Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 23 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Haustið í Budapest frá kr. 28.450 með Heimsferðum Búdapest er í dag ein eftirsóttasta borg í Evrópu og það undrar engan sem hefur kynnst þessari heillandi borg. Drottning Dónar, hjarta Evrópu eru nöfn við hæfi. Ungverjar eru orðlagðir fyrir gestrisni og hér er auðvelta að lifa í veislu í mat og drykk, á milli þess sem maður kynnist ólíkum andlitum borgarinnar, en Ungverjaland var í þjóðbraut milli austur og vestur Evrópu og menningararfurinn ber því vitni. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari heillandi borg. Í boði eru mjög góð 3, 4 og 5 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um borgina með íslenskum fararstjórum Heimsferða. Beint flug fimmtudaga og mánudaga í október 8.000 kr. afsláttur Ef þú bókar í ferð frá mánudegi til fimmtudags fyrir 23. sept, getur þú tryggt þér 8.000 kr. afslátt. Verð kr. 28.450 Flugsæti til Budapest, 14. okt. með 8.000 kr. afslætti ef bókað fyrir 23. sept. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Fyrstu 300 sætin. Verð kr. 37.750 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í herbergi á Tulip Hotel, 14. október, með 8.000 kr. afslætti. Á FUNDI borgar- stjórnar Reykjavíkur 21. september árið 2000 flutti undirritaður svohljóðandi tillögu: „Borgarstjórn Reykjavíkur leggur áherslu á að við skipu- lag byggðar við Elliða- vatn sé tekið tillit til útivistarsvæðisins þar og lífríkis Elliðavatns og Elliðaánna sem einnar heildar. Borgar- stjórn telur að rann- saka þurfi til hlítar or- sakir mengunar í Elliðavatni og áhrif aukinnar byggðar á hana áður en byggð á svæðinu er aukin. Jafnframt er minnt á að fyr- irhuguð byggð í Vatnsendalandi er innan vatnsverndarsvæðis höfuð- borgarsvæðisins. Borgarstjórn telur að þörf sé á nánu samstarfi Reykja- víkur og Kópavogs um skipulag þess svæðis sem liggur að Elliðavatni og varðar sameiginlega hagsmuni beggja sveitarfélaganna sem og ann- arra sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu. Borgarstjórn Reykjavíkur skorar því á bæjaryfirvöld í Kópa- vogi að hefja nú þegar viðræður við Reykjavíkurborg um þessi atriði.“ Tillagan var samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum með örlítilli orðalagsbreytingu. Í kjölfar þessar- ar samþykktar var komið á sam- starfsnefnd Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar um skipulag Vatns- endasvæðisins og lífríki Elliðavatns, sem skilaði takmörkuðum árangri. Bæjaryfirvöld í Kópavogi fóru sínu fram að mestu leyti en þó hefur náðst fram grisjun og lækkun fyr- irhugaðrar byggðar á svæðinu milli Vatnsendavegar og Elliðavatns. Rétt og skylt er að taka það fram að á þessum tíma var ég borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og innan borgarstjórnarflokksins fékk mál- flutningur minn og skelegg afstaða gagnvart áformum Kópavogsbæjar við Elliðavatn lítinn sem engan hljómgrunn, vegna hagsmuna flokksins í Kópavogi. Í grein í Morgunblaðinu laugar- daginn 14. september sl. spyr Gunn- ar Birgisson um afstöðu mína til þeirra skipulagshugmynda, sem meirihluti R-listans í Reykjavík hef- ur lagt fram varðandi byggð í Norð- lingaholti. Grein Gunnars ber þess glöggt merki að hann hefur ekki heyrt mig greina frá skoðun minni á þessu skipulagi í þætti Ríkisútvarpsins „Í vikulokin“ 17. ágúst sl. en þar sagði ég orðrétt: „Mér finnst að fram hafi komið rök þarna, sem við verðum að beygja okkur fyrir, bæði frá nágrönnunum og ekki síður frá Kópa- vogsbæ. Á sama hátt og ég barðist einarð- lega fyrir því, að Kópa- vogsbær tæki tillit til athugasemda Reykvík- inga í Vatnsendamál- inu þá hlusta ég á rétt- mætar athugasemdir Kópavogsbúa og minni á að við eigum að standa mjög sam- eiginlega að skipulagsmálum við „græna trefilinn“ og útivistarsvæðin sérstaklega í grennd við Elliðavatn og lífríki þess.“ Síðar í sama þætti sagði ég orð- rétt: „Ég vil hlusta á þessa gagnrýni og meta hana og ég tel að það þurfi að skera þetta skipulag upp að verulegu leyti.“ Í bréfi Kópavogsbæjar frá 8. ágúst sl.til skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar eru gerðar at- hugasemdir við deiliskipulag í Norð- lingaholti í sjö liðum. Kópavogsbær bendir borgaryfir- völdum á „að fyrirhuguð 3.000-3.300 manna byggð með 6 hæða blokkum ásamt atvinnusvæðum og tveimur bensínstöðvum í Norðlingaholti slíti í sundur „Græna trefilinn“ og um leið tengslin milli útivistarsvæðisins um- hverfis Rauðavatn annars vegar og útivistarsvæða við Rauðhóla og Ell- iðavatn hins vegar.“ Þetta sé ekki í anda svæðisskipulags höfuðborgar- svæðisins. Kópavogsbær gagnrýnir jafnframt að hafa ekki fengið kynn- ingu á tillögunni áður en hún var auglýst til athugasemda, þar sem starfandi sé vinnuhópur með fulltrú- um beggja sveitarfélaganna vegna skipulags við Elliðavatn og lífríkis þess. Þá varar Kópavogsbær við staðsetningu bensínstöðvar á sprungusvæði á mörkum vatns- verndarsvæðis. Staðsetning set- tjarnar við Breiðholtsbraut og ná- lægð fjögurra til sex hæða fjölbýlishúsa við ána Bugðu er gagn- rýnd, sem og allt of mikill þéttleiki byggðarinnar. Einnig er bent á að gegnumakstur er mögulegur um fyr- irhugaðar bensínstöðvar á svæðinu, en það er ekki leyfilegt skv. grein- argerð sem fylgir skipulaginu. Eins og áður segir vil ég taka tillit til flestra þessara athugasemda og breytir engu þó að samstarf Reykja- víkur og Kópavogsbæjar hafi ekki orðið sem skyldi í samstarfsnefnd þeirri sem komið var á fót í kjölfar tillögu minnar í borgarstjórn haustið 2000. Um þessar mundir er verið að kynna alls 34 athugasemdir sem borgaryfirvöldum hafa borist vegna deiliskipulags Norðlingaholts. Auk þess sem þegar hefur komið fram er ljóst að ekki hefur verið tekið nægi- legt tillit til votlendissvæðis og flæði- engja við Bugðu, sem hefur mikið náttúruverndargildi. Mörg rök hníga að því að fyrirhuguð 1.100 íbúða byggð með stórum fjölbýlis- húsum ásamt atvinnustarfsemi og bensínstöðvum feli í sér ógn við líf- ríki Elliðaðaánna og vatnasvið þeirra, auk sjónmengunar og hættu fyrir nálæg vatnsverndarsvæði. Uppskurður á fyrirliggjandi deili- skipulagi Norðlingaholts er af þess- um ástæðum óhjákvæmilegur. Um Vatnsenda og Norðlingaholt Ólafur F. Magnússon Skipulag Uppskurður á fyrir- liggjandi deiliskipulagi Norðlingaholts, segir Ólafur F. Magnússon, er óhjákvæmilegur. Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. TRAUST sam- göngunet er forsenda þess að þjóðir blómg- ist og dafni. Ný tækni í fjar- skiptum bætir nýjum streng í þetta hljóð- færi en saman eru góðar samgöngur og traust boðskipti for- sendur framfara. Austfirðingar hafa þurft að búa við lakari samgöngur en aðrir landsmenn. Afleiðing- arnar hafa ekki látið standa á sér; þrátt fyrir að öll skilyrði séu fyrir hendi til að á Austurlandi fjölgi fólki þá er því öfugt farið. Mér þykir líklegt að eftir nokkra áratugi verði það ráðgáta í huga þess fólks sem þá býr á Austurlandi og getur ekið greiðar leiðir af Héraði um jarðgöng til Vopnafjarðar eða til Seyðisfjarðar og síðan hina fögru fjarðaleið um Mjóafjörð, Eskifjörð, Reyðarfjörð til Fáskrúðsfjarðar, hvers vegna lagt var í allan þennan kostnað við að leggja vegi upp á fjöll þegar önnur og miklu skynsamlegri úrræði voru til. Þegar íbúar Parísar báðu konung sinn um brauð spurði drottn- ingin franska undr- andi: Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur? Á sama máta gerist það á Íslandi árið 2002, þegar aust- firskt fólk spyr: Hvers vegna er okkur ekki skapað öruggara og betra samfélag með því að leggja vegina í gegnum fjöllin? Þá svara hinar íslensku drottningar steinhissa: Hvers vegna farið þið ekki yfir fjöllin? Þar eru svaka flottir vegir. Því miður virðast sumir íslensk- ir stjórnmálamenn vera jafn veru- leikafirrtir og franska drottningin. Þeir skilja ekki ákall almennings um öryggi, um réttlæti, um virð- ingu. Þetta er svo dýrt, þetta kostar marga miljarða segja menn og dæsa. Það er gert sömu dagana og menn sem framleiddu rússneskt ropvatn bjóðast til að að kaupa þjóðbankana, annan eða báða eftir atvikum fyrir vasapeningana sína, og strákurinn hans Jóhannesar í Bónus selur nokkrar tuskubúðir í Bretlandi og fær fyrir þær í hagn- að sem svarar verði jarðganga milli Vopnafjarðar og Héraðs og Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Því verður ekki á móti mælt að óöryggi í samgöngum er ein megin orsök byggðaröskunar. Þegar arð- semi samgöngubóta er metin gleymist oftast að leggja mat á óbeinan kostnað sem verður vegna byggðaröskunar. Þegar metinn er kostnaður við gerð jarðganga til austfirsku byggðanna verður að reikna á móti hvað gerist ef fólki verður áfram vísað til Heiðar. Hvað kostar að leggja af byggð í einu plássi? Hvað kostar að leggja af mann- virki eins og skóla, sjúkrahús, gatna-og veitukerfi og hafnar- mannvirki, svo nokkuð sé nefnt af opinberum eignum. Hvað kostar það samfélagið að afskrifa íbúðar- hús, atvinnuhúsnæði og aðrar eignir sem falla úr notkun við eyð- ingu byggðar? En vegurinn er góður segja menn. Vissulega hafa verið byggð- ir góðir vegir yfir fjallvegi á Aust- urlandi en þeir eru á nokkrum stöðum í yfir 500 metra hæð yfir sjávarmáli. Meinið er að fólkið sem býr við samgöngur sem þessar finnur sig ekki öruggt þar sem þessar að- stæður hefta þá þrá sem Austfirð- ingar, rétt eins og annað fólk, hafa til að bera sig um, eftir því sem hugur stendur til og þegar hentar. Fólk vill sækja menningarviðburði og vera þátttakendur í leik og starfi í því samfélagi sem það kýs að búa í án þess að þurfa hálft árið að vera að stilla þá löngun eftir veðurlagi í 500 metra hæð yfir sjávarmáli. Það vill svo vel til að hægt er að benda á dæmi þess hvað velheppn- að samgöngumannvirki getur gert til að brjóta niður þröskulda oft ósýnilega og huglæga. Fyrir nokkrum árum vöktu nokkrir framsýnir Vestlendingar máls á því að gera mætti göng undir Hvalfjörð, öllum landsmönn- um til hagsbóta en ekki síst byggðum vestan Hvalfjarðar. Segja má að hugmyndin hafi feng- ið misgóðar undirtektir og margir sögðu „undrandi“: Hvað meina þessir menn, það er fínn vegur fyrir Hvalfjörð, hvað vilja menn hafa það betra? Hvað sem leið úrtöluröddum voru gerð göng undir Hvalfjörð með þeim afleiðingum að byggðir vestanlands hafa fengið nýjan kraft. Eru til þeir menn í dag sem telja að Hvalfjarðargöngin hafi verið óraunhæf? Ég trúi því varla. Hugmyndir þær sem Austfirð- ingar hafa á nýjan leik ýtt á flot um tengingu byggða á Austurlandi með jarðgöngum eru af sama toga og Hvalfjarðargöngin voru fyrir svo sem áratug. Þetta er draumsýn, sem byggist á því að við viljum efla byggð á Austurlandi, við erum sannfærð um að þetta er leiðin, að tengja byggðirnar með samgönguneti sem skapar samhent samfélag þar sem verður enn betra og eftirsókn- arverðara að búa í heldur en er í dag. Við stefnum okkar hugmyndum ekki gegn neinum þeim jarðganga- áætlunum sem uppi eru í dag. Við styðjum af alefli þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar. En við erum framsýn og viljum taka þátt í að móta okkar nánasta sam- félag til lengri framtíðar. Ég heiti á Austfirðinga að fylkja sér á bak við þessa hugmynd og ég trúi því og treysti að allir fram- farasinnaðir stjórnmálamenn komi til liðs við okkur og sýni með því framsýni og djörfung og skrifi með því kafla í söguna sem verður þeim til vegsauka. Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur? Hrafnkell A. Jónsson Samgöngur Við erum framsýn, segir Hrafnkell A. Jónsson, og viljum taka þátt í að móta okkar nánasta samfélag til lengri framtíðar. Höfundur er héraðsskjalavörður, Fellabæ, og áhugamaður um velferð Austurlands. FUGLAHÚS Garðprýði fyrir garða og sumarhús. 10 mismundandi gerðir. Klapparstíg 44  Sími 562 3614 PIPAR OG SALT Frá kr. 3.995 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.