Morgunblaðið - 02.08.2001, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 55
DAGBÓK
Snertilinsur
- fyrir veiðimenn -
6 linsur í pakka,
prófun, meðferðarkennsla,
vökvi og box.
frá 7.500.- kr.
sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945
Tilboð
Barnamyndatökur verð frá
kr. 5.000
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
HACKETT-tvíburarnir, Jas-
on og Justin, eru Bretar fram
í fingurgóma – kurteisir heið-
ursmenn með þurra kímni-
gáfu, spila veikt grand og
opna á fjórlit í spaða og
hjarta. Breskara getur það
ekki verið.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ KD106
♥ 10632
♦ --
♣ K9642
Vestur Austur
♠ 9 ♠ G843
♥ 85 ♥ DG7
♦ KDG108742 ♦ 95
♣Á10 ♣G873
Suður
♠ Á752
♥ ÁK94
♦ Á63
♣D5
Vestur Norður Austur Suður
Jason Justin
-- -- Pass 1 hjarta
5 tíglar 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Spilið er tveggja ára gamalt
og kom upp í úrvalskeppni
átta sveita í Bretlandi.
Hækkun Justins í slemmu er
svolítið hörð, því þrátt fyrir
17 punkta er skiptingin jöfn
og tígulásinn tæplega verð-
mætur. En Jason fékk enga
ástæðu til að gagnrýna bróð-
ur sinn fyrir fífldirfsku í
sögnum.
Vestur kom út með tígul-
kóng, sem Justin trompaði og
spilaði strax hjarta á níuna.
Hann trompaði svo annan
tígul, tók ÁK í hjarta (henti
laufi úr borði) og síðan tígulás
og henti nú spaða. Austur
varð að henda laufi frá fjór-
litnum. Laufdrottning kom
næst og vestur tók með ás og
spilaði tígli í þessari stöðu:
Norður
♠ KD10
♥ --
♦ --
♣ K96
Vestur Austur
♠ 9 ♠ G843
♥ -- ♥ --
♦ DG108 ♦ --
♣10 ♣G8
Suður
♠ Á752
♥ 4
♦ --
♣5
Með tíglinum þvingaði vestur
makker sinn í spaða og
hjarta, en hitt hefði ekki verið
betra að spila svörtu spili, því
þá hefði Justin trompað lauf-
ið frítt.
“Thank you partner. Well
played.“
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarsson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vinnufús og vandvirk-
ur og fólk getur treyst því að
þú leysir verkefni vel af
hendi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki hugleiðingar um
framtíðina skemma fyrir þér
nútíðina. Slappaðu af og
njóttu þess sem þú hefur. Sá
hefur nóg er sér nægja lætur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert allra vinur þessa
stundina og ættir að láta þér
vel líka í flestum tilvikum.
Mundu bara að ekki eru allir
viðhlæjendur vinir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að athuga hvort þú
getur leyft þér að eignast
hlut, sem þig hefur lengi
dreymt um, án þess að fara
yfir strikið í fjármálum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú átt á hættu að spenna
myndist milli heimilis og
vinnustaðar. Þú verður að
taka á málunum, því annars
áttu á hættu að allt fari úr
böndunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Flýttu þér hægt, það getur
forðað þér frá mörgum mis-
tökum. Reyndu að sjá veröld-
ina eins og hún er, en ekki
eins og þú vilt helst að hún sé.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú vilt heyra sannleikann
ómengaðan, verður þú líka að
vera viðbúinn því sem í hon-
um felst. Synjaðu ekki beiðni
góðs vinar um aðstoð í neyð.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er komið að því, að þú
hljótir verðug laun erfiðis
þíns. Njóttu þeirrar stundar
sem skapast milli stríða og
gerðu þér einhvern dagamun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að gera ekki meiri
kröfur til annarra en sjálfs
þín. Vinur þinn upplifir sam-
band ykkar svo að leiti beri í
milli. Leiðréttu það strax.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Líttu um öxl og reyndu að
gera þér grein fyrir rauða
þræðinum í atburðarás síð-
ustu daga. Þar kunna að leyn-
ast mikilvæg skilaboð um
framhaldið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er algjör óþarfi að fara
stöðugt í felur. Þú ert maður
fyrir þinn hatt og átt að
hressa upp á sjálfstraustið
svo þú þorir að láta sjá þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver átök gjósa upp á
vinnustað þínum, en þú skalt
halda þig utan við þau af
fremsta megni. Vanræktu
hvorki vini þína né vanda-
menn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu það ógert að kveða upp
úr um hlutina að lítt athuguðu
máli. Það kann ekki góðri
lukku að stýra að láta stjórn-
ast fyrst og fremst af ósk-
hyggju.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Ellivísa
Finn eg tekur að förlast kraftr,
fjör og orku lina,
en þó vil eg ekki yngjast aftr
fyrir alla veröldina.
Eiríkur Hallsson
STAÐAN kom upp á EM
einstaklinga í Ohrid í Make-
dóníu. Skákhornið gerir
þessa vikuna ýtarlega grein
fyrir handbragði Braga
Þorfinnssonar (2.292) á
mótinu. Hann hafði hvítt
gegn svissneska alþjóðlega
meistaranum Beat Zuger
(2.448). 25. Hxd8! og svart-
ur gafst upp enda verður
hann mát eftir 25. ...Hxd8
26. Df7+ Kh8 27. Dxh7#.
Skákin tefldist í heild sinni:
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4.
cxb5 a6 5. b6 e6 6. Rc3 Rxd5
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
7. Rxd5 exd5 8. Dxd5 Rc6 9.
e4 Be7 10. Rf3 Hb8 11. Bc4
0-0 12. Bd2 Hxb6 13. 0-0
Hxb2 14. Bc3 Hb6 15. Had1
d6 16. Dh5 Bf6 17. e5 g6 18.
Dh6 Bg7 19. De3 He8 20.
Df4 Be6 21. Hxd6 Db8 22.
Bxe6 fxe6 23. Rg5 Rd8 24.
Hdd1 Bh6 o.s.frv.
85 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 2.
ágúst verður 85 ára Guðrún
Pétursdóttir, Dalbraut 27,
Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 2.
ágúst, verður fimmtug Jó-
hanna L. Jónsdóttir, for-
stöðumaður Listasetursins
Kirkjuhvols, Laugarbraut
15, Akranesi. Eiginmaður
hennar er Valdimar Björg-
vinsson, verslunarstjóri.
Þau eru að heiman í dag.
85 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 2.
ágúst, verður 85 ára Ólafur
Jónsson, rafeindavirki,
Lynghaga 24 í Reykjavík.
Eiginkona hans var Hjördís
Jónsdóttir, fyrrv. verslunar-
maður. Ólafur ver deginum
með nánustu fjölskyldu sinni.
Það er frá félagsmálayfir-
völdunum, mamma. Ég fæ
mína eigin íbúð snemma.
Fyrirgefðu! Þú
gleymdir byssunni
þinni.
80 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 2.
ágúst verður áttræð Laufey
Pálsdóttir, saumakona frá
Siglufirði, Austurbrún 6,
Reykjavík. Hún er að heim-
an í dag.
40 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
3. ágúst verður fertugur
Einar Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri SBK hf. Ein-
ar og eiginkona hans, Helga
Steindórsdóttir, bjóða ætt-
ingjum, vinum og samstarfs-
fólki til veislu í kvöld, 2.
ágúst, kl. 20-24, um borð í
Hafsúlunni við Ægisgarð í
Reykjavíkurhöfn.
FRAMKVÆMDASÝSLA ríkisins
hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna
fullyrðinga sem fram hafa komið í
fjölmiðlum um gerð skilamata hjá
Framkvæmdasýslu ríkisins.
„Á árunum 1995–2000 voru gerð
tíu skilamöt og voru þau vegna eft-
irtalinna verka:
Flugstöð Leifs Eríkssonar, bíla-
stæði, Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
innritunarsalur, kristnihátíð Þing-
völlum, Tollhúsið Tryggvagötu,
Fjölbrautaskólinn við Ármúla,
flutningur Landmælinga Íslands,
Hæstiréttur Íslands – nýbygging,
lögreglustöð á Selfossi, skrifstofa
bæjarfógeta og lögreglustöð á
Siglufirði og heilsugæslustöð á
Akureyri.
Fullyrðing um að einungis sex
skilamöt hafi verið unnin árin 1995–
2000 er því röng. Á árunum 1990–
1995 voru eftirtalin skilamöt unnin
undir umsjón Framkvæmdasýslu
ríkisins:
Heilsugæslustöð Þönglabakka 6,
Reykjavík, heilsugæslustöð Grinda-
vík, heilsugæslustöð á Húsavík,
sýsluskrifstofur og lögreglustöð á
Húsavík, meðferðarheimilið Vík á
Kjalarnesi, Háskólabíó – stækkun,
heilsugæslustöð í Ólafsvík, dómhús
í Reykjavík, heilsugæslustöð á Höfn
í Hornafirði, heilsugæslustöð á Dal-
vík, heilsugæslustöð á Hvamms-
tanga, Hornbrekka í Ólafsfirði,
læknisbústaður á Sunnuvegi 1,
Þórshöfn, listaskólinn í Laugarnesi
og Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi.
Samtals eru þetta því um 25
skilamöt.
Samkvæmt eldri lögum um op-
inberar framkvæmdir (63/1970 með
breytilegum sbr. lög nr. 55/1993),
sem giltu fram á mitt ár 2001, fór
Ríkisendurskoðun með yfirstjórn
skilamata, en ekki Framkvæmda-
sýsla ríkisins líkt og lögin kveða nú
á um. Þá hafði Ríkisendurskoðun
það hlutverk að setja reglur um
gerð skilamata. Ríkisendurskoðun
setti fram reglur um gerð skilamata
árið 1990.
Kostnaður við vinnslu og prentun
skilamata er umtalsverður. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins hefur því
miður hvorki mannafla né fjármuni
til þess að vinna hundrað skilamöt
aftur í tímann. Aftur á móti var
hafið átak í gerð skilamata á árinu
1999 en þá var ráðinn sérstakur
starfskraftur til þess að sinna út-
gáfu skilamata. Hefur frá þeim
tíma verið sérstakt stöðugildi til
þess að sinna þessu hlutverki. Í júlí
2001 voru um 30 skilamöt í vinnslu,
þar af eru 12 á lokastigi og bíða út-
gáfu innan skamms. Þau skilamöt
eru eftirtalin verk: Fangelsið á
Litla-Hrauni, hjúkrunarheimili á
Fáskrúðsfirði, Þjóðminjasafn í
Vesturvör, Sjúkrahús Reykjavíkur,
Tryggingastofnun, heilsugæslustöð
í Kópavogi, Lánasjóður landbúnað-
arins, Flughlöð FLE, einangr-
unarstöð í Hrísey, Þjóðleikhús,
Sjúkrahús Akraness og sendi-
herrabústaður í London.
Rétt er að taka fram að tilgangur
ákvæðis laga um opinberar fram-
kvæmdir um gerð skilamata er að
bera saman kostnað sambærilegra
framkvæmda. Í öllum þeim fram-
kvæmdum sem lokið er og ekki
hafa verið gerð formleg skilamöt
yfir liggur að sjálfsögðu fyrir reikn-
ingslegt uppgjör og lokaskýrsla
verksins.
Í mörgum framkvæmdum er
bókhald ekki hjá Framkvæmda-
sýslu ríkisins, í þeim tilvikum hefur
oft og tíðum reynst örðugt að nálg-
ast reikningslegt uppgjör til þess
að geta lokið gerð skilamats. Þá
hafa margir verkkaupar skirrst við
gerð skilamata vegna umfangs og
kostnaðar við þau. Hafa margir
þeirra farið fram á að í stað form-
legra skilamata verði gerðar stuttar
yfirlitsskýrslur.
Vegna umtalsverðrar vinnu við
gerð skilamata hefur verið ákveðið
að vegna smærri viðhaldsfram-
kvæmda verði í stað skilamats gerð
stutt yfirlitsskýrsla. Að öðru leyti
er vísað til leiðbeinandi reglna
Framkvæmdasýslu ríkisins um
framsetningu skilamats.“
Yfirlýsing frá Fram-
kvæmdasýslu um skilamöt
ÞRIÐJUDAGINN 31. júlí var ekið á
bifreiðina US-507, sem er VW Caddy,
hvít að lit, og farið af vettvangi. Atvik-
ið átti sér stað framan við Klapparstíg
16, Rvík, á bilinu kl. 10:00-14:15. Vitni
að atvikinu, svo og tjónvaldur sjálfur,
eru beðin um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Mánudaginn 30. júlí var ekið á bif-
reiðina VT-734, sem er Subaru Justy,
fólksbifreið, hvít að lit, og farið af
vettvangi. Atvikið átti sér stað á bif-
reiðastæði við verslunarmiðstöð við
Lóuhóla í Breiðholti á bilinu kl.
06:30-08:10. Vitni að atvikinu, svo
og tjónvaldur sjálfur, eru beðin um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Lýst
eftir vitnum
Í ANNAÐ sinn verður gengist fyr-
ir barnahátíð í og við Félagsheim-
ilið Árnes í Gnúpverjahreppi um
verslunarmannahelgina. Skipulögð
dagskrá, sem að mestu er ætluð
börnum, verður á laugardag og
sunnudag.
Meðal þeirra sem fram koma
eru Solla stirða úr Latabæ, trúð-
urinn Geiri gleðigaur, Jóhanna
Guðrún, söngkona, töframaðurinn
Bjarni og Ómar Ragnarsson les
fyrir börnin. Þá verður dansað
fram á nótt á föstudags- og laug-
ardagskvöld, en á sunnudagskvöld
verður varðeldur og samsöngur
fram á kvöld.
Barnahátíð í
Árnesi
FRÉTTIR