Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VILL LEIGJA KVÓTANN Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill að aukinn þorskkvóti verði boðinn upp til leigu strax í haust. Hún vill einnig að öllum verði gefinn kostur á að leigja þessar aflaheimildir. 127 látnir í jarðskjálfta Að minnsta kosti 127 manns hafa látist í jarðskjálfta í Austur- Tyrklandi. Talið er að 30 til 40 börn séu enn grafin undir rústum heima- vistarskóla rétt utan Bingol. Áhersla á atvinnuöryggi Starfsgreinasamband Íslands telur að í næstu kjarasamningum skuli leggja mesta áherslu á að tryggja at- vinnuöryggi, lækkun skatta og hærri laun. Sambandið komst að þessum niðurstöðum eftir að hafa gert síma- könnun hjá 1.300 félagsmönnum. Kafbátaáhöfn fórst Kínverska ríkisfréttastofan greindi frá því í gær að kínversk kafbáta- áhöfn hafi farist í heræfingum í Gula- hafi nýlega. Slys varð um borð í dís- elknúnum bátnum sem varð til þess að 70 manna áhöfnin fórst. 1,5 milljarða virði Norsk-íslenska síldin sem sjáv- arútvegsráðherra hefur heimilað að veiða er a.m.k. 1,5 milljarða króna virði að útflutningsverðmæti. Enn- fremur er hægt að auka verðmætin með því að vinna aflann um borð í vinnsluskipum. Íhaldsflokkurinn vinnur á Breski Íhaldsflokkurinn í Bret- landi bætti við sig 545 sveitar- stjórnarfulltrúum yfir heildina í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í Bretlandi í fyrradag. L a u g a r d a g u r 3. m a í ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 40 Viðskipti 16 Kirkjustarf 47/48 Erlent 18/23 Minningar 49/55 Höfuðborgin 24 Myndasögur 58 Akureyri 24/25 Bréf 58/59 Suðurnes 26 Staksteinar 60 Árborg 27 Dagbók 60/61 Landið 28 Íþróttir 62/63 Listir 28/29 Leikhús 64 Heilsa 30 Fólk 64/69 Neytendur 31 Bíó 66/69 Úr Vesturheimi 32 Ljósvakamiðlar 70 Forystugrein 38 Veður 71 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarblaðið „Og Voda- fone“. Blaðinu er dreift um allt land. VORSALA FÖSTUDAG LAUGARDAG ÚTSALA Í ÞRJÁ DAGA SUNNUDAG ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 20 64 5 0 4/ 20 03 ÞRJÁTÍU OG ÁTTA starfsmönnum Borgarleik- hússins, þar af fjórum leikurum, var sagt upp störf- um í gær. Um er að ræða 20 stöðugildi. Þetta er lið- ur í aðgerðum til að skera niður í rekstri Leikfélags Reykjavíkur. Félagið hefur ekki fengið þá auka- fjárveitingu frá borginni sem það telur sig þurfa til þess að hægt sé að halda uppi óbreyttri starfsemi, en til þess þyrfti framlag borgarinnar til leikhúss- ins að aukast um 70 milljónir króna á ári. Guðjón Pedersen leikhússtjóri segir að skýringu á erfiðri stöðu leikfélagsins sé einkum að finna í auknum launakostnaði. „Við höfum bæði náð árangri í auknum tekjum af sýningum og ýmiskon- ar hagræðingu auk þess sem við höfum lækkað uppsetningarkostnað töluvert. En við höfum auð- vitað þurft að fylgja almennum launahækkunum í samfélaginu og það hefur bitnað á okkur,“ segir Guðjón. Hann segir að viðræður við borgina um rekstrargrundvöll leikhússins muni halda áfram. „Þessum viðræðum er ekki lokið og ég get ekki annað en verið bjartsýnn á að við siglum þeim í höfn,“ segir Guðjón. Búið að skera allt kjöt af beinunum Gunnar Hansson, leikari og formaður deildar innan Félags íslenskra leikara, sem í eru leikarar Borgarleikhússins, segir að lengi hafi verið ljóst að hverju stefndi í rekstri Leikfélagsins. „Aldrei frá því að flutt var inn í Borgarleikhúsið hefur fengist sá peningur sem þurft hefur til að reka leikhús af þessari stærð. Það hlaut því að koma að því að skip- ið strandaði sem er mjög sorglegt þar sem þetta er mjög gott skip og búið að byggja upp gott starf þarna. Það er erfitt að skera niður þegar það er í rauninni ekki lengur neitt kjöt að skera af bein- unum í þessum rekstri. Svo má líka benda á að fleiri liststéttir en leikarar verða fyrir barðinu á þessum aðgerðum, til dæmis þegar kemur að því að ráða tónlistarmenn og myndlistarmenn við sýningar,“ segir Gunnar. Hann bendir á að það sem LR hafi farið fram á sé að fjárveiting til Borgarleikhússins verði rétt um helmingur af því sem Þjóðleikhúsið fær. „Þetta eru svipað stór hús en það er engan veginn hægt að hafa svipaðan rekstur á þeim þar sem ólin er hert hér alls staðar,“ segir Gunnar. Hann segir að þrátt fyrir allt sé mikill baráttuandi í starfsfólki og vilji til þess að reka áfram gott leikhús. „Við verðum að lifa í voninni og vera bjartsýn. Við erum með glæsilegt leikhús og glæsilegt starfsfólk en nú þarf því miður að reka þetta leikhús á hækjum,“ segir Gunnar. 38 starfsmönnum Borgarleikhússins sagt upp störfum um mánaðamótin Fækkað um 20 stöðugildi ÁTTA manns voru fluttir á sjúkra- hús í Reykjavík eftir harðan árekst- ur fjögurra bíla sem varð í Hvera- dalabrekku á Hellisheiði um sjö leytið í gærkvöldi. Loka þurfti Hellisheiði í einn og hálfan tíma og beindi lögreglan umferð um Þrengsli í staðinn. Um minniháttar meiðsl var að ræða hjá sex hinna slösuðu en tveir voru meira slas- aðir, að sögn Svans Kristinssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Sel- fossi, sem stjórnaði aðgerðum á staðnum. Bílarnir gjöreyðilögðust og nota þurfti klippur til að ná tveimur hinna slösuðu úr bílum sínum. Talið er slysið megi rekja til hálku sem skyndilega myndaðist á veginum seinni partinn í gær en all- ir bílarnir voru á sumardekkjum. Farþegar í tveimur bílanna voru er- lendir ferðamenn í fríi hér á landi. Tildrög slyssins voru ekki kunn í gær, einungis ljóst að bílar sem komu úr gagnstæðum áttum höfðu rekist saman. Lögreglan á Selfossi biður þá að hafa samband við sig sem þarna voru á ferðinni og geta gefið upplýsingar um slysið. Morgunblaðið/Júlíus Nota þurfti klippur til að ná tveimur hinna slösuðu úr bifreiðunum. Átta slasaðir í árekstri á Hellisheiði GEIR H. Haarde fjármálaráðherra telur hugmyndir BSRB í skattamál- um athyglisverðar en segist ekki geta verið sammála öllu sem þar kemur fram. Hugmyndirnar geti styrkt núgildandi staðgreiðslukerfi skatta og séu vel þess virði að skoða nánar. „Mér finnst ánægjulegt að heild- arsamtök eins og BSRB skuli leggja svo mikla vinnu, sem raun ber vitni, í að skoða tekjuskattskerfið frá grunni. Ég tel að margt mjög athygl- isvert sé í þessum tillögum þó að auðvitað séu þarna ýmis atriði sem ég get ekki tekið undir,“ segir Geir. Honum finnst mikilvægast að í hug- myndum BSRB sé lögð áhersla á að tryggja í sessi núverandi stað- greiðslukerfi skatta og þar með sé fjölþrepa skattkerfi hafnað. Því beri að fagna. Jafnframt komi fram hjá samtökunum að áhersla sé lögð á að ná tilteknum markmiðum en ein- blína ekki á ákveðnar leiðir. BSRB sé þannig ekki á móti lækkun á tekjuskattsprósentunni. „Einnig finnst mér athyglisvert það sem fram kemur hjá BSRB að draga beri úr skuldahvata gildandi vaxtabótakerfis og einfalda skatt- kerfið, meðal annars að setja allan þann stuðning sem veittur er í gegn- um skattkerfið undir sama hatt. Það er ný hugmynd. Þá finnst mér hug- myndirnar um persónuafsláttinn áhugaverðar. Ýmsir sem hafa tjáð sig um þá hluti, stjórnmálamenn og samtök, hafa einblínt á persónuaf- sláttinn en þarna er talað um að ná settum markmiðum eftir öðrum leið- um,“ segir Geir. Geir H. Haarde fjármálaráðherra Hugmyndir BSRB í skattamálum athyglisverðar RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur ákveðið að víkja fyrr- verandi rannsóknarlögreglu- manni hjá lögreglunni í Kópa- vogi að fullu og öllu úr starfi. Maðurinn hlaut átján mánaða fangelsisdóm fyrir kynferðis- brot gegn þremur ungum stúlkum, en þær voru á aldr- inum 11–16 ára þegar brotin voru framin. Lögreglumanninum var vikið tímabundið úr starfi hinn 16. október 2002 þegar mál hans kom upp og síðan að fullu og öllu í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp sl. mánudag. Lögreglu- manni vikið úr starfi KARLMAÐUR sem varð viðskila við tvo félaga sína í vélsleðaferð á Mýrdalsjökli síðdegis í gær fannst heill á húfi laust upp úr kl. 11 í gær- kvöld. Maðurinn hafði þá beðið við sleða sinn við jökulröndina í nokkurn tíma. Hann var kaldur en að öðru leyti heill á húfi. Mennirnir voru í dagsferð á vél- sleðum og á leið til byggða þegar einn mannanna heltist úr lestinni eftir að blindbylur skall á um miðjan dag. Tveir mannanna skiluðu sér í skála Snjósleðaferða á Sólheima- heiði og létu vita af ferðum sínum. Björgunarsveitir Slysavarnafélags- ins Landsbjargar á Hellu, Hvolsvelli og Vík í Mýrdal voru kallaðar á vett- vang kl. 18.20 og hófu leit að mann- inum. Að sögn Bryndísar Harðar- dóttur, stjórnanda leitaraðgerða, var aftakaveður á Mýrdalsjökli í gær- kvöld. Um 40 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni. Fannst á Mýrdalsjökli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.