Morgunblaðið - 28.03.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 9
ÁRLEG ráðstefna samtakanna
European Cities Against Drugs
verður haldin í Reykjavík dagana
25.-27. apríl á Grand Hótel í Reykja-
vík. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er
Grundvallarmannréttindi – málefni
Evrópu. Fjallað verður um mann-
réttindi í víðum skilningi, áhrif
Schengen-samkomulagsins, opnun
landamæra í Evrópu og áhrif þess á
flutning ólöglegra fíkniefna á milli
landa. Ennfremur stöðu kvenna, ekki
síst frá löndum Austur-Evrópu, sem
fluttar eru á milli landa og hætta er á
að verði fórnarlömb kynlífsþrælkun-
ar.
Rædd verða fjögur meginefni á að-
aldegi ráðstefnunnar, föstudaginn
25. apríl: Mannréttindi – nútíma
þrælahald, Opin landamæri – hættur
og tækifæri, Hinir nýju ráðamenn
heimsins og loks Nýir tímar: Hvern-
ig borgir – hvernig samfélög eru í
þróun? Meðal frummælenda verða:
Guðrún Agnarsdóttir, læknir, sem
hefur lengi látið sig mannréttindamál
varða og m.a. leitt nefndarstarf á
vegum jafnréttisnefndar Evrópu-
ráðsins, sem nýverið skilaði ráð-
herranefnd ráðsins tillögum um úr-
bætur á lagasetningu og öðrum
framkvæmdum til að koma í veg fyrir
ofbeldi gegn konum og ungum stúlk-
um, bandaríski sjónvarpsfréttamað-
urinn Wade West, sem jafnframt er
forseti alþjóðasamtakanna The
Media Power Group, dr. Kazimiera
Prunskiene, sem tók stöðu forsætis-
ráðherra í Litháen eftir að landið
varð að lýðveldi, og prófessor Melvin
Lewitsky, sem gegnt hefur starfi
sendiherra Bandaríkjanna víða um
heim og er jafnframt í stjórn ýmissa
ráða, s.s. The Drug Free America
Foundation, The Drug Prevention
Network of the Americas og The
Institute on Global Drug Policy.
Dómsmálaráðherrar Íslands og
Lettlands, Sólveig Pétursdóttir og
Ingrida Labucka, og borgarstjórinn í
Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, verða meðal þátttakenda í
pallborðsumræðum á ráðstefnunni.
Verndari ráðstefnunnar, sem er
öllum opin, er Vigdís Finnbogadóttir.
Samhliða ráðstefnu samtakanna
verður haldin 23. apríl næstkomandi
ráðstefna fyrir ungt fólk í Evrópu.
Málefni ráðstefnunnar er almenn
mannréttindi – málefni Evrópu. Sér-
staklega verður fjallað um vímuefna-
notkun ungs fólks og afleiðingar
hennar.
Reykjavíkurborg hefur verið aðili
að samtökunum frá árinu 1994 og
tekið virkan þátt í starfi þeirra.
Aðildarborgir hafa skuldbundið
sig til þess að leita allra leiða í barátt-
unni gegn ólöglegum fíkniefnum og
hafa með sér samstarf þar að lútandi.
Skáning er á heimasíðu Congress
Reykjavík, www.congress.is, segir í
fréttatilkynningu.
Ráðstefna samtakanna European Cities Against Drugs
Grundvallarmannrétt-
indi – málefni Evrópu
STJÓRN Félags íslenskra heimilis-
lækna telur breytingu á reglugerð
vegna greiðslu fyrir læknisvottorð
þýða skert kjör og skerta þjónustu
heilsugæslustöðva. Telur stjórnin að
sú ákvörðun kjaranefndar að vinna
við vottorð sé alfarið hluti af aðal-
starfi lækna sé gjörbylting á margra
áratuga hefð í vottorðavinnu þeirra.
„Þetta leiðir til þess að hluta af
þeim tíma sem áður var varið í mót-
töku sjúklinga mun nú þurfa að verja
í vinnu við vottorð. Áætla má að
þessar breytingar á vinnulagi sam-
svari fækkun á stöðugildum heilsu-
gæslulækna um 15-20 á landsvísu.
Munu þessar aðgerðir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins og
kjaranefndar hafa mikil og neikvæð
áhrif á þjónustu heilsugæslunnar,“
segir í frétt frá stjórn FÍH. Segir þar
einnig að frumkvæði ráðuneytisins
hafi orðið til þess að nokkrir tugir
heilsugæslulækna hafi nú undirbúið
að segja upp störfum.
Heilsugæslulæknar
um breytta skipan
vottorðavinnu
Leiðir til
fækkunar
15–20
stöðugilda
KVEN-
SÍÐBUXUR
3 SKÁLMALENGDIR
Bláu húsin við Fákafen.
Sími 553 0100.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.
Vorlínan 2002 er komin
Mjúkir leðurskór fyrir litla fætur
Frábær páskagjöf fyrir minnstu börnin.
Laugavegi 56, sími 552 2201
Langholtsvegi 82, 104 Rvík,
sími 568 4545.
Vönduð nett
sófasett og sófaborð
úr eik, natur- eða kirsuberjaáferð.
Áklæði úr 100% pólyester sem auðvelt er að þrífa,
fæst í bláu og rauðu. Skandinavísk hönnun.
Tilvalið í stofuna, sumarbústaðinn eða sólstofuna.
Verð aðeins
39.900 kr.
Sími 553 3366
www.oo.is
Opið lau. 30.03. kl. 11-16 20 gerðir - 19 litir 15 gerðir - 9 litir7 gerðir - 11 litir TILBOÐ m. 20% afsl.
Tannstönglabox
Verð kr. 2.590
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mánudag-föstudag 11-18,
laugardag 11-15