Vísir - 04.12.1977, Side 7

Vísir - 04.12.1977, Side 7
7 VÍSIH Sunnudagur 4. desember 1977. nni Hannes Pétursson Kvæðasafn 1951 -1976 Ljóð Hannesar Péturssonar frá 25 ára skáldferli. Myndskreytingar eftir Jóhannes Geir listmálara. Öll ljóð eins okkar mesta skálds aðgengileg í veglegri og vandaðri heildarútgáfu, sem skipa mun öndvegi á sérhverju menningarheimili. Vésteinn Lúðvíksson Stalín er ekki hér Leikrit Vésteins er nú sýnt á sviði Þjóðleikhússins og hefur hlotið ein- róma lof gagnrýnenda. Allir unnendur íslenskra bókmennta fylgjast vel með sérhverju verki frá hendi Vésteins, sem tvímælalaust er ein af »vonar- stjörnunum« í hópi ungra höfunda. Gunnar Gunnarsson Jakob og ég Saga manns, sem snýr baki við tryggri tilveru og öruggri framabraut til þess að glotta framan í gamla vini — og verður á að spyrja sjálfan sig: Hvers konar fífl er ég? — »Bókin er bráð- skemmtileg aflestrar«, segir Flosi Ólafsson. Fylgist með þessum unga höfundi. ‘Jón’&pjfín 'Tmr'lljarnasún iSafla cfrá Sliaflfinhntjum Jón Espólín og Einar Bjarnason Saga frá Skagfirðingum Viðámikið heimildarrit í árbókar- formi um tíðindi, menn og aldarhátt í Skagafirði 1685 - 1847 og raunar miklu víðar á Norðurlandi. Ber öll sömu höfundareinkenni og Árbækur Espólíns. I. bindi spannar tímann 1685 - 1786 og II. bindi nær fram til ársins 1830. í ritverki þessu segir frá fjölmörgum mönnunv og sögulegum atburðum. ALDIRNAR ÖLDIN SAUTJÁNDA ÖLDIN SEM LEIÐ l-ll árln 1601-1700 árin 1801-1900 ÖLDIN ÁTJÁNDA l-ll ÖLDIN OKKAR l-íll árin 1701-1800 árin 1901-1960 Lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum, tvímælalaust vinsælasta ritverk sem út hefur komið á íslensku, jafneftirsótt af konum sem körlum og ungum sem öldnum. Alls 8 bindi, sem spanna tímann frá aldamótum 1600 til ársins 1960. Eignist öll 8 bindin áður en það verður um seinan. FORSETARÁNIÐ Alistair MacLean Forsetaránið Nýja bókin eftir hinn víðkunna met- söluhöfund, 18. bók höfundar, sem þýdd er á íslensku, og segir það sína sögu um vinsældir hans. — »Ugg- vænlega spennandi, ótrúlega hugvits- söm... besta bók MacLean um langt skeið« segir hið kunna blað Sunday Express. 1 ÍW 111 * * * il n iiiiin Hammond Innes Loftbrúin Nýjasta bókin á islensku eftir þennan margrómaða metsöluhöfund, sem fer á kostum í þessari snjöllu, þrauthugs- uðu og æsispennandi sögu. Spennan hefst strax á fyrstu síðum bókarinnar og nær óvæntu og dramatísku há- marki í tengslum við loftbrúna til Berlínar. David Morrell Angist Fyrir ári kom út bókin í greipum dauðans eftir Morrell, sem seldist upp á örskömmum tima. Sú bók var ærið spennandi og áhrifamikil, en ekki er þessi siðri, enda ber Morrell nú hæst þeirra höfunda, sem kvatt hafa sér hljóðs á þessu sviði síðustu árin. Hann er raunsær höfundur og i bókum hans er ekkert, sem ekki gæti hafagerst. Mary Stewart Örlagaríkt sumar Rómantísk og spennandi saga eftir höfund bókarinnar í skjóli nætur. — »Mjög vel gerð saga, þar sem spennu og ást er haglega blandað saman.« — The Observer. — »Afar spennandi saga, sem óumflýjanlega hlýtur að kosta andvökunótt.« The Guardian. iPpllílj, Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.