Vísir - 04.12.1977, Blaðsíða 15

Vísir - 04.12.1977, Blaðsíða 15
VISIR Sunnudagur 4. desember 1977. hann umgekkst lygasögum hans, en það gerðu konurnar hins vegar ekki. Þeim var flest- um ljóst að True lifði mestan part i landi eigin hugarflugs. True fæddist árið 1891. Hann var þritugur þegar Olive Young kvaddi þennan heim. Hann var óskilgetinn, en móðir hans, sem var aðeins 16 ára þegar hann fæddist annaðist hann vel og giftist siðar auðugum fésýslu- manni sem gat séð vel fyrir Ronnie True. En það kom þó að litlu gagni, þvi Ronald varð snemma óáreiðanlegur og sveimhugull. Hann var sendur til Nýja Sjálands til að fást við landbúnaðarstörf. en það gekk ekki, og i allmörg ár var hann á flakki um heiminn. Hann fór til Argentinu og siðan til Kanda, þar sem hann gerði stuttan og frægðarsnauðan stans i ridd- aralögreglunni. Þá hélt hann til Mexico og loks til Shanghai, þar sem hann frétti árið 1914 að strið væri skollið á. Hann ákvað að snúa heim og verða hetja. í f lugsveitinni Hann var þá orðinn morfin- sjúklingur, en þrátt fyrir það hafði hann til að bera vissa „yfirborðsfágun”. Hann þótti aðlaðandi og kurteis, en stund- um var hann lika i fýluköstum og þunglyndur. Það var aftur- ámóti ..yfirborðsfágunin” sem sinum furðulegu sögum og skyndilegu bræðisköstum. Aödragandinn Starfsmaður Scotland Yard rissar Fulliam, þar sem harmleikurinn potaði honum inn i konunglegu flugsveitina sem flugnema. Hann stóðst flugprófið og krafð- ist þegar i stað að fá þrisvar sinnum stærri vængi á einkenn- isbúninginn sinn en venja var til, og vann yfirleitt i regnboga- itum búningi. Einn af félögum hans i flug- náminu, Guy Dent að nafni sagði: ,,Hann var eins og með hitasótt. Hann var alltaf á þön- um, hló með miklum hávaða og virtist ekki hafa alltof mikið brjóstvit.” En svo kom á daginn aö það eina sem Ronald True gat gert Hann ók Ronald True milli skemmtistaðanna — Luigi Mazzola. upp húsið viö Finborough Road i átti sér stað. við flugvélar var að brotlenda þeim. Eftir eitt slysið, þar sem hann slasaðist alvarlega var hann settur út úr flugsveitinni. Shillingur á haus Við striðslokin hafði hann komið sér upp óðrum ..Ronald True". A sjúkraheimilinu þar sem m.a. var reynt að venja hann af daglegum 30 skammta morfintökum varð hann æfa- reiður i hvert skipti sem komið var með reikning til hans og lýsti yfir við slik tækifæri: ..Þetta er ekki tii min, Þetta er handa hinum.” Þegar hann var kominn út af sjúkraheimilinu tók hann upp titilinn ,,majór” og kvaðst vera striðsflugmaður sem hefði skot- ið niður a.m.k. fimm þýskar flugvélar. Hann sýndi gjarnan byssuna sina og sagðist þá ætla að ,.elta uppi hinn Ronald True”, og ef einhver vina hans vildi ryðja einhverjum úr vegi þá bauðst hann til að annast verkið fvrir spottpris, — einn shilling á haus. Við eina vinkonu sina sagði hann: ,,Ég kem tii með að myrða einhvern éinn góðan veðurdag. Þú skalt bara fylgj- ast með blöðunum og sjá. Þetta verður stórmál”. Þessari konu varð ljóst að True var geðveikur. Samt stækkaði vinahópur hans sifellt, og mörgum þótti hann skemmtilegur. Hann varð eins konar samkvæmistrúður með Að kvöldi 18. febrúar 1922, fór True i fvrsta skipti i heimsókn til Oiive Young. Þau höfðu hist nokkrum dögum áður i West End. Olive Young hafði eitt sinn verið afgreiðslustúlka i búð, en hún hafði sveigt yfir i vændi og vegna gáfna sinna og persónu- töfra vegnað vel i þeirri at- vinnugrein. Hún átti drjúga bankainnistæðu og gat valið úr viðskiptavinum, — ólikt venju- legum götudrósum. Hún var ekki lengi að komast að þvi að Ronald True var ekki hennar ,,týpa”. Við fy rstu heimsókn sina hræddi hann hana með venjulegum bvssu- stælum sinum og stal auk þess frá henni fimm pundum. Eftir þetta revndi hún allt hvað hún gat til að forðast hann. En undir miðnættið 5. mars fyrirskipaði True Mazzola, hin- um dygga ökumanni sinum að aka til Finborough Road. Hann var að verða auralaus. Olive Young, sem jafnan hafði slökkt hjá sér af ötta við heimsókn frá True. hafði i þetta skipti glevmt að slökkva ljósið i anddyrinu. True barði að dyrum og hún opnaði. Henni hefur vafalaust orðið byit við að sjá ..majórinn" i dyrunum, en gat heldur ekki tekið þá áhættu að visa honum burt þvi ef kæmi til háreisti eða rifrildis yrði slikt ekki vei séð af nágrönnunum i þessu virðulega 'stræti. Hún tók þá* áhættu að hleypa honum inn og það varð henni að fjörtjóni. Hamingjusamur og vinsæll Rannsókn leiddi i ljós að hún hafði látist milli kl. 7 og 8 um morguninn, mánudag 6. mars. True fór fram i eldhús, undir þvi yfirskyni að ætla að hita te, og kom aftur með morðvopnið, — kökukefli. Er stúlkan drakk teið sitt fór hann aftan að henni og sló hana fimm þung högg i höf- uðið. Siðan notaði hann klútinn og beltið til að ganga úr skugga um að hún væri látin. Hinn snjalli verjandi True, Sir Henry Curtis Bennett lagði mik- ið upp úr þvi við vörnina að True hefði heimskast til að vera enn á morðstaðnum þegar vinnukon- ankom.Hann hélt þvi fram að þetta, ásamt villtri skemmtifikn og fjáraustri Trues sem fylgdi i kjölfar morðsins væri augíjóst merki um geðveiki hans. Engu að siður úrskurðaði kviðdómurinn Ronald True sek- an um morð, og hann var dæmdur til dauða. Hann var fyrst sendur i fangelsi, en sið- ar, fyrir milligöngu innan- rikisráðherrans, til geðveikra- spitala fyrir glæpamenn i Broadmoor. Þar var hann til dauðadags. Hann lést árið 1951, 61 árs að aldri, — einhver ham- ingjusamasti, vinsælasti og elsti sjúklingur sem spitaiinn hefur nokkru sinni haft innan sinna veggja. Mesti harmleikurinn hvað varðar mál Ronald True var ef til vill að margir vissu hversu klofinn og andlega vanheill maður hann var. En þeir gerðu ekkert til áð hjálpa honum, — og bjarga þar með lifi Olive Young. Ronald True hafði til að bera vissa „yfirborðsfágun” sem fleytti honum yfir margar hindranirnar, — en ekki þó yfir réttarhöldin... illstaverk Ný plata meó visum úr Ví snabókí nni Frábært framlag Gunnars Þórðarsonar, Björgvins Halldórssonar og Tómasar Tómassonar. Vísurnar, þulurnar og þjóðkvæðin, sem Vísnabókin geymir, eru löngu orðin alþjóðareign. Fyrri Vísnabókinni, EINU SINNI VAR, naut meiri vinsælda en dæmi eru til um íslenska hljómplötu. Óhætt er að fullyrða, að nýja platan, ÚT UM GRÆNA GRUNDU, er síður líkleg til vinsælda og langlífis en hin fyrri. VÍSNABÓKIN er nýkomin út í 6. útgáfu og hafa þá verið prentuð af henni yfir fjörutíu þúsund eintök, enda er þessi afar vinsæla bók orðin sjálfsögð eign á heimilum landsins. Bræöraborgarstíg 16, Sími 12923-19156

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.