Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.12.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BT ætlar að endurgreiða þér fyrstu þrjá mánuðina upp í nýtt sjónvarpstæki ef þú gerir áskriftar- samning til eins árs að einhverjum af sjónvarps- stöðvum Norðurljósa. Dæmin hér til hliðar sýna inngöngutilboðsafslátt miðað við 12 mánaða áskrift að Stöð 2 Áskriftin er skuldfærð mánaðarlega af greiðslu- korti. Ef þú ert í M12 og bætir við rás færðu einnig Thomson Videosendi með 50% afslætti! F J Ö L V A R P • 14" myndlampi • Scart tengi • Íslenskt textavarp • Fjarstýring 19. 49. 14“ 28“ F J Ö LVA R P INNGÖNGU - TILBO Ð • 28" myndlampi • 2 scart tengi • Íslenskt textavarp • Heyrnatóls tengi að framan • Nicam stereo • Fjarstýring * ** 19. 9.999 Í tilefni þes s að verslanir BT hefja se nn sölu á áskri ftum að Stö ð 2, Sýn, Fjölvar pinu og Bíó rásinni býður BT in ngöngutilbo ð ...sem kemu r aldrei aftu r! BT OPNAR KL. 11 ÞÚVELUR ÞÉRTÆKI Með áskr ift að Stöð2 7.515 Með áskriftað Stöð2 37.515 Gull og silfur 30 ára Þetta er mjög gefandi starf EIN rótgrónastaverslun gamlamiðbæjarins, Gull og silfur, heldur upp á þrjátíu ára afmæli sitt um þessar mundir. Morgun- blaðið ræddi við Sigurð á þessum tímamótum fyrir- tækis hans. Hvenær var Gull og silf- ur stofnað og hver voru tildrögin? „Ég stofnaði fyrirtækið sjálfur ásamt fjölskyldu minni 4. apríl 1971 og til- urð þess var sú að eftir að hafa lokið gullsmíðanámi við Iðnskólann í Reykja- vík og sex ára námi við Myndlistaskóla Reykja- víkur fór ég um tíma til Svíþjóðar þar sem ég lagði stund á vinnu við demantsskartgripi. Þegar heim kom var ekki pláss fyrir mig á gullsmíðaverkstæði föður míns þar sem ég hafði unnið sveins- árin. Gull og silfur var því stofnað af því að ég fékk ekki vinnu.“ Hvernig var landslagið í þá daga... engin Kringla eða Smára- lind og e.t.v. minni samkeppni? „Landslagið hefur vissulega breyst mikið, það er klárt mál. Þá var aðeins ein miðja en þær eru tvær eða þrjár núna. Við finnum samt ekkert fyrir þessu hjá Gulli og silfri, við höfum sem betur fer alltaf haft mjög trausta viðskipta- vini sem hafa haldið tryggð við okkur. Hvað varðar samkeppn- ina, þá hefur hún alltaf verið gíf- urleg og það hefur ekkert breyst nema síður sé. Íslendingum hefur fjölgað á þessum þrjátíu árum og velmegun aukist og einhvern veg- inn hefur verslunin dreifst á þessa miðbæjarkjarna.“ Er fíkn landsmanna í skart- gripi alltaf hin sama? „Ja, ekki er hún minni að minnsta kosti. Þetta hefur eitt- hvað með mannlegt eðli að gera og sést ekki síður hjá frumstæð- um þjóðflokkum. Þá á ég við þessa þörf að skreyta sig og gera sig mikla í gegnum skartgripi.“ Er þetta starf ekki hálfgerð geggjun í jólamánuðinum? „Það eru nú sem betur fer nokkrir álagstímar á árinu, út- skriftir, fermingar, giftingar og svo eru stórafmæli jafnt og þétt yfir árið. En jú, þessi tími, des- ember, getur verið hálfgerð geggjun. Það eru kannski okkar mistök hjá Gulli og silfri en við smíðum nánast allt sem við get- um smíðað. Við smíðum nánast allt nema festar og erum því í raun bara handverksmenn sem hafa ekkert annað en fingurna og hausinn til að vinna með. Á þess- um tíma fer vinnuvikan upp í 100 til 120 klukkustundir og vinnu- svæðið er 25x25 sentimetra upp- lýstur flötur. Unnið er á hraða snigilsins á sama tíma og mikið er keypt í búðinni og pöntunum rignir inn. Öll fjölskyldan er á kafi í þessu, eiginkonan er versl- unarstjóri og eldri dóttirin í meistara- námi. Hinar dæturnar vinna líka hérna þegar mest er að gera. Þetta er næstum meira en bara hálfgerð geggjun. Það er engu logið um að ég hef sofnað fram á matarborðið á aðfanga- dagskvöld. Þar kemur bakslagið, loksins þegar leyfilegt er að slaka á. Ein jólin var það þannig, að fjölskyldan borðaði saman á að- fangadagskvöldi, svo fóru allir og settust við arineld inni í stofu til að skrafa saman smástund áður en ráðist yrði í að opna jólagjafir. Það næsta sem gerðist var að ein- hver vaknaði um miðnætti. Þá höfðu allir sofnað í stólum sínum. Þarna var síðan stutt og svefn- drukkin rekistefna sem endaði með því að það fóru allir aftur að sofa og ákveðið var að halda jóla- haldinu áfram á jóladag. Þá voru allir betur fyrir kallaðir. En samt, þó að það sé synd að svona þurfi þetta að vera þá yrði ég brjálaður ef ég væri ekki í svona starfi þar sem hægt er að gefa sköpunar- gleðinni lausan tauminn. Við er- um stöðugt að teikna upp sjálf eða í samvinnu við viðskiptavini alls kyns skemmtilega gripi og þetta er ákaflega gefandi starf.“ En þarf þetta að vera svona? „Já, Íslendingar eru ekkert að koma til okkar í ágúst eða októ- ber vegna jólanna. Það koma allir á síðustu stundu og álagið verður því mikið. Svo mikið, að sumir hafa orðið frá að hverfa. Ég hef lent í því að stórefnamaður kom og bað um sérsmíðaðan skartgrip upp á hálfa milljón. Það var eng- inn fyrirvari, jólin að bresta á og margar pantanir óafgreiddar. Ég neitaði manninum því um þetta og hann brást við með því að hætta viðskiptum við okkur en hafði áður verið dyggur við- skiptavinur. Hvað á maður að gera? Slá á puttann á tugum við- skiptavina? Nei, þessi varð bara að róa og ég var bara stoltur af því.“ Þú talar um trygga viðskipta- vini, sérðu sömu andlitin jafnvel áratugum saman? „Já, heldur betur, og það skemmtilega er að það er að koma ný kynslóð og gjarnan leiða gömlu viðskipta- vinirnir börnin og tengdabörnin á fund okkar. Maður sér ein- hvern veginn framtíðina í mjög traustu ljósi þegar svo ber við. Þá er það mjög gefandi að sjá oft og iðulega handverk sín á fingri eða hálsi kvenna sem maður hitt- ir eða sér á mannamótum, vit- andi að þessir gripir eiga eftir að lifa mann og verða jafnvel að ættargripum.“ Sigurður Steinþórsson  Sigurður Steinþórsson gull- smiður er fæddur 25. mars 1947. Eftir að hafa lokið gullsmíðanámi við Iðnskólann stundaði hann myndlistarnám í sex ár við Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hann hélt síðan til Svíþjóðar þar sem hann nam vinnu við demantsskartgripi og kom svo heim og stofnaði Gull og silfur vorið 1971. Hann er kvæntur Kristjönu Ólafsdóttur og eiga þau þrjár dætur, Sól- borgu, Berglindi og Steinunni Þóru. Þá höfðu allir sofnað í stól- um sínum Það eru nú svo hæg heimatökin hjá þér í sparnaðinum, Nonni minn. Þú getur bara lengt biðlistana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.