Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 5
Guömundur Pétursson skrifar vtsm Þriöjudagur 18. mars 1980 Panamaiæknar brýna busana vegna keisarans Deila hefur sprottiö upp milli bandarlsks hjartaskurðlæknis og lækna I Panama um, hvort þörf sé á þvi að skera fyrrverandi Irans- keisara upp eöa ekki. Reza Pahlevi var sendur heim af sjúkrahúsinu á sunnudag, þegar hætt var við að skera hann upp, en bandaríski læknirinn, dr. Debakey, heldur því þó fram, aö þess sé full þörf. Vill hann annast skurðaðgerðina sjálfur. Læknar spitalans eru ekki aldeilis á því, og sagði dr. Carlos Garcia, yfirlæknir, að keisarinn væri „hraustur eins og Tarzan”. En ef til þess kemur, að sjúkl- ingurinn verður skorinn upp, segja þeir, að ekki komi til mála, aö sá bandariski kukli i honum. Þeir munu þá annast það sjálfir. Yfirlýsingu læknisins og til- kynningu spitalans ber akki alveg saman, þvi að i tilkynningunni segir, að aðgerðinni hafi verið .frestað, þar sem keisarinn sé of veikburða til þess að gangast undir skuröaðgerö. FORKOSNINGARNAR I ILLINOIS GETA SKIPT SKÖPUM FYRIR KEHN EDY 0G ANDERSON Forkosningar verða i Illinois i dag og gera stuðningsmenn Kennedys sér nokkrar vonir um sómasamlega útkomu honum til handa vegna Irsks ætternis hans og eins vegna gremju gyðinga i garð Carterstjórnarinnar vegna atkvæðagreiðslu USA gegn Israel á dögunum hjá Sameinuöu þjóð- unum. Hjá repúblikönum benda skoð- anakannanir til þess aö baráttan verði mjög tvisýn milli þeirra Reagans og John Anderson, sem erúr frjálslyndari armi flokksins. Menn biöa með mestri eftir- væntingu, hvaða gengis Kennedy mun njóta i þessum forkosning- um, en hann hefur tapað alls- staðar nema i Massachusettes, heimafylki sinu. Hefur hann lofaö stuðningsmönnum sinum, aö nú verði snúið viö blaðinu, og sigur- gangan hafin I Illionis. Hefur hann lagt mjög að sér við að kynna sig og stefnu sina kjósend- um I Illinois að undanförnu. Skoðanakönnun, sem birtist i Chicago Tribuna, gaf til kynna, að Cater nyti 56% fylgis en Kennedy 23%. Sendiherra USA sést gægjast út um glugga sendiráösins f Bogóta en til hægri á myndinni eru gfslar á leiö þaöan. Skæruliöarnir slepptu öllum konum og sjúkum. BÝBUR SKÆRULIÐUNUM TIL KÚBU MEB GÍSLANA Fidel Castro, forseti Kúbu, hefur lagt til að skæruliðunum I sendiráðinu I Bogota verði leyft aö fljúga með glslana til Havana og þá 70 félaga sina, sem þeir heimta lausa úr fangelsi. Castro gerði Julio Turbay Ayala, Kólombiuforseta_, þetta boö I orösendingu, sem stjórnin i Bogoto opinberaði f gær. Á valdi skæruliðanna I sendi- ráði Dóminikanska lýðveldisins eru 11 sendiherrar, 2 sendiráðs- ritarar og 16 manns til viðbótar Þau hafa nú verið 20 daga I prísundinni. Samtök skæruliðanna, M-19 eins og þau kalla sig, hafa krafist lausnar fyrir 70 félaga sina, og hafa þar bæði fallið frá peninga- kröfunni (upphaflega 50 milljón dollarar) og lækkaö töluna á póli- tisku föngunum, sem þeir heimtuðu úr fangelsi. Einn af gislunum, Fernando Gomez Fyns, sendiherra Uruguay, (42ára) slapp I gærdag úr prisundinni meö þvi að hnýta saman lök á endunum og láta sig siga á þeim úr glugga á annarri hæð sendiráösbyggingarinnar. Hann meiddi sig litillega, þegar hann kom niður. Hjartasérfræðingur var kvaddur I sendiráðið I gærdag, þar sem menn héldu, að sendi- herra Venezúela, Virgilio Lovera, heföi fengið hjartaslag. Læknir- inn færði þær fréttir, þegar hann kom aftur úr sendiráðinu, aö Lovera hefði einungis fengið svimakast, en væri annars hraustur. Læknirinn skoðaði þrjá sendiherra aðra og einn skærulið- ann. Mannfali í El Saivador Framboösefni repúblikana I sjónvarpssal fyrir kappræöufund, sem aldrei varö neitt úr. 23 herskáir vinstrisinnar munu hafa fallið i átökum við öryggis- sveitir Ei Salvador viö búgarð 40 km noröur af höfuðborginni i gær. Herlið var sent til búgarösins til þess aö flæma burtu vinstri sinna stjórnarandstæöinga, sem her- tekið höfðu bæinn til að láta I ljós andstöðu viö stjórnina. — Margir voru handteknir. Fyrr I gær kom til 3ja stunda skotbardaga milli hermanna og vinstrimanna á háskólalóðinni I San Salvador. Skömmu áður hafði sprengja sprungið við land- búnaöarráðuneytið. 20.000 kennarar landsins hafa nú lagt niður vinnu i mótmæla- skyni við það, sem þeir kalla kúg- unaraðgerðir stjórnarinnar. verksmiðjum sinum og fækka 110 þúsund manna starfsliöi sinu um 25 þúsund i sparnaðarskyni. Hefur sú áætlun þegar hlotið samþykki samtaka starfsfólks- ins. Vandræöaungllngar Um 200 ungmenni, vopnuð sleggjum, gerðu áhlaup á neðan- jarðarjárnbrautarstöð I London um helgina og unnu þar mikið hervirki. Veittust þau einnig að farþegum. Um 40 manns voru flutt á sjúkrahús, þar af sjö far- þegar. — Lögreglan handtók um 20 unglinga, allir á aldrinum tólf til átján ára. Brutu unglingar rúður og allt, þar sem þeir komu sleggjunum við, en tólunum höfðu þeir stoliö úr verkfærageymslu stöðvar- innar. — Ungmenni þessi fara um i flokkura einkennd af snoðklipp- ingu og stigvélabullum og ganga I London undir nafninu „skin- heads”. Mannránln á italfu Mannræningjar slepptu um helg- ina 69 ára iðjuhöldi, eiganda garðsláttuvélaverksmiðju, gegn greiðslu lausnargjalds, en honum var rænt I Como 19. febrúar. Um leiö var öðrum manni rænt skammt frá Mflanó, og er sá eig- andimikils nautabús. — Kunnugt er um að minnsta kosti 9 menn, sem rænt hefur verið á taliu á þessu ári. A sama tima I fyrra haföi um 20 verið rænt. Frökkum llölgar lbúum Frakklands fjölgaði á sið- asta ári, og samkvæmt upplýs- ingum manntalsskrifstofunnar frönsku voru þeir 53.583.000 þann 1. janúar 1980. — Það var 210.000 fleiri en 1. janúar 1979. Korchnoi vann Korchnoi sigraði i fimmtu ein- vigisskák þeirra Petrosians, en hún hafði farið i bið. Tefldu þeir Korchnoi og Petrosian aö tafii. ekki nema sex leiki upp úr bið- stöðunni. Fyrstu fjórar skákirnar urðu jafntefli, og hefur þvi Korchnoi 3 vinninga en Petrosian 2. Annarri einvigisskák þeirra Huebners og Adorjans var frestaö i gær að beiðni Adorjans, sem gaf ekki á þvi neina skýringu, en hvor keppandi um sig hefur heimild fyrir tveim frestunum. Ekkert veröur heldur teflt I dag, þvi að þá átti að tefla biöskákir, ef ein- hverjar yrðu. Fyrsta skákin varð jafntefli. ðiympiuleikarnlr I Moskvu Fulltrúar rikisstjórna tólf landa hefja viðræður i Genf I dag um fjölþjóða-iþróttamót fyrir Iþróttamenn, sem missa munu af ólympluleikunum i Moskvu. Breska þingið samþykkti I gær, aö ekki yrði sent landsliö á Moskvuleikana. og var auðséð á atkvæðatölum, að margir úr röð- um stjórnarandstæðinga studdu Thatcher forsætisráðherra I þvi efni. Carter Bandarikjaforseti hefur Itrekað, að honum muni ekki snúast hugur varöandi sniðgöngu USA á Moskvuleikunum. Talsmenn ástraiskra sund- manna, sem eru helstu vonir Astraliu um gull á ólympiuleikun- um, lýstu þvi yfir I morgun, að ástralskir sundmenn mundu fara á Moskvuleikana, hvað sem liöi áskorun Astraliustjórnar til Iþróttamanna að fara ekki. r■ ■■ : Gulllð teliur Gullið hrapaði I morgun I verði á Hong Kong-markaðnum eftir verðfalliö I New York og London um helgina. Únsan er nú komin niður i 460,5 dollara I Hong Kong, og hefur ekki verið svona lágt áður á þessu ári. Það er 24 dollur- um lægra en við lokun i Hong Kong I gær, og 11 dollurum lægra en i New York I gærkvöldi. Verð- fallið á gullinu kom I kjölfarið á yfirlýsingum Carters Banda- rikjaforseta um aðgerðir i efna- hagsmálum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.