Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 2
VISIR ■Þriöjudagur 12. júnl Hvernig gengur að varð- veita peningana fyrir. verðbólgunni? Stefán Stefánsson atvinnulaus: Þvi er fljótsvarað: mjög illa. Mér heyrist á fólki að það gangi al- mennt illa,.verðbreytingar verða lika á hverjum degi. Erla Þóroddsdóttir, afgreiðsiu- stúlka: Ég hef engar áhyggjur af þvi, þeir hverfa eins og dögg fyrir sólu. Ragnheiður Sigurðardóttir, starfsm. Ferðafélagsins: Það er nú ekki mikið um þá,en gengur annars ágætlega. Kristinn Reynisson afgreiðsiu- maður: Hálfiíla. Ég held það fari eftir fjárfestingum hvernig fólki gengur almennt. Svavar Sigurjónsson lagermaður: Það hefur alltaf gengið illa en aldrei eins og eftir að veröbólgan komst á hátt stig. Eftir það hefur aldrei tekist betur en nú að eyða peningunum, sem raunar hafa aldrei verið miklir. 1979 2 tirslit i 800 metra stökki. Stormur greinilega iangfyrstur. KAPPREIÐAR A MANAGRUNDUM Hestamannafélagið Máni i Keflavik gekkst fyrir kapp- reiðum á Mánagrundum á sunnudaginn. Veður var ekki sem hagstæðast, suddarigning og eftir þvi fáir áhorfendur. Keppnin fór þó ágætlega fram og urðu úrslit i einstökum grein- um sem hér segir: A flokkur gæðinga, 1. Stefnir Kirkjubæ, Rang. Eigandi og knapi Éinar Þorsteinsson. B flokkur gæðinga: örvar úr Eyjafirði, Eigandi og knapi. Einar Þorsteinsson. Unglingakeppni, yngri aldursflokkur: 1. Grani frá Sandgerði. Eigandi og knapi Óskar G. Einarsson. Unglingakeppni eldri aldurs- flokkur: 1. Gassi. Eigandi og knapi Kristinn Skúlason. Opin töltkeppni: 1. Sámstaða- skjóni úr Fljótshlið. Eigandi Arni Sigurðsson. Knapi Eyjólfur Isólfsson. Gæðingaskeið: 1. Adam. Knapi Eyjólfur Isólfsson, eig- andi Dalur h.f. 800 m brokk: Sóti, Hofstöðum Borgarfirði. Eigandi Guðrún Einarsdóttir og var hún lika knapi. Tími: 1.54.2 800metra stökk: Reykur, Bæ, Borgarfirði. Eigandi Hörður G. Albertsson. Knapi Sigurður Sæ- mundsson. Timi: 65.3 350 metra stökk. Stormur frá Hornafirði. Eigandi og knapi Hafþór Hafdal. Timi: 26.1 250 metra skeið: Vafi, Hof- stöðum, Skagafirði. Eigandi og knapi Erlingur Sigurðsson. Timi 25.8. Umsjón: Katrín Pálsdóttir og Halldór Reynisson Frændur vorlr á Norðurlðndum: HERTRR ORYuBISKROFUR DYRARI RILAR Meðal þess sem um er rætt er aukið öryggi barna i bilum. Hinar auknu kröfur um öryggi koma til með að kosta drjúgan skilding. Svo getur farið að bilverð hækki um allt að tvær milljónir króna á næstu árum vegna hertra krafna um öryggi i bílum. A Norðurlöndum er nú veriö að vinna að tillögum um hertar. kröfur um öryggisbúnað bila. Ekki virðist þar langt i það að menn verði skyldaöir að aka ávalltmeð fullum ljósum: reynd- ar er þegar búið að lögfesta það i Sviþjóð og eru sænskir bilar i samræmi við það framleiddir þannig að um leið og billinn er settur i gang kviknar sjálfkrafa á ökuljósunum. Þá er rætt um að lögleiða hemla sem ekki læsast þegar stigiö er á þá en slikir hemlar eru til muna öruggari i hálku. Með þeim má minnka hættuna á árekstrum og útafkeyrslum en þeir taka jafnan mið af viðnámi vegarins og haga hemluninni eftir þvi. Með þessu móti má koma í veg fyrir að öku- menn missi stjórn á bilum slnum, þegar þeir snögghemla. Þessir hemlar eru hins vegar mjög dýrir og mundu hækka verð bflsins á aðra milljón króna þegar tollar og önnur útgjöld sem bæt- ast ofan á kaupverð bils, hafa verið reiknuð inn i dæmið. A.m.k. verða eigendur Mercedes Benz og BMW að greiða slikan aukaeyri en þetta eru einu biltegundirnar sem eru útbúnar með sllkum hemlum. Það er nú þegar skylda að brúka bilbelti á Norðurlöndum en nú hyggjast menn lögleiða notkun þeirra i aftursætum bila. Þá er rætt um sjálfvirk bilbelti en þá eru farþegarnir bókstaflega „negldir” niður i sætin. Slikur út- búnaður er nú þegar framleiddur 'af Volkswagenverksmiðjunum. Auknar kröfur um öryggi barna eru einnig á dagskrá hjá frændum okkar á Norðurlöndum, sem og bættir höggdeyfar og betri dekk. Allt kemur það til með að hækka verð á bilum. ■ Þetta mun hækka framleiðslu- verð bila að nokkru marki en sé miðað við núverandi gjöld sem lögð eru á innkaupsverð bila hækkar raunverulegt kaupverð þeirra þó mun meira. Telja Norð- menn að bilaverð þar i landi muni að óbreyttu hækka um tvær milljónir við þessar auknu kröfur eins og áður er sagt. Varla verður útgjaldaaukningin minni hér á landi. Visir hafði samband við Óla H. Þórðarson hjá Umferðarráði og spurðist fyrir um það hvort ein- hverjar ámóta öryggiskröfur væru i bigerð hér á landi. Ekki sagði hann það vera en taldi þó æskilegt að notkun bilbelta yrði lögleidd auk þess sem menn yrðu skyldaðir til að aka með fullum ökuljósum allan sólarhringinn i cb-Qmmrloöinn á lanHi —HR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.