Morgunblaðið - 11.12.2001, Side 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG ER frá Bíldudal. Þar ólst ég
upp við gott félags- og tónlistarlegt
atlæti umvafinn ástúð, vinum og
fögrum fjöllum.“ Svona hefst grein-
argerð Þórarins Hannessonar sem
er að finna á bakhlið þessa fyrsta
hljómdisks hans og geymir stutt fer-
ilságrip þessa trúbadors.
Ef einhver hefur verið að leita að
sönnunarvotti fyrir þeirri vinsælu
mítu að fólk, alið upp úti á landi, sé
meira niðri á jörðinni og hjarta-
hreinna en borgarbörnin er hún
komin ljóslifandi hér.
Hann er nefnilega afar óspilltur
og rómantískur, blærinn sem liggur
yfir Má ég kitla þig? fyrsta hljóm-
diski Þórarins Hannessonar. Ekki
þá í „arineldur og kertaljós“-skiln-
inginum heldur í hinum sakleysis-
lega brag sem yfir honum er. Því út-
gáfum sem þessum fylgir nær ætíð
viðhorf sem er hreint og beint;
menn leggja vafningalaust sín spil á
borð, einlægni og ástríða stýra þess-
um gjörðum enda hafa listamenn-
irnir engu að tapa og kannski eitt-
hvað að vinna. Auragróði er ekki
markmiðið heldur að koma ein-
hverju frá sér. Alþýðulist í sinni
tærustu mynd; skapað til að skapa,
af náttúrulegri þörf.
Tónlistin hér er venjulegt kassa-
gítarpopp, undir sterkum áhrifum
frá hefð vísnasöngvaranna og venju-
bundinn G, C, D, hljómagangur
ræður ríkjum. Lögin eru þó haglega
samin og það liggur nokkur pæling í
þeim. Þau eru örugglega flutt og
greinilegt að gítarglamur áranna og
framkoma á hinum ýmsu vísna-
kvöldum er að skila sér.
Rödd Þórarins er flauelsmjúk og
lágstemmd. Honum fer hiklaust
best að flytja róleg og angurvær lög,
svo vel reyndar að þegar hann gerir
tilraunir til að rokka (t.d. í „Upp í
himininn“) verður það hálf hjákát-
legt.
Sum laganna hér ná því að vera
frábær. „Brosið þitt“ er jafngott og
hver sú innblásna, heiðarlega kassa-
gítarballaða sem ég hef heyrt. „Ég
elska þig“ (einlægari verða lagatitl-
arnir ekki!) og „Draumalandið“ eru í
sama gæðaflokki.
Nokkur laganna eru afar hefð-
bundin og bæta litlu við þennan
geira. Þá kemur til falleg, næsta við-
kvæmnisleg rödd Þórarins og þessi
óræði og góði andi sem fyllir plöt-
una. Heildarpakkinn hrífur mann
því með sér.
Þetta er ein heiðarlegasta plata
sem ég hefi heyrt á árinu og hún er
skýrt dæmi um eitthvað „sem varð
að gefa út“. Í þessu tilfelli getum við
sem hlustum þakkað fyrir að það
var gert. Vel af sér vikið Þórarinn!
Mig langar til að enda þennan
dóm á tilvitnun í niðurlag þakkar-
lista Þórarins. Það segir meira en
mörg orð um hvað er í gangi hér:
„Ástarþakkir: Kristín mín, fyrir
ást þína, þolinmæði og skilning.
Börnin mín, fyrir ást ykkar og ynd-
islega tilveru. Mamma og pabbi, fyr-
ir stuðning ykkar og hvatningu
gegnum árin.“
Því ekki það?
ÞÓRARINN HANNESSON
Má ég kitla þig?
VIDEOVAL
Má ég kitla þig?, plata Þórarins Hann-
essonar. Þórarinn syngur aðal- og bak-
raddir og leikur á gítar. Honum til að-
stoðar eru þau Elías Þorvaldsson
(hljómborð og harmonikka), Kristinn
Kristjánsson (bassi), Kristján Krist-
jánsson (trommur), Björn Thoroddsen
(gítar í „Má ég kitla þig?“, „Ég elska
þig“ og „Dauðans friður“) og Jónbjörg
Þórhallsdóttir (bakraddir í „Til þín“ og
„Draumalandið“). Öll lög og textar eru
eftir Þórarin Hannesson. Stjórn upptöku,
hljóðblöndun og –upptaka var í höndum
Elíasar Þorvaldssonar. 37,54 mínútur.
Arnar Eggert Thoroddsen
Má ég kitla þig? með Þórarni
Hannessyni er ein heiðarleg-
asta plata ársins, að mati Arn-
ars Eggerts Thoroddsen.
Í GEGNUM tíðina hafa komið út
fjölmargar hljómplötur með einyrkj-
um sem taldir hafa verið til ákveðins
undirflokks í íslenskri tónlistarsögu.
Hér er um ræða hamfarapoppið, sem
kollegi minn Arnar Eggert Thorodd-
sen nefnir svo. Sú nafnbót er skír-
skotun í samnefnda plötu sem
trommusnillingurinn sálugi, Gunnar
Jökull Hákonarson, sendi frá sér ár-
ið 1996. Hamfarapoppið á sér þó mun
lengri sögu hérlendis og eflaust
muna margir eftir hreint ótrúlegri
plötu Austfirðingsins Jóhanns R.
Kristjánssonar frá árinu 1982, sem
heitir svo heppilega Er eitthvað að?
Í skilgreiningum á hamfarapopp-
inu er margt til nefnt og í stuttu máli
sagt eru höfundar slíkra platna iðu-
lega þúsundþjalasmiðir á miðjum
aldri. Þetta eru einyrkjaplötur, í
orðsins fyllstu merkingu. Höfundur
efnisins er oftast allt í senn söngvari,
undirleikari á ýmis hljóðfæri, um-
slagshönnuður og útgefandi.
Hjörtur Geirsson kemst fyllilega
verðskuldað í þennan stóra hóp ham-
farapoppara og er þar í góðum fé-
lagskap með þjóðargersemum á borð
við Gylfa Ægisson, en tónlist Hjartar
hljómar sumpart eins og einkennileg
blanda af Gylfa og Lou Reed. Ekki
leiðum að líkjast þar.
The Ballads Of The Undefined
hefur að geyma átta tón- og texta-
smíðar Hjartar sem munu hafa verið
hljóðritaðar á tólf klukkutímum. Slík
hraðvirkni er sjaldgæf nú á dögum
og í þessu tilfelli er um hroðvirkni að
ræða. Forritun á trommuheila er
víða afkáraleg og hryngítarleikur
Hjartar hrynur reglulega úr takti við
heilann, sem hvorki er sveigjanlegur
eða samstarfsfús í hita leiksins. Þá er
hryngítarleikurinn iðulega of slaga-
margur, en slíkt ku vera algengt hjá
lítt samspilsvönum trúbadorum, sem
vanari eru að virka sem eins manns
hljómsveit. Trommuheilinn og gítar-
inn keppa sumsé um hrynforystu
plötunnar og á stundum er erfitt að
greina hvor er líflausari eða hryn-
villtari.
Lögin átta eru flest máttlítil og
miður vel samin. Þetta er fárra
hljóma letileg rokklög í hægari kant-
inum, nokkuð sem fáir gera betur en
áðurnefndur Lou Reed. Lengra nær
samanburðurinn við Reed þó ekki,
nema ef vera skyldi í rafgítarhljómi,
sem á stundum er jafn yndislega yf-
irlegulaus og hjá Reed. Hér um ræð-
ir hinn magnaða „stinga í samband
og spila“-hljóm. Þetta á þó eingöngu
við í hryngítarleiknum því hljómur-
inn á gítarsólóum Hjartar er greini-
lega unninn og pældur, því miður.
Sólóin hljóma eins og safn tóndæma
þess versta úr rafgítarsögunni, bæði
hvað spilamennsku og hljóm áhrær-
ir. Hjörtur er aftur öllu þokkalegri
bassaleikari og á stundum eru laglín-
ur á bassann betri en þær sungnu.
Textar Hjartar eru allir á ensku
og sérlega illa ortir, en blessunarlega
er söngurinn lágur í hljóðblöndun,
enda er Hjörtur enginn stórsöngv-
ari. Röddin er þó alls ekki afleit og í
bergmáli sem kennt hefur verið við
Elvis Presley fellur hún ágætlega
inn í hljóðmyndina. Textarnir fjalla
aðallega um samskipti við konur, nú
eða þá um veraldlegar eignir eins og
bíla. Hjörtur fléttar svo minnin sam-
an er hann býður konunni að keyra
með sér í bílnum sínum.
Erfitt er að fjalla um eitt lag, um-
fram önnur, sem sérstaklega er
slæmt. Öllu léttara þykir mér að
nefna eitt lag sem er beinlínis gott og
á vart heima með hinum sjö. Það er
lokalag plötunnar, „The Queen In
The Castle“, og er einkar grípandi.
Laglínan er bráðsmellin og stemmn-
ingin minnir um margt á hina þekki-
legu poppsveit, The Housemartins.
Það er líka einhver afslappaður
þokki yfir flutningnum sem er þó
langt frá því að vera hnökralaus,
tæknilega séð. Söngurinn er töfrandi
kæruleysislegur og bassaleikurinn
hreinasta snilld. Ef platan hefði öll
verið á þessum nótum hefði hún
sennilega orðið hin ágætasta.
The Ballads Of The Undefined er
um margt athyglisverð plata, en
fyrst og fremst léleg.
Af
einyrkja
HJÖRTUR GEIRSSON
The Ballads Of The Undefined
HJÖRTUR GEFUR SJÁLFUR ÚT
The Ballads Of The Undefined, geisla-
diskur Hjartar Geirssonar. Öll lög og
textar eru eftir Hjört sem, auk þess að
syngja, leikur á gítara og bassa. Haraldur
Ringsted stýrði trommuheila, auk þess
sem hann hljóðritaði í Stúdíó Ofheyrn.
Orri Harðarson
FRÉTTIR
mbl.is
FASTEIGNIR
mbl.is
FJANDMAÐUR FÓLKSINS e. Henrik Ibsen
Fi 27. des kl. 20 - LAUS SÆTI
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson
Su 30. des. kl. 14 - LAUS SÆTI
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
Fö 28. des kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 29. des kl 20 - LAUS SÆTI
Lau 19. jan kl. 20 - LAUS SÆTI
JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS
Leikið - sungið - lesið - dansað kringum
jólatré. Jólasveinar - Bóla - Grýla & Leppalúði
- Edda Heiðrún o.m.fl.
Lau 15. des kl. 17. Su 16. des kl. 17.
Aðgangseyrir kr. 500.
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett
Fö 28. des. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Lau 29. des kl. 20 - LAUS SÆTI
BÖRN OG MANNRÉTTINDI
Málþing Amnesty International
Í kvöld kl. 20
Stóra svið
Nýja sviðið
Litla sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
GJAFAKORT Í LEIKHÚSIÐ
HEILL HEIMUR Í EINU UMSLAGI
SENDUM HEIM
Miðasölusími: 551 1200. Miðasalan er opin kl. 13-18 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin!
Lau. 15/12 uppselt, sun. 16/12 uppselt, mið. 2/1, sun. 6/1.
Litla sviðið kl 20.00
VILJI EMMU - David Hare
Smíðaverkstæðið kl 20.00
Aukasýning fös. 28/12 nokkur sæti laus.
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones
Sun. 6/1, fim. 10/1.
SYNGJANDI Í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed
Fös. 28/12 örfá sæti laus, lau. 29/12 örfá sæti laus, lau. 5/1.
CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand
Stóra sviðið kl 20.00
Frumsýning annan í jólum-uppselt, 2. sýn. fim. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. sun.
30/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 3/12 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 4/1 örfá sæti laus.
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI
SALA HAFIN Á SÝNINGAR Í JANÚAR!
Í dag sun. 9/12 kl. 14:00 uppselt og kl.15:00 uppselt, lau. 15/12 kl.14:00 uppselt,
kl.15:00 uppselt, kl.16:00 uppselt. sun. 16/12 kl. 14:00 uppselt og kl.15:00 uppselt,
lau. 22/12 kl. 14:00 og 15:00, lau.29/12 kl.14:00 örfá sæti laus og kl.15:00 nokkur
sæti laus, sun. 30/12 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl.15:00 nokkur sæti laus.
KARÍUS OG BAKTUS - Thorbjörn Egner
Í HLAÐVARPANUM
Kristjana Stefánsdóttir
Tónleikar í kvöld þri. 11. des. kl. 21.00.
Missa Solemnis
Jólaleikrit sunnudag 16. des. kl. 16.00.
!"!#
"$%&
'
( ")%%*
)%% + ,-.
,
Tónlist