Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLA í Kína hefur handtekið öfundsjúkan sölu- turnseiganda sem játaði að hafa sett rottueitur í mat sem keppinautur hans seldi, með þeim afleiðingum að 38 manns hafa látist og mörg hundruð veikst. Maðurinn, Chen Zhenp- ing, var handtekinn á sunnu- dag, daginn eftir að fólkið lést eftir að hafa borðað árbít í verslun í borginni Nanjing. Chen, sem rak söluturn í sömu borg, játaði að hann hefði öf- undast út í velgengni Zhengwu- verslunarinnar og sett eitur í vörur sem verslunin seldi. Afganar snúi heim FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins sagði í gær að það væri forgangsatriði að tugir þúsunda afganskra flóttamanna og ólöglegra inn- flytjenda sem sest hefðu að í Evrópu sneru aftur til síns heima. Áætlað er að alls sé um að ræða eitt hundrað þúsund manns. Hefur framkvæmda- stjórnin lagt til hliðar þrjár milljónir evra til þess að hjálpa fólkinu að komast aftur heim. Fjárfestingar aukast ERLENDAR fjárfestingar í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu jukust um tvö prósent í fyrra og námu þá alls 27 milljörðum dollara. Hafa þær aldrei verið meiri. Í skýrslu Verslunar- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir síðasta ár segir, að Mið- og Austur-Evrópa virð- ist hafa áunnið sér „áreiðanlegt og efnilegt“ orðspor. Á þessu svæði eru átta af tíu ríkjum er koma til greina sem aðilar að Evrópusambandinu 2004. „Emírinn“ handtekinn FJÖRUTÍU og fimm ára Frakki sem kallaður hefur ver- ið „Emírinn“ eða „Soldáninn“ og talinn vera þrautþjálfaður gimsteinaþjófur hefur verið handtekinn í París, að því er dómstólar í Nice greindu frá í gær. Þjófurinn heitir réttu nafni Jean Herrina og hafði á sér einn demant og dýr arm- bandsúr er hann var tekinn. Hans hefur verið leitað vegna þjófnaðar í síðasta mánuði á demanti sem talinn er um 100 þúsunda evra virði. Grjót og meira grjót FÖR lítils beltavélmennis um þröng göng í Keops-pýramíd- anum í Egyptalandi leiddi að- eins í ljós meira grjót handan við steinhellu sem fornleifa- fræðingar höfðu látið vélmenn- ið bora sig í gegnum í þeirri von að á bakvið hana leyndust vís- bendingar um hvernig píramíd- inn, sem er 4.500 ára gamall, var byggður. Handan hennar var aðeins þröngt rými og önn- ur hella sem lokaði göngunum. Blaðamenn sem fylgdust með á sjónvarpsskjá andvörpuðu af vonbrigðum, en fornleifafræð- ingar voru hæstánægðir. STUTT Játaði að hafa eitr- að matinn UNGFRÚ Sviss ákvað um síðustu helgi að hundsa fegurðarkeppnina Ungfrú heimur, sem haldin verður í Nígeríu í nóvember. Með því vill hún mótmæla því, að nígerísk kona var dæmd til dauða fyrir að eiga barn ut- an hjónabands. Fjölgar þeim nú dag frá degi fegurðardrottningunum, sem ætla ekki að mæta til keppn- innar, og er hart lagt að skipuleggj- endum hennar að finna henni annan vettvang. „Mér finnst sem það jafngilti stuðningi við þessa villimennsku, færi ég til Nígeríu,“ sagði Nadine Vinzens, svissneska fegurðardrottn- ingin, þegar hún ákvað að gera það sama og stöllur hennar í Belgíu, Frakklandi, Fílabeinsströndinni, Kenýa og Noregi en auk þess eru fegurðardrottningarnar í Hollandi, Þýskalandi, Finnlandi, Póllandi og Togo að hugsa sinn gang. Konurnar eru að mótmæla því, að íslamskur dómstóll í Norður-Nígeríu dæmdi þrítuga konu, Aminu Lawal, til dauða fyrir að eiga barn utan hjónabands. Verður hún grýtt til bana þegar barnið hefur verið vanið af brjósti. Keppnin í ár verður í Nígeríu vegna þess, að í fyrra varð nígeríski keppandinn, Agbani Darego, fyrst afrískra kvenna til að vinna titilinn Ungfrú heimur. Sophia Hedmark, Ungfrú Svíþjóð, hefur ákveðið að taka þátt í keppninni og nota um leið tækifærið til að mótmæla kvenfyr- irlitningu og ómannúðlegum refsing- um múslima. Það kann þó að vera varasamt fyrir hana því að róttæk múslimasamtök hafa haft í hótunum við væntanlega þátttakendur. Áhyggjur í Nígeríu Stjórnvöld í Nígeríu hafa áhyggj- ur af því, að keppnin verði flutt til annars lands, og hefur Dubem On- yia, utanríkisráðherra landsins, reynt að sannfæra keppendur um, að fyllsta öryggis verði gætt. Þá minnir hann á, að mál Aminu Lawal eigi eft- ir að fara fyrir æðra dómstig og úti- lokar, að dómurinn yfir henni muni standa. Verður hætt við fegurðarkeppnina Ungfrú heimur í Nígeríu? Keppnin hundsuð vegna dauðadóms Sydney. AFP. AP Amina Lawal, til vinstri, leidd úr réttarsalnum eftir uppkvaðningu dauðadómsins. Til að mótmæla honum hafa margar fegurðardrottn- ingar ákveðið að taka ekki þátt í keppninni Ungfrú heimur í Nígeríu. FRANSKI rithöfund- urinn Michel Houelle- becq kom fyrir rétt í gær sakaður um að hafa lítilsvirt íslam með því að segja trúna „heimskulega“ og „hættulega“. Houelle- becq er 43 ára og varð heimsfrægur fyrir skáldsögu sína Öreind- irnar, sem kom út 1998 og hefur verið þýdd á íslensku. Samtök músl- ima í Frakklandi hafa ákært hann fyrir kyn- þáttahatur og trúarof- stæki. Nýjasta deilan sem Houellebecq hefur valdið á rætur að rekja til við- tals sem hann veitti franska bók- menntatímaritinu Lire í fyrra, þar sem hann sagði: „Íslam er jú heimskulegastu trúarbrögðin. Þegar maður les Kóraninn fellur manni all- ur ketill í eld. Biblían er þó að minnsta kosti vel skrifuð vegna þess að gyðingar hafa virkilega bók- menntahæfileika.“ Stærstu moskurnar í París og Lyon, Bandalag franskra múslima og Heimssamband múslima, hafa höfðað mál á hendur Houellebecq fyrir kynþáttahatur gegn múslim- um, og segja að sannanir fyrir því sé að finna í nýjustu skáldsögu hans, Áform, sem væntanleg er í íslenskri þýðingu í nóvember. Houellebecq er vanur því að deilur spinnist vegna skáld- sagna hans og hefur hvorki dregið til baka ummæli sín né varið aðalsöguhetju bókar- innar, sem hatar araba. Lögmaður Houelle- becqs, Emmanuel Pierrat, sagði við AFP að ekki sé hægt að taka viðtal við rithöfund eins og um væri að ræða stjórnmálamann. En lögmenn samtaka múslima segja að það séu ekki persónulegar skoðanir rithöfundar- ins sem málið snúist um, heldur kynþáttahatur er beinist gegn múslimum. „Ég hef sérstaka hæfileika til að móðga og ögra“ Þegar deilurnar, er hafa átt þátt í því að bækur Houellebecqs haldast á metsölulistum, stóðu sem hæst í fyrra svaraði hann gagnrýnendum sínum fullum hálsi: „Þetta hefur bara valdið mér erfiðleikum, en svona er þetta nú. Ég geri árásir. Ég móðga. Ég hef sérstaka hæfileika til að móðga og ögra. Þetta kryddar skáldsögurnar mínar. Er það ekki fremur fyndið? Það virðist hér engu skipta hvað mér finnst sem einstak- lingi.“ Houellebecq er nú búsettur á Ír- landi þar sem hann vinnur að kvik- myndun skáldsögunnar Öreindirnar. Houellebecq kemur fyrir rétt í París París. AFP. Houellebecq TVÖ flutningaskip, sem höfðu með- ferðis mikið magn kjarnorkuelds- neytis, lögðust að bryggju í Barrow í norðvesturhluta Englands í gær eft- ir að hafa verið 75 daga á ferðalagi um heimsins höf. Hópur umhverfis- sinna fylgdi skipunum síðasta spöl- inn en þeir segja ferðalag þeirra hafa verið hið mesta hneyksli. Skipin tvö, Pacific Pintail og Paci- fic Teal, höfðu verið send með fjögur tonn af plútonoxíðsblöndu, þ.e. kjarnorkueldsneyti, til Japans árið 1999. Hafði fyrirtækið Kansai El- ectric Power fest kaup á eldsneytinu af breskum framleiðendum til nota í kjarnorkustöð þess í Fukui-héraði. Þegar til kom neitaði Kansai Electric hins vegar að taka við elds- neytinu enda kom á daginn að for- svarsmenn breska fyrirtækisins British Nuclear Fuels Limited höfðu falsað öryggisskýrslur, sem fylgdu farminum. Bretarnir samþykktu að taka aft- ur við eldsneytinu, auk þess sem þeir samþykktu að borga Kansai skaða- bætur. Ekki gekk hins vegar slysa- laust að koma farminum aftur til Bretlands en skipin tvö lögðu af stað frá Japan 4. júlí. Hafa áttatíu lönd – í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin – mótmælt ferðalagi þessu um heimshöfin enda fullyrða fulltrúar umhverfisverndarsamtak- anna Greenpeace að skipið hafi haft meðferðis nægt magn plúton-efna til að búa mætti til 50 kjarnorku- sprengjur, ef farmurinn félli í hend- ur rangra aðila. Þessu hefur BNFL hins vegar hafnað algerlega og segja efnin, sem um borð voru, alls ekki jafn hættuleg og af hefði verið látið. Umdeildur farm- ur kominn aftur til Englands Barrow-in-Furness. AFP. Al-QAEDA-liði sem handtekinn var ásamt hryðjuverkamannin- um Ramzi Binalshibh í Pakistan í síðustu viku, er sagður vera einn morðingja bandaríska blaðamannsins Daniels Pearls, að því er háttsettur maður innan pakistönsku lögreglunnar greindi frá í gær. Pakistani sem var handtekinn en ekki kærður vegna morðsins á Pearl, gaf upp nafn meints morðingja. Samkvæmt heimildarmanni AP-fréttastofunnar var Pakist- aninn, Fazal Karim, færður á griðastað þar sem tíu grunaðir voru, þar á meðal Binalshibh, í haldi. Heimildarmaðurinn vildi ekki segja hver væri meintur morð- ingi Pearls en sagði að hann væri ekki í hópi þeirra fimm manna sem framseldir hefðu verið til bandarískra yfirvalda. Reynist þetta vera rétt, er þetta fyrsta staðfestingin á aðild al-Qaeda að ráninu og morðinu á Pearl. Honum var rænt í janúar þar sem hann rannsakaði tengsl hópa herskárra Pakistana við Richard C. Reid, sem var hand- tekinn í desember í flugvél á leið frá París til Miami í Flórída eftir að sprengiefni fundust í skóm hans. Lík Pearls, sem starfaði hjá dagblaðinu The Wall Street Journal, fannst í Karachi í maí. Karim og tveir aðrir menn vís- uðu á gröfina. Meintur morðingi Pearls hand- tekinn SPRENGJA sprakk á götu á Öster- malm í miðborg Stokkhólms skömmu fyrir hádegi í gær. Einn maður slasaðist að því að fram kom í yfirlýsingu frá lögreglunni. Sprengingin átti sér stað á ellefta tímanum að staðartíma og var hinn slasaði, sem kvað vera á fertugsaldri, fluttur á sjúkrahús. Björn Pihlblad, talsmaður lögreglunnar, sagði, að sérstök sprengjusveit hefði verið send á vettvang en ekki var vitað um hvers konar sprengiefni var að ræða. Pihlblad sagði, að engin viðvörun hefði borist um sprengjuna eða sprengjuhótun. Lokaði lögreglan götunni og hótel, sem er handan göt- unnar við staðinn þar sem sprengjan sprakk, var rýmt. Að sögn vitna var sprengjan í tösku, sem skilin var eftir á götunni, og svo virðist sem hún hafi legið þar í nokkurn tíma. Sprengjan sprakk í um 100 metra fjarlægð frá sænska varnarmála- ráðuneytinu en í gær var ekki vitað hvort hún tengdist því eða einhverju öðru. Sprengja í Stokkhólmi Stokkhólmi. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.