Morgunblaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR
54 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VIKTOR Bjarki Arnarsson skoraði um helgina
sitt fyrsta mark í hollensku deildakeppninni í
knattspyrnu en lið hans, TOP Oss, vann þá
Cambuur á útivelli í 1. deildinni, 3:1. Viktor
skoraði fyrsta mark leiksins með fallegu skoti
og lagði síðan upp annað mark liðsins. Hann
fékk hæstu einkunn leikmanna TOP Oss en lið
hans er í 8. sæti 1. deildar og eygir nú mögu-
leika á að komast í úrslitakeppni um sæti í úr-
valsdeildinni.
Viktor, sem er tvítugur og samningsbundinn
úrvalsdeildarfélaginu Utrecht, hefur leikið
með TOP Oss frá áramótum og félagið hefur
mikinn hug á að halda honum í sínum röðum.
Það ræðst þó af því hvort tekst að rétta við
fjárhag TOP Oss sem stendur mjög tæpt um
þessar mundir.
Fyrsta mark
Viktors í
Hollandi MARCELLO Lippi, þjálfariítalska liðsins Juventus, segir
að 5:1 tap Real Madrid fyrir
Real Mallorca í spænsku
deildinni á laugardag verði
ekki til þess að leikmenn Juv-
entus mæti værukærir til
leiks gegn Real Madrid í
kvöld er liðin eigast við í und-
anúrslitum Meistaradeildar
Evrópu. Leikurinn fer fram á
Santiago Bernabeu, heima-
velli Evrópumeistaraliðs Real
Madrid. Zinedine Zidane leik-
maður Real Madrid segir að
fyrsta tap liðsins á heimavelli
í rúm tvö og hálft ár sé alvar-
leg áminning fyrir liðið en
muni ekki hafa áhrif á gengi
þess gegn Juventus sem er á
góðri leið með að tryggja sér
sigur í ítölsku deildinni í 27.
sinn. „Lið sem tapar 5:1 á
heimavelli þarf að laga ým-
islegt hjá sér en það verða all-
ir búnir að gleyma síðasta leik
þegar við mætum Juventus,“
segir Zidane.
Þrír leikmenn Juventus eru
í leikbanni en þeir eru Paolo
Montero, Edgar Davids og
Alessio Tacchinardi. Lippi er
sagður ætla Alessandro Bir-
indelli eða Gianluca Pessotto
það hlutverk að taka Zidane
úr umferð.
Nær allir leikmenn Real
Madrid eru heilir en Raúl er
þó enn frá eftir að hafa farið í
botnlangaaðgerð á dögunum.
Birindelli verður
„yfirfrakki“ á Zidane
Reuters
Zidane og Raúl fagna marki.
FÓLK
HALLDÓR Sigfússon, hand-
knattleiksmaður úr KA, skoraði
átta mörk, þar af fjögur úr vítaköst-
um, fyrir Friesenheim í sigri liðsins
á Konstanz, 35:28, í næstsíðustu
umferð í suðurriðli þýsku 2. deild-
arinnar í handknattleik á sunnu-
daginn. Friesenheim er öruggt með
þriðja sætið en á ekki möguleika á
að leika um sæti í Bundesligunni.
ARNAR Geirsson skoraði sjö
mörk og var markahæstur í liði
Gelnhausen sem tapaði stórt fyrir
Dormagen. Gelnhausen er í níunda
sæti í suðurriðli 2. deildarinnar.
KRONAU/Östringen og Düssel-
dorf, tvö efstu liðin, gerðu jafntefli,
22:22. Kronau er búið að tryggja
sér sæti í Bundesligunni en Guð-
mundur Hrafnkelsson landsliðs-
markvörður gengur í raðir liðsins í
sumar frá Conversano á Ítalíu.
Düsseldorf, sem Alexanders Pet-
ersons skrifaði undir samning við
fyrir helgina, fer í aukakeppni um
laust sæti í Bundesligunni.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson var
ekki í leikmannahópi Conversano
þegar liðið gerði jafntefli við Mer-
ano, 30:30, í öðrum undanúrslitaleik
liðanna um ítalska meistaratitilinn í
handknattleik. Conversano vann
fyrri leikinn og er þar með komið í
úrslit þar sem það mætir Prato.
BREYTINGAR urðu á stjórn
KKÍ á ársþingi þess um sl. helgi í
Stykkishólmi. Erla Sveinsdóttir og
Jóhannes Karl Sveinsson fóru úr
stjórn, en í þeirra stað voru kjörnir
þeir Jón Halldórsson og Gísli Páll
Pálsson. Þá voru þrír nýir menn
kjörnir í varastjórn, þeir Eyjólfur
Guðlaugsson, Snorri Örn Arnalds-
son og Bjarni Gaukur Þórmunds-
son.
EIGENDUR veðbanka á Bret-
landseyjum eru ánægðir með
meistaratitil Manchester United í
ensku úrvalsdeildinni þar sem
mörg þúsund viðskiptavinir þeirra
töpuðu sínum veðmálum um hvaða
lið myndi vinna enska meistaratit-
ilinn. Í byrjun mars var fátt annað í
spilinum en að Arsenal myndi
vinna deildina þar sem liðið hafði
átta stiga forskot á Manchester
United. Á þeim tíma lögðu margir
fé undir í veðbönkum og töldu sig fá
ríkulega ávöxtun þar sem Arsenal
myndi vinna deildina.
TALSMAÐUR veðbankans, Will-
iam Hill, segir að stuðningsmenn
Manchester United hafi haldið að
sér höndum í veðmálum sínum á
meðan margir hafi lagt háar fjár-
hæðir undir í þeirri trú að Arsenal
ynni deildina. Um 100 einstaklingar
lögðu 120.000 kr. undir hjá Hill-
veðbankanum í þeirri trú að Arsen-
al myndi vinna, og tveir einstak-
lingar lögðu tæpar átta milljónir ísl.
kr. undir í sínum veðmálum.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslit karla, fyrsti leikur:
Ásvellir: Haukar - ÍR ............................19.15
Í KVÖLD
Þegar maður lítur á liðin erbreiddin meiri hjá Haukunum.
Þeir hafa líka reynsluna umfram ÍR-
ingana enda hafa
flestir leikmenn
Hauka staðið í þess-
um sporum áður. ÍR-
ingarnir hafa hungr-
ið og þeirra unga og bráðefnilega lið
hefur verið að öðlast meiri og meiri
reynslu. Þeir léku mjög vel í undan-
úrslitunum og eru bara til alls líkleg-
ir í þessum slag,“ sagði Guðmundur
þegar Morgunblaðið bað hann að
velta úrslitaeinvíginu fyrir sér.
Guðmundur telur leikmannahóp
Haukanna sterkari og að þeir hafi
tvo góða leikmenn í hverri stöðu en
hjá ÍR-ingunum mæði á færri leik-
mönnum.
„Ef Haukarnir komast á skrið þá
getur orðið erfitt fyrir ÍR-ingana að
halda aftur af þeim en ég hef samt á
tilfinningunni að leikirnir verði jafn-
ir og spennandi. Ég sá leik liðanna í
lokaumferðinni og sá leikur var til-
tölulega jafn. ÍR-ingarnir höfðu for-
ystu lengi vel en misstu dampinn
undir lokin. Mér finnst ákveðið
áhyggjuefni fyrir ÍR að Hallgrímur
Jónasson hefur verið að bera einn
uppi markvörsluna á meðan Hauk-
arnir hafa getað teflt fram þeim
Bjarna Frostasyni og Birki Ívari.
Álagið hefur því verið mikið á Hall-
grími en hann hefur staðið sig virki-
lega vel.“
Verður Einar stöðvaður?
„Ég reikna með að Haukarnir
leggi mesta áherslu á að stöðva Ein-
ar Hólmgeirsson. Hann er hættuleg-
asti sóknarmaður ÍR-inga sem erfitt
getur verið að eiga við. Ingimundur
Ingimundarson hefur verið að sækja
mjög í sig veðrið. Þar er skynsamur
leikmaður á ferð sem hefur bætt sig
með hverjum leik. Þá hafa ÍR-ing-
arnir Ólaf Sigurjónsson. Hann er
óútreiknanlegur og getur skorað
mikilvæg mörk. Hornamennirnir hjá
ÍR, Bjarni Fritzson og Sturla Ás-
geirsson, eru báðir mjög lunknir svo
ÍR-liðið er vel mannað þó svo að
breiddin sé ekki alveg eins mikil og
hjá Haukum.“
Um Haukana segir Guðmundur:
„Haukarnir hafa mörg vopn hvað
sóknarleikinn varðar. Aron Krist-
jánsson og Halldór Ingólfsson geta
tekið af skarið og eru lykilleikmenn í
Haukaliðinu og þá kemur örugglega
til með að mæða mikið á Pauzuolis.
Ásgeir Örn er fjölhæfur leikmaður
sem getur skotið fyrir utan og eins
leyst hornastöðuna hægra megin og í
vinstra horninu hafa Haukarnir tvo
seiga leikmenn, Jón Karl og Þorkel.
Það er enginn einn maður sem gerir
hlutina í Haukaliðinu heldur er liðs-
heildin sterk.“
Guðmundur segir að bæði lið hafi
sýnt að þau geti spilað afbragðsvarn-
arleik.
„Mér fannst ÍR-ingarnir mjög öfl-
ugir í vörninni á móti Val en það
breytir því ekki að Haukarnir eru
mjög vel skipulagðir á móti
bæði 6:0 vörn og framliggj-
andi vörn.
Haukarnir léku fram-
liggjandi vörn í oddaleikn-
um við Fram og þar áttu
Framarar ekkert svar og í
seinni hálfleiknum við KA í
fyrsta leiknum fóru þeir
aftur í 6:0 vörn sem KA átti
mjög erfitt með að finna
glufur á. Markvarsla lið-
anna hefur verið góð.
Haukarnir hafa kannski
vinninginn enda með tvo af
bestu markvörðum landins
en Hallgrímur hefur sýnt
að hann hefur engu gleymt
og hann á stóran þátt í að
ÍR er komið í úrslitin.“
Haukar sigur-
stranglegri
Guðmundur segir að lík-
lega séu Haukarnir sigur-
stranglegri í einvíginu en
sú leikgleði sem einkennt
hefur lið ÍR-inga á tíma-
bilinu geti fleytt þeim
áfram.
„Það vita allir sem fylgj-
ast með handboltanum að
Haukarnir hafa besta
mannskapinn en það hefur
ekki alltaf dugað til að
hampa titlinum. ÍR-ing-
arnir verðskulda að vera
komnir í úrslitin og nú veltur bara á
hvort þeir eru orðnir saddir. Það
verður oft ákveðið spennufall hjá liði
sem kemst í fyrsta sinn í úrslit og því
tekst ekki að fylgja eftir tækifærinu
sem það hefur öðlast með því að
komast í þá stöðu að vinna bikar. Ég
vona bara að við fáum að sjá jafna,
skemmtilega og góða handbolta-
leiki,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari
í handknattleik, spáir í úrslitaeinvígi Hauka og ÍR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Robertas Pauzuolis, leikmaður Hauka, sækir að marki ÍR-inga í deildar-
leik í vetur. Hann leikur stórt hlutverk í sóknarleik Hauka.
GUÐMUNDUR Þórður Guð-
mundsson landsliðsþjálfari í
handknattleik á von á mjög
skemmtilegu einvígi milli Hauka
og ÍR um Íslandsmeistaratitilinn
en fyrsti úrslitaleikur liðanna
fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði
í kvöld. Guðmundur segir
ómögulegt að spá um einvígið.
Hann segir að Haukar hafi
reynsluna og hefðina umfram
ÍR-inga en á móti hafi ÍR-ingar
hungrið og viljann.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Hefðin og reynslan
gegn hungrinu
og viljanum