Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 16
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarðar- sveitar ræddi um framtíð félags- heimilisins Sólgarðs á fundi sínum í vikunni. Hólmgeir Karlsson oddviti sagði að uppi væru hugmyndir um að gera Sólgarð og helst Saurbæ líka, að ferðamannastað. Hann sagði að eigendur Saurbæjarkirkju hefðu nú sýnt henni mikinn áhuga og að unnið hefði verið á endurbótum á henni. Í Eyjafjarðarsveit eru þrjú félags- heimili, Freyvangur, Sólgarður og Laugaborg, sem tengdust þeim þremur sveitarfélögum sem samein- uðst í Eyjafjarðarsveit. Hólmgeir sagði að Freyvangur hefði verið eyrnamerktur leikhússtarfi og að Laugaborg hefði verið að breytast í tónlistarhús. Hugmyndin er svo að í Sólgarði verði komið upp safni og að- stöðu fyrir ferðamenn. Sverrir Hermannsson, húsasmið- ur á Akureyri, hefur gefið Eyjafjarð- arsveit safn sitt en hann hefur í gegnum tíðina safnað ótrúlegustu hlutum sem tengjast byggingasög- unni, verkfærum, skrúfum, nöglum, spýtum úr gömlum húsum sem hann hefur unnið við lagfæringar á og fleiru. Hólmgeir sagði að ef þessar hugmyndir yrðu að veruleika yrði byrjað á því að setja safn Sverris upp í Sólgarði. Hugmyndir um að setja upp safn í Sólgarði AKUREYRI 16 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sín- um í gær að leggja til við bæjarstjórn að skipaður verði fimm manna starfs- hópur til að fara yfir framtíðar- áherslur í atvinnumálum Akureyrar- bæjar og skili starfshópurinn tillögum sínum til bæjarráðs fyrir 1. desember nk. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri sagði nauðsynlegt að fara yfir þessi mál en hins vegar væri allt of snemmt að segja til um niðurstöð- ur. Í skýrslu frá Pricewaterhouse- Coopers, PwC, um framtíðar- áherslur í atvinnumálum Akureyrar- bæjar, er m.a. lagt til að Akur- eyrarbær dragi sig út úr rekstri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, AFE. Jafnframt er lagt til að at- vinnumálanefnd verði starfrækt áfram en að nafni hennar verði breytt í „markaðs- og atvinnumála- nefnd“ og hlutverk hennar lagað að breyttu fyrirkomulagi. Hólmar Svansson framkvæmdastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir viku, að það væri dauðadómur yfir félag- inu ef Akureyrarbær drægi sig út úr rekstrinum, enda greiðir bærinn um 70% af framlögum sveitarfélaganna á svæðinu til AFE. Kristján Þór sagði að ekki hefði verið tekin nein ákvörð- un um að draga Akureyrarbæ út úr rekstri Atvinnuþróunarfélagsins. „Eins og fram kemur í skýrslunni er Akureyrarbær það sveitarfélag á Íslandi sem er að leggja mest fjár- magn til þessara mála á íbúa. Og burtséð frá því hvaða stofnanir um er að ræða þá er spurningin hvað skatt- greiðendur á Akureyri eru að fá fyrir þessa fjármuni og er hægt að nýta þá betur en við höfum gert með ein- hverju öðru skipulagi? Þetta er spurning sem svara verður í þeirri vinnu sem framundan er en það get- ur svo vel verið að menn komist að þeirri niðurstöðu að núverandi fyr- irkomulag sé það besta eða að breyt- inga sé þörf.“ Kristján Þór sagði að eins og mál- um væri háttað í dag, byggðist stoð- kerfi atvinnulífsins á Akureyri m.a. á Atvinnuþróunarfélagi, atvinnumála- nefnd, Frumkvöðlasetri Norður- lands, Nýsköpunarmiðstöð og einnig mætti nefna Tækifærissjóðinn, Framtakssjóðinn, Hámarkssjóðinn, Byggðastofnun og styrkjakerfi í ferða- og landbúnaðarmálum. Starfshópur fari yfir framtíðaráherslur í atvinnumálum Akureyrarbæjar Hvað fá skattgreiðendur fyrir fjármuni til atvinnumála? Fyrirlestrar á haustdögum „FYRIRLESTRAR á haustdögum“ er yfirskrift fyrirlestraraðar sem hefst í dag, 18. október, kl. 15 í Deigl- unni. Guðmundur Andri Thorsson tal- ar þar um fjölmiðla og lífsstíl og tíð- aranda í aldarbyrjun. Fyrirlestrarnir eru ætlaðir nem- endum listnámsbrautar Verkmennta- skólans á Akureyri sem og áhugasöm- um almenningi. Markmiðið er að varpa ljósi á menningarumhverfi okk- ar, segir í frétt um fyrirlestraröðina. Næsti fyrirlestur verður laugar- daginn 26. október kl. 15 í Ketilhúsinu en þar fjallar Guðmundur Oddur Magnússon um hönnun, ímyndir og myndmál. Árni Ólafsson fjallar um byggingalist og bæjarskipulag með dæmum frá Akureyri og víðar í þriðja fyrirlestrinum sem verður 1. nóvem- ber og loks fjallar Orri Harðarson um popptónlist í íslenskri samtímamenn- ingu föstud. 8. nóv. en fyrirlestrarnir verða í Ketilhúsinu og hefjast kl. 15. Hæ hobbs- así í Lóni KELTNESK kráarstemning verður í hávegum höfð í Lóni um helgina þegar félagar úr Karlakór Akureyr- ar-Geysi bregða á leik með nokkrum stórmerkum hljóðfæraleikurum í söngdagskránni „Hæ hobbsasí“. Þessi dagskrá var flutt við góðar undirtektir sl. vor en vegna fjölda áskorana er hún nú tekin upp á ný. Um er að ræða flutning á ýmsum fjörugum írskum og keltneskum sönglögum, sem flest fjalla um drykkjuskap, ástir og örlög eða sjó- mennsku, og eru lögin sungin við texta eftir lífskúnstnerinn Jónas Árnason. Allt eru þetta þekkt lög og landsfrægir textar. Ekki er hér um hefðbundna tón- leika að ræða heldur hressilegt skemmtikvöld með tveimur stuttum hléum og verður barinn opinn fyrir þá sem þannig eru sinnaðir, enda hugmyndin að skapa sem raunveru- legasta kráarstemningu. Auk félaga úr Karlakórnum mun Kolbrún Jónsdóttir syngja einsöng, en í hljómsveitinni eru þau Snorri Guðvarðarson, Eiríkur Stephensen, Þorleifur Jóhannsson og Björn Þór- arinsson. Sýningar verða í kvöld, föstudag- inn 18. október, og á morgun, laug- ardaginn 19. október, kl. 21 og gert er ráð fyrir einni sýningu föstudag- inn 25. október. Húsið verður opnað kl. 20 og eru allir unnendur fjörugrar þjóðlagatónlistar hvattir til að láta sjá sig og taka undir í söngnum. ÓLI G. Jóhannsson myndlistar- maður opnaði í vikunni mál- verkasýningu á Karólínu Restaur- ant í Gilinu á Akureyri. Sýningin ber yfirskriftina; „Efst við norðr- ið“ og þar sýnir Óli 7 olíumálverk. Þetta er jafnframt þriðja einka- sýningin sem Óli opnar um þessar mundir, því að auki er hann með sýningu hjá Sævari Karli í Reykja- vík og í gær var opnuð sýning á verkum hans í Kaupmannahöfn. Hann sagði við opnun sýning- arinnar að myndir sem þessar hefðu verið að fleyta sér niður til Evrópu. „Það er gaman að þessu og skrambi gott að vera myndlist- armaður á Akureyri.“ Óli G. er sjálfmenntaður mynd- listarmaður sem hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1973 á Akur- eyri. Á áttunda áratugnum var stofnað til Myndlistarfélags Ak- ureyrar og undir merkjum þess var unnið ötult brautryðj- endastarf. Óli var um tíma for- maður félagsins og beitti hann sér ásamt nokkrum öðrum fyrir stofn- un Myndsmiðjunnar, sem var for- veri Myndlistarskólans á Ak- ureyri. Um árabil rak Óli Gallerí Háhól sem markaði tímamót í sögu myndlistar á Akureyri en þá voru í fyrsta sinn haldnar myndlist- arsýningar norðan heiða með reglubundnu millibili. Myndverk Óla eru óhlutbundin, eins og hann segir sjálfur en grunnurinn er nánasta umhverfi, jafnt á Ak- ureyri sem í Danmörku og sí- breytileg skaphöfn listamannsins. Óli var bæjarlistamaður Akureyr- ar 2001 til 2002. Sýning Óla á Karólínu Restaurant er sú áttunda sem þar er haldin á síðustu fjórum en það var Erró sem fyrstur reið á vaðið. Óli G. opnar málverkasýningu á Karólínu Restaurant Morgunblaðið/Kristján Óli G. Jóhannsson framan við verk sín á Karólínu Restaurant. Er með þrjár einka- sýningar í gangi Villibráðarhelgi verður á Karól- ínu Restaurant í dag, föstudaginn 18. október, og á morgun, 19. októ- ber, sem nefnist Villibráð og vín. Boðið er upp á fjölrétta matseðil og vín með hverjum rétti ásamt fordrykk og koníaki/líkjör. Birkir Elmarsson vínþjónn hjá Rolf Jo- hansen verður á staðnum alla helgina. Á matseðlinum er villibráðarpaté með salati og cumberland sósu, lax með fennel og kryddjurtamauki, hreindýr og svartfugl með smá- kartöflum og cassis súkkulaðisósu og bláberjaostaka. Verð með víni 8.990 kr. en án víns 4.990 kr. Aðeins þessa einu helgi. Einnig er hægt að velja af fjöl- breyttum sérréttamatseðli. Í DAG HREPPSTJÓRINN í Grímsey, Bjarni Reykjalín Magnússon í Mið- túni, lét langþráðan draum rætast nú í sumar þegar hann keypti sér kappaksturskerru frá Danmörku. Forsagan er sú, að Bjarni sá fyrir fjölda mörgum árum úti í Noregi hestakapphlaup sem fór fram á svona kerrum. Honum fannst þá að það hlyti að vera stórgaman að eignast eina slíka. Fyrir nokkrum árum fékk Bjarni sér hest sem heitir Mö, en lítil sonardóttir Bjarna nefndi hestinn því nafni. Mö þeysist nú um Grímseyjargötur með hús- bónda sinn í kerrunni góðu. Oftar en ekki er nafni hans, Bjarni Reykjalín Magnússon, fjögurra ára með afa í þessum skemmtiferðum. Bjarni sagði að geysileg ásókn væri hjá börnunum í eyjunni að fá einn og einn rúnt, í þessu merki- lega farartæki. Bjarni hreppstjóri hefur meira segja farið á kapp- aksturskerrunni eftir traktors- slóðum upp um alla eyju. Að lok- um sagðist hann væra alsæll með að gamli draumurinn frá í Noregi væri nú loksins orðinn að veru- leika. Lét gaml- an draum rætast Morgunblaðið/Helga Mattína Bjarni hreppstjóri og nafni hans í hestakerrunni og hesturinn Mö. Grímsey ♦ ♦ ♦ Söngnám- skeið KANADÍSKA söngkonan Tena Palmer heldur rytmískt söngnám- skeið í Tónlistarskólanum á Akur- eyri laugardaginn 19. og sunnudag- inn 20. október frá kl. 10–18. Tena Palmer hefur verið söngvari að at- vinnu í 20 ár, kennari djasssöngs í Tónlistarskóla FÍH frá árinu 1996 og sungið með nokkrum hljómsveitum. Námskeiðið er opið söngvurum á öll- um stigum eða hverjum þeim sem hefur alltaf langað til að syngja bet- ur. Frekari upplýsingar: Tena Palmer, tölvupóstur; tenalpal@- yahoo.ca – sími 659 1808. Herradeild Akureyri, sími 462 3599. LEÐUR JAKKAR FÉLAGSFUNDUR Almennur félagsfundur Léttis verður haldinn 25/10 í Skeifunni. Dagskrá: Landsmótsmál Félagsstarf í vetur Önnur mál Stjórnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.