Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 8
8 vtsnt Þriöjudagur 18. mars 1980 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davíö Guómundsson Ritstjórar: óiafur Ragnarsson Ellert B. Schram Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Friða Astvaldsdóttir, Gisli Sigurgeirsson, Hannes Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónína Michaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Askrift er kr. 4.500 á mánuði Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innanlands. Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Verö i lausasölu 230 kr. eintakiö. Prentun Blaðaprent h/f. RIKISSTJORNIN STYÐJI FRIDRIK Friörik Ólafssyni hefur veriö trúaö fyrir mesta ábyrgöarstarfi skákheimsins, forseta- embætti FIDE, samtaka 110 þjóöa. Islensk stjórnvöld veröa aö skapa honum þá aö- stööu, sem þörf er á hér á landi og veita honum og FIDE þann fjárhagsstuöning, sem nauösyniegur er I þessu sambandi. íslendingum er gjarnt að gefa yf irlýsingar við hátíðleg tækifæri og á ýmsum tímamótum. Ráða- menn þjóðarinnar á hverjum tíma eru ekki síst iðnir við slíkt, en allt of oft kemur í Ijós, að þeir haf a verið að lofa upp í ermina á sér í yfirlýsingunum. Eitt slíkt mál er nú í brenni- depli. Það snertir þann eina for- seta alþjóðasamtaka, sem er í hópi landsmanna, Friðrik Ölafs- son, forseta Alþjóða skáksam- bandsins, FIDE. Nú er komið nokkuð á annað ár frá því að hann tók við þessu mikla ábyrgðarstarfi en ein ástæðan fyrir því að hann gaf kost á sér til starfans varað hon- um var heitið stuðningi stjórn- valda til þess að flytja aðal- stöðvar FIDE hingað til lands og stjórna sambandinu héðan frá (slandi. Raunhæfar efndir hafa ekki orðið á þeim fyrirheitum. Vfsir skýrði frá því fyrir helg- ina að mikil óvissa væri um það, hvort skrifstofa FIDE yrði starf- rækt hér á landi, en í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens er gert ráð fyrir óbreyttri fjárveitingu frá fyrra frumvarpi til forseta sambands- ins vegna starfsemi hans og FIDE hér á landi. Friðrik sagði þá í samtali við Vísi, að hann hefði ekki ástæðu til aðætla annað en að þeir, sem um þetta mál f jölluðu hefðu skilning á málinu og því hlyti f járveiting- in að hækka. Það væri gjörsam- lega útilokað að reka skrifstofu FIDE hér fyrir átta milljónir króna. Sú fjárveiting, sem Friðrik Ólafsson, sótti um til þessarar starfsemi í samræmi við loforð ráðamanna nam 22 milljónum fyrir yfirstandandi ár. Með því fjármagni taldi hann hægt að koma starfinu í fullan gang. Það vekur athygli, hve smásálarleg fjárveitingin til FIDE er á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar, sem margsinnis hefur lýst því yfir að hún muni leggja meiri áherslu á menn- ingarmál en fyrri stjórnir. Þegar Ragnar Arnalds var menntamálaráðherra lagði hann til að FIDE fengi það fjárfram- lag, sem Friðrik fór fram á, en það mun þá hafa verið um 20 milljónir króna. Fjárlaga-og hag- sýslustofnunin mun hafa skorið það niður, en nú þegar Ragnar er sjálfur orðinn fjármálaráðherra er hann enn með niðurskornu töl- una í frumvarpi sínu. Þarna er um mikið menningar- mál að ræða og skömm að því ef ekki verður stutt myndarlega við bakið í Friðrik i þessu máli. Islendingi, sem virtur er er- lendis,hefur verið trúað fyrir mesta ábyrgðarstarf i skák- heimsins. íslensk stjórnvöld verða að skapa honum aðstöðu til þess að sinna þessu starf i á þann hátt, sem hann telur farsælast og þann stuðning, sem f járhagslega er nauðsynlegur í því sambandi. „Alþjóðaskáksambandið er í raun það sem Sameinuðu þjóð- irnar ættu að vera, þó í smærri stíl sé" segir breski stórmeistar- inn Raymond Keene í bæklingi um FIDE. Hann segir enn- fremur: „Samvinnan innan Fide milli austurs og vesturs, hægri og vinstri og svartra og hvítra er nú meiri og betri en hún hefur nokkru sinni verið. Aðildarþjóðir FIDE, sem eru 110 um allan heim, vinna nú saman í sátt og samlyndi undir forystu Friðriks ólafssonar, forseta sambands- ins, að auknum framförum skák- listarinnar í heiminum". Þetta voru orð breska stórmeistarans. Aðalskrifstofa FIDE er enn í Hollandi, heimalandi Max Euve, fyrrum forseta sambandsins, þar sem hún hefur verið í 10 ár. Nú þýðir ekki lengurað draga það aðflytja þá starfsemi hingað til lands þannig að stjórnstöð skáklistarinnar í heiminum verði í Reykjavík. Það verður ekki gert með fögrum orðum og góðum vilja ráðamanna heldur með þeim lág- marksf járf ramlögum sem Friðrik Ólafsson hefur farið fram á fyrir hönd FIDE hér á landi. Stlornln gerir sér erflðlelka tólks Marzútgáfa fjárlaga- frumvarpsins hefur nú séð dagsins ljós. Fátt i frumvarpinu kemur á óvart. Áfram ér stefnt að skattaukningu og gert er ráð fyrir sams konar verðbólguþróun og á umliðnum árum. Litið fer fyrir efndum á þeim loforðum, sem gefin voru i stjórnar- sáttmálanum. Koma timar og koma ráð, virðist vera mottó frumvarpsins. Slegið er á frest að takast á við vandamálin. Oliustyrkurinn hvarf. Veigamikil breyting i frum- varpi Ragnars Arnalds er, aö oliustyrkur aö upphæö 2.3 millj- aröar kröna hverfur sporlaust úr frumvarpinu. Skýringar ráö- herranna á þessu hvarfi eru þær, aö vegna timaskorts hafi að fébúfu ekki unnizt timi til aö lagfæra þennan liö. Akveöiö hafi veriö aö taka hann út úr fjárlögunum og gera sérstakar ráöstafanir til tekjuöflunar utan fjárlaganna. Tilviöbótar er þaö svo sagt, aö i raun skipti þetta ekki máli, vegna þess að hér sé aðeins um millifærslu aö ræöa. Litum nú aöeins betur á þetta mál. Falsrök fyrir breyting- um. A.m.k. þriöjungur fjárlag- anna er einhvers konar milli- færslur. Þannig mætti meö sömu rökum taka þriöjung út úr fjárlögunum. Þaö sem skiptir máli er aö á sinum tlma var mörkuö sú stefna aö viö gerö fjárlagaogrikisreiknings skyldi kappkostaö aö halda öllum liöum inni til aö heildaryfirlit fengist yfir fjármál rikisins. Meö þeirri athöfn aö skilja ollu- styrkinn frá fjárlögunum er veriö aö hverfa til þess tima. þegar engin leiö var aö átta sig á starfsemi rlkisins I fjárlögun- um sjálfum. Þaö er engin afsök- un, aö tlmihafi ekki unnizt til aö setja viðeigandi tekjur inn I frumvarpiö, ef einhver vilji var fyrir hendi, þvi aö áætla mátti upphæöir gjalda og tekna megin. t Ný skattheimta á fölskum forsendum. Astæöan fyrir þessum sér- kennilegu aögeröum viröist ein- göngu vera sú, aö nota 2.3 millj- aröa, sem þegar var búiö aö ráöstafa tii jöfnunar húshitun- ar, til allt annarra hluta, en treysta siöan á, aö þingiö sam- þykki sérstaka skattheimtu f þágu réttlætismáls eins og jöfn- un húshitunarkostnaöar aö sjálfsögöu er. Slik framkoma byggist á þvi aö nýta sér bágindi fólks til aö auka skattheimtuna og þar meö rikisumsvifin á fölskum forsendum. Virkjum innlenda orkugjafa. Þaö er augljóst réttlætismál, aö samfélagiö komi til móts viö þaö fólk, sem harðast hefur oröiö úti vegna hækkunar ollu- kyndingarkostnaöar. Besta aö- stoöin felst aö sjálfsögöu I því aö ýta undir framkvæmdir til virkjunar innlendra orkugjafa og úrbætur á hibýlakosti I þvl skyni að gera okkur þannig sem mest óháöa innfluttu eldsneyti. Ollustyrkur og fjárframlög til einangrunar húsa og annarra orkusparandi aögeröa eiga aö njóta forgangs umfram önnur verkefni. Fjáröflun til slikra hluta á aö gerast meö þvl aö fresta öörum slöur aökallandi verkefnum eöa skera niöur aöra þætti, en ekki meö þvi aö leggja skatt á innlenda orku. Sjónarmiðum Sjálf- stæðismanna ýtt til hliðar. Þaö er þvi sorglegt aö horfa upp á þá staöreynd, aö til séu þeir stjórnmálamenn á tslandi I dag, sem falla I þá freistni aö nota bráðan vanda fólks á olíu- kyndingarsvæöunum til aö Friðrik Sophusson, alþingismaður, fjallar hér um fjárlagafrum- varp ríkisstjórnarinnar og fyrirhugaðan orku- skatt, og segir að þar sé verið að nota bráðan vanda fólks á olíu- kyndingarsvæðum til að leggja á skatta til alls óskyldra þátta i ríkis- rekstrinum. leggja á skatta til alls óskyldra þátta I rlkisrekstrinum. Rikis- stjórnin hefur I fjárlagafrum- varpi Ragnars Arnalds opin- beraö afstööu sfna ög siðferöi I þessum efnum og gert erfiðleika fólks aö féþúfu sinni. Fyrstu skrefin, sem rikisstjórnin héfur tekiö, gefa ekki fögur fyrirheit um framtiöina. Þau gefa til kynna,. aö ekkert tillit hefur veriö tékiö til sjónarmiða Sjálf- stæöismanna. Þeim hefur verið vikiö til hliöar. Skattheimtu- hugarfar vinstri flokkanna situr I fyrirrúmi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.