Vísir - 21.02.1979, Blaðsíða 16

Vísir - 21.02.1979, Blaðsíða 16
16 Miðvikudagur 21. febrúar 1979 VÍSIR LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST Laugarásbíó: Sjö prósent lausnin ★ ★ ★ Láki og Simmi og lausnirnar þeirra 7% lausnin — The Seven-Per-Cent Solution. Laugarás- bió. Bandarisk. Argerö 1976. Aöalhlutverk: Nicol Wiliiamson, Aian Arkin, Robert Duvall, Vanessa Red- grave, Laurence Olivier. Handrit: Nicholas Meyer, samkvæmt eigin skáldsögu. Leikstjóri: Herbert Ross. Sherlock Holmes og doktor John Watson, þok- an I London Viktoriutim- ans og þokan i þeim sakamálum sem tvimenningarnir greiddu úr i hinum klassisku sög- um Arthur Conan Doyle, — allt hefur þetta dáleitt dygga lesendur i marga áratugi. Þegar Doyle var sjálfur oröinn hundleiöur á meistaraspæjaranum og drap hann i einni smásögunni reis lesenda- hópurinn sárreiöur upp á afturfæturna og heimtaði að Holmes yröi vakinn upp frá dauöum. Og Doyle varö aö láta undan. Meira aö segja eftir að Doyle sjálfur var dauöur gátu uppdópaöir Holmes- neytendur ekki sætt sig við aö söguhetjan væri fyrir bi. Allra handa rit- höfundar og kvikmynda- geröarmenn hafa búið til stælingar á sögum Conan Doyles um hinn mikla snilling, yrkja upp úr þeim efniviöi sem fyrir er i sögunum ný ævintýri, nýjar útfærslur. Fyrir nokkrum dögum var nýj- asta útfærslan frumsýnd vestra, — Murder By Decree meö Christopher Plummer i hlutverki Holmes. Þetta hefur gefist misjafnlega. Sumt er meir til gamans gert (samanber Sherlock Holmes’ Smarter Brother sem Gene Wilder spaug- aði meö i Nýja biói fyrir tveimur árum). Annað er tiltölulega alvarlega meint, — eins konar lof- gjöröir um þessa frægu söguhetju (samanber hina fallegu mynd Billy Wilders The Private Life of Sherlock Holmes sem hér var sýnd fyrir áratug eöa svo). Nicholas Meyer reynir aö fara milliveg I 7% lausninni, — draga fram kómiska þætti söguefnisins en halda viröingu fyrir þvl um leiö. Þetta tekst furöan- lega vel. 1 7% lausninni reynir Meyer að kryfja dular- fyllstu gátuna sem Doyle bjó til i sögum sinum, — Sherlock Holmes sjálfan. Af hverju var hann for- fallinn eiturlyfjaneyt- andi? Af hverju var hann haldinn tortryggni gagn- vart konum? Af hverju var hann meö prófessor Moriarty á heilanum? Af hverju uröu sakamál slik ástrfða hjá hinum mikla gáfumanni? Til þess aö varpa ljósi á þetta fær Meyer til liös viö Watson engan annan en Sigmund Freud. A meöan Freud leysir gátuna um Sherlock Holmes leysir Holmes gátu sem varðar einn af sjúklingum Freuds I Vinarborg. Meistari hinna sjáanlegu en vandfundnu sönnunar- gagna og meistari þeirra sönnunargagna sem leyn- ast i fylgsnum dulvitund- arinnar leggja saman krafta sina I skáldsögu Meyers sem hér er kvik- mynduö af Herbert Ross. Þetta er út af fyrir sig stórsnjöll forsenda og I Alan Arkin og Vanessa Redgrave I Sjö prósent lausninni heildina er útkoman meir en viöunandi. Mér finnst þó einhvern veginn aö sjálft sakamálaplottiö I þessari mynd hefði mátt vera sterkara og I nánari tengslum viö meginstef hennar, sem er sú ráö- gáta sem er merkilegri en allar morögátur einar og sér, þ.e. mannshugurinn sjálfur, glima vitsmuna og tilfinninga. Cr þessu heföi Meyer getaö unniö mun betur. Þaö sem veldur þvl ekki hvaö slst aö þessi kvikmynd er ánægjuleg I viökynningu er leikur þeirra Nicol Williamson (Holmes) og Alan Arkin (Freud). Einkanlega bregöur Williamson upp minnisstæöri mynd af innri spennu og gllmu spæjarans. Hann býr til manneskju úr þessari fjarlægu sögupersónu. Robert Duvall I hlutverki Watsons á góöa og vonda punkta. Þessi ágæti ameriski karakterleikari hefur komiö sér upp kyndugum breskum hreim sem oft kemur eins og andskotinn úr sauðar- leggnum. Og Herbert Ross er leikstjóri sem sjaldan bregst. Hann er ekki tiltakanlega frumlegur, en hann er vandvirkur og smekklegur og mörg atriöi eru hér prýðilega unnin (ekki sist martraö- ir Holmes þegar hann á I höggi viö eiturlyfjanautn- ina og minnir um sumt á samsvarandi glimu Gene Hackmans I French Connection II). Fyrir þá sem eru búnir aö fá sig fullsadda I bili af blóö- og bossamyndum ér notaleg upplifun aö veröa vitni að tiltölulega vit- rænni spennu og húmor I kúltiveruðu kompanli með Láka Hólm og Simma Frojd og doktor Jóni. Fyrir sllka kvik- myndahúsgesti er Sjö prósent lausnin milljón prósent mynd. Ellen Gunnarsdóttir og Eyjólfur Bjarnason I hlutverkum sínum í kvikmyndinni Lilju. LILJA Á NORÐ- URLANDAMARKAÐ Kvikmyndin Lilja, sem byggð er á samnef ndri sögu Halldórs Lax- ness, hefur nú verið boðin til sýningar á Norðurlöndum, og fer eintak af myndinni á milli norrænu sjónvarpsstöðvanna. Norska sjónvarpiö tók fyrst viö myndinni og hef- ur þaö ákveöiö aö taka Lilju til sýningar. Leiklistardeild Norska sjónvarpsins fékk mynd- ina til umsagnar og segir I áliti hennar: „Deildin hefur skoöaö kvikmynd- ina Lilju og er þaö sam- dóma álit okkar aö hér sé á ferðinni góö og fag- mannlega unnin kvik- mynd sem bæöi Laxness, leikstjórinn og aörir aö- standendur eiga allan heiöur skiliö fyrir”. Leikstjóri Lilju er Hrafn Gunnlaugsson og samdi hann handrit myndarinnar I samvinnu viö Snorra Þórisson kvik- myndatökumann, sem var myndatökumaður. Texti myndarinnar hef- ur nýlega veriö þýddur á ensku og veröur myndin nú kynnt á markaöi utan Noröurlanda á vegum Global Television Services. Lilja er 29 minútna löng og tekin i lit I Reykjavlk og nágrenni áriö 1977 og 78. Hljóöupptaka var I höndum Jóns Þórs Hannessonar en aöstoö- arleikstjóri var Guöný Halldórsdóttir. Framleiö- andi myndarinnar er N.N. s/f. Kvikmynda- styrkur Menningarsjóös var á slnum tlma veittur til Lilju. Smákóngaveldi A vettvangi hljóövarpsins hefur mest fariö fyrir skoöanaskiptum um hugsanlegan rckstar næturútvarps siöustu vik- urnar. Sitt sýnist hverj- um en svo viröist sem út- varpsráö sé „voigt” I málinu. Ungir og áhuga- samir menn hafa gert ráöinu grein fyrir hug- myndum sinum um næturútvarp og tjáö sig reiðubúna aö sjá um þaö. Þetta er lofsvert framtak. Vonandi veröur hægt aö koma til móts viö svona krafta og gefa einhverj- um af gömlum útvarps- lummum fri á meöan. Ég er hins vegar ekki viss um aö neitt réttiæti út- varpssendingar aö nætur- lagi. Maöur hlýtur aö spyrja hver hlustun veröi á nóttunni og hvaöa auglýsendur telji sig ná til væntanlegra viðskipta- vina sinna á þeim tima sólarhringsins. I staö næturútvarps er þaö min skoöun að hefja beri útsendingar á annarri útvarpsrás, t.d. frá kl. 21.00 til 1 aö nóttu. Dagskrá á rás 2 ætti aö vera I léttum dúr, aö efnisuppbyggingu til svipuð þvl sem áhuga- menn um næturútvarp hafa gert tillögu um. Það á llka aö leita samvinnu Fjölmiðlun ;É|| * w 1 Markús örn An- tonsson skrifar viö þá um rekstur rásar- innar, gefa þeim tækifæri til aö koma hugmyndum sinum I framkvæmd og veita aöaldagskrá út- varpsins samkeppni. Fréttaþáttur milli 21.30 og 22.00 félli vel inn I dag- skrá rásar 2 en aö ööru leyti ætti aö bjóöa upp á léttara efni meö stuttum fréttum og veöurlýsingu á klukkutima fresti. Þörf á nýju blóði Forráöamenn útvarps- ins ættu aö leggja alla áherzlu á aö koma þessu I kring og reyna þar meö aö hressa upp á afkvæmi sitt. útvarpiö er alltof Ihaldssöm stofnun. Þar eru smákóngar á hverj- um gangi, I hverri deild. Utanaðkomandi ábend- ingum er tekið meö sem- ingi. Viö sérhverja gagn- rýni hlaupa sumir I fýlu. Þetta er aö mestu lokaö kerfi, þar sem persónuleg viökvæmni og hagsmuna- striö hinna heimarikustu er alltof áberandi I alls kyns uppákomum, sem sizt eru liklegar tií álits- auka eöa blómstrandi at- hafnasemi stofnunarinn- ar. Fyrir þetta mein veröur ekki komizt meö einni aögerö en smá innspýting af vltaminum og nýju blóöi gáeti komiö góöu til leiöar og hugsan- lega fleytt útvarpinu skammlaust I gegnum næstu hlustendakönnun. LÍFOGLIST LÍFOG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.