Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 1
284. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 11. DESEMBER 2001
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær
þegar hann tók við friðarverðlaun-
um Nóbels að réttindi einstak-
lingsins væru þyngri á metunum
en réttindi ríkja.
„Menn ættu ekki lengur að nota
fullveldi ríkjanna sem skjöld fyrir
gróf mannréttindabrot,“ sagði frið-
arverðlaunahafinn. Hann bætti við
að þegar réttindi einstaklingsins
væru virt að vettugi endaði það oft
„með ósköpum fyrir heilu þjóðirn-
ar“.
Friðarverðlaununum var að
þessu sinni skipt milli Annans og
Sameinuðu þjóðanna. Forseti alls-
herjarþingsins, Han Seung-Soo frá
Suður-Kóreu, tók við þeim fyrir
hönd Sameinuðu þjóðanna.
Öld er liðin síðan Nóbelsverð-
launin voru afhent í fyrsta sinn.
Reuters
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fylgist með blysför í miðborg Óslóar í gærkvöldi.
Setur rétt einstak-
linga ofar rétti ríkja
Ósló. Morgunblaðið.
Risi sem stórir karlar/28
TVÆR ísraelskar herþyrlur skutu
flugskeytum á bíl nálægt borginni
Hebron á Vesturbakkanum í gær.
Að sögn palestínskra lækna létu
tveir drengir lífið í árásinni, annar 3
ára og hinn 13 ára, auk þess sem
fimm manns særðust.
„Tvær þyrlur komu og við heyrð-
um sprengingu,“ sagði Ahmed Qa-
wasmeh sem varð vitni að árásinni.
„Allir þustu út úr búðum sínum og
bílum til að sjá hvað hefði gerst. Þá
heyrðum við aðra sprengingu og allir
hlupu í átt að bílunum til að aðstoða
þá sem særðust.“
Ísraelsher sagði að árásin hefði
verið gerð til að vega félaga í Jihad-
samtökunum, Mohammed Ayoub
Sidr, sem var meðal hinna særðu.
Vopnahléstilboði
hafnað
Að sögn heimildarmanna miðar
hægt í friðarviðræðum Ísraela og
Palestínumanna. Anthony Zinni,
sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar,
sagði á sunnudag að þeir fengju frest
þar til í dag til að draga úr ofbeldis-
aðgerðunum; að öðrum kosti mundi
hann hætta milligöngu.
Harðlínuhópar á borð við Jihad
greindu frá því á sunnudag að þeir
mundu hætta sjálfsmorðsárásum
sínum, ef Ísraelar hættu loftárásum
á palestínsk skotmörk. Ísraelsmenn
höfnuðu boðinu og kveðst ísraelska
leyniþjónustan hafa upplýsingar um
að hóparnir hafi frekari árásir í
hyggju í norðurhluta Ísraels þar sem
11 særðust á sunnudag er maður
sprengdi sjálfan sig í loft upp.
Börn láta
lífið í árás
Ísraela
Hebron. AP, AFP.
AFGANSKIR herflokkar og banda-
rískar herflugvélar gerðu í gær
harðar árásir á liðsmenn hryðju-
verkasamtakanna al-Qaeda í Hvítu-
fjöllum í austurhluta Afganistans
þar sem Osama bin Laden kann að
vera í felum.
Afgönsku herflokkarnir réðust á
sveitir al-Qaeda í Milawa-dal eftir
harðar sprengjuárásir bandarískra
herflugvéla á hella og göng í Hvítu-
fjöllum. Einn foringja hersveitanna,
Haji Zahir, sagði menn sína hafa náð
öllum dalnum á sitt vald nema tveim-
ur eða þremur stöðum þar sem liðs-
menn al-Qaeda hefðu varist með
sprengjuvörpum. Annar herforingi,
Mohammed Amin, sagði að hersveit-
irnar hefðu náð „mikilvægum
birgðagöngum og tveimur stjórn-
stöðvum“ al-Qaeda á sitt vald.
Talsmaður bandaríska herráðsins
í Washington staðfesti að bandarísk-
ar sérsveitir væru á svæðinu til að
aðstoða afgönsku hersveitirnar.
„Bardagarnir eru allharðir,“ sagði
talsmaður bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins, Victoria Clarke. „Þeir
liðsmenn al-Qaeda sem veita enn
mótspyrnu eru mjög harðskeyttir.“
Handan Milawa-dals er Tora
Bora-dalur, sem er nú síðasti stað-
urinn þar sem sveitir al-Qaeda veita
enn mótspyrnu. Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna, sagði á
sunnudag að bandaríska leyniþjón-
ustan hefði fengið upplýsingar sem
bentu til þess að bin Laden væri í fel-
um einhvers staðar í Tora Bora. Bú-
ist er við að liðsmenn al-Qaeda veiti
harðari mótspyrnu þegar ráðist
verður á hellana sem eru enn á valdi
þeirra.
„Mjög tímafrekt og
erfitt verkefni“
Pakistanskir hermenn voru fluttir
með þyrlum upp á allt að 4.700 m háa
fjallatinda við landamærin að Afgan-
istan til að stöðva liðsmenn al-Qaeda
ef þeir reyndu að flýja til Pakistans.
Þótt bandarískir embættismenn
segi líklegast að bin Laden sé í Tora
Bora telja þeir einnig hugsanlegt að
hann sé í grennd við Kandahar, sem
var höfuðvígi talibana þar til þeir
flúðu borgina á föstudaginn var.
„Þessu er ekki lokið enn,“ sagði
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnar-
málaráðherra Bandaríkjanna. „Stór-
ir hópar hryðjuverkamanna al-
Qaeda leika enn lausum hala. Þetta
verður mjög tímafrekt og erfitt
verkefni.“
Hörð átök
um hellana í
Hvítufjöllum
Tora Bora, Kabúl. AP, AFP.
Reuters
Bandarískir landgönguliðar búa sig undir að fara með þyrlu í átt að borginni Kandahar í Suður-Afganistan.
Bandaríkjaher flutti landgönguliða, sem hafa verið um 110 km suðvestan við Kandahar, nær borginni í gær til
að geta ráðist á liðsmenn al-Qaeda ef þeir reyndu að flýja. Hermennirnir eru nú um 20 km frá Kandahar.
Baráttan um Tora Bora/26
HLÆGILEGAR þýðingar á ævi-
ágripum ítalskra ráðherra yfir á
ensku eru síðasta niðurlægingin
fyrir stjórn Silvio Berlusconis, for-
sætisráðherra Ítalíu, en segja má,
að á stuttum valdatíma hennar hafi
hvert klúðrið rekið annað.
Æviágripin voru birt á heimasíðu
stjórnarinnar og þar var talsmanni
Berlusconis lýst sem „gjallarhorni“,
einn ráðherra sagður vera útskrif-
aður frá háskólanum „Munnfylli“
og prófessor kenndur við hnetu.
Dagblaðið La Repubblica gerði
stólpagrín að þessu skrípamáli en
augljóst er, að þýðingarnar voru
gerðar með tölvu. Daginn eftir
voru þær horfnar af heimasíðu
stjórnarinnar og sagt, að þær hefðu
bara verið settar inn í „tilrauna-
skyni“.
Um Gianni Letta, einn helsta að-
stoðarmann Berlusconis, sagði m.a:
„Ann var lengi formaður upplýs-
ingaskrifstofu Landssamtaka ridd-
ara vinnunnar og síðan yfirmaður
Skrifstofurannsókna og skráningar
í stofnanahöll siðvæðingar vinn-
unnar.“ Þannig var að minnsta
kosti útlegging tölvunnar og um
Lucio Stanca byggðamálaráðherra
sagði hún:
„Samtengdur [þ.e.a.s. kvæntur]
og það á tvær dætur. 1965 útskrif-
aðist það í hagfræði rétt við háskól-
ann Munnfylli í Mílanó.“
Um annan ráðherra, Rocco But-
tiglione, var sagt, að hann hefði
„útskrifað sjálfan sig“ undir hand-
arjaðri „prófessors Gústa á hnet-
unni“.
Ráðherrar
hafðir að
athlægi