Vísir - 09.04.1976, Qupperneq 7
VTSIR
Föstudagur 9. april 1976.
Callaghan
kallar 4
nýliða í
stjórnina
James Callaghan,
hinn nýi forsætisráð-
herra breta, hefur látið
fjóra af ráðherrum
Wilsonstjórnarinnar
fara og tekið i stjórnina
i staðinn bæði reynda
menn og nýliða.
í mannavali hans
kom mest á óvart, að
yfir utanrikismálin var
settur Anthony Cros-
land, sem hefur litla
reynslu i utanrikismál-
um.
tslendingar minnast Cros-
lands fyrir harðorða ræðu hans I
upphafi þroskastriðsins, þar
sem hann boðaði að breskir tog-
arar ættu að sækja islandsmið
sem fastast og fiska alveg upp
að tólf milna-mörkunum.
Flestir höfðu búist viö þvi, að
Roy Jenkins, innanrikismála-
ráðherra, yrði settur yfir utan-
rikisráðuneytið, þegar Cailag-
han stokkaði upp i stjórninni, en
honum var ekki boðin staöan og
verður áfram i sinu embætti.
Þeir fjórir ráðherrar, sem
setjast nú á bekk aftur með
óbreyttum þingliðum, eru Bar-
bara Castle, félagsmálaráð-
herra, Edward Short, William
Ross, skotlandsráðherra og Ro-
bert Mellish.
Þeir, sem nú setjast I stjórn I
fyrsta sinn, eru David Ennals
(53 ára), sem verður félags-
málaráðherra, Edmund Dell (54
ára), sem verður viðskiptaráð-
herra, Bruce MiIIan (48 ára),
sem fara mun með málefni
Skotlands, og Albert Booth (47
ára), atvinnumálaráðherra.
Ennals hefur siðustu tvö árin
starfað næst Callaghan I utan-
rikisráðuneytinu og getiö sér
orð fyrir lipurð og slægð i
viðskiptum við blökkumanna-
leiðtoga Afriku. Hann leysir
Barböru Castle af hólmi, en hún
hafði i ráðherratið sinni fengið
bresku læknastéttina alla upp á
móti sér.
Booth tekur við af Michael
Foot, en það krefst náinna sam-
skipta við verkalýðssamtökin.
Millan og Dell þykja meðal
efnilegustu yngri stjórnmála-
manna flokksins, metnaðar-
gjarnir og á uppleiö.
Michael Foot, sem hefur mjög
vaxið að áhrifum af fylgi sinu i
leiðtogakjörinu, mun taka við af
Short við stjórn þingflokksins,
og hlaupa i skarðið fyrir Callag-
han á þingfundum.
Málverkaþjóf-
arnir gómaðir
Tveir menn hafa verið
handteknir, ákæröir fyrir
þjófnaö á þremur ómetanleg-
um málvcrkum úr Hertoga-
höllinni i Urbino á ttaliu i
fyrra.
Málverkin voru eftir
Francesca og Rafael. Lög-
reglan i Sviss fann mál-
verkin aftur fyrir tveimur vik-
um, en missti þá af handhöf-
um þeirra. Lögreglan var
lengi á slóð málverkaþjófanna
og vissi að þeim gekk illa að
selja þau. Með þvi að þykjast
vilja kaupa málverkin, kom-
ust leynilögreglumenn i sam-
band við þjófana.
Mennirnir sem handteknir
voru, eru báðir 34 ára gamlir.
Víetnambörnin fá að
vera í Danmörku
Danska þjóðþingið
samþykkti með yfir-
gnæfandi meirihluta i
gær að leyfa 200 viet-
nömskum börnum að
dveljast áfram i Dan-
mörku svo lengi sem
þau sjálf vildu.
Mikill styr hefur staðið um
börnin siðan þau komu frá, Sai-
gon i april siðastliðnum, þegar
Vietnamstriðinu var að ljúka.
Þýski blaðamaðurinn Henning
Becker hafði rekið heimili fyrir
munaðarlaus börn i Saigon,
þegar hann afréð að flýja með
þau undan kommúnistum.
Danska rikisstjórnin hafði
fyrr ákveðið að börnin skyldu
send aftur til Vietnam. En Ank-
er Jörgensen forsætisráðherra
ákvað i mars sl. aö breyta þess-
ari ákvörðun. Atkvæðin á
þinginu i gær, 114 á móti 13, eru
mikill sigur fyrir hann.
Dvöl vietnömsku barnanna
hefur verið litrik. Henning
Becker var sviptur forræði yfir
þeim i febrúar, og skipað að
hafa sig á brott frá dvalarstað
þeirra.
Börnin gengu þá berserks-
gang i mótmælaskyni. Málið
hefur vakið mikla athygli i Dan-
mörku. Becker kom fyrir rétt i
gær, vegna kæru um að hafa
rænt þremur barnanna og tekið
þau með sér til Þýskalands,
eftir að hann missti forræðið
yfir þeim.
Hua, hinn upphafni . Teng, hinn útskúfaði.
Flokksdeildirnar berg-
mála yfirlýsingar
miðstjórnarinnar
Fréttastofan Nýja Kina segir,
að viðsvegar um land sé fagnað
skipan Hua Kuo-feng i forsætis-
ráðherraembættið og brottvikn-
ingu Teng Hsiao-ping úr trún-
aðarstörfum flokksins.
Segir Nýja Kina, að þjóðin öll
fordæmi glæpsamlegar tilraunir
Tcngs til aö ryðja auðvaldinu
braut inn i Kina. — Um leið er
farið hörðum orðum um þá, sem
efldu til mótmælaaðgerðanna á
Torgi hins himneska friðar, eftir
að kransar höföu verið fjarlægðir,
sem syrgjendur Chou En-Iais,
fyrrum forsætisráðherra 'höfðu
sett þar til minningar um hann.
Sovetmenn
agiarmr
r
i
fískimið
annarra
Kinverjar ásaka sovétmenn um
að nota risastóran fiskiskipaflota
sinn til að tæma fiskimið annarra
þjóða.
Fréttastofan Nýja Kina vitnar i
grein i Dagblaði alþýðunnar. 1
greininni segir að með aðstoð fíot-
ans moki tæknilega fullkomin
sovésk fiskiskip upp á miðum
annarra þjóða, án minnsta sam-
viskubits. Þannig séu fiskistofnar
i hættu, og um leið sjálfstæði
þjóða.
,,En ágirnd sovésku endur-
skoðunarsinnanna i fiskimið ann-
arra þjóða hefur vakið mikla and-
úð um allan heim,” er bætt við i
greininni.
TAKIÐ EFTIR!!!
Ofdrykkja alvar-
legt vandamál í
bandaríkjaher
Opið til kl. 10 í kvöld
Nú bjóðum við ódýrt:
Grænar baunir
Ananas hringir
Perur
Paprikusalat
Ekta súrkál
FAY sérvéttur 100 stk.
DIXAN 600 gr.
DIXAN 900 gr.
DIXAN 3 kg.
DIXAN 4,4 kg.
kr. 175,- pr. ds.
kr. 161,- pr. 1/1 ds.
kr. 89,- pr. 1/2 ds.
kr. 156,- pr. 450 gr. gls.
kr. 221,- pr. 1/1 ds.
kr. 298,- pr. pk.
kr. 298,- pr. pk.
kr. 419,- pr. pk.
kr. 1298,- pr. pk.
kr. 1959,- pr. pk.
Landher og sjóher
Bandarikjanna eiga við
alvarleg vandamál að
striða, vegna óhóflegrar
áfengisneyslu her-
manna.
Hagstofa Banda-
rikjanna segir i nýútkominni
skýrslu að þriðjungur her-
mannanna séu meira eða minna
háðir áfengi. Verst er ástandið i
herjum Bandarikjanna í Evrópu
og Kóreu.
En þrátt fyrir þetta alvarlega
vandamál, hefur á siðustu fimm
árumaðeins 57 milljónum dollara
verið varið til að berjast gegn
ofdrykkju, meðan 336 milljónum
dollara var varið til að berjast
gegn fikniefnaneyslu.
32prósent óbreyttra hermanna
i landhemum eru annaðhvort of-
drykkjumenn, eða ,,fara á túra”.
Hlutfallið hjá foringjum er aðeins
lægra, 20 prósent.
1 sjóhemum eru 37 prósent
óbreyttra ofdrykkjumenn, og 18
prósent foringja.
Ástandið er einnig slæmt meðal
kvenfólks i sjóhernum. Nitján
prdsent óbreyttra eiga við
alvarleg áfengisvandamál að
striða — og 9 prósent foringjanna.
Arið 1973 létust 289 hermenn
bandarikjahers i Evrópu.
Tuttugu og fjögur prósent
dauðsfallanna vom i einhverjum
tengslum við áfengisneyslu. Hins
vegar var neysla fikniefna tengd
8 prósentum dauðsfallanna.
Meginhluti þeirra fikniefna sem
neytt er innan herjanna er
marijuana.
Bakkus var með i spilinu i 42
prósentum allra alvarlegra glæpa
sem bandariskir hermenn
frömdu i Evrópu árið 1973 —
morð, nauðganir, rán og árásir.
Ót/ýr frosinn fiskur, — hvalkjöt,
hrefnukjöt, — marineruð ísl. sild.
Nýreykt pdskahangikjöt.
Urval af nýju grænmeti á markaðs-
verði. Nýir dvextir.
KOAAIÐ í KAUPGARÐ
og látið ferðina borga sig
Kaupgardut
Smiöjuvegi9 Kópavogi