Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 80

Morgunblaðið - 07.12.2002, Síða 80
80 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG var að lesa skrítna grein á miðsíðu DV nú í vikunni; nafnlausa. Hún heit- ir Þorir Matthías. Þetta virðist vera einhvers konar rauð dula, en hefur engin áhrif á mig vegna þess ég er ekki naut. Þorir hvað? Jú, að birta dagbækur sínar, því að „óþreyjan vex eftir því að hann leysi frá skjóðunni um það sem hann upp- lifði í hringiðunni í ritstjórastólnum“, eins og segir í greininni. Hver segir að dagbækur mínar fjalli einkum um þennan stól? Og af hverju skyldi hann valda óþreyju? Það sem einkennir hann einna helzt er einhvers konar þjónusta við annað fólk sem þarf að viðra sig í fjölmiðlum. Hann krefst því mikillar vinnu. Og mikils þreks, því menn fá marga slæma pústra í þessum stól; oftast að ósekju, auðvitað. En hvað er það þá sem veldur óþreyjunni? Jú, auðvitað pólitískt argaþras. Það virðist vera helzta af- þreying fjölmiðlafólks í landinu. Í greininni segir: „Lengi hefur verið beðið eftir æviminningum Matthíasar Johannessens, fyrrver- andi ritstjóra Morgunblaðsins, enda ljóst að þar yrði safaríkt efni á boð- stólum fyrir áhugamenn um íslenzk stjórnmál.“ Já einmitt, stjórnmál. Í fyrsta lagi ætla ég ekki að skrifa neinar æviminningar – og allra sízt safaríkar sem merkir líklega það brenglaða veruleikaskyn og sjálfs- dýrkun sem einkennir svona bækur – og í öðru lagi er ég löngu vaxinn frá þessari pólitísku áþján og læt aðra um þann sandkassa. Ég man raunar ekki hvað stendur á þessum dagbókarblöðum, hvort þar er einhver bitastæð pólitík eða ekki, en það kemur þá í ljós, þegar verkið verður birt á aldarafmæli mínu. Þá verð ég áreiðanlega kominn á kaf í pólitík aftur! Sem stendur er ég að basla við að semja skáldskap og þar kemur hin til- búna dagbók við sögu án þess hún komi ritstjórastörfum mínum við á nokkurn hátt. Og ef einhverjir eru „hálfsvekktir yfir því að ritstjórinn og skáldið skyldi ekki stíga skrefið til fulls og gefa út æviminningar“, eins og segir í greininni, geta þeir ekki sakazt við mig, því að þeir hljóta af umburðarlyndi sínu að veita mér leyfi til að skrifa þær bækur sem standa hjarta mínu næst – og þá einnig með þeim hætti sem ég kýs sjálfur, en ekki hinir „hálfsvekktu“. Þá er enn sagt í greininni að mörk- in milli veruleika og skáldskapar í nýrri bók minni, Vatnaskil, hljóti að vera harla óljós – og vona ég sann- arlega að svo sé – en höfundur grein- arinnar dregur þessa ályktun af því að ég og útgefendur mínir, eins og hann segir, höfum ekki lagt verkið fram, hvorki „í flokki fagurbók- mennta né bóka almenns eðlis vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna“. Þetta er ósköp barnaleg ályktun. Ég hef aldrei, endurtek aldrei, leyft að bók eftir mig væri lögð fram til þessara verðlauna og hef engan áhuga á þeim. Sú sérvizka mín hefur engan skaðað, nema síður sé. Þá segir höfundur DV-greinarinnar að á næsta ári sé væntanlegt framhald Vatnaskila „þar sem sagt verður frá viðburðum á sviði stjórnmála“. Þetta voru merkileg tíðindi fyrir mig, því að ég hef ekkert slíkt á prjónunum. Hitt væri sanni nær að skáldsaga mín nú sé í tengslum við söguna sem kom út í fyrra, Hann nærist á góðum minningum, eins og réttilega hefur verið bent á hér í blaðinu. Og síðan talar greinarhöfundur um að skáldskapur minn sé „hálfsann- leikur“ og má það kannski til sanns vegar færa að allur skáldskapur sé hálfsannleikur, en ég leyfi mér þó að halda því fram að skáldskapur sé mik- ilvægari sannleikur en margt veru- leikabaslið, ég tala nú ekki um þennan pólitíska og ritstýrða sannleika sem á víst að vera hin eina sanna tólg, en er það sjaldnast, eins og allir vita. Já, þetta var dálítið skrítin grein í DV, að mestu án áreitis og illgirni að vísu, svo að mér þótti rétt að kallast á við höfund hennar, í upplýsinga skyni. En hvað sem öðru líður er ég þess fullviss að það útheimtir meira þor að fikra sig áfram í skáldskaparlegum texta, meira hugrekki og meiri áhættu en vasast í pólitískum skrifum sem fáir taka mark á og enn færri gera einhverjar kröfur til, þótt þeirra sé beðið með mikilli óþreyju. En það merkir aðeins að afþreyingarmarkað- urinn bíður eftir þessum hversdags- lega hasar. Ég vil svo að lokum óska DV alls hins bezta. Mér skilst blaðið eigi í ein- hverjum erfiðleikum nú um stundir og vona það komist úr kröggunum. Það er nú betra og áreitislausara blað en oft áður og sumt til fyrirmyndar, ekki sízt menningarskrif blaðsins á stundum. MATTHÍAS JOHANNESSEN, Reynimel 25A, 107 Reykjavík. Af dagbókar- blöðum og DV Matthías Johannessen skrifar: BRÁTT líður að því að nýr vígslu- biskup verði skipaður að Hólum. Valinkunnir heiðursmenn hafa setið staðinn undanfarin ár. Nokkrir hafa verið nefndir sem eftirmenn séra Bolla Gústafssonar og þar á meðal séra Hannes Blandon prófastur í Eyjafirði. Við sem þekkjum séra Hannes vitum að hann muni sóma sér vel á Hólastóli, glæsilegur á velli, fróður um málefni kirkjunnar, vel- lesinn í kirkjufræðum og sögu Hóla- stóls ásamt því að vera ágætur ræðu- maður og vanur leiðsögumaður. Einnig hefur hann sýnt að hann er nærgætinn sálusorgari. Við nokkrir stuðningsmenn séra Hannesar von- um að hann fyrirgefi okkur skrif þessi og hvetjum hann til að gefa kost á sér í embætti vígslubiskups á Hólum. BALDVIN H. SIGURÐSSON, Möðruvallastræti 9, Akureyri. Áskorun til prófasts Baldvin H. Sigurðsson skrifar:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.