Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.07.2002, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2002 33 SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐFerðamálaráð Íslands A B X / S ÍA TAYLOR’S TÍVOLÍ FUNLAND Miðbakka Reykjavík Opið daglega frá kl. 14-23.30 Í ár erum við með nýjustu tækin í Evrópu. Sérstök fjölskyldukort í boði mánudaga til fimmtudaga SPARIÐ 1.000 kr. með hverju korti sem inniheldur 50 miða. Munið! Lokadagur TAYLOR´S TÍVOLÍ FUNLAND er 22. júlí. Sjáumst á Miðbakka! ÞRIÐJUDAGINN 9. júlí sl. birtist grein í Morgunblaðinu eftir Ólaf Örn Arnarson, lækni, undir fyrirsögn- inni: „Hver er réttur sjúklinga?“ Í greininni fjallar Ólafur um rétt sjúklinga til þess að njóta þjónustu af hálfu heilbrigðiskerfisins og hvernig heilbrigðis- kerfið uppfyllir skyldur sínar gagnvart sjúk- lingum. Niðurstaða hans er að heilbrigðis- kerfið eigi sífellt erfið- ara með að veita þá þjónustu sem því er ætlað samkvæmt gildandi lögum. Hann bendir m.a. annars á, að marg- ir hafi ekki eðlilegan aðgang að heil- brigðisþjónustunni, hundruð aldr- aðra bíði eftir plássi á hjúkrunarheimilum og þúsundir sjúklinga séu á biðlista eftir skurð- aðgerðum. Í greininni kallar Ólafur Örn eftir viðbrögðum ýmissa sam- taka sem málið varðar til að koma málinu á dagskrá. Það eru margir sem deila með Ólafi Erni áhyggjum af ástandinu og er ég sannfærður um að fjölmörg samtök eru tilbúin til að taka áskor- un hans um að setja heilbrigðismálin í kastljós umræðunnar næstu miss- erin. Það væri fagnaðarefni ef hægt væri að skapa samstöðu meðal fag- fólks í heilbrigðiskerfinu og hags- munasamtaka við að móta framtíð- aráherslur m.a í heilbrigðiskerfinu. Á vettvangi Alþýðusambands Ís- lands hefur verið ákveðið að hefja vinnu við að skoða velferðarkerfið, hvar vel hafi tekist og hvar veikleik- arnir liggja. Fyrsta verkefnið verður að skoða heilbrigðiskerfið og ekki síst út frá réttindum þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Um miðjan ágúst mun velferðarnefnd ASÍ kalla til sín fjölmarga hags- munaaðila ásamt sérfræðingum sem starfa innan velferðarkerfisins, þ. á m. fulltrúa frá Læknafélagi Íslands, með það að markmiði að fá sem heil- stæðasta yfirsýn yfir styrkleika og veikleika velferðar- kerfisins. Ákveðið hef- ur verið að á ársfundi ASÍ í lok október verði velferðarmálin aðalmál fundarins. Í þeirri vinnu sem óhjákvæmilega er framundan við endur- skoðun á velferðar- kerfinu er mikilvægt að tryggja þegnunum þau réttindi sem sett eru í lögum. Miðað við það ástand sem skap- ast hefur, t.d í heil- brigðiskerfinu og Ólaf- ur Örn lýsir í grein sinni, tel ég að gengið sé með gróflegum hætti á lögbundin réttindi sjúklinga. Samstaða hefur verið um það í ís- lensku samfélagi að félagsleg rétt- indi séu hluti af þeim mannréttind- um sem okkar samfélag byggist á. Í þessu felst m.a. réttur þegnanna til að hafa aðgang að fullkomnu heil- brigðiskerfi án tillits til efnahags og félagslegrar stöðu. Í umræðunni um rekstrarvanda heilbrigðiskerfisins finnst mér lítið fara fyrir þessu grundvallaratriði. Fjárhagsvandi spítalans er ekki hans vandi Í umræðunni um fjárhagsvanda Landsspítala - háskólasjúkrahúss er nær eingöngu talað um hvað spít- alinn hafi farið mikið fram úr fjár- veitingum, eins og þeir sem þar stjórna séu að setja peninga í eitt- hvað annað en þeim ber. Það er lítið rætt um að spítalinn hafi skyldur við þegna þessa lands og honum beri að taka við öllum þeim sem nauðsyn- lega þurfa á læknisaðstoð að halda. Maður fær það á tilfinninguna að fólkið sem á rétt á þjónustunni sam- kvæmt íslenskum lögum sé orðið aukaatriði en aðalatriðið sé að stand- ast fjárhagsrammann. Ég er ekki þar með að segja að ekki eigi að vera aðhald í heilbrigðiskerfinu heldur hitt að saman verða að fara skyldur spítalans og fjárhagslegir mögu- leikar til að standa undir þeim skyld- um. Ég hef miklar efasemdir um að þetta tvennt fari saman í dag. Ef Landsspítalinn - háskóla- sjúkrahús er eingöngu að sinna lög- bundnum skyldum sínum er það ekki hans vandamál að fjármagn skorti, vandamálið er fólgið í því að honum eru ekki tryggðir þeir fjár- munir sem eru forsenda þess að spítalinn geti gegnt lögbundnu hlut- verki sínu. Það er einkennilegt að hugsa til þess að það skuli vera sömu menn- irnir sem setja lög um réttindi þegn- anna og skammta fjármagnið en svo naumlega að fyrirfram er vitað að ekki er hægt að tryggja þau réttindi sem þeir sjálfir hafa þó lögfest. Hér komum við að þeirri grund- vallarspurningu sem við þurfum að svara; hvernig viljum við fjármagna velferðarkerfið? Mér sýnist stefna núverandi stjórnvalda vera að sigla í strand og ekki verði haldið lengra á þeirri braut. Spurningin er hvort ekki sé nauðsynlegt að tryggja vel- ferðarkerfinu fastari tekjustofna en nú er. Ég tek undir orð Ólafs Arnar um mikilvægi þess að næstu alþingis- kosningar snúist um framtíð velferð- arkerfisins. Það er skylda stjórn- málaflokkanna að leggja fram skýrar hugmyndir um framtíð vel- ferðarkerfisins og ekki síst hvernig eigi að fjármagna það. Næstu kosningar snúist um framtíð velferðarkerfisins Þorbjörn Guðmundsson Heilbrigðiskerfið Mér sýnist stefna núverandi stjórnvalda vera að sigla í strand, segir Þorbjörn Guðmunds- son, og ekki verði haldið lengra á þeirri braut. Höfundur er formaður velferðar- nefndar ASÍ og starfsmaður Samiðnar. SEM kunnugt er hefur það farið vax- andi, að veiðimenn sleppi aftur þeim laxi, sem þeir veiða, og var hlutfall slepptra laxa komið í 12% af heild- arveiði á síðasta sumri. Nú í sumar hafa stangaveiðimenn verið hvattir til að sleppa stórum löxum en þeim hefur farið hlutfallslega fækkandi í veiði á undanförnum árum. Má því reikna með verulegri aukn- ingu í fjölda slepptra laxa á þessu sumri og komandi sumrum. Nákvæmni í veiðiskráningu Aukning í sleppingum á laxi get- ur óhjákvæmilega valdið óná- kvæmni í veiðiskráningu, bæði vegna ofskráningar, þar sem sami laxinn er veiddur oftar en einu sinni, og vegna vanskráningar, þar sem skráning veiðimanna á feng sínum á árbakkanum skilar sér ekki í veiðibækur. Af þessum or- sökum er hætta á, að veiðitölur úr veiðibókum gefi ónákvæmari upp- lýsingar en áður um stærð laxa- göngunnar í ána og samanburður við veiði fyrri ára verði minna marktækur. Þetta á sérstaklega við, ef og þegar fjöldi slepptra laxa verður orðinn um og yfir helmingur af skráðri veiði, sem þegar er orðið algengt í mörgum löndum með mikla stanga- veiði, svo sem í Kan- ada og Rússlandi. Viðhalda þarf góð- um veiðiskýrslum Skráning á afla í stangaveiði hér á landi hefur verið mjög nákvæm og með því besta sem gerist í heiminum. Kemur þar til hagstæð laxveiði- löggjöf, góð yfirsýn opinberra að- ila, takmarkaður stangafjöldi í veiðiám og góð aðstaða í veiði- húsum til skráningar í veiðibækur í lok veiðidags. Mæling og skrán- ing á þeim laxi, sem sleppt er, er hinsvegar mun erfiðari, þar sem mæla þarf laxinn í vatni við ár- bakkann og skrá mælingu á sér- stök blöð sem síðan eru afrituð í veiðibók, þegar komið er í veiði- hús. Við slík skilyrði er þónokkur hætta á, að skráning fari úrskeiðis og um vanskráningu verði að ræða. Hinsvegar er mjög brýnt að viðhalda því nákvæma skráning- arkerfi, sem byggt hefur verið upp hér á landi. Skráning á árbakkanum Í ljósi þessa er ástæða til að hvetja veiðimenn til að vanda til skráningar á þeim löxum, sem þeir sleppa. Ekki þarf að þyngdarmæla slíka fiska, þar sem hægt er að fá haldgóðar upplýsingar um þyngd út frá lengdarmælingu. Til sam- ræmingar væri hinsvegar æskilegt að auka skráningu á lengd hjá lönduðum laxi auk þyngdarmæl- ingar. Til að tryggja góðar veiði- skýrslur er því nauðsynlegt, að veiðimenn séu vel útbúnir við ána með málband, blað og skriffæri til þess að mæla lengd og skrá upp- lýsingar um sleppta laxa og muna að afrita upplýsingarnar í veiðibók þegar þeir koma í veiðihús. Laxveiðin í sumar Árni Ísaksson Laxaslepping Nákvæm skráning veiddra laxa er nauðsyn, segir Árni Ísaksson, og ástæða er til að hvetja veiðimenn til að vanda til skráningar á þeim löxum, sem þeir sleppa. Höfundur er veiðimálastjóri. 4 stk. í pakka verð kr. 2.300. Kanna í stíl kr. 2.995. 5 mismunandi gerðir. PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 DARTINGTON GLÖS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.