Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 11 gæti styrkt miðborgina. Ákvörðun Bolla Kristinssonar kaupmanns um að segja sig úr miðborgarstjórn og auglýsa eignir sínar við Laugaveg til sölu endurspeglar ófremdar- ástandið í málefnum miðborgarinn- ar undir stjórn R-listans auk þess að vera enn eitt dæmið um virðing- arleysið gagnvart hagsmunum og viðhorfum hins almenna borgarbúa. Í störfum mínum undanfarin ár hef ég ekki síst litið til miðborg- arinnar með hagsmuni skólanna í huga og til dæmis verið talsmaður þess að efla Menntaskólann í Reykjavík, en talað þar fyrir dauf- um eyrum gagnvart borgaryfirvöld- um. Það hefur líka dregist allt of lengi af hálfu þeirra að taka ákvarð- anir varðandi framtíðarstað Kvennaskólans í Reykjavík. Og svo gerði meirihlutinn þau mistök að breyta húsnæði Miðbæjarskólans í skrifstofur. Miðborgarbragurinn væri annar ef þar væri enn skóla- starf.“ Þú hefur sagt að skerpa þurfi póli- tískar línur milli framboðanna í Reykjavík, svo kjósendur sjái borg- armál ekki sem þras um tæknileg úr- lausnarefni. Hvað átt þú við með þessu? „Viðfangsefni sveitarstjórna eru að sjálfsögðu sum hver eingöngu tæknileg úrlausnarefni. En fólk má ekki gleyma því að vinnubrögðin hjá stjórnmálamönnunum eru bæði hugsjónaleg og tæknileg og þeir nálgast viðfangsefnin á ólíkan hátt eftir stjórnmálaskoðunum. Ég hef þá grundvallarhugsjón, eins og aðr- ir sjálfstæðismenn, að auka svig- rúm einstaklinganna, á meðan R- listinn og vinstrisinnar vilja að hið opinbera hafi sem mest svigrúm, á kostnað einstaklinga. Svona and- stæður hljóta að koma skýrt fram þegar rætt er um hvernig eigi að skipuleggja borgina til framtíðar. Mér finnst miklu skipta, að kjós- endur geti gengið að því vísu hvaða stefnu stjórnvöld munu fylgja í málum sem snerta þeirra hag. En borgarstjóri sem leiðir þriggja til fjögurra höfða þurs á auðvitað ekki hægt um vik. Sá borgarstjóri tekur helst þann kostinn að þegja um pólitík, fremur en að vekja eitt eða fleiri höfuð af værum svefni. Þess vegna kom á óvart, þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir taldi það Fram- sóknarflokknum að kenna, sem far- ið hefur illa í skólamálum borgar- innar. Innan R-listans er auðveldast að líta bara á úrlausnarefni sem tæknilegar þrautir, þar sem grund- vallarstefna kemur ekki við sögu. Þar sem slík vinnubrögð eru við- höfð vakna íbúar upp við þann vonda draum að borgaryfirvöld ætla sér að framkvæma eitt og ann- að án nokkurs samráðs við íbúana eða tillits til þeirra.“ R-listinn á ekkert óskipt bakland Þegar þú tilkynntir um framboð þitt sagðir þú að hvarvetna kvörtuðu borgarbúar undan því að ná engu sambandi við borgarstjóra. Ef þú verður næsti borgarstjóri, hvernig ætlar þú að tryggja aðgang borgar- búa að þér? „Ég mun haga málum með svip- uðum hætti og ég hef gert í menntamálaráðuneytinu undanfar- in sjö ár. Ég sæki fundi og manna- mót, tek á móti fólki á skrifstofu minni og á líka mikil samskipti á tölvupósti. Sumir hafa jafnvel hald- ið því fram að ég sé nánast aðgengi- legur á nóttu sem degi. Ég veit hins vegar að menn sem leita til borg- aryfirvalda komast ógjarnan í gegnum kerfi millistjórnenda. Þetta hefur versnað mjög eftir því sem valdaárum R-listans hefur fjölgað, enda hefur R-listinn ekki við annað að styðjast en eigið embættis- mannakerfi og styrkir það því ótæpilega. R-listinn á ekkert óskipt bakland og hefur engin bein tengsl við borgarbúa, eins og Sjálfstæð- isflokkurinn hefur með hverfa- félögum sínum.“ R-listinn segir að nú séu 93% barna í Reykjavík í niðurgreiddri dagvistun. Er hægt að gera mikið betur? „Þetta er talnaleikur hjá R-list- anum, þegar litið er til kosningalof- orða hans, þar sem hann telur sam- an öll börn í leikskólum, einkaskólum og hjá dagmæðrum. R-listinn hefur ekki staðið við lof- orð sitt um leikskóla fyrir alla. Hann ber fyrir sig að nú geri fólk allt aðrar kröfur um leikskólavistun en voru uppi þegar þetta loforð var gefið fyrir átta árum. En er það ekki hlutverk kjörinna fulltrúa að bregðast við breyttum kröfum? Minnumst þess líka, að fram hefur komið, að nú séu um 500 færri börn á leikskólaaldri í Reykjavík en árið 1994, þegar R-listinn komst til valda. Það segir vissulega mikla sögu um íbúaþróun borgarinnar. Ég beitti mér fyrir því hér í menntamálaráðuneytinu að sett var námskrá fyrir leikskólana í fyrsta skipti. Áður störfuðu þeir sam- kvæmt uppeldisáætlun, en nú eru þeir viðurkenndir sem fyrsta skóla- stigið og gert er ráð fyrir að leikir séu notaðir til að kenna og til mál- örvunar. Það er mikilsvert að líta á þetta og sjá til þess að þjónustan sé sem víðtækust, til að koma til móts við þarfir borgaranna. Núna hefur Hagfræðistofnun Háskóla Íslands lagt fram hugmyndir um leiðir til að fækka námsárum til stúdents- prófs. Það gætum við til dæmis gert með því að taka 5 ára börn inn í grunnskólana, í stað þess að þau hefji nám 6 ára. Þar með myndum við fá aukið rými á leikskólunum. Þetta finnst mér áhugaverð hug- mynd. Rannsóknir sýna að ung börn geta lært nánast takmarka- laust. Ef þessi leið er farin er nauðsyn- legt að huga vel að skipulagi nám- skrár. Sex ára bekkurinn var á sín- um tíma settur inn í grunnskólann án þess að skilgreint væri í nám- skrá hvað ætti að kenna börnunum og slík mistök eigum við ekki að láta endurtaka sig.“ Leikskólamál í dóm kjósenda Ef þú ert tilbúinn til að fallast á að öll börn, 6 ára og eldri, eigi rétt á skólavist, ertu þá að sama skapi tilbúinn til að skilgreina það svo, að öll börn frá t.d. 18 mánaða eða 2ja ára aldri eigi skilyrðislausan rétt á leikskólavist? „Ég tel, að þetta eigi að skoða af alvöru og til hlítar. Álitamálin eru spennandi og snerta að sjálfsögðu fleiri þætti en lúta beint að sveit- arstjórnarmálum, en nauðsynlegt er að frumkvæði komi frá þeim, sem reka leikskólana, sveitarstjórn- unum. Ég hef beitt mér fyrir marg- víslegum breytingum í skólamálum á grundvelli víðtæks samráðs við alla, sem hlut eiga að máli, og mér þykir verðugt viðfangsefni að nálg- ast málefni leikskólans á þeim for- sendum, sem þú nefnir í spurningu þinni.“ Verða leikskólamálin kosninga- mál? „Já, þau verða það. Ástæðulaust er að þrátta um tilvist biðlistanna, þeir blasa við öllum, og eins hitt, að R-listinn hefur svikið kosningalof- orð sín vegna leikskólanna. Ég vil, að í kosningabaráttunni ræði menn meginsjónarmið um gildi og mark- mið leikskólastarfsins og aukna þjónustu á þessu skólastigi. Reyk- víkingar geta mikið lært af öðrum í þessu efni og í borginni hafa menn verið ótrúlega seinir að nýta sér þau tækifæri, sem gefast, eins og til dæmis sést af því, hve Leikskólar Reykjavíkur hafa verið seinir að laga starfsemi sína að breytingum á reglugerð, sem ég gerði 9. maí á síðasta ári og heimilar, að fleiri börn nýti rými í leikskólum en áður. Breytingin auðveldaði til dæmis bæjaryfirvöldum á Akureyri að bjóða öllum tveggja til sex ára börnum leikskólarými síðasta haust, en þar hafa sjálfstæðismenn haft forystu um að eyða biðlistum leikskólabarna á þremur árum, en á átta árum R-listans í Reykjavík hafa biðlistarnir lengst. Seinagang- urinn hér er svo mikill, að það var sagt frá því í Fréttablaðinu 29. jan- úar 2002 að nú væru Leikskólar Reykjavíkur að taka til við að nýta sér tækifærin, sem felast í regl- unum frá því í maí 2001. Í Garðabæ hefur verið farið inn á skynsamlegar brautir í leikskóla- rekstri í samstarfi við einkaaðila. Þannig get ég lengi nefnt dæmi um, hve illa hefur verið staðið að þessum málum hér í Reykjavík. Vissulega er þörf á að leggja þetta mál með skilmerkilegum hætti und- ir dóm kjósenda.“ Þú hefur bent á að biðlistar eftir fé- lagslegu húsnæði og hjúkrunarrými í Reykjavík hafi aldrei verið lengri en nú. Hvað er til ráða? „R-listinn valdi þá leið í fé- lagslega íbúðakerfinu að stofna sér- stakt félag um skuldasúpuna og láta eins og þar með hefði hann þvegið hendur sínar í þessu máli. Kraftarnir hafa meira farið í að verja þær bókhaldsæfingar en huga að þjónustu við borgarbúa. Fréttir af vanda húsnæðislausra eru sorg- legur blettur á borgarlífinu. Auðvit- að þarf að finna lausnir á vandanum en ekki sópa honum undir teppið.“ Hver eru sjónarmið þín í málum Orkuveitunnar og Línu.Nets? „Mér blöskrar hvernig staðið hef- ur verið að Línu.Neti. Frá upphafi hefur verið staðið að þessu máli af hálfu borgarstjórnarmeirihlutans eins og menn hafi eitthvað að fela. Ég er að sjálfsögðu ekki andstæð- ingur þess að leiðir eftir upplýs- ingahraðbrautinni séu greiðar, en hér starfa öflug fyrirtæki sem hafa fulla burði til að sinna þessu hlut- verki. Borgin á ekki að vera í sam- keppnisrekstri á sviði fjarskipta og yfirlýsingar um að starfsemin komi neytendum til góða í lækkaðri gjaldskrá standast ekki. Borgin hefði getað skilgreint verkefni á þessu sviði og leitað tilboða í úr- lausn þeirra. Þeir sem að þessu standa hafa verið á hröðum flótta og aldrei lagt öll spilin á borðið. Upphaflega átti að bjóða upp á gagnaflutninga um rafdreifikerfið, en nú virðist það úr sögunni. Svo reynir meirihlutinn að drepa mál- inu á dreif með því að tala um sölu Perlunnar.“ Meirihlutinn segir að sala Perl- unnar hljóti að vera í samræmi við stefnu sjálfstæðismanna um að borg- in skuli ekki vera í samkeppnis- rekstri. Ert þú fylgjandi sölu Perl- unnar? „Fasteign er alls ekki sambæri- leg við þjónustu, sem er í sam- keppni við einkaaðila. Mér finnst athugandi að selja Perluna, ef góð- ur kaupandi fæst. Hins vegar sýnist mér R-listinn ekki einu sinni hafa skilgreint hvað eigi í raun að selja. Þetta mál minnir mig á sumir menn voru sífellt að tala um Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem óþarfa bruðl og óráðsíu, nánast bagga á þjóð- félaginu. Til að réttlæta þetta við- horf létu þessir sömu menn undir höfuð leggjast að nýta tækifæri til tekjuöflunar í flugstöðinni, sem varð til þess að hún safnaði skuld- um þar til allt var komið í óefni. En hvar værum við án flugstöðvarinn- ar? Að sama skapi væri Reykjavík svipminni borg ef Perlunnar nyti ekki við. Þessi bygging, eins og önnur glæsileg mannvirki í borg- inni, er liður í því að búa hér til samfélag sem gerir okkur kleift að standast samkeppni við aðrar þjóð- ir. Það á ekkert skylt við bruðl að skapa slíkt ástand.“ Úthverfin afskipt Gagnrýnendur R-listans hafa stundum talað um að hann sinni eingöngu 101 Reykjavík. Hafa út- hverfin verið afskipt hjá núverandi meirihluta? „Ekki þarf að fara í neinar graf- götur um það, að fólk sem býr í út- hverfum borgarinnar telur sig af- skipt og að ekki sé tekið nóg tillit til sjónarmiða þess. R-listinn sagðist ætla að eiga gott samstarf við alla borgarbúa, en annað hefur komið á daginn. Meirihlutinn á í stríði við almenning í stóru og smáu, eins og sést til dæmis í Suðurhlíð, þar sem allt í einu gnæfa byggingakranar við himin án þess að íbúar fái hald- góða vitneskju um fyrirhugaðar byggingar þar og hafi því síður nokkuð um þær að segja. Ef R- listinn ræður ekki við að sætta sjónarmið íbúanna í smærri málum, hvernig getur hann þá ráðið við stærri mál? Svo eru settar á svið sýningar, eins og atkvæðagreiðslan um flugvöllinn, sem kostaði borg- arbúa meira en 30 milljónir króna, án þess að nokkuð kæmi út úr þeim. Auk þess sem borgarstjóri túlkaði niðurstöðuna síðan með óábyrgum hætti. Sjálfstæðisflokkurinn á betra bakland í borginni en hinn sund- urleiti R-listi, hann er byggður upp á allt annan hátt og boðleiðirnar eru aðrar, meðal annars vegna hverfafélaganna. Sjálfstæðisflokk- urinn á öflugar og skipulagðar ræt- ur í öllum hverfum borgarinnar og er ánægjulegt að fylgjast með því, hve vel félög hans þar dafna.“ Skýrar átakalínur Hver verða helstu baráttumál Sjálfstæðisflokksins í komandi kosn- ingum? Átakalínurnar í þessum kosning- um eru skýrar. Meginatriðið er að sjálfsögðu að sýna fram á nauðsyn þess, að R-listinn fari frá völdum vegna þess að undir hans stjórn hefur ríkt stöðnun í Reykjavík. Við viljum skattalækkanir í stað skatta- hækkana. Við viljum aðgerðir í stað athafnaleysis og aukið val borgar- anna í stað miðstýringar og reglu- veldis. Ég vil, að staðið verði að stjórn borgarsjóðs með jafnábyrg- um hætti og sjálfstæðismönnum hefur tekist að ná tökum á útgjöld- um ríkisins. Dregið verði úr álögum til að auka svigrúm borgaranna. Leitað sé lausna í samvinnu við borgarana en ekki andstöðu, fram- tak þeirra sé virkjað í stað þess að drepa allt í dróma. Ég hef skýra framtíðarsýn um miðborg Reykjavíkur, nauðsynlegt er að gera stórátak til að greiða fyrir umferð og við eigum að taka á skólamálum með því t.d. að efla innra starf skólanna og afnema hverfaskiptingu, fylgja markvisst eftir nýjum námskrám í grunnskól- um, koma til móts við góða nem- endur ekki síður en að hjálpa þeim, sem slakir eru og kalla foreldra og einkaaðila til náins samstarfs auk þess að hefja umræður á nýjum for- sendum um leikskólana. Í þessum málum er R-listinn ráðþrota vegna vinstrimennskunnar. Ég vil sjá stóra íbúðabyggð í Geldinganesi sem er eitt fallegasta byggingarland í Reykjavík. Ég vil líka setja upplýsinga- tæknina í fyrirrúm, en ekki með því að halda áfram að moka peningum í Línu.Net. Reykjavíkurborg á ekki að vera í neinum rekstri sem einka- aðilar geta leyst af hendi, og það betur en borgin.“ Skuldastaða borgarinnar hefur verið ykkur sjálfstæðismönnum þyrn- ir í augum. „Og ekki að ástæðulausu. Skuldir borgarinnar hafa áttfaldast frá 1993 og aukast nú um 8–9 milljónir á hverjum degi mitt í góðærinu. Skuldaaukningin verður því um milljarður fram að kosningum. Við verðum að fara vel yfir hvert allir þessir peningar fara, en það er þeg- ar ljóst að allt of háar fjárhæðir fara í þunglamalegt stjórnkerfi og millistjórnendur. Ingibjörg Sólrún gerir lítið úr þeim áhyggjum sem fólk hefur af skuldasöfnun borgar- innar; þeirri hækkun sem hefur verið á sköttum, löngum biðlistum eftir þjónustu borgarinnar og flótta fólks og fyrirtækja úr borginni. Hún gerir lítið úr því að við viljum gera betur og teljum að Reykvík- ingar eigi betra skilið. Fyrir mér eru þetta raunveruleg- ar áhyggjur sem verður að leysa. Borgin hefur alla burði til að gera miklu betur við fólk, fyrirtæki og fjölskyldur. Til þess þarf breytta stjórnarhætti, nýjar áherslur og nýtt fólk. Til þess þurfum við að koma R-listanum frá.“ Ætlarðu að segja af þér sem ráð- herra á næstunni? „Þegar framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins hefur verið ákveðinn mun ég skýra frá brotthvarfi mínu úr menntamálaráðuneytinu. Ég get tekið mér leyfi frá störfum eða sagt af mér embættinu. Hvað sem framboði mínu til borgarstjórnar líður, hafði ég ákveðið að starfa ekki lengur en átta ár sem menntamálaráðherra. Mér finnst ég hafa náð fram flestu sem ég vil hér í ráðuneytinu og að vel fari á því að nýr ráðherra, með nýjar hugmyndir, taki við. Kosið er til Alþingis á fjögurra ára fresti og sú regla gerir í raun ráð fyrir end- urnýjun. Tvö kjörtímabil eru nægur tími í starfi sem þessu, sem er til dæmis allt annars eðlis en starf for- sætisráðherra. Að tveimur kjör- tímabilum loknum í fagráðuneyti er þörf á endurnýjun. Hið sama á við um embætti borgarstjóra. Nú er verið að kalla á Ingibjörgu Sólrúnu til að bjarga Samfylkingunni á landsvísu og ekkert óeðlilegt að hún svari því kalli, það myndi gefa Samfylkingunni nýjan svip og gagnast Reykvíkingum, því að hug- myndasjóður hennar í borgarmál- um er tæmdur. Það er frekar óspennandi að spóla þannig alltaf í sama farinu. Margir virðast upp- teknir af því hvort ég hætti hér í ráðuneytinu vikunni fyrr eða síðar, en að sama skapi er réttmætt að spyrja Ingibjörgu Sólrúnu hversu lengi hún ætlar að sitja, nái hún endurkjöri, sem er alls óvíst.“ Ætlar þú að sitja í borgarstjórn sem oddviti minnihlutans, fari svo að R-listinn sitji áfram að völdum? „Að sjálfsögðu. Ég er að bjóða mig fram til starfa í borgarstjórn og hef ekki hugsað mér að tjalda til einnar nætur.“ Hvaða hugmyndir hefur þú um endurnýjun á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins? „Það þarf ákveðna endurnýjun á listanum, en ég ætla ekki að telja upp neinn óskalista, enda ekki mitt að velja á listann heldur kjörnefnd- ar. Skoðanakönnun innan fulltrúa- ráðsins um nýja og vænlega fram- bjóðendur lýkur 6. febrúar og ég reikna með að línur fari að skýrast um miðjan mánuðinn.“ ’ Ástæðulaust er að þrátta um tilvistbiðlistanna, þeir blasa við öllum, og eins hitt, að R-listinn hefur svikið kosningaloforð sín vegna leikskólanna. Ég vil, að í kosningabaráttunni ræði menn meginsjónarmið um gildi og markmið leikskólastarfsins og aukna þjónustu á þessu skólastigi. ‘ rsv@mbl.is ’ Átakalínurnar í þessum kosningumeru skýrar. Meginatriðið er að sjálf- sögðu að sýna fram á nauðsyn þess, að R-listinn fari frá völdum vegna þess að undir hans stjórn hefur ríkt stöðnun í Reykjavík. Við viljum skattalækkanir í stað skattahækkana. Við viljum aðgerð- ir í stað athafnaleysis. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.