Fyrir ekki mörgum árum rann upp fyrir mér hver væri orsök þess að ég varð jafnaðarmaður. Það var óbreytt alþýðukona vestur í bæ sem gerði mig að jafnaðar- manni. Hún gekk ekki í neitt félag á ævi sinni, tók ekki þátt í neinum stjómmálaátökum og ég held að eng- inn flokkur hafi merkt sér hana á kjörskrá. Hún leyfði sér einn munað í lífinu í andstöðu við fjölskyldu sína - hún keypti Alþýðublaðið. Kona þessi var móðir mín. Hún fagnaði svo tryggingalögunum að þegar hún eignaðist peninga fór hún niður í bæ og borgaði sjúkrasamlag- ið. Með örfáum orðum, aldrei löng- um ræðum, lýsti hún andstyggð sinni á kreppunni og atvinnuleysinu og dá- samaði gildi þess að tryggingar í þjóðfélaginu giltu fyrir alþýðu fólks. Ég hef stundum sagt um hana liðna að hún hafi verið fyrir öryggið, nær væri að segja að hún hafi verið fyrir réttlætið, og alltaf kom Alþýðu- blaðið sama hvað hver sagði...“ Svo sagði Jakinn sem síðustu árin var einn besti og þakklátasti lesandi Alþýðublaðsins. Og þótt seint sé vill Alþýðublaðið votta móður hans, þeirri hugdjörfu hugsjónakonu virð- ingu sína, blað sem hefur átt slíkan lesanda að hefur ekki búið við and- lega fátækt. Fyrsta íjóð Al llm öxC [þýðubíoðsins Stormur lagðist stríður, steypist Ahrcifjcill. Yfir landið líður lítill piparkarl. A blcluni himinboga blessuð stjarnun skín og norðurljósin loga. Lifðu, elskan mín! Yfir úthafsbdrum aftanroðinn skín. A löngu liðnutn cirutn lifði dstin min! Lifðu litla dúfa, Ijósið geymi þig. Kœra klœðaþúfa, komdu'og finndu mig. Styr stofuglamm Hinn 17. nóvember 1919 birtist Ijóð f fyrsta skipti í Alþýðublaðinu. Skáldið skýldi sér bakvið dulnefnið Styr stofuglamm, en reykvískir áhugamenn um skáldskap vissu líklega flestir hver þarna var á ferðinni: Ungur maður að nafni Þórbergur Þórðarson. Seinna átti hann eftir að láta mikið að sér kveða, ekki síst með hárbeittum skrifum í Alþýðublaðinu. Þegar Gunnar Thoroddsen klauf Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkis- stjóm með Framsókn og Alþýðubanda- lagi árið 1980 var Alþýðublaðið í harðri stjómarandstöðu frá upphafi undir rit- Gunnar Thoroddsen: Ajatoll- ann sem afvopnaði Jón Bald- vin með kurteisinni... stjóm Jóns Baldvins Hannibalssonar. Á þessum timum var gríðarleg verðbólga í þjóðfélaginu og sjálfvirkar launahækk- anir og verðlagssprengingar gengu yfir einsog holskeflur. Undir mánaðamót á miðju sumri náði verðbólgan hámarki, og mikil umræða varð um væntanlega geng- isfellingu sem forsætisráðherrann var tal- inn vera að brugga í laumi. Ritstjóri Al- þýðublaðsins skrifaði þá í lok viku afar harðorðan leiðara, sem hét Dekurbarn á sparibrók þar sem veist var með skatt- yrðum að forsætisráðherra sem Jón Baldvin kallaði í leiðaranum Ajatolla Thoroddsen. Um helgina var blíðskapar- veður og útvarpið spáði 20 stiga hita á Þingvöllum. Ritstjórinn brá á það ráð að fara með konu og börn til Þingvalla. Þar var þá nepja og slydda, og um síðir leit- aði fjölskyldan skjóls í kirkjunni hjá séra Eiríki J. Eiríkssyni. Þar stóð yfir guðs- þjónusta. Söfnuðurinn reyndist saman- standa af forsætisráðherra og konu hans frú Völu Thoroddsen og engir aðrir utan hins hrakta ritstjóra og fjölskyldu hans húðblautrar. Séra Eiríkur flutti afburða lærða prédikun, þar sem hann dró sam- an lærdóminn af samanburði á þjóðar- sögu ísraela og íslendinga. í lokin bauð évo forsætisráðherrafrúin söfnuðinum í kaffi og heitar pönnukökur í bústað hjón- anna á Þingvöllum. Forsætisráðherrann tók fjölskyldunni afar hlýlega en ritstjóran- um kurteislega. Þvínæst dró hann sig í hlé til skyldustarfa í kamersi á efra lofti. Áður en fjölskylda ritstjórans kvaddi vildi frú Vala sýna henni bústaðinn. Þegar komið var í kamers forsætisráðherra reyndist hann vera önnum kafinn við þá iðju að klippa úr blöðum helgarinnar í heimildasafn sitt. í þann mund sem rit- Frú Bryndís: Leitaði skjóls með hröktum ritstjóra i Þing- vallakirkju... stjóri Alþýðublaðsins leit yfir öxl forsætis- ráðherra var hann einmitt að klippa út leiðarann um Ajatolla Thoroddsen. Ráð- herranum brá ekki hið minnsta. Hann veifaði lítillega skærunum, brosti hóflega og fór af bragði með eftirfarandi vísukorn: List erþað líka og vinna, lítið að tæta upp í minna sífellt í þynnra og þynnra, þynnkuna allra hinna...

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.