Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 23

Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 23
visnt Þriöjudagur 12. júnl 1979 útvarp og sjónvarp 23 Ums jón: Friörik Indriöason Farmannaverkfalliö verður m.a. til umræöu I „Verkfall og verkbönn” I kvöld. Hér sést hluti flotans en ekki er útlit fyrir aö hann sigli i bráð. Sjónvarp kl. 21.05: Verklðll og verkbann Sjdnvarp kl. 20.30: Krlstni- hald undlr rðOstjórn Er núverandi stjórn- skipan komst á i Ráð- stjórnarrikjunum var þvi lýst yfir að trúar- brögð skyldu afnumin og i stað þeirra kæmi dialektisk efnishyggja. Siðan eru liðnir sex ára- tugir og telja kirkjunnar menn þar i landi að nú séu áhangendur hennar um tvöfalt fleiri en fé- lagar i kommúnista- flokknum. Þessi þáttur er gerður i tilefni heimsóknar erkibiskupsins af Kantaraborg til Rússlands. Hann fór þangað til þess að athuga stöðu Rétttrúnaðarkirkjunnar i Rússlandi. Kemur fram i þættin- um við hvers konar kjör kristnir menn búa, en til er i Rússlandi skráð kirkja sem verður að starfa eftir lögum sem stjórnin setur henni. Einnig er komið inn á starfsemi leynilegra söfnuða en til þeirra telst mikill fjöldi manna i Rúss- landi. Greint er frá þvi sem það hefur i för með sér að teljast með- limur i slikum söfnuði, en stjórn- völd beita ýmiskonar þrýstingi við fólk er telst til slikra söfnuða. Kirkjunnar menn telja trúaða i Rússlandi um 50 millj. Þessa tölu verður að taka með fyrirvara þvi ekki eru til opinberar tölur um þetta efni. Hvert stefnir hið islenska þjóðfélag i dag? Þessari spurningu verður reynt að svara i þættinum i kvöld. Rætt verður um aðdraganda ástandsins i kjara- málum og hvernig það er orðið nú i dag. Málin verða rædd á breiðum grundvelli og m.a. verður rætt um hin miklu völd sem hagsmunahópar hafa hér á landi, og hvort ekki sé orðið tima- bært að setja einhverskonar starfslög þeim til handa. Sumir vilja jafnvel að þau lög séu sett i stjórnarskrána. Gestir þáttarins verða margir. Má þar nefna fyrstan forsætis- ráðherrann Ólaf Jóhannesson. Einnig verður talað við þá Ingólf Ingólfsson frá FFSI, Snorra Jóns- son frá ASl og Þorstein Pálsson frá VSÍ. Munu þeir reyna að varpa ljósi á stöðuna i kjara- málum eins og hún er i dag. Sennilega kemur Július Kr. Valdimarsson frá Vinnumála- sambandi samvinnufélaganna og svarar þeirri spurningu afhverju sambandið er ekki með i verk- banninu. Einnig mun Sigurður Lindal segja álit sitt á þjóð- málunum með tilliti til vinnu- deilnanna. Þessi þáttur ætti að geta verið mjög fróðlegur ef tim- inn hleypur ekki frá umsjónar- mönnum hans en þeir eru Helgi E. . Helgason og Hermann Sveinbjörnsson. útvarp 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. A frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Kapp- hlaupiö” eflir Kare Holt. 15.00 Miödegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 VeðurfregnirL- 16.40 Popp. 17.20 Sagan: „Mikael mjög- siglandi" eftir Olle Mattson. Guðni Kolbeinsson les þýð- ingu sina (9). 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. 19.35 Barnalæknirinn talar,— þriöja erindi. Gunnar Bier- , ing læknir talar um nýbura-. mál á tslandi. 20.00 Kammertónlist. ford-kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 3 eftir Johan Weinzweig. 20.30 Útvarpssagan: „N'iku- lás” eftir Jonas Lie. Vaidis Halldórsdóttir les þýðingu sína (2). 21.00 Einsöngur: Eiður A. Gunnarsson syngur islensk lög. Ólafur Vignir Alberts- son leikur á pianó. 21.20 Sumarvaka. 22.30 Fréttir. Veðurfregnir. Dagskrá morgundagsins. 22.55 A hljóöbergi. Umsjónar- maður: Björn Th. Björns- son listfræðingur. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Kristnihald undir ráö- stjórn Þegar Ráðstjórnar- rikin voru stofnuð, lýstu for- ystumenn þeirra yfir, að nú skyldu öll trúarbrögð afnumin og i þeirra stað kæmi dialektisk efnis- hyggja. Siðan eru liðnir sex áratugir, en kirkjunnar menn þar i landi telja sina áhangendur tvöfalt fleiri en félaga kommúnistaflokks- ins. Þýðandi Ingi Karl Jóhannesson. 21.05 Verkföll og verkbann. — 21.55 Hulduherinn. Föstudag- urinn langi. 22.45 Dagskrárlok. Kremlverjar lita kristna trú hornauga,! samræmi viö þá kenningu Marx aö trúin sé ópfum fyrir fólkiö. LJÓSTRAÐ UPP UM LANGHUNDA Aö undanförnu hefur dægur- umræöa í Islenskri pólitlk eink- um snúist um þaö hver kunni best á almanakiö og hver sé minnsti svikari viö loforö sem ekki nokkrum manni datt I hug aö hægt væri aö standa viö. Þetta á aö minnsta kosti viö um vinstri væng stjórnmálanna en Sjálfstæðisflokkurinn er um þessar mundir fjarverandi aö safna fylgi og viröist þaö bara ganga vel ef marka má óljósar fréttir. En þótt dægurumræðan snúist aöallega um stælu um þaö hvort lfklegt sé aö einn mánuöur taki viö af öörum, til dæmis júnf af mal og júll svo aftur af honum, þá hefur fræöilega umræöan tekiö óvænta stefnu. Hér áöur þóttust fræðimenn sóslalista mega vera einir um hugmynda- fræðilega ihugun og skrifuöu þeir gjarnan maraþongreinar um dlalektlska efnishyggju og sögulega nauösyn á tiltekinni þróun i átt aö alræöi þeirra sem ekki eiga bót fyrir rassinn á sér. Þessir langhundar þeirra voru svo uppfullir af langdregnum staglanda sem er einkenni þokukenndrar hugsunar aö allt sæmiiega venjulegt fólk leit ekki við þeim. Þaö skipti þessa sjálfumglööu höfunda engu og þótti þeim best aö eiga ein- vöröungu pennavini I hópi sann- trúaöra enda væri vart á ann- arra færi aö taka þátt I svo hálfleygri umræöu. En nú standa þessir góöu menn stjarf- ir af undrun og sjá ekki betur en öll umræðan hafi flust yfir á hægri vænginn meö tilkomu Hannesar H. Gissurarsonar, sem ásamt Jónasi H. Haralz hefur hafib hugmyndafræöi til skýjanna þeim megin. Þaö sást glöggt er einn vinstrispekingur- inn ætlaöi aö velta þessum gauksungum úr hreiöri fræöanna aö þar var ofurefli fyrir. Þaö var hagfræöingurinn Þröstur ólafsson sem hélt aö venjubundin slagorö og innan- tóm kenning gæti sett ofan I þá Hannes og Haralz. Þeir svöruöu fullum hálsi og þekkingarlegir yfirburöir þeirra voru sllkir aö brátt varö Ijóst aö Þröstur átti ekkert erindi I þaö samkvæmi og stóö hann uppi sem boöflenna I skynsamlegum umræöuþætti. aldrei vitaö af hverju þeir séu I Sjálfstæöisflokknum og hætt sé viö aö veröi þeim gert þaö ljóst þá fari þeir úr flokknum. Þaö er lika sagt aö Hannesi hugmynda- fræöingi sé sama um þessa menn. En hvaö sem er um allar þessar sögusagnir er enginn vafi á aö Hannes H. hefur gjör- breytt allri fræöilegri umræöu I islenskri pólitlk og svipt burtu einsog hverju ööru hismi einka- rétti kommúnista til aö fjalla um þau mál. Og þeir vita svo sannarlega hvaöan veöriö stendur á þá. Þeir byrjuöu þvl á gamalkunnri rógsherferö sinni um hinn nýja fræöimann. Sennilega hafa ekki margir is- lenskir æskumenn fengiö jafn- riflegan skammt af sliku úr þeirri átt og hefur þó skiturinn ekki alltaf veriö þar naumt skammtaöur. En þaö hefur ekki dugaö. Hannes viröist ódrep- andi og þaö sem verst er: hann nennir aö lesa langhundana þeirra og er einkar lagiö aö sýna venjulegu fólki fram á hvilikt bull þeir eru. Svarthöföi Sjálfstæöisflokkurinn varö 50 ára á dögunum og er sagt aö ýmsir flokksmanna séu glaöir og ánægöir aö fram sé kominn maöur eins og Hannes H. sem geti loks gert flokksmönnum grein fyril- hvers vegna flokkur þeirra hafi veriö til I 50 ár og hvers vegna hann sé stór og sterkur og styrkist mest fjar- verandi. En þaö er llka sagt aö sumir haldi aö skýringar Hannesar geti ruglaö suma flokksmenn I riminu. Þeir hafi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.