Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 22

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 22
22 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 Steinn Steinarr 41 Jm AO fengtmm skáídaíaunum Svo oft hefég grátið og harmað mitt hlutskipti í leynum og horft inn íframtíð, sem beið mín þögul og myrk. Þettafallega kvœði er ort í þeim tilgangi einum að óska mér sjálfum til lukku með skáldastyrk. Hér áðurfyrr. Það er satt, ég var troðinn í svaðið. Hvar sáuð þið mannkynið komast á lœgra stig? / Eg var soltinn og klæðlaus og orti í Alþýðublaðið, og allur heimurinn fyrirleit blaðið og mig. / Eg var úrkastsins táknræna mynd, ég var mannfélagssorinn, og mér var hvarvetna synjandi vísað á braut, en þrjózkan, sem lágvöxnum manni í blóðið er borin, kom bágindum mínum til hjálpar, efallt um þraut. íkulda og myrkri ég foað og ég baðst ekki vægðar, og foæðið var gjöfmín til lífsins, sem vera ber. / Eg veit hún er lítil, og þó var hún aldrei til þægðar þeim, sem með völdinfóru á landi hér. Steinn Steinarr birti mörg kvæði í Alþýðublaðinu, ódauðlega minningargrein um Magnús Ásgeirsson, hvassa gagnrýni á Sovétvaldið, og pistla um menningarmál sem eru löngu orðnir klassískir, og munu geymast sem dæmi um hátinda íslenskrar stílsnilldar. En í kvæðinu hér að ofan eru línurnar, þar sem hið vestfirska skáld gerði Alþýðublaðið ódauðlegt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.