Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 7

Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 7
7 VISIR Sunnudagur 27. nóvember 1977 læ, krakkar! Birna, meö Nóru f fanginu, Kristrún og Úifar, »em kom til að sjá köttinn fyrir utan heimili Kristrúnar. Vfsismyndir: Anna Kristin Brynjúlfsdóttir „Kisan hennar ömmu horfir mikið ó sjónvarp" Birna og Kristrún eru skólasystur og miklar vin- konur. Þeir eiga báðar heima í Kópavogi og eru i átta ára bekk. Kristrún er átta ára# en Birna verður átta ára í desember. Kristrún er búin að eiga kisuna sína/ hana Snældu/ í fjögur ár, en Birna fékk Birna með Nóru. kettling i sumar. Hann er nú orðinn hálfvaxinn kött- ur og heitir Nóra. Við hittum stelpurnar og kisurnar þeirra heima hjá Kristrúnu. Kisurnar höfðu aldrei hist fyrr og þeim kom illa saman. — Snælda min eignaðist einu sinni kettlinga, segir Kristrún. Þeir voru fjórir og ég sá, þegar þeir fæddust. Tveir voru svartir með pinulitlu hvitu, einn var gulbröndóttur og einn var gulur, svartur og hvitur, alveg eins og Nóra. — Snælda vill helst alltaf fá nýjan fisk að borða og mjólk að lepja. Svo finnst henni gott smjör. Stundum þegar ég er að boröa brauð, kemur hún og sleikir smjörið. — Amma min gaf mér Nóru, segir Birna. Amma á heima fyrir austan. Þar var kisa, sem vildi alltaf horfa á sjónvarpið. Nóra er voðalega sniðug, hún ætlaði að fara að opna hurðina um daginn. Og af þvi, að Birna þekkti kisu, sem horfir mikið á sjónvarpið, þá spurði ég þær Birnu og Kristrúnu að þvi, hvað þær horfðu helst á i sjónvarpinu. Svarið kom fljótt. — Undir sanra þaki. En endur- sýningin er svo seint á kvöldin. Við verðum að reyna að halda okkur vakandi, þvi að við viljum horfa á þáttinn tvisvar. En það er stundum erfitt að halda sér vakandi svo lengi. Ég held, að mennirnir i sjónvarpinu hafi gleymt þvi, hvað krakkar þurfa að fara snemma að sofa. — Við horfum lika á glæpa- myndir og Stundina okkar, þegar viö getum. Eskimóamyndin var skemmtileg, líka Simon i Kritar- myndalandi. — Hvað er skemmtilegast að læra i skólanum? Birna: Reikning. Kristrún: Ritæfingar og vinna i vinnubók. Þær vinkonurnar lesa mikið, enda löngu orðnar læsar. Þær lesa i skólabókasafninu og Kristrún fær auk þess lánaðar bækur i Borgarbókasafninu og Birna i bókasafni Kópavogs. Kristrún með Snæidu. ’Sjafovörur Jólavörur WWA SPEGLAR (antik) margapgerðir SNYRTIVÖRUR *\ LEIKFÖNG, mikið úrval. Heildverslun PÉTURS PÉTURSSONAR Suðurgötu 14 Simar 21020 — 25101 Hótel Borgarnes- Ráðstefnuhótel Gisti- og matsölustaður Sendum út heitan og kaldan mat. Ennfremur þorramat. 30% fjölskylduafsláttur af herbergjum frá 1/12 '77 - 1/5 '78. Ódýrt og gott hótel í sögulegu héraði. Pantanir teknar i sima 93-7119-721S yttttjþ @%ótei ($ovgameé NESVAL MELABRAUT 57 Seltjarnarnesi Sími 20785 Opið alla daga til kl. 22.00 ATH. Einnig laugardaga og sunnudaga Brauð Mjólk Kjötvörur Nýlenduvörur o. fl. o. fl.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.