Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 25 Frumsýning annan í jólum – uppselt 2. sýn. lau. 27/12 – örfá sæti laus! Jón Gabríel Borkmann eftir Henrik Ibsen Frumflutningur á íslensku leiksviði! Borgarnes | Rúmlega fjórum milljónum var úthlutað úr Menn- ingarsjóði Sparisjóðs Mýrasýslu í ár til fjórtán verkefna. Í tilefni af 90 ára afmæli Sparisjóðsins á þessu ári var afhendingin gerð með viðhöfn á Hótel Borgarnesi fyrir skömmu. Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri setti athöfnina og sagði frá tilurð Menningarsjóðsins, en hann var stofnaður fyrir 12 ár- um til minningar um Friðjón Sveinbjörnsson, fyrrverandi spari- sjóðsstjóra. Snorri Þorsteinsson, sem hefur skráð sögu Sparisjóðs- ins á bók, tók því næst til máls. Hann lýsti í stuttu máli hvernig heimilda var aflað og sagði frá uppbyggingu bókarinnar, sem er nýlega komin út og verið að dreifa ókeypis í héraði. Snorri sagðist hafa leitast við að svara spurning- unni um hvort þau markmið sem Sparisjóðurinn setti sér í upphafi hefðu náðst. Þau voru að ávaxta fjármuni íbúa héraðsins og verja þeim til stuðnings góðra og gildra málefna. Snorri taldi að niðurstað- an sýndi ótvírætt að svo væri. Sigurður Már Einarsson stjórn- arformaður afhenti þar næst styrkina og skiptust þeir á eftirfar- andi hátt: Ullarselið á Hvanneyri kr. 200.000, Freyjukórinn kr. 150.000, Samkór Mýramanna kr. 150.000, Söngbræður kr. 150.000, Galtarholt vegna endurbyggingar gamla íbúðarhússins kr. 500.000, Snorrastofa Reykholti kr. 1.000.000, Safnahús Borgarfjarðar vegna svarta salarins kr. 250.000, Ungmennafélagið Dagrenning vegna píanókaupa kr. 50.000, 10. bekkur Grunnskólans í Borgarnesi vegna Danmerkurferðar kr. 200.000, Kleppjárnsreykjaskóli vegna verkefnisins ,,Lesið í skóg- inn“ kr. 50.000, Sögufélag Borg- arfjarðar vegna 40 ára afmælis kr. 150.000, Borgarbyggð vegna land- námsseturs kr. 1.000.000, Ólöf Davíðsdóttir vegna sýningarsalar kr. 100.000, og Sóknarnefnd Borg- arneskirkju vegna kaupa á hljóð- færi í nýtt safnaðarheimili kr. 250.000. Morgunblaðið/Guðrún Vala Ánægðir styrkþegar ásamt fulltrúum Sparisjóðsins. Sparisjóður Mýra- sýslu afhendir úr Menningarsjóði Eyrarbakki | Nemendur Barnaskól- ans á Eyrarbakka og Stokkseyri héldu litlu jólin sín 19. desember. Boðið var upp á ýmis atriði til skemmtunar, en hefð er fyrir því að 4. bekkur leiki helgileik, um fæðingu Jesú. Að þessu sinni var þess minnst sérstaklega að komin er út vönduð bók um sögu skólans í 150 ár. Bókin sem rituð er af Árna Daniel Júl- íussyni hjá Reykjavíkurakademí- unni heitir Skólinn við ströndina. Morgunblaðið/Óskar Magnússon 4. bekkingar syngja jólasálm og nokkrir jólasveinar bíða þess að komast inn. Litlu jólin í skólanum Fagridalur | Áralöng hefð er fyrir viðkomu jólasveina í Víkurskála í Vík í Mýrdal. Þegar vonast var til að þeir færu að birtast beið stór- hópur af börnum eftir þeim með mikilli óþreyju, en á meðan á bið- inni stóð léku Erna Jónsdóttir og Rakel Pálmadóttir nokkur jólalög á þverflautur. Lögreglan í Vík fann svo tvo jólasveina sem voru að flækjast um í nágrenninu og ók þeim í Víkurskála. Þar færðu þeir öllum börnum sælgæti og spjölluðu við þau. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þorgeir Guðnason spjallar við Stekkjarstaur. Jólasveinar í Víkurskála Hveragerði | Helgileikurinn Fæðing frelsarans eftir Hauk Ágústsson er löngu orðinn þekktur hér í Hvera- gerði. Nemendur í 4. bekk grunnskólans hafa það hlut- verk í undirbúningi jólanna að flytja þennan fallega helgileik á jólaskemmtunum skólans, í sunnudagaskól- anum og einnig er hann fluttur fyrir gesti Heilsustofn- unar Náttúrulækningafélagsins. Það ríkir helgi yfir öllu þegar krakkarnir koma syngjandi inn, hvítklædd með geislabauga og lifandi kerti í höndunum. Boðskapur jólanna, fæðing frelsarans er flutt í tali og tónum með fal- legum barnsröddum sem alla bræða. Það er gott að setj- ast niður í annríki jólaundirbúningsins og hlusta á þenn- an fallega boðskap. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Nemendur 4. bekkjar flytja helgileikinn á Heilsustofn- un NLFÍ. Helgileikurinn Húsgögn Ljós Gjafavara Mörkinni 3, sími 588 0640 www.casa.is Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.