Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 4

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992 um ís, ekki bara í þessu tilfelli heldur í gegnum árin.“ LÉLEG MYND AF RÁÐ- HÚSI „ UndirrítaÖur er ekki alveg nógu ánœgÖur meÖ frásögn IjósvakamiÖla af opnun ráÖ- hússins. I ríkisútvarpinu var vígslan ekki fyrsta frétt í kvöldfréttatíma og sjónvarps- stöövarnar gáfu ekki ncegi- lega góÖa mynd af húsinu. ÞaÖ skiptir ekki máli hvort menn eru meö eöa á móti slíkum byggingum.“ Ólafur M. Jóhannesson, Mbl. Friðrik Páll Jónsson, vara- fréttastjóri Ríkisútvarpsins: ,JÉg held að við höfum sinnt þessu bara ágætlega. Þetta var fyrsta frétt í hádeginu, fyrsta í fréttayfirlitinu, urn kvöldið ein- hvers staðar miðbiks og allur fréttaþátturinn Hér og nú, sem A((V er á vegum fréttastofunnar, var um þetta mál líka. Auk þess voru beinar útsendingar á Rás 2 sem em ekki á vegum fréttastof- unnar." ÓTRÚLEGUR MUNN- SÖFNUÐUR „Það er meÖ ólíkindum hvað áhorfendur geta œst sig á íþróttakappleikj- um. I Víkinni verða blaöamenn meira varir við það en í flestum öðr- um húsum þar sem áhorfendur og blaðamenn sitja næst- um hlið við hlið. Munn- söfnuður sumra þeirra, en sem betur fer fárra, er með ólíkindum og það hlýtur að koma liÖi þeirra betur að vera hvatt áfram á annan hátt en skíta mótherjana út með fúk- yrðum." Íþróttasíóa Mbl. Sigurjón Friðjóns- son, framkvæmda- stjóri handknattleiks- deildar Víkings: „I raun ættu þeir að svara sem em með þenn- an munnsöfnuð. Annars hafa dómarar kvartað mjög mikið undan þessu. Þetta er bara keppnisskapið í mönnum og lítið að gera í því annað en að biðja þá að vera úti, — sem myndi náttúrlega aldrei ganga upp.“ EINRÆÐISHERRA UR TAKT „Tímarnir hafa brcyst síÖ- an bœjarstjórinn gerðist ein- rœðisherra á Seltjarnarnesi fyrir rúmum aldarfjórðungi. Þegar einrœðisherrar hœtta að geta lagað sig að nýjum timum og n ý j u m áher slum getur komið brestur í ein- rœÖiÖ, svo sem nú hefur orðið á Sel- tjarnarnesi.“ Jónas Krist- jánsson, lelóari DV. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnar- nesi: ,Ég hef ekki neinu við þetta að bæta. Jónas hefur skrifað svona tvo, þijá leiðara áður. Eg held ég mundi bara hvetja Sel- timinga til að skoða nesið okkar og sjá hvort það er honum sam- mála. Ef fólk er honum sam- mála um að hér hafi verið gerðir hlutir sem betur hefðu verið ógerðir þá vildi ég gjaman heyra um það.“ Á að leyfa frjálsan af- greiðslutíma veitinga- húsa? DAPURLEGIR VINÁTTU- LEIKIR „Fyrir nokkru léku lands- liðsmenn Islands í knatt- spyrnu svokallaðan „vináttu- leik“ við liö Israelsmanna. Framganga Israelsmanna gegn Palestínumönnum gegn- um tíðina er með svo hroða- legum hætti að líkt hefur verið við framgöngu SS og Gestapo gagnvart hernumdu löndun- um í seinni heimsstyrjöldinni. ÞaÖ er dapurlegt að íslensk íþróttaæska skuli finna hvöt hjá sér til að sýna slíkum hrottum vináttu. Þar leggur hún lóð á vogarskálar hiyöju- verka í heiminum.“ Guöjón V. Guömundsson, les- endabréf í DV. Eggert Magnússon, for- maður Knattspyrnusam- bands íslands: „Við blöndum ekki saman pólitík og íþróttum. Ef við gerð- um það þá væmm við oft á hál- Að undanfömu hafa svonefndir næturklúbbar verið mjög í umræð- unni og þær raddir gerast æ háværari, að tímabært sé að rýmka af- greiðslutíma veitingahúsa. Dómsmálaráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um hvað gæti farið betur í þessum efnum. JÓN PÉTURSSON Vrtjh formaður Lögreglufélags ReykjavífC^JSjjfc? „Ég var nú dyravörður í Vetrargarðinum og Þórscafé í gamla daga þegar mun strangari reglur giltu um þetta og þær vom allt of strangar. Mér finnst ekkert vití að vera að tímasetja þetta ná- kvæmlega, hvort heldur er klukkan hálftólf, þrjú eða fimm. Mín vegna mætti vera opið allan sólarhringinn. Hafi menn þrek í að vera að drekka, dufla og djamma svo lengi þá er það bara ánægjuefni.“ TÓMAS A. TÓMASSON veitingamaður „Ég tel að óbreytt ástand sé öllum Það hefur verið reynt að lengja hann áður, en traffíkin flyst þá bara áfram. Ef þessu yrði breytt... tja ætli skemmtistaðimir fylltust þá ekki um klukkan þrjú. Það er nógu slæmt að þeir skuli ekki fyllast fyrr en klukkan tólf eða hálfeitt núna, þannig að ég get ekki ímyndað mér að það bætti stöðuna þó að það væri op- ið til fimm. Þetta var fínt þegar allir þurftu að vera komnir inn fyrir klukkan hálftólf og menn hreyfðu sig ekki út!“ rir bestu. WILHELM WESSMAN hótelstjóri og formaður Sambands veitinga- og gistihúsa „Já, tvímælalaust. En það er vitaskuld að því til- skildu að leyfi séu eingöngu veitt til staða, sem uppfylla mjög ströng skilyrði hvað aðbúnað og annað slíkt varðar. Á hinn bóginn ér ég alger- lega andvígur þessum ólöglegu stöðum, sem eru reknir í skúrum og bakhúsum. Og það þarf að endurskoða allar þessar reglur, því mörg ákvæði þeirra hafa þær afleiðingar einar að við getum ekki sinnt kúnnum okkar, sem getur verið mjög bagalegt, ekki síst á hótelunum.“ ÞORARINN TYRFINGSSON læknir og forstöðumaður Vogs „Mitt álit er það, að við eyðum allt of miklum tíma í að ræða smáatriðin á sama tíma og við lát- um eiga sig að meta heildarmyndina og móta heildarstefnu í samræmi við það. Á að leyfa bjór eða ekki, á að leyfa börum að vera opnir á þess- um tíma eða hinurn? Menn þurfa bara að spyrja sig hvað þeir vilja. Er það stefnan að miðbær Reykjavíkur verði eins og Franska hverfíð í New Orleans? Ef það er stefnan, þá gerum við það bara þannig að menn hafi ótakmarkað frelsi til að selja vín. Verður þá ekki heimsendingarþjónusta úr Áfengisversluninni næst? Mér finnst frelsið orðið alveg nóg, hver sá sem ætlar sér og vill drekka sig fullan í dag getur það alveg án þess að reglumar verði neitt rýmkaðar. Svar mitt við spumingunni er nei.“ GUÐVARÐUR GÍSLASON veitingamaöur „Ég tel algert frelsi óheppilegt, ( rýmka vemlega til. Ég hef ekkert á yfir daginn í stað þessarar vitleysu milli þrjú og sex. Og þetta væl á laugardögum fyrir páska og svo framvegis er bara gamaldags. Gott og vel með helgidagana, en að vera að loka klukkan hálftólf kvöldið áð- ur er tóm tjara. Hins vegar finnst mér ekki rétt að menn geti haft opið langt frameftir nóttu, nema þá staðir sem uppfylla viss skil- yrði. Þeir þyrftu til dæmis að bjóða upp á lifandi skemmtiatriði, afgreiða mat til lokunar og vera almennt í fínni kantinum. Síðan mætti kannski setja skilyrði um að þeir þyrftu að rúma einhvem lágmarksfjölda, til dæmis 4—500 manns.“ að má móti frelsi PRESSAN/Jim Smarl er formaður Rauða kross Islands. Hann segir það skrifast á sameiginlega ábyrgð þjóðarinnar að þró- unaraðstoð íslend- inga hefur aðeins náð broti af þeirri upphæð sem Sam- einuðu þjóðirnar gera ráð fyrir að renni til nauð- staddra. Guðjón ræðir hér um aðstoð við þróunarlönd, — ekki í ljósi sorgarat- burðarins í Kabúl, — heldur út frá al- mennu sjónarmiði. Hver eru siðferðisleg rök fyrirþví að veitt er þróunaraö- stoð? „Fyrst vil ég nefna mun á þró- unaraðstoð og neyðarhjálp, en í alþjóðasamstarfi er gerður mjög skýr greinarmunur á þessu tven- nu. Neyðarhjálp er veitt við nátt- úmhamfarir og styrjaldir, öll hjálp sem telst til skamms tíma. Það em allir sammála um að neyðarhjálp sé eitthvað sem er siðferðislega rétt, sjálfsagt og eðlilegt. Þróunaraðstoð er hins vegar langtímaverkefni. Að sjálfsögðu hangir þetta tvennt saman því oft þarf fyrst að veita neyðarhjálp, í mánuði eða ár, en þróunaraðstoð getur varað í áratugi. Mönnum hefur skilist það smám saman að þróunar- hjálp hefur meðal annars það hlutverk að hægt er að koma í veg fyrir þörf á neyðarhjálp á að- þrengdum svæðum ef aðstoðin er markviss og nógu mikil. Það er afar keðjuverkandi ferli sem á sér stað í þessum löndum. Út frá peningalegum sjónar- miðum er neyðarhjálpin einnig mjög dýr og er þróunaraðstoðin því séð sem góð íjárfesting til að draga úr kostnaði, auk þess sem hún auðvitað dregur úr hörm- ungum og manntjóni. Þróunar- aðstoðin er þarafleiðandi sið- ferðislega réttlætanleg á sama máta og neyðarhjálpin er talin siðferðislega nauðsynleg. Stundum gætir óþolinmæði meðal þeirra sem ekki þekkja til og þeir hinir sömu telja að þró- unaraðstoð skih ekki árangri og geri jafnvel illt verra. Við verð- um hins vegar að athuga að það tekur þetta fólk tíma að komast á það menningarstig sem við lif- um á og aðgerðir verða að vera í takt við það sem íbúar eru færir um að tileinka sér. Okkur er tamt að láta gildismat okkar vera að- almál, en fyrir íbúa þróunarlanda er gildismatið allt annað. Þetta gleymist oft í aðstoðinni og getur valdið því að tekist er á við verk- efni sem skila ekki tilætluðum árangri þar sem skortur er á rétt- um forsendum.“ Sameinuðu þjóðirnar gera ráð fyrir að 0,7 prósent af þjóÖarframleiðslu renni til þróunarhjálpar. Islendingar hafa aldrei staðið við þetta. Hvers vegna stöndum við okk- ur ekki betur? ,Jig held að aðalástæðan sé sú að við erum óskaplega eigin- gjöm þjóð. Við íslendingar höf- um, að mínu mati, ekki mikla samkennd með öðnun þjóðum, sem er að hluta til vegna ein- gangrunar okkar þar sem við höfum þurft að bjarga okkur í harðbýlu landi. Við höfum held- ur ekki orðið fyrir eins miklum þrýstingi að uppfylla þessi rnark- mið og hinar Norðurlandaþjóð- imar. þar sem hafa verið hópar hugsjónafólks sem ekki hafa lát- ið stjómvöld í friði með að leggja sitt af mörkum og einnig verið mun virkari í ýmsum al- þjóðastofnunum. Einnig ma benda á að þegar loka á fjárlög- um vantar alltaf fé til þróu- narhjálpar. Hún hefur aldrei haft neinn sérstakan vörslumann. fslendingar hafa einnig Iítið veitt hjálp í formi tækja líkt og aðrar þjóðir, en langmesta fram- lagið hefur verið í formi mann- afla og peninga. Þetta breytir þvi þó ekki að siðferðislega ætwm við ekki að leggja minna af mörkum en aðrar þjóðir.“ Sett hefur verið á laggirnar nefnd til að endurskoða þessi mál. „Nefndin hefúr skilað áhti ný- lega og gerir tillögu um að auka ffamlag um 10 prósent á næsta ári og stefnt er að því að aðstoðin verði 0,2 prósent af þjóðarfram- leiðslu að fimm árum liðnum.“ Var þessi 0,7 prósenta áætl- un þá óraunhæf alvegfrá upp- hafi? .Reynslan hefur sýnt að ekki margar þjóðir hafa náð þessu maiki. Það má því segja að þetta hafi verið bjartsýn áætlun fyrst hún hefur ekki gengið upp. En þess má geta að jafnvel þó að við myndum ekki gera annað en að ná helmingi af þessari tölu þyrft- um við að tífalda ffamlög okk- ar.“ Hverjum er um að kenna að málstaðnum er ekki meiri gaumur gefinn? ,Jig myndi nú ekki treysta mér til að finna einn sökudólg í þessu máli og ég tel að sameigin- leg samviska þjóðarinnar beri þar ábyrgð á. Menn hafa skotið sér bak við það að stundum hafi árað illa á íslandi en í raun hefúr oft árað afskaplega vel. Aðalrök- in erujxr að við höfúm h'tið farið í gegnum umræðuna um „á ég að gæta bróður míns?“.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.