Morgunblaðið - 01.04.2003, Page 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 7
Menningarsjóður
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
auglýsir eftir umsóknum um styrki
Menningarsjóði er ætlað að veita styrki til eflingar
málefnum sem horfa til heilla í íslensku samfélagi,
m.a. menningu, listum, íþróttum og forvörnum.
Umsóknir skulu berast skriflega fyrir
miðvikudaginn 23. apríl næstkomandi merktar:
Sjóvá-Almennar,
Menningarsjóður,
Kringlunni 5,
103 Reykjavík.
Upplýsingar um sjóðinn sem og fyrri úthlutanir
má finna á vefsíðu fyrirtækisins www.sjova.is.
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
hefur að undanförnu tekið eftir
aukinni neyslu unglinga á
heimabrugguðu áfengi, eða
svokölluðum landa. Þannig hafi
tveir 13 ára strákar verið fluttir
með sjúkrabifreið á Landspít-
ala-háskólasjúkrahús á föstu-
dagskvöldið eftir ofneyslu á
þessum hættulega drykk. Vill
lögreglan brýna fyrir foreldr-
um og forráðamönnum ung-
linga að vera vel á verði gagn-
vart drykkju barna.
Á spítala
eftir landa-
drykkju
GUÐNI Þórðarson, oft kenndur við
Ferðaskrifstofuna Sunnu, telur flug-
atvikið skömmu eftir flugtak á Stan-
sted-flugvelli í Lundúnum á föstu-
dagskvöld ekki í frásögur færandi.
Hreyfill á Boeing 737-300 þotu á veg-
um Iceland Express bilaði skömmu
eftir flugtak á Stansted og sneru flug-
mennirnir henni því við og lentu eftir
nokkrar mínútur. Andrés Andrésson,
sem einnig var meðal farþega, segir
að fólki hafi óneitanlega verið brugðið
en samt verið rólegt.
Ólafur Hauksson, upplýsinga-
fulltrúi Iceland Express, segir að
starfsmenn félagsins hafi tekið á móti
farþegum í Leifsstöð og fullvissað sig
um að enginn þyrfti áfallahjálp vegna
atviksins og ekki hafi verið talið að
hætta hafi verið á ferðum.
Andrés Andrésson segist hafa set-
ið á móts við hreyflana hægra megin
og sér hafi brugðið en minna en hann
hefði búist við. „Fólk var mjög rólegt,
engin hróp eða köll, enda hélt vélin
sinni stefnu. Það kom hvellur, ég beið
eftir hvað gerðist næst, en flug-
freyjan sagði fljótlega enga hættu á
ferðum. Mér sýndist ég sjá reyk fyrir
utan gluggann mín megin og ein-
hverjir sögðust hafa séð eldglæringar
hinumegin auk þess sem ég þóttist
finna reykjarlykt í örskamma stund,
en það var klappað eftir að vélin var
lent.“
Guðni Þórðarson kveðst hafa lent
áður í því með ýmsum félögum að það
hafi þurft að slökkva á hreyfli. „Vélin
var í klifri með mesta álagi á mót-
orana og hafði klifrað í rúmar 10 mín-
útur, þegar blossi kom út úr hreyfl-
inum. Þá heyrði ég að flugstjórinn
gerði strax ráðstafanir um að slökkva
á hreyflinum og það varð engin
ókyrrð á fluginu við það,“ og bætti við
að flugstjórinn hefði síðan talað til
farþegana.
Fólki
brugðið en
lendingin
átakalaus
FINNUR Geirsson, formaður Sam-
taka atvinnulífsins frá stofnun þeirra
árið 1999, hyggst ekki gefa aftur
kost á sér í formannsembættið á að-
alfundinum 29. apríl næstkomandi.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri
Eimskips, hefur hins vegar gefið
kost á sér til formennsku.
Finnur segir að sér finnist kominn
tími til að hverfa úr embættinu.
„Þetta er orðið vel á fjórða ár og
starfið er þannig að mér finnst eðli-
legt að það verði endurnýjun með
ekki of löngu millibili.“ Hann segist
afar sáttur við þann tíma sem hann
hefur starfað fyrir samtökin og þann
árangur sem þau hafa náð síðan þau
voru stofnuð. „Þá fórum við beint út í
samningagerð og það náðust samn-
ingar í ársbyrjun 2000 sem hafa
haldist vel. Sömuleiðis hefur náðst
góður árangur við að koma saman
öllum þeim aðildarsamtökum sem
standa að Samtökum atvinnulífsins,
þannig að það hefur náðst ágætisár-
angur bæði út á við og inn á við.“
Finnur hefur sinnt formannsemb-
ætti Samtaka atvinnulífsins með-
fram starfi sínu sem forstjóri Nóa-
Síríusar. „Nú mun ég einbeita mér
enn frekar að því.“
Finnur Geirsson lætur af
embætti formanns SA
Ingimundur
Sigurpálsson
Finnur
Geirsson
♦ ♦ ♦
ÍSLENDINGAR hafa sótt fast að fá
niðurfellingu tolla á ákveðnar lykil-
sjávarafurðir eins og síld í viðræðum
við Evrópusambandið, en ESB hefur
ekki verið til viðræðu um það heldur
boðið kvóta og segir Gunnar Snorri
Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu, að þarna beri
nokkuð á milli.
Samningafundur um aðlögun
EES-samningsins að stækkun ESB
fór fram í Brussel í gær. Gunnar
Snorri segir að í raun hafi ekkert
nýtt komið fram. Evrópusambandið
sé ánægt með útspil EFTA-ríkjanna
sem hafa boðið þreföldun framlaga í
þróunarsjóð fyrir fátækari ríki ESB,
og Norðmenn jafnháa upphæð til
viðbótar, en vilji fá meira, þó ekki sé
farið fram á eins há framlög og á
fyrri stigum viðræðnanna. Enn sé
verið að reyna að ná lendingu með
árangur á samningafundi á föstudag
í huga. Fram að honum verði haldið
áfram að fara yfir hvernig skipulag
sjóðsins og framkvæmd hans verði.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu á laugardag verður framlag
Íslands um 300 milljónir króna á ári
og framlag Norðmanna um 1,1 millj-
arður norskra króna, um 11,6 millj-
arðar kr., samþykki framkvæmda-
stjórn ESB óformlegar tillögur
EFTA-ríkjanna um greiðslur í sjóð-
inn. Samkvæmt fréttum í Noregi í
gær sættir framkvæmdastjórnin sig
ekki við að EFTA-ríkin greiði minna
en 25 milljarða íslenskra króna og
ber því þó nokkuð í milli.
Enn ber
nokkuð í
milli í EES-
viðræðum