Morgunblaðið - 04.12.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TILLAGA formanna sex stéttar-
félaga innan Samiðnar um samein-
ingu félaganna var felld í kosning-
um sem fram fóru meðal félags-
manna.
Félögin sem um ræðir eru Bíl-
iðnafélagið/Félag blikksmiða, Félag
garðyrkjumanna, Trésmiðafélag
Reykjavíkur, Málarafélag Reykja-
víkur, Sunniðn og Félag bygging-
ariðnaðarmanna í Hafnarfirði.
Samþykkt tillögunnar var háð því
að félagsmenn Trésmiðafélags
Reykjavíkur og Bíliðnafélagsins/Fé-
lags blikksmiða samþykktu tillög-
una en hún var felld af félagsmönn-
um trésmiðafélagsins. Var sam-
einingin samþykkt með talsverðum
meirihluta í félögunum fimm en 60%
félaga í Trésmiðafélagi Reykjavík-
ur, sem tóku þátt í kosningunni,
sögðu nei. Mestur stuðningur við til-
löguna var í Félagi garðyrkjumanna
þar sem 96% þeirra sem þátt tóku
sögðu já.
Trésmiðafélag Reykjavíkur er
fjölmennasta félagið en þar voru
1.110 félagsmenn á kjörskrá. Bíl-
iðnafélagið/Félag blikksmiða er
næst fjölmennast með 1.077 á kjör-
skrá en 73% félagsmanna þess sem
tóku þátt í kosningunni vildu sam-
eina félögin.
Afgerandi niðurstaða
Finnbjörn Hermannsson, formað-
ur Trésmiðafélags Reykjavíkur,
segist ekki vera ánægður með þessa
niðurstöðu en menn verði að búa við
hana. „Ég reikna með því að menn
séu bara mjög ánægðir með sitt fé-
lag eins og það er rekið í dag,“ segir
hann spurður um skýringar á því að
meirihluti félaga í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur voru mótfallnir sam-
einingu.
„Mér finnst þetta vera það afger-
andi kosninganiðurstaða um að
menn vilji ekki sjá neina breytingu
á félaginu, að ég geri ráð fyrir að við
höldum bara okkar striki,“ segir
Finnbjörn.
Sameining félaga innan
Samiðnar felld í kosningum
TÖLUVERT fleiri íslenskir karlar
en konur stunda nám í öðrum
löndum. Þessu er hins vegar öfugt
farið á öðrum Norðurlöndum þar
sem konur eru alls staðar fleiri en
karlar í hópi námsmanna sem
lögðu stund á nám utan heima-
lands síns skólaárið 2000/2001,
skv. samanburði sem birtur er í
Norrænu tölfræðiárbókinni 2002.
Hlutfall karla í hópi íslenskra
námsmanna erlendis var 53% en
kvenna 47%. Í Finnlandi er hlut-
fall kvenna í hópi námsmanna er-
lendis 69% á móti 31% karla. Í Sví-
þjóð eru hlutföllin 63% konur og
37% karlar og í Danmörku 61%
konur og 39% karlar.
Ísland sker sig einnig úr þegar
bornar eru saman upplýsingar um
þau lönd sem námsmenn sækja
menntun sína til. Flestir íslenskir
námsmenn erlendis stunda nám
sitt á öðrum Norðurlöndum og í
Bandaríkjunum og Kanada. Náms-
menn á öðrum Norðurlöndum
sækja hins vegar að stærstum
hluta nám sitt til Evrópulanda ut-
an Norðurlandanna.
Tæplega 40% íslenskra náms-
manna erlendis eru við nám á öðr-
um Norðurlöndum en til saman-
burðar sækja rúmlega 20%
finnskra námsmanna, sem eru við
nám utan heimalandsins, nám sitt
til annarra Norðurlanda. Tæp 20%
Norðmanna og Dana sem sækja
menntun sína til annarra landa eru
við nám á öðrum Norðurlöndum,
og lægst er hlutallið meðal
sænskra námsmanna erlendis, en
tæp 11% þeirra stunda nám á öðr-
um Norðurlöndum.
Skv. samanburðinum voru um
32% íslenskra námsmanna erlend-
is við nám í Bandaríkjunum og
Kanada skólaárið 2000/2001, en
hlutfallið meðal sænskra náms-
manna er 23,3%, 12% meðal
norskra námsmanna, 13% meðal
danskra námsmanna og 10%
finnskra námsmanna sem stunda
nám í öðrum löndum voru við nám
í Bandaríkjunum eða Kanada.
!
"
#
$
&
'
(
)
*
+
,
-
* ,
. /0
1
,
Fleiri karlar en konur
stunda nám erlendis
OPNUÐ hefur verið sýning í bóka-
safni Bandaríkjaþings í Wash-
ington á landslagsmyndum sem
teknar hafa verið af ýmsum stöðum
á jörðunni með gervitunglinu
Landsat7.
Gervihnattamyndirnar, sem
sendar eru til jarðar, eru einkum
notaðar í hernaðarlegum tilgangi
en stjórnendur bókasafnsins segja
að þær séu líka list enda er yfir-
skrift sýningarinnar Jörðin sem
list. Þeir sem skoða meðfylgjandi
mynd af Vestfjörðum, sem tekin
var af Landsat7, hljóta að vera
þessari staðhæfingu sammála en á
myndinni sjást m.a. Arnarfjörður,
Dýrafjörður, Önundarfjörður, Súg-
andafjörður og hluti Ísafjarðar-
djúps. Sýningin, sem er í landa-
fræði- og kortadeild safnsins,
verður opin til 23. júlí.
AP
Vestfirðir á listsýningu
í Bandaríkjunum
UNDIRBÚNINGUR vegna upp-
byggingar á nýju íbúðarhverfi í
Skuggahverfinu gengur vel og er
ráðgert að afhenda fyrstu íbúðirn-
ar í apríl 2004.
Hverfið markast af Skúlagötu,
Frakkastíg, Lindargötu og Völund-
arlóð við Klapparstíg. Húsbyggj-
andi er 101 Skuggahverfi hf., félag
í eigu Burðaráss hf. og Fasteigna-
félagsins Stoða hf., en þarna er
áformað að reisa um 250 íbúðir í
þremur áföngum.
Jónas Þ. Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Stoða, segir að við-
ræður við verktaka um byggingu
fyrsta áfanga séu komnar vel á veg
og gera megi ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist fljótlega eftir ára-
mót. Í fyrsta áfanga verði byggðar
um 90 íbúðir og sé ráðgert að af-
henda fyrstu íbúðirnar í apríl 2004.
Í öðrum og þriðja áfanga verði síð-
an 150 íbúðir og verði byrjað á
þeim í framhaldi af fyrsta áfang-
anum.
Byggingarframkvæmd-
ir í Skuggahverfinu
Fyrsta
áfanga lýkur
eftir rúmt ár
ÍSLAND lendir í 14 sæti sam-
kvæmt niðurstöðum alþjóðlegr-
ar könnunar á skólakerfum og
námskunnáttu 14 og 15 ára ung-
linga í iðnríkjum heims, sem
gerð var af rannsóknamiðstöð
Unicef, barnahjálpar SÞ þjóð-
anna. Skv. niðurstöðum könnun-
arinnar ná 14% nemenda á þess-
um aldri ekki lágmarkskröfum
um læsi, stærðfræði- og raun-
greinakunnáttu.
Suður-Kórea fær besta út-
komu, samkvæmt könnuninni,
en í næstu sætum þar á eftir
koma Japanar og Finnar.
Í rannsókn Unicef er reynt að
leggja mat á menntun í iðn-
væddum ríkjum og er unnið út
frá alþjóðlegum rannsóknum.
Að því er kemur á fréttavef
BBC leiðir rannsóknin í ljós að
ekki verða fundin bein tengsl á
milli árangurs af menntun í ein-
stökum löndum og fjármagns
sem veitt er til skólakerfisins. Í
Suður-Kóreu og Grikklandi er
álíka fjármagni veitt til mennta-
mála, ef miðað er við framlög á
einstakling, en frammistaða
nemenda í Suður-Kóreu er mun
betri.
Þá leiðir rannsóknin einnig í
ljós að ekki eru bein tengsl á
milli fjölda nemenda í bekkjum
og árangurs í prófum. Hins veg-
ar komu í ljós greinileg tengsl á
milli fjölskylduaðstæðna og
námsgetu. Börn menntaðra for-
eldra eru líklegri en önnur til að
fara í framhaldsnám.
Ísland í 14.
sæti á lista
yfir bestu
skólakerfi
iðnríkja
GERT er ráð fyrir að hótel við Að-
alstræti 16 í Reykjavík verði opnað í
mars árið 2005 en stefnt er að því að
hefja framkvæmdir næsta haust.
Jónas Þ. Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Fasteignafélagsins
Stoða hf., sem sér um hótelbygg-
inguna, segir að verkefnið sé í
ákveðnum farvegi og þróunar- og
skipulagsmálin taki sinn tíma.
Reykjavíkurborg þurfi að ljúka forn-
leifauppgreftri á svæðinu áður en
aðrar framkvæmdir hefjist, en borg-
in komi til með að eiga sýningarskála
í kjallara hótelsins.
Áætlað er að hótelið verði 75 her-
bergja á þremur hæðum.
Hótel við
Aðalstræti
á áætlun
SKJÖL er spanna sögu Hitaveit-
unnar, Vatnsveitunnar og Raf-
magnsveitunnar sem sameinaðar
voru í Orkuveitu Reykjavíkur, OR,
hafa verið afhent Borgarskjala-
safni formlega. Tilefnið er yfir-
standandi flutningur OR í nýtt hús-
næði á Réttarhálsi.
Skjölin spanna tímabilið frá upp-
hafi veituframkvæmda á Íslandi um
aldamótin 1900 og ná til ársins
1998. „Skjöl Vatnsveitunnar eru
stórmerkilegar heimildir og veita
okkur yfirlit yfir stórkostlegar
breytingar,“ segir í frétt frá OR.
Þau sýna til dæmis skráða atburði
allt frá taugaveikifaraldri í Reykja-
vík í upphafi 20. aldar til fyrstu og
einu vatnsveitu á Norðurlöndum til
að hljóta vottun skv. Gámes [1997]
og ISO 9001 staðlinum árið 1999.
„Fyrir daga Vatnsveitunnar
sóttu Reykvíkingar allt neysluvatn í
opna brunna sem grafnir höfðu ver-
ið víðs vegar um bæinn. Upphaf
Vatnsveitunnar má rekja til þess að
árið 1906 braust úr skæður tauga-
veikifaraldur í Reykjavík en veikin
átti upptök sín í menguðu vatnsbóli.
Guðmundur Björnsson, þáverandi
landlæknir, barðist fyrir vatnsveitu
en ekki höfðu allir trú á vatnsveit-
unni og fannst sumum fáránlegt að
þurfa t.d. að borga fyrir aðgang að
vatni. Vatnsveitan tók til starfa árið
1909 og var þá eitt mesta mann-
virki sem Íslendingar höfðu ráðist í
og í raun fyrsta stóriðja landsins.“
Skjöl Hitaveitunnar eru frá upp-
hafi hugmynda um hitaveitu í
Reykjavík en árið 1928 var farið að
bora eftir heitu vatni við Þvotta-
laugarnar í Laugardal. Skjöl Raf-
magnsveitunnar eru frá árinu 1920
og má t.d. nefna skjöl sem varða
upphaf og uppbyggingu Elliða-
árstöðvarinnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Alfa Kristjánsdóttir, forstöðumaður skjalasafns Orkuveitunnar (t.h.), af-
hendir Svanhildi Bogadóttur borgarskjalaverði skrár yfir skjöl sem færð
hafa verið Borgarskjalasafni og segja sögu veitnanna í Reykjavík frá 1900.
Sjö tonn
af skjölum
afhent
Borgar-
skjalasafni