Morgunblaðið - 21.12.2002, Side 63

Morgunblaðið - 21.12.2002, Side 63
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 63 VIÐ lifum á viðsjárverðum tímum. Hryðjuverk og aftökur virðast vera daglegt brauð og í stað þess að reyna að komast að rótum vandans sem liggur auðvitað í misskiptingu heimsins gæða eru „bandamenn okkar“ að gefa út aftökulista og ætla að drepa ímyndaða hryðjuverka- menn hvar sem þeir finnast og þá er fyrir löngu búið að gleyma reglunni góðu um að enginn sé sekur fyrr en sök sannist. Enda hefur kúrekinn fyrir vestan ekki tíma né þolinmæði til að hafa fyrir því að draga fólk fyr- ir rétt. Nei, það er fljótlegra að drepa fyrst og spyrja svo. Það sorglega er að í stað þess að styðja við þessa dauðastefnu vina okkar gætum við Íslendingar sýnt gott fordæmi sem friðelskandi þjóð og neitað að taka þátt í þvílíkum mannréttindabrotum, hætt að styðja árásarstefnu Bush og félaga og sagt að við tökum ekki þátt í þessu heldur að við viljum raunverulegan frið án vopna, ógnarjafnvægis, hótana, hefnda og morða. Og það höfum við oft getað gert. Við getum sagt frá því með stolti að sem þjóð höfum við aldrei átt í stríði við aðra þjóð (nema þorskastríði!) og við erum laus við herskyldu því við höfum sem betur fer engan her. Útgjöld okkar til vopnakaupa eru engin og það eina sem skyggir á gleðina er að banda- rískur her hefur komið sér fyrir á Suðurnesjum. Og nú er tækifærið til að segja að við viljum ekki lengur vera í félagsskap sem af ótrúlegri hræsni kallar sig „stærstu friðar- hreyfingu í heimi“ og er að breytast í hluta af alþjóðalöggunni þar sem til- gangurinn helgar meðalið. Sá tilgangur er ekki alltaf göfugur heldur eins og komið hefur í ljós, bara til að koma efnahagsklúðri Bush forseta í lag því hann þarf sprautu í atvinnulífið heima hjá sér. Auk þess þarf hann að gera upp gamlar skuldir fyrir hönd föður síns og þá er tilvalið að ráðast inn í Írak. Þá munar ekkert um að fórna hundr- uðum þúsunda saklausra íbúa lands- ins. Allt er þetta gert í nafni stríðs gegn hryðjuverkamönnum þó að engum hafi enn tekist að bendla Saddam Hussein á nokkurn hátt við yfirlýsta hryðjuverkamanninn Osama bin Laden. Við getum hins- vegar öll verið sammála um að ír- anska þjóðin á það ekki skilið að hafa einræðisherrann og stríðsglæpa- manninn Saddam Hussein sem for- ingja. Nei, hún á auðvitað betra skil- ið. En það er ekki rétta aðferðin að senda amerískar sprengjuþotur til að kasta yfir þessa sömu íbúa ein- hverjum hluta af sprengjuúrvali Bandaríkjastjórnar í þeirri von um að hitta einn daginn einræðisherr- ann í hausinn. Reyndar eru ekki mörg ár síðan að hann var banda- maður Bandaríkjastjórnar og fyrir- rennarar Bush seldu Hussein efna- vopn og allskonar drápstól svo hann gæti haldið út stríð gegn nágrönn- unum í Íran. En síðan þá hafa tím- arnir breyst. Og einn fyrirrennari Bush, sjálfur Carter, hefur sest á friðarstól og látið ýmislegt gott af sér leiða. Það væri óskandi að núver- andi forseti Bandaríkjanna tæki sér Jimmy Carter til fyrirmyndar og lýsti því sjálfur yfir að stríð gæti aldrei leyst nein vandamál og að stríð gætu aldrei leitt neitt gott af sér. En það er sennilega hámark bjart- sýninnar að halda að George Bush taki slíkum sinnaskiptum þó að skynsamleg væru. Hann lætur frek- ar stjórnast af vopnaframleiðendum í Bandaríkjunum og trúir því að hag- kerfið þurfi núna á stríði að halda. Með aðgerðum sínum setur forseti Bandaríkjamanna sig á sama stól og viðurkenndir hryðjuverkamenn og útbýr dauðalista fyrir CIA sem hef- ur nú lausan tauminn og „leyfi til að drepa“ án dóms og laga. Það hefur leyniþjónusta Bandaríkjamanna reyndar gert lengi og auk þess er vit- að að hún er með skóla fyrir hryðju- verkamenn eða svokallaða „Contra- skæruliða“ sem eiga að steypa af stóli lýðræðislega kjörnum ríkis- stjórnum í Suður-Ameríku. Við erum ekki búin að gleyma morðinu á Alliande forseta í Chile og pyntingum og aftökum með aðstoð CIA í Chile. En við lifum ekki í svart- hvítum „James Bond-heimi“ þar sem vondu karlarnir eru bara vondir og góðu mennirnir hetjur sem hafa leyfi til að drepa, því þeir hafa alltaf rétt fyrir sér. Það sorglega er að íslenska rík- isstjórnin er að flækja okkur í þessi mál og ætlar að henda 300 milljónum í að setja íslensk flugfélög í hættu við að flytja dót fyrir bandaríska herinn. Stundum fær maður það á tilfinn- inguna að Halldór Ásgrímsson langi mest til að verða hershöfðingi og að æðsti draumur Davíðs Oddssonar sé að fá klapp á bakið frá George W. Bush. Þessu verðum við að breyta. Íslendingar eru friðelskandi þjóð og við viljum ekki taka þátt í árásar- stríði Bandaríkjamanna. Nú er nóg komið og við verðum að snúa af þess- ari háskabraut og skipta um ríkis- stjórn. Það getum við gert í vor. Nú þegar getum við tekið þátt í Þorláks- messugöngum fyrir friði og gegn stríði: á Akureyri, Ísafirði og í Reykjavík. Og munum að margt smátt gerir eitt stórt. Aftökur án dóms og laga Eftir Hlyn Hallsson „Nú þegar getum við tekið þátt í Þorláks- messugöng- um fyrir friði og gegn stríði: á Akureyri, Ísa- firði og í Reykjavík.“ Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs á Ak- ureyri og nágrenni. Skólavörðustíg 21, sími 551 4050. Viskustykki Til í níu mynstrum Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Moggabúðin Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr. Vinnustofa Péturs Gauts, á horni Snorrabrautar og Njálsgötu, er opin frá kl. 16-18 alla daga fram að jólum eða eftir samkomulagi í síma 551 2380. Allir velkomnir! Pétur Gautur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.