Vísir - 07.01.1981, Blaðsíða 4

Vísir - 07.01.1981, Blaðsíða 4
4 Miðvikudagur 7. janúar 1981 VÍSIR SsHr,xmw- Þungamiöja efnahagslifs Kanada hefur færst frá iandbúnaðar- og iðnaðarfylkjum til vesturfylkjanna, þar sem oliu- og gasvinnsla hefur sett mikið strik i reikninginn. OLIURIMMA IKANADA Ottawastjórnina munar i stærri hlut af hinum gífurlegu olíutekjum vesturfylkjanna. Hinar pólitisku erjur sam- bandsstjórnar Kanada (sem situr i Ottawa) og flestra fylkisstjórn- anna i landinu fara stöðugt harðnandi. Styrrinn stendur aðal- lega um valdahlutföllin milli Ottawastjórnarinnar fylkis- stjórnanna á stjórnmálasviðinu og efnahagsmálasviðinu. Rimman er mest og áköfust á tveim vigstöðvum. Aðrar varða stefnuna i oliumálum, og hinar lúta að nyju stjórnarskránni. f) af 10 fylkjum á móti Ottawa í stjórnarskrármálinu hefur Ottawastjórnin niu af hinum tiu fylkisstjórnum á móti sér. Stjórn Trudeaus forsætisráðherra lagði i haust fram áætlanir sinar um stjórnarskrárbreytingar, sem fólu i sér, að áhrif sambands- sljórnarinnar mundu aukast á kostnað hinna einstöku fylkis- stjórna. bessar áætlanir voru lagðar fram, þótt viðræður stjórnarinnar við forsætisráð- herra fylkjanna hefðu áður leitt i ljós, að fylkin mundu ekki sætta sig við þær. Einstaka fylki reynir númeðtilstillidómstólanna,að fá þessar aðfarir úrskurðaöar sem brot á gildandi stjórnarskrá. 1 deilunni um oliumálin takast aðallega á hin oliuauðugu fylki i vesturhluta Kanada og sam- bandsstjórnin. Þessi fylki eru Alberta, Breska Kólombia, Saskatchewan, og svo þar til við- bótar Nýfundnaland, sem telur sig verðandi oliuframleiðanda vegna oliufunda undan ströndum, sem þykja lofa góðu um fram- tiðarvinnslumöguleika. Sporna gegn ásælni Trudeau Upphaf þessara deilu liggur i ráðstöfunum i orkumálum, sem Pierre Trudeau forsætisráðherra og Ottawastjórnin boðuðu i haust. Þær miðuðu að aukinni ihlutun og áhrifum sambandsstjórnarinnar á oliuiðnaðinum, og stærri hlut rikiskassans i oliu- og gastekjun- um. Fylkin, sem oliusvæðin falla undir, telja að þessu verði ekki framkomið, nema þeirra hlutur sjálfra verði skertur. Þau hafa brugðið hart við. Tvö þeirra hafa beinlinis risið upp gegn sam- bandsstjórninni i þessu máli. Al- berta og Breska Kólombia hafa boðað, að þau dragi framleiðsl- una saman og minnki hana um 15% á næstu niu mánuðum frá og með 1. febrúar að telja, til mót- leiks við ráðstafanir sambands- stjórnarinnar. — Alberta fram- leiðir i dag 85% af heildaroliu- framleiðslu Kanada. Breska Kólombia hefur boðað einskonar skattaverkfall, og fyrirskipað gasfyrirtækjum fylk- isins að greiða ekki nýja gas- skattinn, sem Ottawastjórnin lagði á þau til að seilast i stærri hlut af gastekjunum. Saskatche- wan-fylkið hefur til ihugunar að gripa til svipaðra ráða, „þvi að þessir skattar rikisstjórnarinnar eru ólöglegar með tillit til gild- andi stjórnskrár’'. Flókin þrætubók Eins og við blasir eru aðgerðir Alberta og Bresku Kólombiu mik- il ögrun við Ottawastjórnina og umboð hennar til landsstjórnar. Þar er dreginn i efa stjórnskrár- lagaréttur hennar til þess að leggja gjöld á auðlindir, sem samkvæmt gildandi stjórnskrá heyra til einstökum fylkjum. Stjórnskráin deilir yfirráðum t.d. náttúruauðlinda milli sambands- stjórnarinnar og einstakra fylkis- stjórna. Skýrt er kveðið á um, að eignarrétturinn fylgi hverju fylki, en sambandsstjórnin geti ráðið söluverði framleiðslunnar eða afurðanna. Það gæti þvi orðið löng og flókin lagaþræta með til- heyrandi málaferlum, áfrýjunum og þófi, áður en niðurstaða dóm- stóla um skattstriðið lægi fyrir. Hliðrun til vesturs Þungamiðja efnahagslifs Kanada hefur færst vestur á bóg- inn siðari árin vegna gas- og oliu- framleiðslunnar. Þar stendur Al- berta i fararbroddi vesturfylkj- anna, sem krefjast þess, að valdahlutföllin hliörist til að sama skapi. Það sýnist erfitt að uppfylla þær kröfur i náinni framtið. Aö minnsta kosti meðan meirihluti kjósenda iKanada búa i „neytendafylkjunum" eins og Ontario og Quebec eru gjarnan kölluð. En það er einmitt þangað, sem Trudeau og frjálslyndi flokk- ur hans sækja sitt íylgi og traust. Ftikishítina klæjar Stjórnin i Ottawa telur hins- vegar mikla þörf á þvi að sækja sér stærri hlut i oliu- og gastekjur vesturfylkjanna til miðlunar fyrir landsheildina. Rikissjóði riður á auknum hlut af þessum tekjum til þess að hrinda i framkvæmd framfaraáætlunum sinum, sem annars gætu dagað uppi vegna skorts á framkvæmdafé. Og eins til þróunaráætlana varðandi frek- ari oliuvinnslu, eins og i Yukon og norðurhéruðunum, sem er frið- lýst rikisland, eða undan strönd- um landsins, sem sömuleiðis heyrir undir sambandsstjórnar- umráðasvæði. Þó er deilt um hið siðarnefnda, þvi að Nýfundna- landsstjórnin er ekki alveg sam- mála þeirri túlkun um landgrunn- ið kringum Nýfundnaland. Hallinn á fjárlögum Kanada nær nú orðið rúmum fjórtán milljörðum Bandarikjadala, og um það bil sjötti hluti f járlaganna rennur i vaxtagreiðslur og af- borganir fyrri skulda rikissjóðs. Stefnir Ottawastjórnin að þvi að krækja sér i 24% af oliu- og gas- tekjum á kostnað fylkjanna og oliuiðnaðarins. Nýju skattarnir áttu samkvæmt áætlunum að færa rikissjóði 11.7 milljarða US-dollara tekjur á innan við þrem árum. Með þvi stóðu vonir til að leysa úr erfiðustu efnahags- hnútum sambandsstjórnarinnar. Pierre Trudeau, forsætisráðherra, mætir harðari andstöðu hjá starfs- bræðrum sinum í fylkisstjórnunum i viðleitni sinni til þess að auka á- hrif sambandsstjórnarinnar og völd. Sjáum vlð bráðum nýjan 007? Roger Moore, eöa „Dýrlingur- inn”, eins og sjónvarpsáhorf- endur hér þekkja hann best, er ckki lcngur eins ungur og myndarlegur á velli og áöur. Nú er hann bara myndarlegur á velli. Hann þarf orðið að gæta heils- unnar bctur cn fyrr og sést cin- lægt glcypa pillur, sem eiga aö halda of stcrkum magasýrum i skefjum, cða þamba vatn til þess að varna myndun nýrnasteina. Aö honum sækja auk þess á- hyggjur af þvi, aö framleiðendur James Bond-myndanna hafi hug á þvi að yngja upp i hlutverk 007 og séu að svipast um cftir eftir- manni hans. Svissaír i gróða Svissneska flugfélagið, Sviss- air, tapaöi á farþegaflugi slnu ár- ið 1980, cins og flest flugfélög heims, cn stendur þó uppi með hagnaö i ársuppgjöri sinu, eftir því sem Baltensweiler, forstjóri félagsins, segir. i áramótaávarpi sinu með starfsfólki félagsins sagði hann. að félagiö hefði fengiö „glóöar- auga” vegna himinhás eldsneytis- og flugumsjónar- kostnaðar með ásamt minnkandi sætanýtingu. Sérstaklega á Iciö- um i Evrópu og austurlöndum nær. En með sölu á tveim DC-9-þot- um og góðum hagnaði af hótel- rekstri og öðrum hliðargreinum minnkaöi hagnaðurinn frá þvl 1979 (scm var þá 50,4 milljónir svissneskra franka) ekki mikið. Svissair á 50 ára afmæli f mars- inánuði næsta. Þýskip streyma tll v-þýskalands Rúmlega 50 þúsund þýskættað- ir menn frá Austur-Evrópu fluttu til Vestur-Þýskalands á árinu 1980. Helmingur þeirra kom frá Póllandi. Þar til viðbótar settust 12.800 Austur-Þjóöverjar að I Vestur- Þýskalandi á árinu. Rúm milljón þýskættaöra manna hefur sest aö i V-Þýska- landiog byrjaö þar nýtt lif frá þvi árið 1950. Um fjóröungur þeirra hefur flutst að á siðustu fimm ár- um, eftir undirskrift Helsinkisátt- inálans sem um hrið dró úr hömlum á flutningi austantjalds- fólks úr heimalöndum sinum. Nell Dlamond I ðnnum Söngvarinn, Neil Diamond, hefur ekki i hyggju að bregðast þeim tryggu aðdáendum, sem aldrei láta sig vanta á hljómleika hans i Bandarikjunum. Er hann þó mjög önnum kafinn vegna leiks sins i kvikmyndinni „Jass- söngvarinn”, sem nú er verið að gera. Hann ætlar að haida uppi söng- leikjaferöum sinum jafnframt, þótt eðlilega veröi hann eitthvað að draga úr. Gaston Thorn hjá EBE Gaston Thorn, fyrrum forsætis- ráðherra Luxembourg, hefur tek- ið við starfi aðalframkvæmda- stjóra Efnahagsbandalags Evrópu, og mun gegna þvi að öllu forfallalausu næstu fjögur árin. Thorn, sem er talandi á fjölda erlendra tungumála, nýtur mikils álits meðal leiðtoga aðildarrikj- anna eftirtvo áratugi i stjórnmál- um, þar af fimm ár i forsætisráö- herrastóli Lúxembourgar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.