Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 41 Jól í Hallgríms- kirkju Á FÆÐINGARHÁTÍÐ frelsarans er að venju mjög fjölbreytt helgihald í Hallgrímskirkju. Á aðfangadag verða fjórar guðsþjónustur á vegum Hallgrímskirkju. Dagurinn hefst á morgunmessu kl. 8 í umsjá sr. Krist- jáns V. Ingólfssonar. Guðsþjónusta verður á Droplaugarstöðum kl. 15 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Félagar úr Gerðubergskórnum syngja undir stjórn Sigríðar Kol- beins. Aftansöngur hefst kl. 18 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar, Schola cantorum og Unglingakór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjónsdóttur og Harðar Áskelssonar, kantors. Klukkustund fyrir athöfn verður leikin jólatónlist í kirkjunni sem Hörður Áskelsson og Hljómskála- kvintettinn annast. Miðnæturguðsþjónusta verður kl. 23.30 í umsjá dr. Sigurðar Árna Þórðarsonar og Magneu Sverr- isdóttur, djákna. Mótettukór Hall- grímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors. Á jóladag verður hátíðarguðs- þjónusta kl. 14. Dr. theol Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskels- sonar, kantors. Annan dag jóla verður hátíð- armessa kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjarts- syni og Magneu Sverrisdóttur, djákna. Mótettukórinn syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggerts- dóttur, organista. Jólamessur á Netinu frá Bústaðakirkju FJÖLMARGIR Íslendingar búsettir í útlöndum sakna þess um jól og ára- mót að hafa ekki tök á því að sækja aftansöng og hátíðarguðsþjónustur í íslenskum kirkjum, svo snar þáttur sem messurnar eru í íslenskum sið- um yfir hátíðarnar. Þótt ekkert komi í staðinn fyrir þann hátíðleika sem fylgir því að sækja kirkju yfir hátíðarnar fleygir tækninni svo ört fram að guðsþjónustur eru sendar heimshorna á milli um Netið. Bú- staðakirkja kom á síðasta ári til móts við óskir þúsunda Íslendinga fjarri heimahögunum með beinum útsendingum á Netinu á www.kirkja.is og mæltist útsend- ingin svo vel fyrir að þúsundir fylgdust með. Ákveðið hefur verið að senda út jóla- og áramóta- guðsþjónustur frá Bústaðakirkju um komandi jól og áramót í sam- vinnu við Opin kerfi og Tónlist.is Mikilvægt er að ættingjar og ást- vinir Íslendinga í útlöndum komi þessum upplýsingum á framfæri og gefi upp slóðina, www.kirkja.is, þar sem hægt verður að sjá og heyra ís- lensku guðsþjónusturnar. Guðsþjónusturnar sem verða fluttar í beinni útsendingu eru: Aðfangadagur 24. desember kl. 18 aftansöngur. Fyrir athöfnina, eða frá kl. 17:15, flytja einsöngvarar úr Kirkjukórnum jólalög, tromp- etleikari er Guðmundur Haf- steinsson. Jóladagur 25. desember kl. 14 Há- tíðarguðsþjónusta – Einsöngvari verður Jóhann Friðgeir Valdimars- son. Einsöngvarar úr Kirkjukórnum flytja jólalög fyrir athöfnina. Annar dagur jóla 26. desember kl. 14 fjölskylduguðsþjónusta – Tónlist í umsjá allra barna- og unglinga- kóra Bústaðakirkju. Stjórnandi er Jóhanna Þórhallsdóttir. Organisti Guðmundur Sigurðsson og Guð- mundur Ingi Rúnarsson leikur á trompet. Gamlársdagur 31. desember kl. 18 aftansöngur og Guðmundur Haf- steinssson leikur á trompet. Nýársdagur 1. janúar kl. 14 hátíð- arguðsþjónusta – Ræðumaður verð- ur Jónína Bjartmars alþingismaður. Margrét Hjaltested leikur á víólu. Á aðfangadagskvöld og jóladag hefjast útsendingar á Netinu með tónlistarflutningi 45 mínútum fyrir athöfn en aðra daga á auglýstum messutíma. Kirkjukór Bústaða- kirkju syngur við messurnar og org- anisti er Guðmundur Sigurðsson. Sóknarnefnd og starfsfólk Bú- staðakirkju biðja öllum blessunar og friðar á jólum. Pálmi Matthíasson. Guitar Islancio í Há- teigskirkju 26. des. FJÖLSKYLDUFÓLK er hvatt til þess að fjölmenna í guðsþjónustu í Háteigskirkju á öðrum degi jóla, 26. desember, klukkan 11. Guitar Islancio leikur jólalög, en tríóið skipa þeir Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson. Mikill almennur söngur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Jóladagskrá Hjálpræðishersins á Akureyri Á jólaDAG kl. 17 er hátíðarsam- koma. Sigurður Ingimarsson og Ranvá Olsen syngja og tala. Laug- ardaginn 27. desember er fjölskyldu - og jólatrésskemmtun kl. 14.30. Sunnudaginn 28. desember kl. 18 er jólafagnaður fyrir heimilissamband, hjálparflokk, hermenn og fjöl- skyldur. Mánudaginn 29. desember kl. 14.30 er jólafagnaður fyrir eldri borgara í Víðilundi 24, Akureyri. Á nýársdag er hátíðarsamkoma kl. 17 þar sem Miriam Óskarsdóttir og Óskar Einarsson taka þátt. Jólahald í Norð- fjarðarprestakalli Á aðfaNGADAG jóla verður aftan- söngur í Norðfjarðarkirkju kl. 18. Bjarni Freyr Ágústsson spilar á trompet. Á jóladag er hátíðarguðs- þjónusta kl. 14 og á annan dag jóla er hátíðarguðsþjónusta kl. 10.30 á Fjórðungssjúkrahúsinu. Morgunblaðið/Ómar KIRKJUSTARF/MINNINGAR Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Erfidrykkjur Heimalöguð kaffihlaðborð Grand Hótel Reykjavík Sími 514 8000 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samhug og stuðning við andlát og útför yndislega drengsins okkar, BJARTMARS JÓNASSONAR, Kirkjuvegi 7, Hafnarfirði. Sérstaklega þökkum við hans góðu læknum, hjúkrunarfólki og öðrum, sem önnuðust hann á Barnaspítala Hringsins. Einnig þökkum við starfsfólki og foreldrum félaga hans á leikskólanum Hjalla, sem og öllum öðrum vinum okkar og vandamönnum, sem veittu Bjartmari og okkur fjölskyldunni ómetanlegan styrk og hlýju í veikindunum og við andlátið. Við óskum þess að þið eigið öll gleðilega og friðsæla jólahátíð. Blessuð sé minning litla ljúflingsins okkar, Rósa Guðbjartsdóttir, Jónas Björn Sigurgeirsson, Sigurgeir Jónasson, Margrét Lovísa Jónasdóttir. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU ELÍASDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landakots, heimahjúkrunar og heimahlynningar Krabbameinsfélagsins fyrir frábæra umönnun. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Kristinn Halldórsson, Fjóla Björnsdóttir, Jean Noel Lareau, Halldór Kristinsson, Áslaug Kristinsdóttir, Eva Kristinsdóttir, Þórdís Jóhanna Lareau og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAJA-GRETA BRIEM, sem lést sunnudaginn 14. desember síðast- liðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. desember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líkn- arstofnanir. Haraldur Briem, Eiríkur Briem, Snjólaug Guðrún Ólafsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir Briem, Ólafur Andri Briem, Maj Britt Hjördís Briem, Eiríkur Briem, Katrín Briem. Útför mannsins míns, bróður okkar, mágs og tengdasonar, HELGA VIÐARS MAGNÚSSONAR, Grandavegi 3, Reykjavík, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 29. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög og líknarstofnanir. Guðni Baldursson, Ægir Axelsson, Þórunn Axelsdóttir, Jónas Þórarinsson, Óskar Axelsson, Lára Magnúsdóttir, Smári Jóhannsson, Baldur H. Aspar Þóra Guðnadóttir FRIÐBJÖRG A. EBENEZERDÓTTIR, Elliheimilinu Grund, Hringbraut 50, lést föstudaginn 12. desember sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur þakka starfsfólki á Frúargangi Grundar fyrir einstaklega hlýja og góða umönnun og þakka öllum skyldum og vanda- lausum sem létu sér annt um Fríðu. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Erla Bergmann, Vilhjálmur Sigurjónsson og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.