Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 5

Vísir - 12.06.1979, Blaðsíða 5
VISIR Þriðjudagur 12. júni 1979 IV”.\V Umsjón: Katrin Pálsdóttir DC-10 Langhorne Bond, flugmála- stjóri Bandarikjanna, kom fyrir þingnefnd fulltrúadeildar Banda- rikjaþings I gærkveldi. í yfir- heyrslum yfir Bond kom fram, að ekkert er ákveðið ennþá hvenær DC-10 þotur verða teknar I notkun á nýjan leik. Bond geröi grein fyrir eftirlits- enn kerfi flugmálastjórnar, en það hefur verið mjög gagnrýnt. Heyrst hefur jafnvel, að það hafi veitt DC-10 þotunum loftferðar- leyfi, þrátt fyrir hugsanlegan hönnunargalla vélarinnar. Verið er að gera umfangsmikla rannsókn á hreyfilsfestingum vélanna. stopp Gallarnir I DC-10 hafa einungis komið fram I DC-10-10, en McDonnel Douglas verksmiðj- urnar framleiða einnig DC-10-30 og 40. Fyrrnefnda tegundin er eins og sú, sem Flugleiðir eiga, en engir gallar hafa komið fram I þessum vélum. Langhorne Bond, flugmálastjóri Bandarlkjanna, hefur verið yfirheyrður af þingnefnd Bandarikja- þings. Fram kom i yfirheyrslunni að hann gæti ekki sagt um hvenær DC-10 vélar færu I loftið á ný. Myndin er af Bond benda á teikningu af þotuhreyfli DC-10. Gas-SAABinn, sem hefur verið reynsluekiö I Sviþjóð og Noregi. GAS A BÍLINN Fiug- ræn- ingi m Castro Breiðþotu með yfir 200 manns innanborðs var rænt f innanlands- flugi I Bandarikjunum og snúið til Kúbu í nótt. Flugvelinni var rænt þegar hún var yfir Suður-Karollnu riki. Ekki er vitað hvort flugræninginn er einn eða hvort þeir eru fleiri. Vélin lenti á Kúbu i morgun. Fidel Castro forseti fór út á Havana flugvöll, svo að liklegt er, að flugræningjarnir hafi óskað viðræðna við hann. Flugræningjarnir hafa ekki sett fram neinar formlegar kröfur og flugstjórinn hefur ekki sent nein- ar upplýsingar um líðan farþega og áhafnar. Þegar benslnverðið rýkur upp úr öllu valdi, hljóta bilaframleið- endur að taka til sinna ráða. Það nýjasta er að nota gas I staðinn fyrir rándýrt bensin. SAAB verksmiðjurnar eru nú að reynsluaka gasdrifnum bilum og útkoman er góð. Gasið, sem Sviar kalla LPG- gas, eða mótorgas , mengar andrúmsloftið mun minna en bensinið. Mesti kosturinn er kannski sá, að það er nóg til af þvi, framboðið er meira en eftir- spurnin. Þá má einnig nefna það aö i gasinu er ekki blý. Sænsku SSAB-verksmiðjurnar byrjuðu tilraunir sinar á siðasta ári. Gas hefur verið notað á 15 fólksbila, sem hefur verið ekiö I Sviþjóð og Noregi. Samvinna er höfð við Esso i þessu verkefni. Nokkrar breytingar þarf að gera á vélum bilanna til að hægt sé að nota gasið. Ekki er þetta þó stór peningaupphæö, hún nemur sem svarar 180 þúsundum is- lenskra króna. Reyndar eru gasbilar ekki alveg nýir af nálinni. Þeir eru til I HoÚandi og Danmörku, þar sem þeir hafa veriö notaðir I nokkur ár. þýskaland: Borgarskæruliði handteklnn grunaður um aðild að morði Hanns-Marlln Schleyer Rolf Heissler, sem grunaður er um aðild að morði Hanns-Martin Schleyer, hefur verið handtekinn af vestur-þýsku iögreglunni. Heissler sat i Straubingfangelsi fyrir utan Munchen, en var látinn laus I skiptum fyrir Peter Lorenz árið 1975. Hann hefur gengið laus siðan. Heissler var látinn laus á- samt fjórum öðrum borgar- skæruliðum, sem sátu i fangels- um i Vestur-Þýskalandi i skiptum fyrir Lorenz. Fimmmenningarnir flugu siðan til Yemen. • Rolf Heissler er einn þeirra, sem grunaðir eru um aðild að morði HaníB-Martin Schleyers.en hann var myrtur fyrir tveim ár- um. Einnig er Heissler grunaður um að hafa átt þátt i morði Jurgen Ponto, sem var myrtur i júli 1977. Heissler særðist i átökum við lögregluna, en hann var handtek- ihn i ibúð i Frankfurt. Hann hefur nú verið fluttur á nýjan leik i Straubingfangelsið.Hann átti eftir að sitja inni i fimm ár fyrir bankarán, þegar hann var látinn laus i skiptum fyrir Lorenz. John Wayne lék í yfir 200 kvikmyndum um ævina EGGERT KRISTJANSSON & CO. HF., SUNDAGORÐUM 4, SÍMI 85300. John Wayne lést í velli. Nýlega var fjarlægður stór hluti maga hans, en áður hafði verið tekinn hluti af lunga. nðtt Bandariski kvik- myndaleikarinn John Wayne lést i Los Angeles i Bandarikjunum i nótt. Hann var 72 ára að aldri. Wayne er þekktastur fyrir leik sinn i kúrekamyndunum svoköll- uðu, en hann á að baki alls tvö hundruð kvikmyndir. Ferill hans spannar meira en hálfa öld. Siðustu árin hefur Wayne barist hetjulegri baráttu við krabba- mein, sem lagði hann loks að FAXftFEbb HP KZ INNRETTINGAR LEYSA STÓR OG SMÁ GEYMSLU- VANOAMÁL. UPPBYGGING KZ INNRÉTTINGA ER ÁN VERKFÆRA. MIKLIR BREYTINGAMÖGULEIKAR. KZ INNRÉTTINGAR f SKRIFSTOFUNA, VÖRU- GEYMSLUNA, BÍLSKÚR- INN OG BÚRIÐ. Góó keilsa ep £æfa kveps iaaaas í hverri töflu af MINI GRAPE eru næringarefni úr hálfum „grape“ ávexti. Erlendis hefur MINI GRAPE verið notað fyrir þá sem vilja megra sig.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.