Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 20

Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 Tökum hunda í gæslu til lengri eða skemmri dvalar. HUNDAGÆSL UHEIMILI Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags íslands ARNARSTÖÐUM, Hraungerðishreppi 801 Selfoss - Símar: 98-21031 og 98-21030 skuldar nú á milli 150 og 250 millj- ónir króna og á litlar eignir. Ástæð- an mun fyrst og fremst vera óhag- kvæmur rekstur, en hátt í 40 manns vinna hjá sölufélaginu . . . u Liklir erfiðleikar steðja nú að Sölufélagi garðyrkjumanna, sem birtist meðal annars í því að tveir stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins, Valdimar Jónasson, hafa sagt starfi sínu lausu. Staða fé- lagsins mun vera hrikaleg; það 1 ndirbúningur handknattleiks- manna fyrir komandi tímabil er nú á fullu. Má meðal annars nefna að Haukar eru á leið- inni til Spánar þar sem verða leiknir sex leikir á sjö dög- um — meðal annars við Spánarmeistara Barcelóna. Með því liði lék Viggó Sig- urðsson, þjálfari Hauka, á sínum tíma og er það ekki síst vegna tengsla hans við liðið sem þessi ferð er farin . . . AUKAFERÐIR TIL DUBLIN Á VERÐI Eins og okkur grunaði seldust ferðirnar til Dublin / upp á örskömmum tíma. Okkur hefur þó tekist að útvega þrjár aukaferðir dagana 10., 17. og 24. nóvember. Ferðirnar eru 4daga/3 nátta og gist verðurá glæsihótelinu Burlington. Verðið er ótrúlegt! ‘Innifalið í verðinu er flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis, írskur morgunverður og islensk fararstjórn. Verð miðast við staðgreiðslu og gengi 16.8. '91. Flugvallar- skattur og fortallagjald er ekki innifalið. HAUSTINU SLEGIÐ A FREST MEÐ SAMVINNUFERÐUM - LANDSÝN! MALLORCA OG BENIDORM Við getum nú boðið góðar SL-íbúðir á frábæru verði á Benidorm og St. Ponsa í nokkrar ferðir í sept- ember. Þetta er tilvalið tækifæri til þess að njóta sólargeislanna á suðurströnd og jafnvel líta í búðir í leiðinni. Verðið er ekki sambærilegt við neitt annað. Verðdæmi: 4 í íbúð í 3 vikur = 38.570 kf. * I M I N I Örfá laus sæti til Rimini 9. og 16. sept.! GOLF A MALLORCA Við efnum til aukagolfferðartil Mallorca dagana 1. - 8. október því golfferðin 8.-16. október seldist upp. Búið verður í íbúðum í Cala d'Or og spilað á Vall d'Or, gullfallegum og viðráðanlegum velli skammt þar frá. Fararstjóri verður Kjartan L. Pálsson. VINSMOKKUNARFERÐ Ógleymanleg vínsmökkunarferð til Þýskalands 13. sept. Fararstjóri verður Sigrún Aspelund og gist verður í sumarhúsum. Við leggjum Rínardalinn undir okkur og dreypum á uppskeru ársins. EGYPTALAND Ævintýraferðir til Egyptalands 28. sept., 19. okt. og 16. nóv. - lands leyndardóma og stórbrotinnar sögu. Samvinnuferðir - Landsýn minna á: Við viljum vekja athygli á leik Fram og Víkings sunnu- daginn 1. sept. kl. 16. Allir á Laugardalsvöllinn og hvetjum okkar menn! 'Verð miðast við staðgreiðslu og gengi 16. 8. '91. Flugvallarskattur og forfallatrygging er ekki innifalið. Sainvinniiferúir-Líiiulsýii Reykjavík: Austurstræti 12 * S. 91 - 69 10 10 * Innanlandsferðir. S. 91 -69 10 70 Simbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbrét 91 - 62 39 6 Akureyri: Skipagötu 14 • S 96 - 27 200 • Símbrét 96 - 2 75 88 • Telex 2195 kJérstakur fréttaflutningur Stöðv- ar 2 í tengslum við meintan eitur- lyfjainnflutning vakti athygli og sér- staklega þegar lögreglan sendi frá sér fréttatilkynningu um að heim- ildamaður Stöðvarinnar væri annál- aður lygamörður og vissi ekkert í sinn haus. Nú er ljóst að viðkomandi fréttamaður, Árni Gunnarsson, verður að súpa seyðið af þessu og hefur hann nú hætt störfum á frétta- stofu Bylgjunnar og Stöðvar 2 . . . kjkipun Þorsteins Pálssonar á nýjum hæstaréttardómara hefur vakið nokkra athygli. Ekki þar fyrir að menn telji ekki Pétur Kr. Hafstein verðugan í embætt- ið, heldur hitt, að við valið var gengið framhjá tveimur reyndum dómurum í Borgardómi, þeim Auði Þorbergsdóttur og Garðari Gíslasyni. Pétur er með yngstu mönnum sem skipaðir hafa verið hæstaréttardómarar, helst að hann jafnist á við Þór Vilhjálmsson, sem var kallaður undrabarn á sín- um tíma. Menn telja að Pétur hafi notið þess að vera gamall skóla- bróðir Þorsteins auk þess sem hann er af góðum og gegnum sjálfstæðis- ættum . . . V, issuð þið að síðastliðinn vetur var 131 íslenskur nemandi að læra arkitektúr við erlenda skóla. Þá voru 33 að læra fatahönnun, 95 fjöl- miðlun, 20 að nema heimspeki, 49 kvikmyndagerð, 42 ljósmyndun og 151 las viðskiptafræði við erlenda skóla á síðasta vetri. .. ólitísk endurkoma Gústafs Ní- eissonar, sem nú hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna í stað Ólafs Arnar- sonar, hefur vakið athygli. Gústaf var stuðningsmaður Gunnars Thorodd- sen á sínum tíma og einnig í hulduher Alberts Guðmundssonar. Albert launaði honum góða þjónustu og gerði hann að skrifstofustjóra í ÁTVR. Þaðan fór hann skyndilega en er nú kominn fram á sjónarsviðið á ný . . . M, Leðal þeirra mála sem flutt verða í Hæstarétti í vetur er mál sem Kristinn Guðbrandsson i Björgun á í gegn Kirkjubæjarhreppi. Þar er deilt um hvort Kristinn eigi að greiða fjallskilagjald eins og aðrir jarðeig- endur í hreppnum. Kristinn hefur ekki viljað greiða þetta gjald þar sem hann er ekki með fé á jörðum sín- um, en Kristinn á tvær jarðir í Kirkjubæjarhreppi, Eystri-Tungu og Ytri-Túngu. Jarðirnar eru nú skráðar sem ein eign og heita einu nafni; Tunga. Kirkjubæjarhreppur vann málið í héraði. Kristinn vildi ekki una þeim dómi og áfrýjaði til Hæstaréttar. .. B ‘ifreiðaskoðun Islands er eitt helsta umfjöllunarefnið í nýjasta hefti Frjálsrar verslunar. Blaðið reiknar meðal annars út hvað þjón- ustugjöld hafa hækkað síðan Bif- reiðaskoðun íslands tók til starfa í byrjun árs 1989. Sem dæmi má nefna að aðalskoðun vörubíla hefur hækkað um 198 prósent, númera- plötur um 167 prósent og nýskrán- ing bíla hefur hækkað um 52 pró- sent á sama tíma og laun í landinu hafa hækkað um 35 prósent...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.