Vísir - 09.06.1979, Qupperneq 5
VISIH Laugardagur 9. Júnl, 1979
5
á hana. Siöar keyptum viö
handa honum pianó. Hann setti
fingurna á pianóið og gleymdi
harmónikkunni á sömu stund.”
Sama árið og Barry fékk
pianóiö, þá 13 ára gamall, fékk
hann lika nýjan pabba. „Willie
Murphy breytti lifsstefnu
minni,” segir Barry. „Þaö
fyrsta sem hann geröi var að
fara meö mig á tónleika Gerry
Mulligan og varö hrifinn af
vesturstrandar djassinum. Og
snobbaöist i þokkabót.”
i helgan stein
Þegar Barry Manilow haföi
lokiö menntaskóla settist hann
aö á Manhattan, fékk sér ibúö i
Greenwich Village og eitt stykki
eiginkonu. Og starf. „Ég
byrjaöi i póstdeildinni hjá
CBS,” segir hann. „Lifiö var
mótað. Ég færi i kvöldskóla til
að ná mér i gráöu, yröi heima
hjá eiginkonunni og ynni eitt-
hvað fyrir sjónvarp siöar
meir.” Hann fór i háskóla og
nam auglýsingateiknun, en áöur
en ár var liðiö var hann búinn að
breyta til og komin i tónlistar-
nám.
Hjá CBS kynntist Barry
manni, sem áður haföi veriö
leikstjóri hjá Broadway, en var
að leita áö einhverjum sem gæti
samið lög við leikrit aö nafni
„The Drunkard.” Þaö kom i
hlut Manilow að inna þaö verk
af hendi Og gagnrýnendur lof-
uðu verkið. Barry varö
ástfanginn af skemmtiiönaöin-
um og lét hjónabandið lönd og
leiö.
Lengi úti á kvöldin —
„Ég uppgötvaði aö ég var lif-
andi,” segir hann, „að ég gæti
veriö meira en kvæntur. Ég gat
veriö úti lengi frameftir. Hitt
annað fólk. Ég fór aö taka þaö
illa upp aö vera si og æ bund-
inn.”
Þaö leiö ekki á löngu uns
Barry varö orðinn eins konar
þúsund-bjala-smiöur I tónlist
stjórnaöi tónlist fyrir sjónvarp.
útsetti og vann að alls konar
ver'kefnum, tengdum tónlist
sem óþarft er aö tiunda hér. Og
loks fór hann sjálfur á sviðiö
sem söngvari með hnátu nokk-
urri, Jeanne að nafni og nefndu
þau sig einfaldlega „Jeanne og
Barry.” Barry hlær þegar hann
minnist þessa tfma og játar aö
þetta hafi veriö „nokkur ár á
miöur geöslegum mótelum og
klúbbum aö syngja gamlar
lummur ' fyrtr fy-llibyttur og
vernda heiöur stúlkunnar. Þetta
var harður skóli, en ég haföi
gaman af þessu,” segir hann
Fyrsta platan
Eitt var vist, Tónlistin var
ekki lengur áhugamál. Nokkru
siöar bauöst honum staöa
pianóleikara i frægum klúbbi i
New York og eitt kvöldiö rak
Betty Midler þar inn nefiö. Og
þarf ekki aö orölengja þaö aö
Barry varö undirleikari hjá
henni, siöar stjórnandi tónlistar
hennar og loks upptökustjóri á
plötum hennar. Næst er aö
nefna þaö, að Barry sýndi
glamursöngvara nokkrum, Ron
Dante, nokkur lög sem hann
haföi samið og hvatti Dante
drenginn til þess aö gera ódýra
upptöku á segulbandsspólu Þaö
var gert og Arista fyrirtækiö
samdi viö Barry um plötu meö
þvi skilyröi að hann færi i
hljómleikaferð og kynnti plöt-
una. Þaö geröi hann — i fyrstu
landreisu Betty Midler, en þeim
haföi svo samist að hann yröi
áfram stjórnandi tónlistar
Barry Manilow lét loksins veröa af þvi núna i vor aö læra á bil og viö
hennar og fengi i staðinn aö
leika nokkur lög sin á hljómleik-
um hjá henni.
skulum vona aö námiö hafi gengiö aö óskum.
Opnir armar
„Ég var sannfærður um að
áheyrendur hennar myndu
drepa mig,” segir Barry, „aö á
sömu minútu og ég kæmi fram á
sviðið, myndi tómötum rigna
yfir mig eða allir færu fram og
fengju sér kók.” En reyndin
varð önnur og ánægjulegri.
Aheyrendur tóku honum opn-
um örmum og fannst sumum
fylgdarsveinum Betty Midler
jafnvel nóg um, einkum þegar
ungar og áhrifagjarnar stúlkur
rifu sig upp á svið og játuðu
honum ást sina eða færöu hon-
um rósa vendi. En einhver
heyrðist segja: „Barry???
Finnst fólki hann stuðvekj-
andi???”
Aður en varöi haföi Barry
„stuðað” milljónir manna og
lag hans „Mandy” fór á toppinn
á sex vikum.
Siöar hefur frægöin haldiö sig
hjá honum og hann sér ekki eftir
þeirri ákvöröun aö hella sér út i
skemmtanaiðnaðinn, eöa eins
og hann segir sjálfur: „Þegar
kallið kemur er ekkert sem þú
getur gert.”
Hjartað eða listin
Astarsorg er vinsælasta viö-
fangsefni Manilows. „Þaö er
betra að semja lög um ástar-
sorg en stööugt ástarsamband,
það hefur allavega meiri áhrif á
fólk,,’ segir hann.
Hann getur lika trútt um tal-
að, hætti fyrir nokkrum mánuð-
um sambúö meö vinkonu sinni
og býr nú einn. Ekki vegna þess
að hann elski hana ekki, heldur
vegna þess hve vinnan er mikil
„Hef ekki tima,” segir hann.
„Ég las einhvers staöar aö það
væri annað hvort hjartaö eða
listin. En það erfiöasta,” segir
hann og litast um i svo til tómri
stofunni „er aö koma heim til
ekki neins.”
Manilow er kurteis maöur og
t.d. hefur hann þann vana aö
aövara áheyrendur sina meö
þvi aö segja i upphafi hljóm-
leika sinna: „Ef þiö hafiö ekki
komiö meö einhvern meö ykkur
til þess aö kela viö, munu lög
min veröa ykkur kvalræöi.”
„You know I can’t smile with-
out you...”
— Gsal.