Morgunblaðið - 11.07.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.07.2002, Qupperneq 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2002 23 Þráðlaussími Þráðlaus sími + aukatæki. Með númerabirti. Símaskrá (10 númer), endurval. Hægt að hringja og senda á milli tækja. Kynningarverð 13.950 kr. Sími 525 3000 • www.husa.is Sérð þú kex á borði? Glæsilegir vinningar Komdu við í næstu verslun og taktu þátt í skemmtilegum leik BÆJARHÁTÍÐIN Franskir dagar verður haldin á Fá- skrúðsfirði dagana 26. til 28. júlí næstkomandi. Dagskráin verður fjölbreytt, en meðal dagskráratriða má nefna ljósmyndasýningu, mál- verkasýningu Bjarna Guð- laugssonar og Hreins Þorvalds- sonar, sýningu á gömlum leikföngum, púslusýningu, dorgveiðikeppni, tónleika Bergþórs Pálssonar og Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, hey- vagnsakstur, varðeld með brekkusöng og golfkennslu. Einnig verður haldin hjól- reiðakeppnin Tour de Fá- skrúðsfjörður, haldið Íslands- meistaramót í Pétanque, auk þess sem starfræktur verður útimarkaður og götuleikhús. Jólahúsið verður opið og einnig safnið Fransmenn á Íslandi. Loks verður harmonikku- dansleikur og unglingadans- leikur með flugeldasýningu. Tjaldsvæði verða ókeypis á meðan á frönskum dögum stendur. Fáskrúðs- fjörður hinn franski TVÆR ungar listakonur, söng- kona og klarinettuleikari í fram- haldsnámi erlendis, ásamt píanóleik- aranum Peter Nilsson, stóðu að tónleikahaldi í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sl. þriðjudagskvöld og fluttu tónverk eftir Mozart og Spohr, ásamt sönglögum eftir Pál Ísólfsson, Sigfús Einarsson, Jón Leifs og Karl O. Runólfsson. Tónleikarnir hófust á konsertarí- unni Misera, dove son, K 369 en þessi aría er samin við texta eftir Metastasio, úr óperunni Ezio. Pietro Metastasio, er hét fullu nafni Anton- io Domenico Bonaventura Trapassi (1698–1782), starfaði fyrst í Róm og Feneyjum en var frá 1730 hirðskáld í Vínarborg. Hann var sérlega áhrifa- mikill í gerð leikverka fyrir „opera seria“, sem byggðist á grískri klass- ík. Efni þessara verka var á hvers manns vörum í þá daga og hlustend- ur því vel með á nótunum. Nú er þetta allt gleymt og grafið og merk- ingarlaust fyrir fólk í dag, hvað snertir efnisinnihald. Metastasio samdi un 70 óperutexta og við þá voru samdar um 800 óperur. Handel samdi tónlist m.a. við Ezio og var sú sýning mikið „fiasco“. Misera, dove son, er í klassísku formi, fyrst tónles, þá aría, sem svo endar á sérstökum leikniþætti (bravura), þar sem söngvarinn fékk venjulega nokkrar leiknistrófur til að leika sér með. Ragnheiður er efnileg söngkona en á samt eftir að vinna meira með röddina og að jafna tónsvið hennar. Hún flutti aríuna á látlausan máta, þannig að kaflaskilin runnu saman í eitt. Sex þýskir ljóðasöngvar, op. 103, eftir Louis Spohr, þar sem klar- inettu er bætt við, voru ágætlega fluttir og klarinettuleikarinn, Svein- hildur Torfadóttir, reyndist ráða fyr- ir vel mótuðum tóni og túlka sitt mjög fallega. Hlutverk klarinettunn- ar var á köflum eins og uppfylling, nema í fyrsta og síðasta laginu og eftirtektarverðri og sérlega fallegri vögguvísu, þar sem tónsvið söng- lagsins er aðeins þrír tónar (Mí-re- do). Það er merkilegt hversu margt má vefja um fáar nótur og þarna áttu klarinettan og píanóið fallega mót- aðar tónhendingar. Ragnheiður söng þessi ljóðalög mjög vel og sérstak- lega vögguvísuna, af miklum innileik og djúpri tilfinningu. Af íslensku lögunum var fyrst flutt Vögguvísa eftir Pál Ísólfsson, sem var heldur of hratt sungin. Ein sit ég úti á steini eftir Sigfús Einarsson var einstaklega fallega sungin, þar sem snert var við sorginni og einmana- leikanum á mjög sannfærandi máta. Í Vögguvísuna frægu eftir Jóhann Jónsson, sem Jón Leifs tónsetti á sinn sérstæða máta, vantaði hjá Ragnheiði myrkrið og þögnina. Lokalagið, Síðasti dansinn eftir Karl O. Runólfsson, var í hægara lagi, og því án galsans, en var samt vel sung- ið. Eins og fyrr segir er Ragnheiður Árnadóttir efnileg söngkona og sama má segja um klarinettuleikar- ann Sveinhildi Torfadóttur. Píanó- leikarinn Peter Nilsson skilaði sínu, þó ekki án hnökra, eins og t.d. í Síð- asta dansinum, án þess þó nokkurs staðar markaði fyrir sérstaklega vel leiknum strófum, nema helst í ljóða- lögum eftir Spohr. Snert við sorg- inni og einmana- leikanum TÓNLIST Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Ragnheiður Árnadóttir, Sveinhildur Torfa- dóttir og Peter Nilsson fluttu söngverk eftir Mozart, Spohr og íslensk sönglög. Þriðjudagurinn 9. júlí, 2002. KAMMER- OG SÖNGTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.