Vísir - 21.02.1979, Blaðsíða 23

Vísir - 21.02.1979, Blaðsíða 23
vtsm MiOvikudagur 21. febrúar 1979. Menn hafa deilt hart um Volvosamningana svokölluðu á þingi Norðurlandaráðs f Stokkhólmi. Þessi mynd var tekin á þinginu I gær. (Slmamynd) Deilt um Volvosamninginn Rólegar umrœður að öðru leyti á fyrstu dögum Norðurlandaráðsins Frá Eliasi S. Snæland fréttamanni Visis i Stokkhólmi: Fleiri en nokkru sinni fyrr, eða um 800 manns sitja þessa dagana fund Norðurlandaráðs i húsnæði sænska rikisþingsins við Sergeltorgið i Stokkhólmi. Þessifjöldi er þó ekki tilkominn vegna þess aö óvenju mikilvæg mál séu til umræöu á fundum ráðsins. Þvert á móti snýst um- ræðan nú ekki um eitt meiri- háttarmál eins og þó hefur oft verið á fundum Norðurlanda- ráðs á liðnum árum. Ljóst viröist að ekki veröi nokkur kostur á að hafa fund Noröurlandaráðs i Reykjavlk á næsta ári jafn fjölmennan og þennan. Góðar heimildir tjáðu blaðamanni Visis I gær að sennilega yröi að fækka heildar- fjöldanum um að minnsta kosti 250 frá þvi, sem hér er þegar ráðið kemur saman til fundar á tslandi að ári. Það eru ekki þingmennirnir, sem eru nú f jölmennari en áður, enda er f jöldi þeirra ákveðinn i samþykktum ráðsins. Þaö eru fyrst og fremst alls konar sér- fræöingar, sem nii eru fleiri en nokkru sinni fyrr á fundum Norðurlandaráös og blaöamenn og aðrir fulltrúar fjölmiðla eru einnig margir. Langar ræður Fyrstu þrjá daga þingsins frá nánudegi til miðvikudags að )áðum meðtöldum fara fram dmennar stjórnmálaumræður )g þær bera svo sannarlega öll nerki slikrar umræður i þjóð- jingum. t þessum almennu umræðum lytja þingmenn og ráðherrar angar, f yrirframsamdar •æður, þar sem fjallaö er i al- nennum orðum um hin ýmsu iviö norrænu samvinnunar. ttargar ræðurnar hafa að þessu iinni eins og vafalaust oft áður ikilið litiö eftir, nema vitneskju im almennan vilja til að efla íorrænt samstarf. Þaö hefur þó aðeins komið 'yrir hér i Stokkhólmi aö hitnað íafi I kolunum um stund, t.d. jegar Kare Willoch leiðtogi iægriflokksins i Noregi fór »agnrýnisoröum um meðferð íorskra stjórnvalda — en þar >ru jafnaðarmenn við völd — á /o lvosamningnum svonefnda, >n hann varð aö engu fyrir ikömmu eins og kunnugt er. Villoch lagði m.a. áherslu á aö lýna fram á klofning milli íorskra og sænskra jafnaðar- manna i málinu. Tryggve Brattelie fyrrum for- sætiíráðherra Noregs sá sig knúinn til andsvara og kom til nokkurra orðaskipta milli þeirra. Eftír hádegið i gær lenti Willoch svo I hörðum deilum við Olof Palme formann sænskra jafnaðarmanna um þetta mál og tóku þeir báðir oftlega til máls. Eiður Guðnason var I for- setasæti þegar þessi deila stóð sem hæst og var það frumraun hans i forsetastóli Norðurlanda- ráös. En Volvosamningurinn er sem sagt eina málið sem valdið hefur umtalsverðum deilum á fundinum I Stokkhólmi til þessa. ísland og norrænar fréttir Það er þó ekki hægt að segja að allar ræöurnar sem hafa verið fluttar hafi veriö langlok- ur um allt mögulegt. A fyrsta degi fundarins þ.e. á mánudag- inn fluttí t.d. Eiöur Guðnason alþingismaður ræðu, sem var stutt á Norðurlandaráðsmæli- kvaröa ogfjallaði um afmarkað mál — slæm tengsl Islands viö hin Norðurlöndin á sviði fjöl- miðlunar. Hann benti á að islenskir fjöl- miðlar væruekki i tengslum við neina norræna fréttastofu og sagði að næstum allar norrænar fréttir sem kæmu tíl Islands frá hinum Noröurlöndunum færu i gegnum stóru alþjóðlegu frétta- stofurnar AP og Reuter. Hann lagði áherslu á aö úr þessu yrði að bæta. Jafnframt ræddi Eiður um norræna sjónvarpsgervihnött- inn Nordsat og gagnrýndi hversu litlar upplýsingar al- Ragnhildur Helgadóttir var kjörin formaöur Norrænu menningarmálanefndarinnar. Eiöur Guönason var kjörinn varaforseti forsætisnefndar Noröurlandaráös. RAGNHILDUR í MENNINGARMÁLA- NEFND EN EIDUR f FORS/ETISNEFND Frá Eliasi S. Jónssyni fréttamanni Visis i Stokkhólmi. Ragnhildur Helgadóttir al- þingismaður var I gær kjörin formaðurNorrænu menningar- málanefndarinnar, en Per Olaf Sundmann frá Sviþjóð hefúr gegnt því embætti undanfarið. Þá hefur Eiöur Guðnason al- þingismaður verið kjörinn I for- sætisnefnd Norðurlandaráös af íslands hálfu, en Eiður er for- maður islensku sendinefndar- innar hér i Stokkhólmi. Vara- fulltrúi Islands i forsætisnefnd- inni er Svava Jakobsdóttir. Einnig var Gils Guðmundsson alþingismaður kjörinn fulltrúi tslands I endurskoöunarnefnd Norræna fjárfestingarbankans. —ÞF/ESJ, Stokkhólmi menningur hefði fengiö um þaö mál. A Islandi hefði málið t.d. ekki komist út úr Menntamála- ráöuneytinu. Hann sagöi óger- legt að taka ákvöröun um Nord- sat meöan almenningur hefði svo tíl engar upplýsingar fengið um máliö og varpaði fram þeirri hugmynd að ákvöröun yrði endanlega tekin með þjóðaratkvæöagreiðslu. Hins vegar væri ljóst að áður en að hún færi fram yrði að veita al- menningi itarlegar upplýsingar um allar hliðar málsins. Ragnhildur gerir kröf- ur um gæði Ragnhildur Helgadóttir hélt ræðu á þinginu i gær og fjallaði m.a. um menningarsamskipti Noröurlanda. Hún lagöi áherslu á nauðsyn þess að geröar yröu miklar kröfur um gæöi þess efnis sem t.d. íslendingar fengju frá hinum Norðurlöndun- um. Sérstaklega væri ástæða til að gera strangar gæðakröfur þegar um barnaefni væri að ræða. Ragnhildur fjallaði einnig um málefni Færeyja og Græn- lands i ræðu sinni og sagöi m.a. aö vafalaust myndu Færeying- ar, Grænlendingar og Alandsey- ingar fá „sjálfstæöari og beinni stööu innan norræna samstarfs- ins en þeir hafa nú”. Mannfagnaðir Oft er um það rætt að fundir Norðurlandaráðs einkennist af veislum og vissulega eru þær haldnar á hverju kvöldi. A mánudagskvöldiö héldu sendi- ráð hvers lands um sig I Stokk- hólmi veislu fyrir landa sina og þáöu Islendingarnir boö Ingva S. Ingvarssonar sendiherra og konu hans Hólmfriöar Jóns- dóttur á heimili þeirra hjóna. I gærkvöldi var veisla á vegum borgarstjórnar Stokkhólms, en i hófinu voru bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs afhent sænska rithöfundinum Ivar Lo Jöhann- son. 1 kvöld miðvikudagskvöld bjóða stjórnmálaflokkarnir i Sviþjóð bræðraflokkum sinum frá hinum Noröurlöndunum tíl veislu, Sjálfstæðismenn eru boönir til Moderata samnings partiet, Framsóknarmenn til Senterpartiet, Alþýðuflokks- menn til Sosialdemokratiska arbeter partiet og Alþýðu- bandalagsmenn til Venster partíet kommunisterne. Annaö kvöld býður svo sænska rikisstjórnin til kvöld- verðar en þaö er slöasta kvöld fundarins, þar sem störfum Norðurlandaráðs á að ljúka sið- degis á föstudag. Gap Konan geispaði ógurlega og bóndinn steig framúr rúm- inu. „Hvert ertu að fara, maður?” ,,Ég mundi ailt I einu eftir að ég gleymdi aö loka hlöðu- dyrunum”. Dagavillt? Mamma var búin að vera að heiman I nokkra daga og þegar hún kom heim spurði hún Magga litla hvað á daga hans hefði drifið. ,,Ja”, sagði Maggi, ,,á mánudaginn var til dæmis ægilegt óveður og þá sváfum pabbi og mig saman”. ,,Þú meinar pabbi og ÉG, Maggi minn”, leiðrétti fall- ega vinnustúlkan hann. „Nei, pei”, svaraði Maggi. ,,Það var á þriöjudaginn, ég var að tala um mánudag- inn”. Til Hafn- firðinga Veistu af hverju Hafnfirö- ingar hlaupa alltaf út i glugga þegar eru þrumur og eldingar? Þeir halda aö það sé verið að taka af þeim Ijósmyndir. Ragnar brosir við börnunum ÓVÆNT HEPPNI Þjóðviljinn var á laugar- daginn með fjögurra dálka „forsiöumynd af Ragnari ®Ar nalds, þar sem hann stóð $eins og góði hirðirinn innan t.um krakkana I Æfinga- og Ctilraunaskólanum. • 1 myndatexta var sagt að ©einn Htill snáði hefði orðið ®svo snortinn aö hann heföi ®fengið eiginh an dar ár itun ^ráðherra I stflabókina sina. ^ 1 frétt um þennan atburð ^egir Þjóðviljinn: • „Ragnar Arnalds, Cmenntamálaráöherra kom i Cbundirbúna og óvænta heim- ^ókn i Æfinga- og tilrauna- %kóla Kennaraháskóla ts- ^ands...” 0 Hugsiði ykkur hvað þeir •þj óðviljamenn hafa verið •einstaklega heppnir að það Askyldu einmitt þá vera Astaddir Ijósmyndari og ®blaðamaður frá þeim I skól- ®anum. I — ÓT

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.