Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 13 5.100 krónur fyrir gömlu hrærivélina! Já, við greiðum þér 5.100 krónur fyrir gömlu hrærivélina þína við kaup á nýrri þrælsterkri og glæsilegri Verðdæmi: KitchenAid K90 kr. 41.900 - Gamla hrærivélin þín kr. 5.100 þú greiðir kr. 36.800 eða kr. 34.960 stgr. Misstu ekki af þessu einstaka tilboði, það stendur aðeins til 1.okt nk! hrærivél í tískulitnum „Almond“ 5 ára ábyrg ð HJÓLSÖG 5604R 0 = 165 mm, 950 W TILBOÐSVERÐ 15.000.00 Umboð Heimsferða á Akureyri óskar að ráða starfskraft til að annast bókanir, sölu og aðra þjónustu við viðskiptavini. Reynsla af skrifstofustörfum er nauðsynleg. Áhugasamir sendi skriflega umsókn til Umboðs Heimsferða, Geislagötu 12, 600 Akureyri, fyrir 24. september nk. LAUST STARF AKUREYRARHLAUP var þreytt á laugardag og mættu um 100 kepp- endur til leiks í góðu og fallegu veðri. Daníel Smári Guðmundsson úr FH kom, sá og sigraði í hálfu maraþoni á nýju brautarmeti, 1:16:23 klst. Rannveig Oddsdóttir varð hlut- skörpust kvenna í sömu vegalengd en hún hljóp á 1:25:50 klst. Í 10 km hlaupi kvenna var það Helga B. Björnsdóttir sem sigraði, fjórða árið í röð, en hún hljóp á tímanum 43:22 mín. Kim Kappel Christen- sen varð fyrstur karla yfir mark- línuna í sömu vegalengd á tím- anum 41:40 mín. Dagurinn varð Kim enn eft- irminnilegri þegar hann vann ferð fyrir tvo til borgar á Evrópuleið Flugleiða í happdrætti hlaupsins. Þá sigraði Sigurður P. Tryggva- son í 3 km skemmtiskokki karla en Auður Ómarsdóttir í kvennaflokki. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Keppendur í 10 km hlaupinu leggja af stað frá Akureyrarvelli. Daníel setti brautarmet Akureyrarhlaup þreytt í blíðskaparveðri Grjótið í brúna var sótt í Krossa- nesborgir. Auk þess sem brúin er augnayndi þjónar hún að sögn brúarsmiðs þeim tilgangi að yfir hana má ganga. Þannig er hún mikilvægt samgöngutæki í skóg- inum. Starfsemin vex hröðum skrefum Hallgrímur og Vignir Sveins- son, formaður stjórnar Skógrækt- arfélags Eyfirðinga, kynntu ört vaxandi starfsemi félagsins fyrir gestum við opnun steinbrúar- innar. Uppbygging stöðvarinnar hefur vaxið hratt á síðustu miss- erum og er nú svo komið að hún er ein af þeim stærstu á landinu með veltu upp á um 50 milljónir króna á ári og 10–15 ársverk. Kjarnaskógur, sem er útivist- arsvæði Akureyringa, nýtur æ meiri vinsælda og sló aðsóknin í sumar öll fyrri met. Fjölbreyttar gönguleiðir eru um skóginn, leik- tæki fyrir börn á öllum aldri og STEINBOGABRÚ yfir Brunná í Kjarnaskógi hefur formlega verið tekin í notkun, en það var Krist- ján Þór Júlíusson bæjarstjóri sem klippti á angandi aspargrein og opnaði brúna þar með fyrir gest- um og gangandi. Bergsveinn Þórsson, verkstjóri hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga í Kjarnaskógi, var verkstjóri brú- arvinnuflokksins og hafði með sér vaska sveina til verksins. Brúin er hlaðin að rómverskri fyrirmynd og er hið mesta mann- virki, „á fáa sína líka hér á landi“, eins og Hallgrímur Indr- iðason, framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga, orðaði það. Bergsveinn brúarsmiður sagði við opnunina að sér hefði alltaf þótt skorta rómversk mannvirki í Kjarnaskóg og því hefði verið ráðist í að hlaða brúna. Hafist var handa við und- irbúning í fyrrasumar, þráðurinn tekinn upp að nýju nú í sumar og lokið við smíðina á haustdögum. ágætis aðstaða í þar til gerðu grillhúsi til að glóðarsteikja kjöt- meti eða hvað annað sem er ofan í svanga gesti skógarins. Morgunblaðið/Kristján Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri vígði steinbrúna í Kjarnaskógi með því að klippa sundur angandi aspargrein. Brú að rómverskri fyrirmynd MARKÚSARGUÐSPJALL í flutn- ingi Aðalsteins Bergdal leikara kem- ur út á geisladiski á næstunni. Diskarnir verða reyndar tveir, þar sem guðspjallið er um tvær klukku- stundir í flutningi. Aðalsteinn flutti guðspjallið á Renniverkstæðinu hjá Leikfélagi Ak- ureyrar um páskana árið 1998, en til- efnið var 30 ára leikafmæli hans. Aðalsteinn sagði að margir sem á hefðu horft hefðu haft á orði að þeir hefðu upplifað guðspjallið á alveg nýj- an hátt. Hann flytur stemmninguna af leiksviðinu yfir á geisladiskinn, svo ekki er um að ræða eiginlegan lestur, heldur „svona léttdramatíserað“ eins og hann orðar það. Í guðspjallinu koma fram margar persónur auk Jesú og því þótti honum sjálfsagt að ljá þeim raddblæ við hæfi hverju sinni. Aðalsteinn gefur guðspjallið út sjálfur og geta þeir sem áhuga hafa á að eignast eintak snúið sér til hans, en einnig verður það til sölu á nokkrum stöðum, s.s. Kirkjuhúsinu í Reykja- vík. Markúsarguðspjall á geisladiski LÚÐRASVEIT Akureyrar er að hefja 61. starfsár sitt en æfingar verða á þriðjudögum kl. 19.30 í hús- næði Tónlistarskóla Akureyrar í Hafnarstræti 81. Fyrsta verkefnið er 60 ára afmælistónleikar í lok októ- ber. Allir hljóðfæraleikarar eru hvattir til að koma og annaðhvort rifja upp gamla takta eða viðhalda forminu með því að spila með öðrum áhuga- sömum, fjölbreytt verkefni. Þeim sem ekki eiga hljóðfæri er hægt að vera innan handar með hljóðfæri. Það er hægt að bæta við á öllum hljóðfærum. Þá eru eldri félagar hvattir til að koma og taka þátt í undirbúningi að 60 ára afmælisfagnaði Lúðrasveitar- innar. Lúðrasveit Akureyrar Undirbýr af- mælistónleika Á FUNDI félagsmálaráðs Akureyr- ar nýlega, voru lagðar fram upplýs- ingar um biðlista eftir plássi á öldr- unarstofnunum nú í byrjun september. Samkvæmt vistunarskrá þjónustuhóps aldraðra bíða 98 eftir plássi en þar af eru 37 sem bíða eftir hjúkrunarrými og 61 sem bíður eftir dvalarrými. Af þeim 37 sem bíða eftir hjúkr- unarrými eru 12 í Kjarnalundi og á Kristnesi en aðrir eru í heimahúsum. Af þessum 37 eru 33 sem eru í brýnni eða mjög brýnni þörf. Á biðlista eftir dvalarrými eru 24 í brýnni eða mjög brýnni þörf. Þá hefur að undanförnu fjölgað allnokkuð á biðlista eftir dag- vist. Öldrunarstofnanir Akureyrarbæjar Tæplega 100 manns á biðlista ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.