Morgunblaðið - 25.09.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir að Pricewaterhouse-
Coopers (PwC), hafi lagt til að hluta-
bréf í Landssímanum yrðu seld á
umtalsvert hærra verði í almennu
útboði og sölu til starfsmanna en rík-
isstjórnin og einkavæðingarnefnd
hafi ákveðið.
„Verðmat þeirra sem við studd-
umst við var á tilteknu bili. Neðri
mörkin á því var gengið 6,1. Síðan
var tekin ákvörðun um það eftir ít-
arlega umfjöllun einkavæðingar-
nefndarinnar að gera tillögu um að
fara niður fyrir þessi neðri mörk eða
niður í 5,75 í ljósi aðstæðna við söl-
una og til þess að koma til móts við
almenning og fjárfesta í þeim til-
gangi að gera hann álitlegri fjárfest-
ingarkost,“ segir Sturla.
Samgönguráðherra vildi ekki
greina frá hver hefðu verið efri verð-
mörkin í ráðgjöf PwC en sagði að
þau hefðu verið verulega hærri og
þ.a.l. meðalverðið sem lagt var til.
Búnaðarbankinn lagði til að
verð á bréfunum yrði lækkað
Hreinn Loftsson, formaður einka-
væðingarnefndar, segir það rétt sem
fram hafi komið að Búnaðarbankinn
hafði lagt til talsverða lækkun á út-
boðsgenginu, „en við töldum það al-
gerlega óverjandi“, segir hann. Sam-
gönguráðherra kveðst ekkert hafa
heyrt um að Búnaðarbankinn hafi
lagt til að útboðsgengið yrði lækkað.
„Það eru alveg nýjar fregnir fyrir
mér. Ég hef ekkert heyrt af því,“
sagði Sturla.
„Okkar verðmat var
eðlilegt og sanngjarnt“
Hreinn vísar með öllu á bug þeirri
gagnrýni sem fram hefur komið á
söluna, m.a. um að söluverðið hafi
verið of hátt. „Landssíminn er fyr-
irtæki með mjög traustan og öflugan
tekjugrundvöll. Miðað við aðstæður
á Íslandi er tiltölulega lítil áhætta
fólgin í því að kaupa hlutabréf í
Landssíma Íslands. 96% lands-
manna eiga viðskipti við þetta fyr-
irtæki á hverjum degi. Þar af leið-
andi er það rangt sem ýmsir hafa
haldið fram að það eigi að gera ein-
hverja 12 til 15% ávöxtunarkröfu
eins og heyrst hefur til fjárfestingar
í fyrirtæki eins og Landssímanum.
Það er mun nær að tala um 10,5%
miðað við þann rekstur sem þarna er
um að ræða. Það styður það að okkar
verðmat var eðlilegt og sanngjarnt,“
segir Hreinn.
Hann segir það hafa verið með öllu
ástæðulaust fyrir ríkið að slá af verði
þessarar eignar sinnar með tilliti til
markaðsaðstæðna. Ekkert liggi á og
ef bréfin seljist ekki geti ríkið haldið
bréfunum áfram. „Við vildum hins
vegar halda okkur við þá ákvörðun
sem tekin hafði verið og gefa þeim
færi á að kaupa sem voru reiðubúnir
til þess, á þeim grundvelli sem við
töldum eðlilegan og sanngjarnan.
Það voru 2.600 einstaklingar en því
miður allt of fáir stofnanafjárfestar,
sem tóku þátt í þessum kór að fá ein-
hverja sérstaka lækkun á verðmæti
Símans vegna markaðsaðstæðna.
Þeir vildu sem sagt fá áhættulitla
eign inn í sín verðbréfasöfn á útsölu-
kjörum. Það kom ekki til greina,“
segir Hreinn.
Ys og þys út af engu
Þeirri gagnrýni hefur einnig verið
haldið fram að rétt hefði verið að
fresta sölunni. Hreinn vísar því einn-
ig á bug og segir að útboðið hafi verið
upphaf á ferli sem hafi svo haldið
áfram í gær vegna sölu 25% hluta-
fjárins til kjölfestufjárfestis. „Ríkið
hefur átt þetta fyrirtæki í áratugi.
Það er enginn asi á mönnum og eng-
in áhætta fyrir ríkið. Ég tel þetta
brölt um að ekki hafi átt að selja því
vera ys og þys út af engu. Það tekur
þá bara lengri tíma að selja en það
kemur ekki til greina að slá af verð-
inu,“ segir hann.
Hreinn segir að þeir sem haldi því
fram að forgangsröðin við söluna
hafi verið röng hafi ætlað sér að
skipta sér af rekstri fyrirtækisins.
„Það er kjölfestufjárfestirinn sem
það gerir en það er ekki hlutverk líf-
eyrissjóða að stjórna þeim fyrirtækj-
um sem þeir kaupa hlutabréf í. Þeir
eiga að hafa eftirlit með stjórnend-
unum. Þeirra hlutverk er ekki að
setjast inn í stjórnir fyrirtækja og
fara að skipta sér af rekstri þeirra,“
segir hann.
„Það er greypt inn í undirstöður
einkavæðingarinnar, allt frá því að
hún hófst fyrir tíu árum með skipu-
lögðum hætti, að Jón og Gunna
fengju fyrsta tækifærið. Þau fá að
kaupa þegar verðið er eins lágt og
það getur orðið og það er við upphaf
sölu. Þá fær einstaklingurinn og líf-
eyrissjóðirnir sem hann á hlut í að
kaupa.
Þarna fær almenningur fyrsta
tækifærið og svo lengi sem ég fæ
nokkru ráðið verður þetta með þeim
hætti að almenningur fær fyrsta
tækifærið,“ sagði Hreinn.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra um útboð Landssíma Íslands
PwC lagði til mun
hærra útboðsgengi
ÓSAMRÆMI er á milli frásagnar
Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lög-
fræðings af tölvupóstsendingum
Aðalsteins Leifssonar varðandi
heimildanotkun í kandidatsritgerð
Vilhjálms, og tölvupóstsins, sem
Aðalsteinn sendi á sínum tíma. Í
yfirlýsingu, sem Vilhjálmur sendi
frá sér sl. fimmtudag kveðst hann
hafa notað brot úr fyrirlestri Úlf-
ars Haukssonar í þeirri „góðu trú
að Aðalsteinn væri höfundur
þess“, og honum hafi verið ókunn-
ugt um uppruna efnisins.
Aðalsteinn Leifsson sendi Vil-
hjálmi hins vegar tölvupóst dag-
settan 8. mars 2000 ásamt við-
hengjum. Í póstinum, sem
Morgunblaðið hefur undir hönd-
um, segist Aðalsteinn senda Vil-
hjálmi skilaboð í Word-skjali
merktu villi.doc og er skjalið enn-
fremur efst á lista yfir fjögur við-
hengi. Í þessu fyrsta viðhengi er
Vilhjálmi meðal annars gerð grein
fyrir að Aðalsteinn sé ekki höfund-
ur alls efnisins þar sem segir:
„Góðan dag Villi! Afsakaðu að
ég sendi þér ekki línu fyrr en ég
hef verið upp fyrir haus í stórum
verkefnum og þurfti auk þess að
taka smá frí vegna flutninga og
veikinda. Meðfylgjandi er fyrir-
lestur sem Úlfar Hauksson hélt
fyrir skömmu um mögulega aðild
Íslands að sjávarútvegsstefnu
ESB á fundi í Brussel og ennfrem-
ur eldri grein sem ég skrifaði um
sama mál.“ Síðar í sama viðhengi
minnist Aðalsteinn í tvígang aftur
á Úlfar.
Í yfirlýsingu frá Vilhjálmi er
þetta staðfest þar sem hann segir:
„Í einu af þessum viðhengjum kom
fram að eitt þeirra væri fyrirlestur
sem Úlfar Hauksson stjórnmála-
fræðingur flutti á fundi í Brussel.
Það viðhengi, eins og hin, var þó al-
gjörlega ómerkt.“ Í næstu setn-
ingu í sömu yfirlýsingu segir Vil-
hjálmur: „Tveimur mánuðum síðar
notaði ég hluta af þessu efni ásamt
öðrum heimildum við gerð kandi-
datsritgerðar minnar í þeirri góðu
trú að Aðalsteinn væri höfundur
þess. […] Þegar mér varð ljóst
hvernig málum var háttað, en það
var í kjölfarið á kvörtun Úlfars
Haukssonar til lagadeildar, hafði
ég þegar samband við Úlfar og
skýrði honum frá málavöxtum. Ég
bað hann afsökunar á þessum mis-
tökum mínum og ítrekaði við hann
að mér hefði verið ókunnugt um
uppruna efnisins.“
Mál Vilhjálms kom upp í kjölfar
þess að Úlfar Hauksson stjórn-
málafræðingur vakti athygli laga-
deildar á að kafla úr ritgerð sem
hann skrifaði væri að finna orð-
réttan í ritgerð Vilhjálms. Ekkert
var vísað til ritgerðar stjórnmála-
fræðingsins í ritgerðinni og henn-
ar var ekki getið í heimildaskrá.
Vilhjálmur bar fyrir sig að hann
hefði fengið sent efni frá þriðja að-
ila, Aðalsteini Leifssyni, í tölvu-
pósti til frjálsrar notkunar.
Lagadeild fékk afrit af tölvu-
póstinum og kemur þar fram eins
og fyrr segir að Úlfar Hauksson er
höfundur textans.
Ekki náðist í Vilhjálm H. Vil-
hjálmsson. Sigurður G. Guðjóns-
son hrl., lögmaður Vilhjálms, sagði
skjólstæðing sinn staddan í út-
löndum en vildi annars ekki tjá sig
um málið.
Ósamræmi í yfir-
lýsingu kandidats
MÁL lögfræðings sem sakaður var
um ritstuld í kandidatsritgerð sinni
var lagt fram til kynningar á fundi
háskólaráðs Háskóla Íslands í gær.
Páll Skúlason rektor sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir fundinn að
háskólaráðið hefði málið ekki til um-
fjöllunar að öðru leyti en því að gögn
lagadeildar hefðu verið kynnt ráðinu
til fróðleiks. „Málið kemur ekki til
umfjöllunar háskólaráðs nema eitt-
hvert tilefni verði til þess sem hefur
ekki verið til þessa. Á fundinum kom
fram að kandídat er óánægður með
afgreiðslu lagadeildar, en hann hefur
ekki kært þann úrskurð, svo há-
skólaráð hefur hann ekki til umfjöll-
unar,“ sagði rektor.
Deildarfundur lagadeildar Há-
skóla Íslands samþykkti í síðustu
viku að svipta Vilhjálm Hans Vil-
hjálmsson lögfræðing kandídatstitli
og afturkallaði einkunn sem hann
fékk fyrir lokaritgerð sem hann
skrifaði við deildina. Jafnframt sam-
þykkti fundurinn að heimila Vil-
hjálmi að skrifa nýja ritgerð við laga-
deild eins og hann hafði óskað eftir
að fá að gera.
Aðspurður sagði Páll Skúlason úr-
skurð lagadeildar standa, háskóla-
ráð hefði ekki afskipti af honum að
svo stöddu og kynning málsins fyrir
háskólaráði væri aðeins eðlilegur
upplýsingavettvangur fyrir atburði
innan veggja háskólans.
Lögfræðingur
sakaður um ritstuld
í kandidatsritgerð
Ekki til
umfjöll-
unar í há-
skólaráði
LÁTINN er í Reykja-
vík Gunnar Jökull Há-
konarson hljómlistar-
maður, fimmtíu og
tveggja ára að aldri.
Gunnar Jökull fæddist
13. maí 1949 í Reykja-
vík og ólst þar upp.
Hann bjó í Reykjavík
alla sína tíð nema árin
1986 til 1994 þegar
hann bjó í Svíþjóð.
Gunnar Jökull hóf
ungur að leika í hljóm-
sveitum og hann var
aðeins 14 ára gamall
þegar hann var byrjað-
ur að leika sem trommuleikari í Tón-
um. Tveimur árum síðar, eða þegar
hann var 16 ára hóf
hann að leika með
bresku hljómsveitinni
Syn og vakti trommu-
leikur hans mikla eftir-
tekt en Gunnar varð
fyrstur trommuleikara
í heiminum til að spila
svokallað tvöfalt bít.
Þegar hann kom frá
Bretlandi 18 ára gam-
all spilaði hann fyrst
með hljómsveitinni
Tempó og síðan með
Flowers. Í framhaldi af
því lék Gunnar með
hljómsveitinni Trú-
broti.
Gunnar lætur eftir sig einn son.
Andlát
GUNNAR JÖKULL
HÁKONARSON
SVO virðist sem ökumenn átti sig
ekki fyllilega á hlutverki vegaxla á
Reykjanesbrautinni, enda hefur
borið á framúrakstri á þeim, sem
getur að sjálfsögðu verið stór-
hættulegt, þar sem enginn ökumað-
ur á von á því að tekið sé fram úr
honum hægra megin. Vegaxlirnar
eru eingöngu ætlaðar ökumönnum
til að aka út á í því skyni að hleypa
þeim framúr sem á eftir koma á
meiri hraða.
Kvartanir hafa borist Umferð-
arráði um að ökumenn kunni ekki
að víkja út á axlirnar til að hleypa
hraðari umferð framhjá og einnig
hefur verið kvartað yfir ökumönn-
um sem nota axlirnar til fram-
úraksturs.
Að sögn Óla H. Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra Umferðarráðs
er framúrakstur á vegöxlunum
hættulegur enda eiga ökumenn
allajafna síst von á því að tekið sé
framúr hægra megin. Þá brýnir
Umferðarráð fyrir þeim sem hægar
aka að fylgjast með umferð í bak-
sýnisspeglinum og vera tilbúnir að
hliðra til hægri út á vegöxlina ef
ökutæki nálgast aftan frá. Ekki hef-
ur verið rætt um uppsetningu leið-
beiningaskilta á Reykjanesbraut-
inni varðandi rétta
umferðarhegðun.
Morgunblaðið/Júlíus
Þeir sem hægar fara
hliðri út á vegaxlirnar
TILBOÐ voru opnuð hjá Vegagerð-
inni í gær í útboðum þriggja fram-
kvæmda á Suðurlandi. Stærsta
vegaframkvæmdin er Gaulverjabæj-
arvegur þar sem kostnaðaráætlun
hljóðar upp á rúmar 40 milljónir
króna. Sjö tilboð bárust, þar af voru
þrjú undir áætlun. Lægsta tilboð
kom sameiginlega frá Styrkingu ehf.
á Selfossi og Slitlagi ehf. á Hellu upp
á 36,4 milljónir króna.
Níu tilboð bárust í uppsetningu
girðinga í Mýrdal sem Vegagerðin
áætlaði að gæti kostað 13,6 milljónir
króna. Sjö verktakar buðu undir
áætluninni og þeir lægstu aðeins
með 57% af áætlun, eða tilboð upp á
7,8 milljónir. Alls bárust 14 tilboð í
endurbætur á Þórsmerkurvegi ofan
Markarvegar, sem Vegagerðin áætl-
aði að kostaði 6,7 milljónir. Mikill
munur reyndist á lægsta og hæsta
tilboði. Lægst bauð Tönnin í Reykja-
vík, 4,6 milljónir, en langhæst bauð
Styrking eða 15,9 milljónir króna,
sem er 136% hærra en áætlunin.
Boðið var í þrjú
verk á Suðurlandi