Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 12
Laugardagur 14. mars 1981 VÍSIR Benatar Pat Vestur í henni Ameríku er fmyndin i miklum metum. Raunar býður manni í grun annað veif ið að ímyndin skipti meira má li en það sem á bak við hana stendur. Það sé oft á tiðum imyndin sem slái i gegn, ekki manneskjan sem að baki býr. Þvi þykir það bæði sjálfsagt og eðlilegt hverjum þeim er hyggur á framabraut að koma sér upp dægilegri imynd, — imynd, sem sé til þess fallin að lokka og laða, því til þess er jú leikurinn gerður. Pat Benatar er nafn á ungri stúlku, sem getið hefur sér gott orð á rokksviðinu síðustu misserin. Imynd hennar hefur slegið í gegn, sérfræð- ingar á sviði ímynda skilgreina hennar imynd með tveimur orðum: sexí og töff. Við hér heima hefðum ugglaust látið okkur nægja að segja um Pat Benatar að þetta væri hressileg stúlkukind, sem hefði gaman af rokktónlist. En „sexi og töff" skal það heita. Þeir eru teljandi á fingrum • annarrar handar, nýliðarnir, sem verulega hafa látið að sér kveða í bandariskri rokktónlist siðasta áriö eða svo. Ihaldsemin i þvi landi riður ekki við ein- teyming. Christopher Cross og Pat Benatar eru raunar einu „stóru” nöfnin sem ég man eftir i svipinn. bað er alveg dæma- laust hvað jafn f jölmenn þjóð og tónlistarlega sinnuð getur verið nisk á nýliða. Bandarikin hafa einatt verið nefnd „land tæki- færanna” en á sviði popptón- listar fær það ekki staðist, i þeim efnum heitir gósenlandið Bretland. En ég ætlaði aö skrifa um Pat Benatar. Og til þess að kynna hana finnst mér happadrýgst að láta hana kynna sig. Húnsegir: „Það eina sem ég hef á hreinu i lifinu er það að ég læt ekki nokkurn vaða ofan i mig á skit- ugum skónum. Haltu þvi aldrei fram við mig að ég geti ekki gert eitthvað bara vegna þess að ég er stelpa, litil og snoppu- frið. Ég vissi aldrei að ég væri stúlka. Ég var þvi vön að bera sigur úr býtum i hafnarbolta og klifra uppi tré... það fara ekki allir volandi heim i pilsfald móður sinnar.” Velmælt, Pat! Nokkuð fleira? Eftir smástund, já, gott og vel, innskot frá mér. Þið kannist viö háu, dökkhærðu, þöglu týpuna? Pat gæti hrifist af þeirri mann- gerð, þvi hún er einmitt dökk- hærð þögul týpa, bara svolitið lágvaxin, — 1.58 cm á sokka- leistunum ef þiö viljið það hár- nákvæmt. En þögul og alvar- leg. Ekki kjaftfor og gassafeng- in. Þannig er hún aöeins á plöt- um sinum og hljómleikum. Sem sagt tvær ólikar kvengerðir. Hvað segir Pat sjálf um þöglu týpuna? „Mér er jafn nauðsynlegt að kasta af mér hljómleikagrim- unni eins og aö setja hana upp. Þetta er auðvitað tvöfaldur per- sónuleiki, en sú þögla er mér eðlilegri. Ég gæti aldrei sýnt „hina” á hljómleikum. En þá get ég lika svolgraö i mig bjór og spýtt. begar ég er eins og ég á að mér hvarflar ekki að mér að hrækja.” Um góðu stundirnar i lifinu segir hún, að þær séu annars vegar þegar hún sé að baka brauð og hins vegar þegar hún slappi af i heitu baðkeri. Hún gleymir að taka fram, að ómögulegt er að sameina þetta tvennt. Pat býr i Tarzana ef þið viljið heilsa uppá hana, norður af Los Angeles. Hún býr þar með kærasta sinum og gitar- leikara, Neil Geraldo. Hún kveðst vera búin að aðlaga sig mjög að Kaliforniu, segist vera sólgin i rúsfnur, hnetur og spir- ur, — og hafa mikið yndi af fjöruferðum. „Mér er mjög oft þvert um geö að leika rokk og vera þessi fegurðardrottning. Ég er ekki að gera litið úr þessu, — en stundum fer þaö i pirr- urnar á mér.” Einhverju sinni, eftir mjög erfiða hljómleika, kom ónefnd- ur æsifréttaskrifari að máli við Pat bak við tjöldin og sagði drjúgur: „Þessir sexi tilburðir þinir hljóta að vera æðislegir fyrir kallinn þinn.” Hún svaraði: „Hvað heldurðu — ég ryksuga meira að segja i sokka- bandabelti einu klæða!” Frægöarraunir Nóg um það. Pat Benatar hefur gefið út tvær stórar plötur og komist heldur betur i kynni við frægðina. „Það er erfitt að skilja þessa stöðugu aðdáun,” segir hún. „Það getur gert mann brjálaðan. Ég meina það, fötin eru rifin utan af manni!” Pat hefur stundum komist i hann krappann á hljómleikum, áheyrendur hafa stundum ruðst Greatest Hits — Dr. Hook/ EMI EST 26037. Krókur læknir hefur löngum komið tónum sinum inni hjartað á tslendingum, allt frá þvi hann söng um móður Sylvíu hcr um árið ásamt „lyfjasýningunni” sinni. t þá daga var grófa röddin og kúntrisándið miklu meira áberandi en nú á timum er tónlist Króks hefur færst æ nær diskótónlistinni. Samt hefur hann aldrei misst sjónar af upprunanum og kannski þess vegna er hann hcldur ckki gleymdur. Þessi safnplata með átján söngvum spannar yfir tiu ára timabil þannig að það er auðsætt að hér er stiklað á stóru á ferli hljómsveitarinnar. En þaö er lika stiklað á „stóru” þvi fáar hljómsveitir hafa komið oftar við sögu vinsældalista en ein- mitt Dr. Hook. Það er ekki aöeins að lög Króks séu skemmtileg og fyndin, þau eru lika hlýleg og blátt áfram, — og slik tónlist hefur gengið vel í tslendinginn. Ef til vill ekki stórbotin listaverk, en hjarta- lagið er snorturt og gott skap fæst i kaupbæti. uppá sviöiö og gert itrekaðar til- raunir til að festa hönd á stúlk- unni. (Aheyrendur: lesist karl- pengingur). A hljómleikum i frönsku borginni Nice leist Pat ekkert á blikuna þegar hún var kölluð upp, — og hún harðneit- aði. „A hljómleikunum voru aðallega karlmenn og þeir hróp- uðu allir eitthvað dónó, — 2.500 gæjar allir öskrandi. Ég sagði: Guð minn góður, ég fer ekki aftur fram á sviðið, þetta eru hálfvitar.” Pat ólst upp i úthverfinu Lindenhurst á Long Island á strangtrúaðan kaþólskan hátt. Móðir stúlkunnar gerði heiðar- legar tilraunir til að vekja á- huga dótturinar á söngkonunum Mariu Callas og Beverly Sills, en Pat hafði meiri áhuga á að fara út með „vondu strákunum sern áttu mótorhjól og kappakstursbila”. Samt sem áður var hún ekki alveg frá- hverf óperusöng og bjó sig undir söngnám á menntaskólaárum sinum. Atján ára gömul hafði hún fengið inni i Jilliard School of Músic, en þá kom herramað- ur nokkur inn i lif hennar og söngnámiö fór i vaskinn. Piltur- inn hét Dennis Benatar og starf- aði i hernum. Fyrst fluttu þau skötuhjúin til Vancouver en leiðin lá aftur til New York 1975. Og fjórum árum siðar fór hjóna- 9,0 bandið sömu leið og söngnámið. Pat hélt þó eftirnafninu Benatar enda var nokkrum erfiðleikum bundið að bera fram raunveru- legt eftirnafn hennar: Andrezejewski. „Patricia Andrezejewski hafði of marga stafi og þau voru ófá tárin sem ég felldi i gaggó vegna þess nafns. Og Guð sagði: þú þarft að fá nýtt nafn, stúlka.” Pat hóf röngferil sinn i kabarettum, enda hafði hún sjálf enga trú á þvi að hún gæti sungið rokk. En þegar hún eitt sinn hafði reynt, gerðist hún æ sólgnari i þessa tónlist og eftir það varð ekki aftur snúið, þrátt fyrir holl ráð vina og vanda- manna sem vildu fremur að hún syngi kántritónlist, ell- egar færi i sjónvarpsþátta- gerð og yrði Mary Tyler Moore númer tvö. En rokk- ið hafði orðið fyrir valinu og það var i klúbbnum Catch A Rising Star i New York sem henni var boðinn farmiðinn að frægðinni. Miðasalinn var Jeff Aldrich hjá Chrysalis Records. Fyrsta plata Pat Benatar, In The Heat Of The Night, þokaði henni þvi sem næst i heims- frægðina. Sú siðari, Crimes Of Passion, flutti hana alla leið. —Gsal. Face Value — Phil Collins/Virgin Re- cords V2185 Genesistrymbillinn kemur satt best að segja rækilega á óvart með þessari sólöplötu sinni. Ætla mættvmiðað við þá gifurlegu sölu sem hún hefur fengið i Bretlandi að þetta væri eitthvað léttmetisfóður, en sú er hreint ckki raunin. Blessunarlega hefur Phil reynt eftir mætti að þvo af sér Genesiskremiö, þó glittir nú i það á stöku stað, eins og i lag- inu „Behind The Lines”. Hins vegar vekja sóláhrifin sér- staka eftirtekt og ánægju á þessari plötu. Til þess að undirstrika þau hefur Phil fengið blásarana úr Earth, Wind & Fire til liðs við sig, en það kemur manni sannarlega i opna skjöldu að liösmaður Genesis sé jafn opinn fyrir sóltónlist og Phil virðist vera. t annan stað vekur platan að- dáun fyrir listilega smekk- legar melódiur, einfaldar en sérlega snotrar, — svo og hvað platan i heild er blæbrigðarik og sneisafull af vandaðri tón- list. Rós fyrir Phil

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.