Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 46

Morgunblaðið - 22.02.2004, Side 46
SKOÐUN 46 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ                   ! " !   #      $  !% ! &'(    ) (  !!  !   ) &  !!( )     )   '  & !  '  ' ** '  !% +         ! $   & ' ! ! ,! )! - ' !  .  /% )!       " "#"  #  $ 0' % $        & ' ! !  HÁSKÓLI Íslands er lítill há- skóli í hinu alþjóðlega háskóla- samfélagi. Í Háskólanum eru 9.000 nemendur, þar af 1.200 í meist- aranámi og 120 í doktorsnámi. Við Háskóla Íslands starfa um 430 kennarar og 430 aðrir starfsmenn í fullu starfi auk um 2.000 stunda- kennara. Á árunum 1995–1998 voru skráðir nemendur í Háskóla Íslands um 5.900 en á fimm árum hefur þeim fjölgað um meira en 50%. Á árinu 1999 voru kennarar 387 og aðrir starfsmenn 383. Það voru því 17 nemendur bæði á hvern kennara og á hvern starfs- mann á árinu 1999. Á árinu 2003 voru nemendur á kennara og á starfsmann rúmlega 21 því bæði kennurum og öðrum starfs- mönnum fjölgaði aðeins um tæp- lega 12% á meðan nemendum fjölgaði um meira en 50%. Til samanburðar má geta þess að í Stanfordháskóla í Kaliforníu eru 14.339 nemendur, 1.714 kenn- arar og 8.741 aðrir starfsmenn. Við Stanfordháskóla eru aðeins rúm- lega 8 nemendur á hvern kennara á meðan þeir eru 21 við Háskóla Íslands. Kennarar eru álíka margir og aðrir starfsmenn í Háskóla Íslands en í Stanfordháskóla eru 5 starfsmenn fyrir hvern kennara. Heild- artekjur Háskóla Ís- lands á árinu 2003 voru um 6 milljarðar króna en heildar- tekjur Stanfordhá- skóla um 160 millj- arðar króna. Kostnaður á nemanda í Háskóla Íslands er um 700.000 krónur en kostnaður á nemanda í Stanfordháskóla er rúmlega 11 milljónir króna. Hvers vegna virðist framleiðni vera meiri í Háskóla Íslands? Er ekki hagkvæmni stærðar til staðar í Stanfordháskóla? Hvers vegna er kostnaður í Stanfordháskóla ekki hlutfallslega minni en í Háskóla Ís- lands sem er ekki eins fjölmennur og Stanfordháskóli? Samanburður sem þessi er út í hött. Stanfordháskóli rekur há- tæknisjúkrahús og línuhraðal vegna rannsókna í kjarneðlisfræði. Tekjur og gjöld þessara tveggja eininga eru um 31 milljarður króna. Í Stanfordháskóla er um helmingur nemenda í framhalds- námi. Það skýrir hluta af þessari heildarmynd enda er kostnaður við framhaldsnám til muna meiri en við grunnnám. Stanfordháskóli er einn fremsti rannsóknaháskóli í heimi og eru sértekjur vegna rann- sókna um 46 milljarðar króna þeg- ar tekjum vegna rannsókna sem tengjast línuhraðlinum er sleppt. Í Stanfordháskóla er það í stefnu skólans að nemendur í grunnnámi fái tækifæri til að sækja námskeið hjá reyndum kennurum í litlum hópum sem er dýrara en ef stundakennarar kenna stórum hópum nemenda. Bandarískir skólar á háskólastigi Margir telja að fá lönd í heimi bjóði upp á jafn gott nám á há- skólastigi og Bandaríkin. Auðvitað eru skólar misgóðir. Margir skólar á háskólastigi eru ekki mjög góðir í Bandaríkjunum og margir skólar á háskólastigi utan Bandaríkjanna eru mjög góðir. Er- lendir nemendur sækja í bandaríska skóla á háskólastigi og margir þeirra hafa opnað útibú utan Bandaríkjanna. Áhugavert er að skoða bandaríska há- skólakerfið nánar. Á mynd 1 er sýnt hvern- ig Carnegie-stofnunin flokkar bandaríska há- skóla í skýrslu sem stofnunin gaf út á árinu 2001. Carnegie-stofnunin er rannsóknastofnun á sviði mennta- mála sem var stofnuð af Andrew Carnegie á árinu 1905 og var stofnskráin staðfest af Bandaríkja- þingi ári síðar. Tafla 1 Flokkun skóla á há- skólastigi í Bandaríkjunum og dreifing nemenda. Samkvæmt skilgreiningu Carn- egie-stofnunarinnar er rannsókna- háskóli (university) háskóli sem út- skrifar 10 doktora á að minnsta kosti þremur fræðasviðum á ári. Skóli á háskólastigi með meist- arapróf býður upp á fjölbreytt grunnnám og útskrifar a.m.k. 20 meistara á ári. Skóli á háskólastigi með grunnnám útskrifar fyrst og fremst nemendur með BA- og BS- próf. Sérskólar útskrifa nemendur með mismunandi próf á fáum fræðasviðum. Skólar á háskólastigi með tveggja ára nám útskrifa nemendur með diploma-próf. Samkvæmt skilgreiningu Carn- egie-stofnunarinnar eru aðeins 6,7% skóla á háskólastigi í Banda- ríkjunum rannsóknaháskólar. Flestir þeirra eru opinberir og eru reknir á ábyrgð fylkja og aðeins tveir þeirra eru reknir með hagnað í huga. 15,5% skóla á háskólastigi í Bandaríkjunum útskrifa nemendur með meistarapróf. Rúmlega helm- ingur þeirra er rekinn af einkaað- ilum án hagnaðarvonar og 8 eru reknir með hagnað í huga. Rann- sóknaháskólarnir eru langstærstir með að meðaltali 16.258 skráða nemendur. Háskóli Íslands með rúmlega 9.000 skráða nemendur er því mjög lítill rannsóknaháskóli og hann er fyrst á árinu 2003 að ná því marki að útskrifa u.þ.b. 10 doktora á ári. Háskóli Íslands fullnægir kröfum um rannsóknaháskóla Bandaríkjamenn eru 1000 sinnum fleiri en Íslendingar og það er því í raun frábær árangur að Íslend- ingar eigi einn rannsóknaháskóla sem fullnægir þeim kröfum sem viðurkenndar stofnanir í Banda- ríkjunum gera til slíkra háskóla. Það er einnig staðreynd að kenn- ingin um aukna hagkvæmni með stærð á illa við um þjálfun nem- enda í rannsóknartengdu fram- haldsnámi og í grunnrannsóknum almennt þótt hún geti átt við í öðr- um tegundum skóla á háskólastigi. Í töflu 2 er sýnt hvaðan banda- rískir nemendur útskrifast. Meirihluti þeirra sem útskrifast með meistarapróf og embættispróf og rúmlega 90% þeirra sem út- skrifast með doktorspróf útskrif- ast frá 261 bandarískum háskóla. Aðeins rúmlega 4.000 doktorar út- skrifast frá sérskólum á há- skólastigi og skólum sem leggja áherslu á fjölbreytt grunnnám og meistaranám. Rannsóknatengt framhaldsnám og grunnrannsóknir fara því fyrst og fremst fram í mjög fáum tiltölulega stórum há- skólum sem bjóða upp á fjölbreytt námsframboð. Fjölbreytni en fámenni í Háskóla Íslands Á árinu 2003 útskrifaði Háskóli Ís- lands 1.088 kandidata sem lokið höfðu grunnnámi, 144 meistara og 8 doktora. Í 11 fræðigreinum voru kandidatar í grunnnámi fleiri en 30. Þeir voru flestir í 137 í við- skiptafræði og næstflestir 75 í hjúkrunarfræði. Kandidatar voru 44 í iðnaðar- og vélaverkfræði, 43 í lögfræði og tölvunarfræði og 31 í læknisfræði. Í 26 fræðigreinum voru kandidatar 15 eða færri. Meðalfjöldi kandidata í fræðigrein í grunnnámi var 21. Í meistaranámi nær engin fræðigrein að útskrifa fleiri en 30 kandidata á ári og var meðalfjöldi kandidata í fræðigrein 5. Kandi- datar voru flestir 24 í við- skiptafræði og næstflestir 13 í sál- fræði. Í 29 fræðigreinum útskrifuðust færri en 10 kandidat- ar með meistarapróf. Í forsendum samræmdra reikn- ireglna menntamálaráðuneytis sem notaðar eru til þess að reikna út nemendaframlög á háskólastigi er gert ráð fyrir því að í hverjum hópi séu 30 nemendur að með- altali. Þótt Háskóli Íslands sé með fleiri nemendur en aðrir skólar á háskólastigi á Íslandi er hann lítill í samanburði við aðra rannsókna- háskóla í Evrópu og Bandaríkj- unum og í raun er hagkvæmni stærðar meiri í mörgum af fá- mennari skólunum á Íslandi þar sem þeir bjóða einungis upp á nám í fáum fræðigreinum þar sem eft- irspurn er mikil. Rými fyrir valkosti á háskólastigi Ef Bandaríkin eru tekin til fyr- irmyndar er skynsamlegt að bjóða upp á mismunandi valkosti fyrir þá sem vilja stunda nám á há- skólastigi. Það er óraunhæft að gera ráð fyrir því að á Íslandi verði einhvern tíma fleiri en einn rannsóknaháskóli. Til þess eru einfaldlega forsendur ekki til stað- ar. Það er á hinn bóginn rými í ís- lensku menntakerfi fyrir sérskóla á háskólastigi og það er einnig rými fyrir skóla sem bjóða fyrst og fremst upp á grunnnám á vin- sælum fræðasviðum. Háskóli Íslands gegnir því hlut- verki að bjóða upp á nám á flest- um fræðasviðum, bæði grunnnám og framhaldsnám. Háskólanum ber að gegna fjölbreyttum skyld- um sem varða bæði menningu og atvinnulíf. Háskólanum ber skylda til að mennta nemendur og stunda rannsóknir í íslenskum fræðum, sagnfræði, jarðfræði og þeim öðr- um undirstöðugreinum hugvísinda, félagsvísinda, heilbrigðisvísinda, raunvísinda og verkfræði sem skapa munu grundvöll fyrir áfram- haldandi þróun íslensks samfélags. Samfélagið byggir í mun meiri mæli en áður á þekkingu. Grunn- nám ungs fólks áður en það verður 25 ára dugar ekki lengur þeim sem vilja vera virkir þátttakendur í þekkingarsamfélaginu. Lærdóm- ur alla ævi hefur tekið við af lær- dómi í æsku. Þrengri fjárhagsrammi Háskóla Íslands Þegar Háskóli Íslands og mennta- málaráðuneyti gerðu samning um fjármögnun kennslu í október 1999 var gert ráð fyrir að framlag á nemanda í hug- og félagsvís- indum væri 319.345 kr. á verðlagi ársins 1999. Í fjárlögum fyrir árið 2004 hefur framlag á nemanda í hug- og félagsvísindum hækkað í 384.000 kr. eða um 20%. Í vefriti fjármálaráðuneytis sem kom út 20. nóvember 2003 kom fram að laun opinberra starfs- manna hjá ríki og Reykjavík- urborg hækkuðu að meðaltali um 43% frá fyrsta ársfjórðungi 1999 til annars ársfjórðungs 2003. Í vefritinu kom einnig fram að með- allaun kennara og heilbrigð- isstétta hækkuðu um 50% á þessu tímabili. Laun í Háskóla Íslands eru um 67% af veltu og hefði nemendaframlag þurft að hækka um rúmlega 40% í stað 20% á tímabilinu 1999–2004 ef fjárhagsleg staða Háskóla Íslands hefði átt að haldast óbreytt. Í upphafi þessarar greinar kom fram að meðalfjöldi nemenda á fastan kennara hefur hækkað úr 17 í 21 á milli áranna 1999 og 2003 á meðan 8 nemendur eru á hvern kennara í Stanfordháskóla. Það kom einnig fram að í Háskóla Ís- lands eru kennarar og aðrir starfsmenn jafnmargir á meðan í Stanfordháskóla eru aðrir starfs- menn fimm sinnum fleiri en fastir kennarar. Þar sem nemendaframlög hafa ekki hækkað í samræmi við hækk- un raunkostnaðar hefur hvorki verið unnt að fjölga kennurum né öðrum starfsmönnum í samræmi við fjölgun nemenda. Það er einnig staðreynd að á árinu 1999 var fjárveiting á fjárlögum til rannsókna í Háskólanum 67% af framlögum til kennslu en á árinu 2004 er rannsóknafjárveitingin að- eins um 50% af fjárveitingu til kennslu. Fjárhagsrammi Háskóla Ís- lands hefur því þrengst verulega á undanförnum árum. Á sama tíma hefur Háskólinn verið að breytast úr skóla á háskólastigi sem bauð upp á fjölbreytt grunnnám og út- skrifaði nokkra tugi meistara á ári í rannsóknaháskóla sem útskrifar hátt á annað hundrað meistara á ári og u.þ.b. 10 doktora. Rekstur góðs rannsóknaháskóla krefst mikilla fjármuna. Í Háskóla Íslands hefur verið unnið að því á undanförnum árum að auka sér- tekjur skólans. Að nokkru hafa auknar sértekjur komið í stað fjárveitinga á fjárlögum en ef Há- skóli Íslands á að ávinna sér traustan sess meðal rannsóknahá- skóla í heiminum verður að bæta þau fjárhagslegu skilyrði sem hann býr við. HÍ í samanburði við bandaríska háskóla Eftir Ingjald Hannibalsson ’Við Stanfordháskólaeru aðeins rúmlega 8 nemendur á hvern kennara á meðan þeir eru 21 við Háskóla Íslands.‘ Ingjaldur Hannibalsson Höfundur er prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og formaður fjármálanefndar háskólaráðs. Á vormisseri 2004 er hann gestur hjá SCANCOR (Scandinavian Consortium for Organizational Research) við Stanfordháskóla í Kaliforníu. Einka- Einka- Einka- Einka- Fjöldi Fjöldi Meðal- Samtals skólar skólar skólar skólar nemenda nemenda fjöldi 3941 án með án með samtals samtals nemenda skólar á háskólastigi Opinberir hagnaðar- hagnaðar- Opinberir hagnaðar- hagnaðar- # % # skólar vonar von skólar vonar von Rannsóknaháskólar (universities) 166 93 2 4,2% 2,4% 0,1% 4.243.433 28,1% 16.258 Skólar á háskólastigi með meistarapróf 272 331 8 6,9% 8,4% 0,2% 3.230.842 21,4% 5.288 Skólar á háskólastigi með grunnnám 91 499 16 2,3% 12,7% 0,4% 1.039.020 6,9% 1.715 Sérskólar 89 599 106 2,3% 15,2% 2,7% 523.956 3,5% 660 Skólar á háskólastigi með tveggja ára nám 1025 159 485 26,0% 4,0% 12,3% 6.041.946 40,1% 3.620 Samtals 1643 1681 617 41,7% 42,7% 15,7% 15.079.197 100,0% 3.826 Samtals Diplóma- BA/BS- Meistara Doktors- Embættis- Samtals Diplóma- BA/BS- Meistara Doktors- Embættis- Samtals 2.304.898 próf próf próf próf próf próf próf próf próf próf próf próf útskrifaðir # # # # # # % % % % % % Rannsóknaháskólar (universities) 11.328 562.146 250.221 42.024 45.103 910.822 2,0% 47,1% 58,2% 90,9% 57,2% 39,5% Skólar á háskólastigi með meistarapróf 22.955 434.908 148.634 617 9.079 616.193 4,1% 36,5% 34,6% 1,3% 11,5% 26,7% Skólar á háskólastigi með grunnnám 23.773 151.551 5.486 199 1.078 182.087 4,3% 12,7% 1,3% 0,4% 1,4% 7,9% Sérskólar á háskólastigi 18.264 43.715 25.312 3.372 23.660 114.323 3,3% 3,7% 5,9% 7,3% 30,0% 5,0% Skólar á háskólastigi með tveggja ára nám 481.306 167 0 0 0 481.473 86,3% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 20,9% Samtals 557.626 1.192.487 429.653 46.212 78.920 2.304.898 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% TAFLA 2 Hvaðan útskrifast nemendurnir? TAFLA 1 Flokkun skóla á háskólastigi í Bandaríkjunum og dreifing nemenda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.